Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1984, Qupperneq 2
DV; FÖSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1391. <
Það verður
staðið við
fjárveitingar
— sagði félagsmálaráðherra um ummæli
Alberts Guðmundssonar
„Ef lánsfjárlög verða samþykkt
með ákveðnum fjárveitingum þá
verður við þær staöið. Það verður að
gerast því Húsnæðisstjórn vinnur
eftir þeim lögum sem sett eru á Al-
þingi,” sagði Alexander Stefánsson
félagsmálaráðherra er hann var
inntur álits á ummælum Alberts
Guðmundssonar að ekki yrði staöið
við framlög til Húsnæðisstofnunar ef
skuldabréf ríkissjóös sem gefin voru
út í því skyni seldust ekki.
Alexander sagði að sala á skulda-
bréfum ríkissjóðs hefði veriö dræm
fyrir áramót en ekki lægi fyrir enn
hvemig sala gengi á hinum nýju
gengistryggöu skuldabréfum. Hann
taldi að þaö hefði verið röng
ákvörðun að framlengja ekki um eitt
ár endurgreiðslur á skyldusparnaði
sem lagöur var á hátekjufólk og kom
til endurgreiðslu á þessu ári.
Skuldabréfin eiga að fjármagna
200 milljónir af fjárþörf Húsnæðis-
stofnunar en Atvinnuleysistrygginga-
sjóður 115 milljónir. Alexander taldi
að fjárskortur Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs gæti skapað vanda en
ef hann gæti ekki lagt fram þetta
fjármagn þá yrði önnur fjáröflun aö
koma til eða ríkissjóöur að grípa inn
í. „Ef lánsfjárlög verða samþykkt
með þessari fjáröflun er ekki gert
ráð fyrir öðru en að við það verði
staðið,” sagði félagsmálaráöherra.
-ÓEF.
Hafsteinn og Birgir Viðar reynsluóku nýja Escort LX biinum hjá Sveini Egiissyni áður en þeir héidu utan til
keppni. DV-mynd GVA.
NOTAÐIR
■BILARH
VOLVO 244 TURBO ÁRG. 1982,
ekinn 30. þús., silfursans
m/plussáklæöi, beinsk. m/yfirgír.
Verðkr. 530.000,-
VOLVO 244 DL ÁRG. 1983,
ekinn 39 þús., beinsk. Verö kr.
430.000,-
VOLVO 244 DL ÁRG. 1982,
ekinn 24 þús., beinsk. Verð kr.
380.000,-
VOLVO 244 GL ÁRG. 1981,
ekinn 40 þús., beinsk, og yfirgír.
Verökr. 370.000,-
VOLVO 345 GL ÁRG. 1980,
ekinn 27 þús., beinsk. Verö kr.
220.000,-
VOLVO 245 GL ÁRG. 1979,
ekinn70þús., beinsk. Verökr.
310.000,-
VOLVO 244 DL ÁRG. 1978,
ekinn 75 þús., sjálfsk. m/vökvastýri.
Verð kr. 240.000,-
VOLVO 244 DL ÁRG. 1978,
ekinn 70 þús., beinsk. m/vökvastýri.
Verðkr. 225.000,-
OPIÐÍDAG KL. 13-17.
VOLVOSALURINN
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
Þingvallastrætismalið:
Tæmdu íbúðina
aðmestuleyti
„Viö erum mjög ánægð með að vera
komin í gott húsnæði,” sagöi Olafur
Rafn Jónsson í gær en kvaðst þó
óánægður með aö þurfa aö sæta mann-
réttindabrotum. Eins og kom fram í
frétt DV í gær hafa þau Danielle ásamt
börnum yfirgefiö húsið að Þingvalla-
stræti 22 eins og gert var ráð fyrir í
samningi sem var undirritaður þegar
útburðurinn átti að verða.
Olafur sagði að næsta skrefiö væri að
kveðja til matsmenn til að meta að
hvaða leyti íbúðinni væri ábótavant.
Væri brýnt að fá upplýst hver raun-
veruleg skipting hússins væri milli eig-
enda, hingað til hefði verið haldið uppi
geöþóttaákvörðun í því eins og hann
sagöi.
Ekki vissi Olafur hvenær þetta mál
kæmi fyrir mannréttindanefndina í
Strassbourg en taldi að það gæti farið
aðnálgast.
Ölafur og Danielle tóku allt út úr
íbúðinni nema þvottavél, ísskáp og
þurrkara. Aðstöðuna myndu þau nýta
að nokkru leyti áfram, sagði Olafur þó
að þau dveldu ekki í húsinu. Aðspurður
um hver hafi greitt kostnað viö
flutninginn, sagði hann: „Við gerðum
það núna en munum fara í skaðabóta-
mál þegar fram líða stundir.”
-JBH/Akureyri.
Hafsteinn og Birgir Viðar ralla i York
á Englandi um helgina:
Verða ræstir
númer 8 af 67
keppendum
„Það kemur sér stundum vel að vera
frá Islandi. Vegna þeirrar alþjóðlegu
viðurkenningar sem ég fékk eftir þátt-
töku okkar í skoska rallinu i sumar þá
fáum við rásnúmer 8 af 67 keppendum.
Þetta getur skipt sköpum í keppninni.
