Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1983, Side 41
DV. LAUGARDAGUR10. DESEMBER1983.
við nokkra leikmenn. Félagið gat svo
keypt mun fleiri en það seldi vegna
þess hve gott verð fékkst fyrir
Thomas, Sealy, Gillespie og Melrose.
Bobby Gould
Nýr stjóri var ráðinn og ekki ófræg-
ari maður en gamla markamaskínan
Bobby Gould. Hann gerði það gott á
sjöunda áratugnum. Gould var einn af
þeim sem aldrei gat setið kyrr á rass-
inum. Alls lék hann með 10 liðum á
leikferli sínum sem entist í 15 ár. Fræg-
astur var hann þó fyrir að vera leik-
maður Ulfanna og Arsenal en lék einn-
ig með WBA og West Ham svo einhver
lið séu nefnd.
I október 1981 gerðist hann aðstoðar-
þjálfari Aldershot í f jórðu deild. Hann
hélt það þó ekki lengi út og var stuttu
seinna kominn til Chelsea og gerðist
þjálfari. Gould var látinn fjúka með
Geoff Hurst þegar þeim mistókst aö
koma Chelsea í fyrstu deildina.
Þá fór Bobby Gould að spila fótbolta
á nýjan leik og nú með Bristol Rovers.
Stuttu síöar var hann svo orðinn fram-
kvæmdastjóri þess liðs. I maí 1983 kom
hann svo til Coventry þar sem hann
haf ði hafiö knattspyrnuferil sinn.
Eins og f yrr segir bj uggust f lestir við
að verkefni Gould yrði honum ofviða,
en hann hefur gefið efasemdamönnun-
um langt nef og stýrir nú spútnikliði
fyrstu deildarinnar. Það er bara von-
andi að ekki fari eins fyrir þessum
spútnikum og tveim síðustu, Swansea
og Watford.
Þeir sem urðu eftir
Hér á eftir er svo kynning á leik-
mönnumCoventry:
Brian Roberts: 28ára Englendingur,
fæddur í Manchester. Hann hefur verið
hjá Coventry allan sinn leikferil ef frá
er skilinn einn mánuður í láni hjá
Hereford. Roberts er fyrirliði
Coventry.
Steve Jacobs: 22 ára miðvörður
sem ekki hefur komist í aðalliöið að
undanförnu. Hann hefur verið hjá
Coventryíþrjúár.
Peter Hormantschuck: Bakvörður
sem hóf leiktímabilið í aðalliðinu en
hefur nú misst sæti sitt. Hann er 21 árs
og lék sinn fyrsta leik í fyrra.
Ian Butterworth: Bakvörður sem er
aöeins átján ára en hefur samt leikið
yfir 40 leiki með aðalliðinu. Hann var
rétt nýorðinn sautján ára þegar hann
lék sinn fyrsta leik. Hefur leikið
nokkra leiki þetta leiktímabil en ekki
náð fótfestu í liðinu.
Gerry Daly: Það þótti talsvert
merkilegt að hann skyldi ekki fara
með allri súpunni í sumar, því hann
hafði algerlega verið látinn afskipta-
laus í varaliðinu öll þau ár sem
Sexton var við stjórnvölinn. Daly tók
hins vegar sénsinn á því að hinum
nýja stjóra litist betur á hann en þeim
gamla. Gould byrjaði með hann í lið-
Terry Gibson, fyrrum leikmaður
Tottenham, hefur skorað
8 mörk í 1. deUd.
Brian Roberts, fyrirUði Coventry, sést
Graeme Sharp sem er að kljást við hann.
inu. en eftir einn og hálfan mánuð var
Daly kominn i sömu stööu og fyrr, í
varaliðiö. Hann hefur nú farið fram á
sölu frá liðinu. Daly lék með Man-
chester United og Derby áður en hann
kom til Coventry en hefur einnig verið í
láni hjá Leicester.
Martin Singleton: Tvítugur tengUið-
ur sem lék sína fyrstu leiki í fyrra.
Hann hefur leikið flesta leiki Coventry
í vetur en ekki náð að tryggja sér fast
sæti.
Steve Hunt: Frægasti leikmaður
liðsins. Hann er sóknarleikmaður sem
hófferUsinnhjáAstonVUla. Þaðanlá
leiðin til USA þar sem hann lék með
Cosmos. Hann kom síðan tU Coventry
fyrir 5 árum og hefur haldið sig þar síð-
an. Hunt átti við lítilsháttar meiðsli að
stríða í haust en þegar hann var búinn
að ná sér af þeim virtist Gould ekki
hafa nein not fyrir karl. Hann varð því
að dúsa í varaliðinu þar til fyrir stuttu
að hann komst aftur í liðið.
John Hendrie: Tvítugur sóknarleik-
maöur sem átt hefur í erfiðleikum með
að ná athygli framkvæmdastjórans.
Keith Thompson: Yngri bróðir Gary
Thompson, fyrrum leikmanns
Coventry sem nú er hjá WBA. Þykir
mikið efni en dagur hans er ekki kom-
inn enn sem komiö er.
Perry Suckling: Atján ára mark-
vörður sem veitt hefur Raddy Avramo-
vic harða keppni. Suckling lék meö
enska drengjalandsliðinu hér á landi í
haust.
