Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1984, Qupperneq 39
tfwt ÍTATTÍTR.'ÍT'ÍÍ P (TIIOAntTTMMT'3 VH
DV. FIMMTUDAGUR 2. FEBRUAR1984.
39
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
Haraldur Örn Haraldsson, 28 ára Garöbæingur. Frá 9 ára aldri hefur hann
safnað hljómplötum. Fyrsta platan var með Savannatrióinu. Hér heldur
Haraldur á plötu með uppáhaldssöngvaranum sinum, bandariska kántri-
söngvaranum Jim fíeeves, sem fórst i flugslysi árið 1964.
flest nýjustu kántrílögin leikin.
Á milli klukkan ellefu og tólf á
morgnana er til dæmis mjög góöur
kántríþáttur. Stjómandi hans heitir
Bob Murrie. Þaö er hægt aö hringja í
hann og biöja um lag sem hann síðan
spilar. Eg hef oft notfært mér það.
Sá sem var meö þennan þátt áður hét
Joy Lahr og ég kynntist honum lítils-
háttar. Hann var mjög almennilegur.
Kom til dæmis og náöi í mig og sýndi
mér útvarpsstööina á Keflavíkurflug-
velli.”
— Hvaöáttumargarhljómplötur?
„Eg veit þaö hreinlega ekki. Hef
aldrei tekið þaö almennilega saman.
En þær eru orðnar margar.”
Bandariski kántrísöngvarinn Jim
Reeves, sem fórst í flugslysi, er uppá-
haldssöngvari Haralds. En fleiri eru
vinsælir. „Eg held einnig mikiö upp á
menn eins og Don Williams, Johnny
Plötusöf nun og innlit á þingpallana
í firnagóðu skapi á fimmtudegi býður Dvölin góöan daginn með því að setja gamla góða stefið: „komiði sælir fé-
lagar og vinir góðir” á fóninn.
Enn förum við vítt og breitt um áhugamál fólks. Að þessu sinni fjöllum við um hljómpiötusöfnun og hlustun á Al-
þingi, ef svo má að orði komast.
Viðmælcndur okkar eru þrir. Fyrst er rætt við Harald Örn Haraldsson, 28 ára Garðbæing, sem hefur keypt marg-
ar hljómplöturnar, svo ekki sé fastara að orði kveðið. Haraidur er sannur aðdáandi tónlistar sem kölluð hefur verið
kántrí-western.
Þá er það Ivar Helgason. Hann keypti sína fyrstu plötu í scinni heimsstyrjöldiuni og nú skipta hljómplöturnar í
safni hans þúsundum. Hann hlustar mest á óperur og ijóðasöng.
Ur tónlistinni förum við niður á Alþingi og ræðum við Skúla Skúlason. Hann hefur verið fastagestur á þingpöllun-
um í yfir þrjátiu ár.
Og þá er ekkert eftir nema að bjóða ykkur góða lesningu mcö von um fallegan febrúarmánuð. Punkturinn okkar
er á því að þessi stysti múnuður ársins verði bara skemmtilcgur og fljótur að líða.
Texti: lón G. Hauksson
Myndir Bjarnleif ur Bjarnleif sson og Gunnar V. Andrésson
Haraldur hefur verið blindur frá
fæðingu. Þessa keramikmuni gerði
hann eftir keramiknámskeið hjá
Blindrafélaginu. Þeir eru orðnir
margir vinirnir og kunningjarnir
sem hafa fengið skálar og vasa hjá
Haraldi. Einn þeirra er Joy Lahr,
sem var með kántriþátt i útvarps-
stöðinni á Keflavikurflugvelli.
DV-myndir Bjarnleifur Bjarnleifsson.
Cash, Buc Owens og Charlie Bright.
Reyndar var ég svo lánsamur aö
komast á hljómleika meö Buc Owens í
Osló áriö 1971. Þetta voru geysi-
skemmtilegir hljómleikar. ”
Um þaö hve margar plötur hann
keypti á mánuöi svaraði Haraldur meö
lítillæti „aö þaö væri misjafnt frá mán-
uði til mánaöar.” Meira gaf hann ekki
upp um þaö. En kunnugir segja aö þær
séu margar.
Fyrir utan hljómlistma er Haraldur
áhugamaöur um flugmál. Hann á sér-
stök „scannertæki” og hlustar oft á
samtöl flugmanna við f lugstjórn.
Og oft hefur það komið fyrir aö
honum hefur veriö boðiö í flugferðir í
litlum rellum. Og svo mikill er áhuginn
á fluginu aö þaö er nóg aö hann heyri
hljóöiö í flugvél þá getur hann sagt til
um hvaöa tegund sé aö ræöa.
„Flugmenn hafa einnig verið mér
hjálpsamir varöandi plötusöfnunina.
Þeir hafa keypt fyrir mig plötur
erlendis sem ófáanlegar hafa veriö hér
á landi. Þetta hefur komið sér mjög
vel. Þá vil ég einnig geta þess aö oft
vilja þeir ekki þiggja borgun fyrir plöt-
umar. Gefa mér þær svona til aö sýna
mérvináttuvott.”
— Nú ert þú mikill kántríaödáandi.
— Hvaö finnst þér um rokkiö?
„Þaö er nú ekki beint fyrir minn
smekk og ég er algjörlega á móti öllu
hávaðarokki.
En fyrir utan kántritónlistina hefur
mér þótt einna mest gaman aö hlusta á
klassíska tónlist og alþýðutónlist frá
ýmsumlöndum.
