Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1984, Blaðsíða 32
’OV. Þ'ÉIEÍjtíÓÁCÍljR’ 3. ’ÁPR tL 1584.
32
Dæmalaus 'Veröld
DæMALAUS V’ERÖLD
Dæmalaus Veröld
LEIÐARLJÖS
5
Prestarog
lögfrædingar
Hér á árum áður voru
menntamenn þrenns konar:
Prestar, lögfræðingar og
læknar.
Nú eru til félagsfræðingar,
uppeidisfræðingar, sálfræð-
ingar, tæknifræðingar og alls
kyns vitfræðingar en það er
önnur saga.
Prestar, lögfræðingar og
læknar eru þeir hornsteinar
sem islenskt menntakerfi
byggir á og því skulu þeir
ekki vanmetnir. En þá mega
þeir heldur ekki bregðast — á
hverju sem gengur.
Hér á síðunum til hliðar
getur að iita frásagnir af full-
trúum þessara stétta, að
læknum frátÖldum, sem sýna
svo ekki verður um villst að
ýmislegt hefur breyst frá
þeim tíma þegar bændur
slátruðu búfénaði sínum og
sveltu húsmæður tö að koma
börnum sinum til mennta —
gera þau að prestum, lög-
fræðingum eða iæknum.
Virtur, reykvískur lögfræð-
ingur lýsir því yfir hér á síð-
unum að hann trúi því að
jörðin sé flöt. Er nema von að
almenningur spyrji:
— Til hvers var verið að
mennta manninn? Hversu
margar sauðkindur hafa
þurft að falla fyrir þennan
mann? Hvaða skynbragð
ber slíkur maður á lög og
rétt? Maður sem ekki gerjr
greinarmun á bolta og pizzu!
Hitt dæmið er um
prestinn sem gefur saman
brúðhjón á vínveitingahúsi.
Að vísu svífur andi Guðs jafnt
yfir vínveitingahúsum, rað-
húsum, einbýlishúsum og
blokkum en fólk spyr: — Gat
hann ekki gift þau í glasi?
Því er til að svara: Það er
sama hvar börain eru bless-
uð. En mikið hefðu bændura-
ir sem slátruðu búfénaði og
sveltu húsmæður til þess eins
að koma afkvæmum sínum
til mennta orðið hissa ef þeir
hefðu vitað þróunina fyrir.
Við bíðum eftir að læknara-
ir fari að skera upp á Lækjar-
torgi.
-EIR
Jörðin I Flat Earth News
er flöt
—segir íslenskur
lögmaöur, félagi
íFlatEarth
Society
Box 2533, Lancaster, Ca
Quarterly RESTORING THE WORLD TO SANITY
Charles K. Johnson, President_________________________________________Marjory W ,
'Vfv
AUSTRALIA
NOT DOWN UNDERl
A Compass Always Points IMorth - _.nr.
johnsonontheSho^
Flat Earth News kemur út ársfjórðungslega og flytur fróttir og röksemdir fyrir þviað jörðin sé flöt.
„Ég neita því ekki, ég er gildur meðlimur í Flat Earth Society og
hef verið lengi,” segir virtur, reykvískur lögmaður sem ekki vill láta
nafns síns getið af ótta við ónæði.
Flat Earth Society er félagskapur þeirra sem trúa því að jörðin sé
flöt og eru helstu forsvarsmenn félagsins Charles K. Johnson og
eiginkona hans Marjory Waugh Johnson. Gefa þau út fréttabréfið
Flat Earth News f jórum sinnum á ári, ákaflega vandað rit með frétt-
um og röksemdum fyrir því að jörðin sé flöt. Kallar Johnson hnatt-
kenningar annarra. . .„móðgunviöheilbrigðaskynsemi”, ogverður
tíðrætt um „the indian grease ball” sem þýða mætti harpishnöttinn.
„Dettur mönnum í hug að jörðin sé smurð feiti sem fólkið, húsin og
allt annaö sé límt við. Jörðin er flöt og sólin hringsnýst yfir henni,”
segir spámaðurinn.
Islenski lögmaðurinn er á sama máli: „Ef lygin er nógu hrikaleg
þá trúir fólk henni. Því var meira að segja logið að allri heimsbyggð-
inni að Bandaríkjamenn hefðu stigið fæti á tunglið. Hvernig er hægt
að sanna það? Skoðun mín er sú aö þar hafi verið á ferð blekkinga-
vefur stórveldanna sem nota fé ætlað til tunglferða í að hervæðast. I
það minnsta er sú skýring trúlegri en þetta meö tungllabbið. ”
Tekið er á móti áskriftum að Flat Earth News í póstboxi 2533 í
Lanchaster í Kaliforníu og kostar hún 10 dollara á ári. Ef menn vilja
fá félagaskírteini í Flat Earth Society þarf að bæta 5 dollurum við.
„Eg hvet alla hugsandi menn til að kynna sér kenningar Charles
K. Johnson,” segir lögmaðurinn.
-EIR
Gitta
litla
orðin
stór
Hún Gitte Hœnning hefur
stœkkað frá því hún stóð á
sviði í Austurbœjarbíói,
kornung og söng með pabba
sínum íslendingum til
mikillar ánœgju. Nú er hún
orðin 37 ára, einn vinsœlasti
skemmtikraftur í Þgska-
landi, fráskilin og barnlaus.
Svona lítur hún út í dag —
tímarnir bregtast og Gitta
með.
Yoko neitar
að borga
I síöustu viku var þingfest í rétti á Manhattan í New York mál
sem Jack Douglas höföar gegn Yoko Ono. Douglas þessi var upp-
tökustjóri á hljómskífunni Double Fantasy sem Yoko og John
Lennon gerðu í sameiningu. Douglas krefst rtokkurra milljóna
dollara vegna samningsbrots sem hann telur Yoko bera ábyrgð á.
Samkvæmt samningi sem gerður var í ágúst 1980, fjórum mánuð-
um fyrir moröiö á Lennon, átti Douglas aö fá 4% af söluverði fyrstu
500 þúsund eintaka plötunnar. Og síðan 5% af öllu sem seldist að
auki.
Yoko Ono krefst aftur á móti að Douglas endurgreiði sér 300 þús-
und dollara sem hún í misgáningi hafi greitt honum of mikiö.
Double Fantasy hefur þegar selst í yfir 6 milljónum eintaka.
fear tltflfare o
tinker flyttaW&dr* Frankrike-,
«•
ALBERT HUGSAR...
. . . iim a<) fh/tja til Sudur-Frakklands skc
fréttmn sænska sjóncarpsins. Fins <>(/ sjá má.