Þeir sem komu
Og þá er komið að nýju leUcmönnun-
um:
Trevor Peake: 26 ára miðvörður sem
keyptur var frá Lincoln City, þar sem
hann var fyrirliði. Kaupverðið var
100.000 pund og kom sú upphæð á
óvart. Peake hefur hins vegar sannað
að hann var peninganna virði og er
fastamaður í liöinu.
Mick Adams: 22 ára varnarleikmaö-
ur sem lék til aö byrja með í sókninni
en hefur nú alveg dottið út úr mynd-
inni. Hann var keyptur frá GUlingham
fyrir 75.000 pund. Adams hefur leUcið
með enska unghngalandsliðinu.
Graham Whitey: Ungur sóknarleik-
maður sem lék sinn fyrsta deUdarleik í
fyrra með Bristol Rovers. Hann gerði
10 mörk í tuttugu leikjum og var það
nóg til að Gould snaraði fram 35.000
pundum fyrir strák. Whitey hefur spU-
að 10 leiki með Coventry, flesta sem
varamaður, og skorað tvö mörk. Mikið
efni þaráferð.
Dave Bennett: Hann lék úrsUtaleik-
inn í bikarkeppninni fyrir þremur ár-
, um er liö hans Manchester City tapaði
'fyrir Tottenham. Bennett vakti athygU
fyrir mikla baráttu og kom þaö því á
óvart er hann var seldur í þriðju deUd-
hér í leik gegn Everton. Það er
ina tU Cardiff. Þar lék hann þar tU í
haust er hann kom tU Coventry fyrir
100.000 pund. Honum hefur vegnaö vel
hjá sínu nýja félagi og er í þann veginn
að vmna sér fast sæti.
Nicky Platnauer: Kom með Whitey
frá Bristol R. fyrir jafnháa upphæð,
35.000 pund. Platnauer hefur leikið í
öllum leikjum Coventry, en ekki er
hægt að segja að hann hafi tryggt sér
fast sæti því að hann hefur bæði leikið
sem sóknarleikmaöur, bakvörður og
varamaður.
David Bamber: Sóknarleikmaður
sem kom frá Blackpool fyrir 55.000
pund. Bamber er 24 ára og hefur leikiö
sem fremsti maöur Coventry og gert
fimm mörk.
Ashley Grimes: Irskur landsliös-
maður sem keyptur var frá Manchest-
er United fyrir 250.000 pund. Honum
tókst Ula að vinna sér fast sæti á miðj-
unni hjá „Rauöu djöflunum” enda vart
þverfótað þar fyrir frábærum leik-
mönnum, og óskaði því eftir sölu.
Grimes er fastamaður hjá Coventry.
Terry Gibson: Hóf ferU sinn í fyrra
hjá Tottenham með pompi og prakt.
Hann gerði tvö mörk í sínum fyrsta
leik, gegn Everton sem endaði 2—1. En
líkt og á miöjunni hjá United þá er
varla líft fyrir frábærum leikmönnum í
sókn Tottenham og Gibson, sem er
fimm sentímetrum minni, sá j)ann kost
vænstan að fara frá félaginu. Hjá
Coventry, sem greiddi 70.000 pund
fyrir hann, skoraði hann líka í fyrsta
leiknum og er nú markahæsti leikmað-
urliösins.
Micky Gynn: 22 ára tengUiður sem
hafði verið besti leikmaður fjórðu
deUdarliösins Peterborough. Þaðan
var honum hleypt til Coventry fyrir
60.000 punda greiðslu. Gynn hefur leik-
iö hingaö og þangaö um vöUinn með
sínu nýja liði en hefur ekki náð föstu
sæti frekar en flestir aðrir.
Raddy Avramovic: 35 ára Júgóslavi
sem kom frá Notts County. Hann hefur
fengið harða samkeppni þar sem
Perry Suckling er og hafa þeir leikið
jafnmarga leiki. Avramovichefur leik-
iö með júgóslavneska landsUðinu.
Sam AUardyce: Leikreyndur
miðvörður sem leikið hefur með
Bolton, Sunderland og MUlwaU. Hann
er þrítugur að aldri og hefur nú náð
föstu sæti í liðinu.
Mikið úrval
Eins og af þessum lista má sjá þá er
úrvalið nóg og Brian Roberts, Terry
Gibson, Trevor Peake, Sam Allardyce
og Ashley Grimes eru þeir einu sem
kaUast geta fastir í sínum stöðum. Hin-
ir 16 bítast um þær sex stöður sem eftir
'eru.
Gangi þeim vel.
SigA
Kópavogsnesti, Nýbýlavegi 10.
I í tilefni af opnuninni fá börnin rjómaís frá
I Emm-ess í dag.
I Opið frá mánudegi—föstudags kl. 7.30—
I 23.30, laugardaga kl. 8—23.30 og sunnu-
I daga frá kl. 9—23.30.
I
■ NÝKOMIÐ
Furu-sófasett
Furu-borðstofuhúsgögn
Hjónarúm í miklu úrvali
Munið okkar hagstæðu
greiðsluskilmála.
jia
Jón Loftsson hf.
A A ▲ A A A
-=• — ^ - 13 aurXT
Hringbraut 121
Húsgagnadeild
JEnaaraf’'
Simi 10600
Sími 28601