Og fyrst við erum aö ræða um þessi
mái. þá ”il ég minnast á þaö hve mjög
c wkna lueGrass-þáttarárásl.Slík
tóniist neyrist allt of sjaldan í út-
varpinu.”
Og svona að endingu, hver er ný jasta
platan í safninu? Ekki stóð á svarinu.
„Það er aö sjálfsögöu kántríplata.
Hún er meö Johnny Cash og heitir Big
River.”
-JGH
Horft yfirsalinn. Jón Baldvin Hannibalsson iræðustól. „Hvar
eru allir þingmennirnir?" gætu einhverjir spurt. „Mér finnst
ekki kveða eins mikið að stjórnmálaforingjum nú og áður."
1 1 I I I
Skúli Skúlason, 65 ára innheimtumaður. Hann hefur fylgst
með pólitikusunum af Alþingispöllunum i bráðum fjörutiu ár.
Það hefur verið hans dægradvöl auk þess sem hann er mikill
áhugamaður um ættfræði og hefur meðal annars gefið út
tvær ættfræðibækur.
Skúli ibygginn á svip, flengst til hægri). „Pétur Ottesen, þing-
maður Borgfirðinga, er tvimælalaust sá minnisstæðasti.
Hann hætti árið 1959 eftir að hafa verið þingmaður i 43 ár.
Hann var hreinskilinn maður og átti enga óvildarmenn. "
DV-myndir: Gunnar V. Andrésson
FÓR Á PALLANA SKÖMMU
EFTIR AÐ ÉG KOM SUÐUR
—segir Skúli Skúlason sem hef ur verið fastagestur á þingpöllunum í tæp fjörutiu ár
„Eg segi ekki aö ég komi á hverjum
degi hingað, en allflesta daga rek ég
nefiö inn. Kem oftast um þrjúleytið og
geri oft stuttan stans. Það fer þó eftir
því hvaö er á dagskrá.”
Sá er þessi orö mælir heitir Skúli
Skúlason, 65 ára Þingeyingur, sem
flutti suöur á mölina á árinu 1947 og
hefur síðan eytt drjúgum tíma á þing-
pöllum viö að fylgjast með umraeöum
pólitíkusa.
„Eg fór á pallana skömmu eftir aö
ég kom suður og hef haft mikla ánægju
af aö hlusta á alþingismennina. Þó má
kannski segja aö áhuginn hafi dvínað á
síöustu árum. Þaö kveður ekki eins
mikið að stjórnmálaforingjunum nú og
áöur. Þaö sópaði meira af þeim hér
áðurfyrr!”
Um þaö hverjir væru eftirminnileg-
ustu stjórnmálamennirnir sagöi Skúli:
,,Svo ég nefni einhver nöfn þá koma
þeir Oli Thors, Jónas frá Hriflu, Pétur
Ottesen, Jörundur Brynjólfsson og
Hannibal Valdimarsson fyrst í hugann.
Þaö hafa þó margir mjög góöir menn
setið á Alþingi.”
— En hver finnst þér hafa staðiö upp
úr, ef þannig má aö oröi komast?
„Pétur Ottesen er tvímælalaust sá
minnisstæðasti. Hann var þingmaður
Borgfiröinga og hætti á þingi árið 1959
eftir aö hafa veriö þingmaður í 43 ár.
Hann var hreinskilinn og átti enga
óvildarmem.”
— Hvenær byrjaöi áhugrnn á pólitík-
inni?
„Eg hef haft áhuga á pólitík frá unga
aldri. Eg hef fylgt Sjálf stæöisflokknum
aö málum. Þrátt fyrir það er ég ekki
fullkomlega ánægöur með flokkinn. En
ég held að það sé ekki annar flokkur
betri.”
— Hvaða frumvarp myndir þú
leggja fram ef þú yrðir kjörinn á Al-
þingi?
,,Eg myndi Ieggja fram frumvarp
sem stuölar að minnkandi áfengis-
neyslu. Mér finnst alltof mikið drukkiö
í þjóðfélaginu og tel aö áfengiö og alls
kyns vímuefni séu mesta bölið hjá
okkur.
En ég sakna þess alls ekki aö hafa
verið laus viö þingmennskuna um dag-
ana þrátt fyrir að ég hafi mikið fylgst
meðípólitíkinni.”
— Hverjir finnast þér vera
skemmtilegustu ræðumennirnir í dag
á Alþingi?
„Bestu ræðumennirnir eru þeir Þor-
steinn Pálsson og Svavar Gestsson.
Svavar er sérlega góður ræðumaður.
Eg fylgi honum alls ekki aö málum, en
ég held að hann sé góöur fyrir sinn
flokk. Þeir eiga ekki skarpari mann.”
Skúli hefur starfað í mörg ár viö ým-
iss konar innheimtustörf .fyrir hina og
þessa” eins og hann oröar þaö. Þá
hefur hann boriö út öll dagblöðin.
Hann hefur séö um dreifingu á Árbók
Þingeyinga síðastliöin 25 ár og séö um
innheimtu fyrir Þingeyingafélagið
síöastliöin 35 ár. Hann hefur einnig
grúskaö í ættfræöi.
„Eg hef gefið út tvær ættfræöibækur.
Laxamýrarættina sem kom út 1958 og
Hraunkotsættina sem gefin var út
1977.” „Jú, jú, ég er sjálfur af Laxa-
mýrarættinni.”
-JGH