Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1984, Síða 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTOBER1984.
Samningaumleitanír vinnuveitenda og alþýðusambandanna:
Skattalækkunar
leiðin enn heit
Skatta- og útsvarslækkanir og til-
færslur milli skattforma, sem þýddu
2—3% aukningu á kaupmætti launa,
eru ennþá efst á blaöi með lágum bein-
um peningalaunahækkunum í viöræö-
um vinnuveitenda og landssamband-
anna innan ASI. Talaö er um taxta-
hækkanir í kringum 5% og þannig
kjarabætur meö aðgerðunum í skatta-
málum sem næmu alls nálægt 8%.
Þar að auki eru til umræöu breyting-
ar á viömiðun í ákvæöis- og eftirvinnu-
töxtum sem færi hana nær tekjutrygg-
ingargrunni. Fyrir þá sem þetta varö-
ar er rætt um allt aö 10% hækkun.
Samningstími til umræöu er út næsta
ár.
Asmundur Stefánsson, forseti
Alþýðusambandsins, vildi lítið sem
ekkert tjá sig um stööu samningamál-
anna að svo stöddu. Hann sagði stöö-
ugt unnið að margvíslegum útreikning-
um og engan veginn séö fyrir endann á
því hvers konar samningar yrðu ofan
á.
„Þessi skattalækkunarleið hefur
veriö til umræöu núna í tvo mánuði.
Hún hefur fengiö bakslag af og til en
þaö er ennþá fullur hugur í okkur og aö
ég held einnig öllum helstu viösemj-
endum okkar. Það verður þó óneitan-
lega sífellt erfiöara að fara þessa leið
eftir því sem fleiri velja gömlu leiöina
og kjósa frekar fleiri og verðminni
krónur í launaumslögin,” sagði
Magnús Gunnarsson, framkvæmda-
stjóriVSl.
HERB
Samningum bæjarfélaga
misjafnlega tekið
Atkvæöagreiösla stendur nú yfir hjá
félagsmönnum BSRB í Kópavogi,
Akureyri, Vestmannaeyjum, Selfossi,
Mosfellssveit og í Hveragerði um
bráðabirgðasamkomulag sem búið er
aö gera milli bæjaryfirvalda og félags-
mannaBSRB.
Sáttatiilaga ríkissáttasemjara var
samþykkt á Suöumesjum og Akranesi
og kom því aldrei til verkfaUa þar.
SáttatiUagan hljóöar upp á sex prósent
hækkun launa frá 1. september ’84 og
f jögur þrósent frá 1. janúar ’85.
Nokkur sveitarfélög hafa gert samn-
inga og þeir veriö staöfestir meö at-
kvæðagreiðslu félagsmanna. Þau eru
Siglufjöröur, Garöabær, Isafjöröur,
Sa uðá rkrók ur og Húsa vík.
Á Siglufiröi eru samningarnir grund-
vallaöir á sáttatUlögunni, þ.e. sex pró-
sent frá 1. september og fjögur prósent
frá 1. janúar ’85. Einnig fá starfsmenn
2500 króna uppbót í desember. GUdis-
tími samningsins er til 1. aprU 1985.
GUdistími Garðabæjar-samningsins
er til sama tíma og er hann eins og
sáttatiUagan en mun verða endurbætt-
ur í samræmi viö samninga annarra
Samningar BSRB
og ríkisins:
Samningaviðræður miUi aöila í
kjaradeilu BSRB og ríkisins Uggja
niöri. Fjármálaráðherra bauö aðfara-
nótt föstudags tæplega 17% kauphækk-
un samtals nú og út næsta ár sem er
tæplega 14% raunhækkun launa þann
tíma. Samninganefnd BSRB hafnaði
þessu. Hún er meö kröfur í 11 liðum
sem samtals þýddu yfir 30% hækkun.
„Þaö er rangt aö meta kröfur okkar
þannig, þessir 11 liöir eru umræöu-
bæjarfélaga eöa ríkisins hljóði þeir
upp á betri kjör. Þá verður eins tekiö
mið af þeim samningum um gildistím-
ann.