Þeir sem ræstir eru út síðastir eiga
satt að segja ansi bágt. Vegirnir
grafast í sundur þegar hver keppnis-
bíllinn á fætur öðrum „fer eins og
druslan dregur” eftir sérleiðum sem
eru að langmestu leyti malarvegir.”
Það er Hafsteinn Hauksson sem
hefur orðið en hann og félagi hans,
Birgir Viðar Halldórsson, héldu til
York í Englandi á þriðjudagsmorgun
þar sem þeir keppa í National Break-
down rallinu sem hefst i dag, föstudag,
og lýkur á morgun, laugardag.
Alþjóðasamtök kappakstursmanna
veita ökumönnum sérstakan sætistitil,
en aðeins tveir ökumenn frá hverju
landi eiga rétt á slíkum titli (nema
hvað bílaframleiöslulöndin eiga rétt á
5 mönnum) eftir að hafa sýnt mark-
tækan árangur í alþjóðlegri keppni.
Auk Hafsteins hefur Omar Ragnarsson
þennan titil hér á landi. Alls hafa 106
ökumenn í heiminum þennan titil óg
ganga þeir fyrir þegar rásnúmer eru
valin en auk þess kemur fleira til svo
sem árangur í f yrri keppnum.
Þeir Hafsteinn og Birgir tóku þátt í
þessu sama ralli í fyrra en þá hét það
Mintex-rallið.
„Þá fengum við bókstaflega allt á
móti okkur sem dugði til þess að koma
okkur niöur í 25. sætið en viö fengum
reynslu sem svarar til margrar ára
rallaksturs á Islandi á þessur þremur
dögum,’ ’ sagði Haf steinn.
Þessi reynsla kom þeim félögum í
góðar þarfir í skoska rallinu síðastliðiö
sumar. Þá náðu þeir félagar mjög
góðum árangri. Þeir lentu í 10. sæti og
urðu efstir allra einkaaðila i keppninni
(það er þeirra sem ekki keppa sem at-
vinnumenn á vegum bílaframleiö-
enda). Uröu þeir fyrstir 19 Fordbíla
sem tóku þátt í keppninni og jafnframt
fyrstir þeirra sem kepptu í fyrsta sinn í
þessuralli.
Því er ekki að leyna að þeir félagar
gera sér vonir um að ná góöum árangri
nú um helgina. Þeir hafa æft stíft upp á
síökastið til að ná upp líkamlegu þreki.
„Þetta eru feikileg átök og af fyrri
reynslu vitum við að við munum tapa
nokkrum kílóum hvor þessa tvo daga
sem aksturinn tekur. Stíf einbeiting í
35 klukkustundir tekur sitt,” sagði
Hafsteinn.
Þeir félagar munu aka á Escort í
keppninni eins og Hafsteinn hefur gert
nær eingöngu frá upphafi keppnisferils
síns. „1978, fyrsta árið mitt í rall-
keppni, reyndi ég aörar bílategundir
en frá 1979 hef ég eingöngu ekið
Escort. Því miður hefur Ford-verk-
smiðjunum ekki enn unnist tími til aö
útbúa nýja Escortinn fyrir rallkeppni
þannig að Escortinn okkar er af gamla
módelinu. Eg hef samt ekið nýja
Escortinum þúsundir kílómetra mér
til mikillar ánægju. Hann er verulega
skemmtilegur fjölskyldubíll en aö
sjálfsögðu þýöir ekki að fara með
neinn bíl í venjulegri útfærslu í svona
rallkeppni. Allar bílaverksmiðjur sem
taka þátt í rallkeppni útbúa sérstaka
bílaíþeimtilgangi.”
Þess má geta að þeim félögum voru
boðnir tveir fríir bílar en þeir vildu
ekki snúa bakinu við Escort.
„Við erum mjög þakklátir þeim
aðilum sem gera okkur kleift að taka
þátt í þessarri keppni en þaö eru Ford-
umboöiö á Islandi; Sveinn Egilsson,
Esso, Flugleiðir, Eimskip og Álafoss.
Við vonumst til að þurfa ekki að
bregðast þessum aðilum,” sögöu þeir
félagar, greinilegar reiðubúnir að gera
sitt besta.
-JR.
Haltur leiðir blindan
Togarinn Olafur Bekkur frá ölafs-
firði kom síödegis í gær bilaður til
heimahafnar og haföi í togi Stálvíkina
f rá Siglufirði sem var aflvana.
Að sögn Guöna Olafssonar, skip-
stjóra á Olafi Bekk, voru þeir
nýkomnir á Sléttugrunnið þegar fór að
bera á kraftleysi í vélinni. Um tíma
héldu þeir að netadræsa hefði farið í
skrúfuna en síðan var helst talið að
skrúfuskurðurinn væri meiri en mæli-
tækisýndu.
Aður en Olafur Bekkur fór í land var
Stálvíkin tekin í tog. Hún var á svip-
uðum slóðum og haföi orðið bilun í
túrbínu við vél sem olli því að allt stóð
fast. Fariö var með skipið inn til Siglu-
fjarðar.
Guöni sagði að enn væri óvíst hver
bilunin væri hjá Olafi Bekk. Kafari
sagði í gærkvöldi að eitthvaö virtist
hafa farið aftan af skrúfuhausnum.
Olafur Bekkur var frá veiðum frá
miöjum júní og fram í miðjan ágúst í
sumar vegna bilana.
-JBH/Akureyri.