Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1984, Blaðsíða 1
Iðnaðarráðherra snýr við blaðinu:
„Launaramminn
dugirekki"
„ Að ýmsu leyti sammála/' segir forsætisráðherra og telur
6% launahækkanir hugsanlegar
„Eg get aö ýmsu leyti sagt að ég er
sammála því sem Sverrir segir í
þessu viðtali. Kjarasamningar eru
víðtæk og viðkvæm mál og það þarf
ákveðinn sveigjanleika. Þótt ríkis-
stjómin hafi sett markið við 4% al-
mennar launahækkanir sé ég til
dæmis ekki að það kollvarpi öllu ef
þær teygðust í 6%, sérstaklega ef
þeir lægst launuðu nytu þess mest,”
sagði Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra í morgun.
I blaðaviötali í morgun segir
Sverrir Hermannsson iðnaðarráð-
herra: „Eg geri mér ljóst að for-
sendur í f járlögunum — og nú er ég
að segja mjög viðkvæman hlut —
nægja ekki til að ná sáttum á vinnu-
markaönum, og þá sérstaklega með
einhverjum hætti til að koma til móts
við þá sem berjast í bökkum með lífs-
framfæri sitt.”
Á mánudaginn sagði iðnaðar-
ráðherra aftur á móti i þingræðu það
sína skoðun að ríkisstjómin ætti
þegar í stað að segja af sér ef launa-
rammi ríkisstjórnarinnar yrði
sprengdur.
„Þetta skýtur nokkuð skökku við,”
sagði forsætisráðherra í morgun um
sinnaskipti Sverris, „en hann hefur
setið hinum megin við borðið og
skilur hvernig svona hlutir gerast.
Eg er ekki að mæla meö því aö þeim
markmiöum sem við höfum sett
verði fórnað en þótt launin hækki um
svona 6% i staðinn fyrir 4%, verð-
bólgan verði 10% í staðinn fyrir
neðan það og viðskiptahalli út á við
2% fyrir 1%, sé ég ekki að slík breyt-
ing ráði úrslitum.
Ef okkur sýnist hins vegar að
samningamir snúi þróuninni við
hljóta stjómarflokkamir að meta
framtíð stjórnarinnar á ný.”
HERB
Agi verður að
vera f hemum
Sjá/fur Hit/er strunsar um svið Þjóð/eikhússins, i háum loðurstígválum,
hólkvíðum buxum, með hakakrossinn og Chaplin-skeggið og undir
dynur Horst Wessel-söngurinn. Það er verið að fœra upp leikritið Góði
dátinn Svejk isiðari heimsstyrjöldinni, eftir Berthold Brecht, og styttist
nú óðum i frumsýninguna. Sigurður Sigurjónsson sveiflar upp
handleggnum ikveðjuskyni, ihlutverkiAdolfs.
Agi verður að vera i hernum, sagði Svejk, eins og frægt er orðið.
DV-mynd EÓ.
FÓLK VILL EKKI
STÓRKUU
NEMA HÚN
GREHH GÓÐLAUN
— Öm Friðriksson, trúnaðarmaður starfsmanna
í álverinu, spurður í þaula — sjá bls. 20
Plötusöfnun
— sjá bls. 38-39
Þurfti
flugmálastjórn
Saab-túrbó?
— sjá bls. 16
Loðnaner
komin
— sjá bls. 36
Wömer
viðurkennir
mistök
— sjá erlendar
fréttir bls. 9
Hvað kostar
hársnyrtingin?
— sjá bls. 6
Gosið stendur
höllumfæti
— sjá bls. 36
Menningarverð-
launDVverða
veitt
16. febrúar
-sjábls. 14-15
Skíðaiyftaí
Stykkishólmi
-sjábls.2