Isfiröingar sömdu upp á 8,3 prósent
frá 1. september ’84. Einnig fær starfs-
maður í fuUu starfi launauppbót 1.
nóvember, 4200 krónur.
Endurskoðun launakerfis opinberra
starfsmanna á Vestf jöröum á aö vera
lokiö eigi síöar en 1. september 1985.
Samningur þessi miðast við að kaup-
máttur samningsins síöasta ársfjórö-
ung 1984 haldist óbreyttur á samnings-
tímabUinu. Breytist fyrrgreind við-
miðun aö mati Hagstofu Islands getur
hvor samningsaðiU um sig krafist
endurskoðunar á launaliö samningsins
1. júU '85 og 1. október ’85 tU að ná fyrr-
greindum kaupmætti.
Á Sauöárkróki náöust samningar um
lOprósentlaunahækkunfrá 1. septem-
ber ’84 og launaflokkahækkun frá 1.
desember ’84 og 1. maí ’85. Launaupp-
bætur desembermánaðar fara upp í
4200 krónur. Einnig eru ákvæði um
starfsaldur í samningi þessum.
grundvöllur okkar,” segir Kristján
Thorlacius, formaöur BSRB. „Viö
leggjum þungann á hærri beinar kaup-
hækkanir en ráöherra bauö og eftir aö
hann gaf í skyn aö viö stefndum í
óraunhæfa samninga er þaö önnur
höfuökrafa okkar aö viö fáum trygg-
ingu fy rir að samningarnir haldi. ’ ’
„Ef verðbólguleiðin verður ofan á er
þaö vissulega sorglegt fyrir þjóöina.
Þá gengur hún blindandi til verka og
Húsvíkingar sömdu um 8,3 prósent
hækkun frá 1. september. Starfsmaöur
í fullu starfi fær 3800 krónur í nóvemb-
er sem uppbót. Starfsfólki mun verða
raöað í launaflokka á grundvelli starfs-
mats og mun koma til tveggja flokka
launahækkun. Fyrst veröur hækkaö
um einn flokk 1. desember ’84 og síöan
um annan flokk 1. maí ’85. Utsvar og
tekjuskattur mun lækka um 400
milljónir nettó. Gildistími samningsins
er tilársloka 1985.
I Reykjavík og á Seltjamarnesi hafa
bráöabirgöasamningar veriö felldir. I
Reykjavík var verkfalli frestaö í viku
en skall á aftur á sunnudagsmorgun
eftir að félagsmenn höföu fellt sam-
komulagiö. Samkomulagiö hljóðaði
upp á 3 prósenta hækkun frá 1 sept-
ember og 5,3 prósenta við undirritun
samninga. Desemberuppbót átti aö
hækka um 3800 krónur. Einnig voru
ákvæði um breytingar á starfsaldurs-
hækkun og nettólækkanir útsvars og
tekjuskatts áttu aö verða eigi lægri en
400 milljónir. Gildistími var hugsaður
til ársloka 1985.
JI
þaö er ekki gæfulegt að vinna sig frá
þeim gríöarlega vanda sem blasir viö
þjóöarbúskapnum meö bundið fyrir
augun. Viö bíðum nú og sjáum hvað
setur á almenna vinnumarkaönum þar
sem menn eru að minnsta kosti ennþá
ekki búnir aö sprengja ÖU bönd,” segir
Albert Guðmundsson fjármálaráð-
herra.
HERB
IBIÐSTÖÐU
Þrjú hundruð
verkfallsverðir
— íSundahöfnigær
Þrjú hundruð verkfallsverðir
BSRB söfnuöust saman á athafna-
svæöi Eimskips í Sundahöfn um há-
degisbUiö í gær. Flestir hurfu á brott
eftir um klukkustundar viökomu á
svæðinu. En í yfirstandandi verkfaUi
eru aö jafnaöi um tuttugu veröir á
svæði þessu.
Ástæöan fyrir þessari fjölgun verk-
faUsvarða í hádeginu í gær voru mót-
mæU BSRB við tveimur bréfum er
forsvarsmenn Eimskipafélags Is-
lands rituöu stjórn BSRB á
sunnudag.
I bréfunum tveimur er annars veg-
ar mótmælt er hópur verkfallsvarða
hindraði toUveröi í því að komast
um borö í ms. Álafoss 17. október sl.
Litiö er svo á af hálfu Eimskips aö
um ólögmætt atferU af hálfu verk-
faUsvarða BSRB hafi veriö að ræöa.
Segir orörétt í bréfi er Höröur Sigur-
gestsson, forstjóri fyrirtækisins,
undirritar, ,að veröi ekki þegar í staö
látið af svonefndri „verkfallsvörslu”
mun félagiö gera BSRB ábyrgt fyrir
öllu því tjóni sem þaö kann að veröa
fyrir vegna þessarar ólögmætu
„verkfallsvörslu”. Rétt er að taka
fram aö reksturskostnaöur skipsins,
á hverjum sólarhring sem af-
greiðsla skipsins dregst nemur um
kr. 168.300, auk annars kostnaðar.”
Þá var hins vegar í hinu bréfi
Eimskips, undirrituðu af Valtý
Hákonssyni sama dag, vakin athygU
á samkomulagi er viðkomandi haföi
gert við Harald Steinþórsson, fram-
kvæmdastjóra BSRB, föstudaginn
19. október. Þá var heimilaö aö tveir
bílar með verkfallsvöröum mættu
vera innan toUafgreiöslusvæðis Eim-
skips í Sundahöfn gegn því aö þeir
færu af svæðinu þegar verkstjóri
Eimskips óskaöi. Svæöi þetta er að
staðaldri lokaö aUri umferö óviö-
komandi aðUa af öryggisástæðum.
Þá var óskaö eftir því aö verkfalls-
veröir og bUar á þeirra vegum hyrfu
af svæðinu fyrir klukkan tóíf á
hádegi í gær. Bílar verkfaUsvaröa
BSRB voru enn á athafnasvæði
Eimskips er síöast fréttist.
-ÞG
Hver verður næsti
útvarpsstjóri?
SUPERSUN ljósasamlokur meö 20 perum, glæsilegur
bogalaga bnkkur og himinn, þægileg breidd, 77 cm.
Verö sem enginn annar getur boðið: kr. 72.100.
Greiðsluskilmálar: kr. 25.000 út og kr. 12.000 á mánuði.
Gefur fallegan brúnan lit og vinnur gegn vöðvabólgum,
streitu og gigt. 20 eða 30 mínútna perur jafnan fyrir-
liggjandi til endurnýjunar. Varahlutaþjónusta. Biöjiö
um bækling í pósti.
SUPERSUN, rrtest seldu
sólbaöstækin á Islandi frá
upphafi.
PÁLL STEFÁNSSON
umboös- og heildverslun
Blikahólar 12
Sími (91) 72530
Umsóknarfrestur um starf útvarps-
stjóra rann út 20. október. Mennta-
málaráöuneytiö hefur sent frá sér
fréttatilkynningu meö nöfnum um-
sækjenda. Þeir eru eftirfarandi: Ami
Bjömsson þjóðháttafræðingur, Bem-
harður Guðmundsson, fréttafulltrúi
þjóðkirkjunnar, Helgi Pétursson
fréttamaður, Jónas Jónasson deildar-
stjóri, Markús Öm Antonsson ritstjóri,
Olafur Stephensen framkvæmdastjóri
og Oli H. Þórðarson framkvæmda-
stjóri.
Nýr útvarpsstjóri mun taka viö
störfum um áramótin.
-EH
Gagnkvæm tillitssemi allra
vegfarenda, akandi, hjólandi, ríðr
andi og gangandi, er veiga-
mikið atriði i vel heppnaðri ferð.