Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1984, Page 40
FRÉTTASKOTIÐ
687858
SÍMIIMN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-'11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022./
Hafir þú ábendingu -
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1984.
Iðnrekendur ræða verkbann
A félagsfundi Félags íslenskra iön-
rekenda, sem haldinn verður á
morgun, veröur leitaö eftir heimild til
aö boöa verkbann á iðnverkafólk.
Verkfall opinberra starfsmanna er
nú þegar fariö aö valda stöövun iön-
fyrirtækja. Steypustöövarnar
stöðvuðust fyrir helgi vegna skorts á
sementi og Nói, Hreinn og Síríus,
Rafha, Sigurplast og Glerborg eru aö
stöövast vegna hráefnisskorts. Fjögur
síöastnefndu fyrirtækin hafa tilkynnt
til Iöju, félags verksmiðjufólks, aö þau
hafi í hyggju aö nýta sér þaö ákvæði
kjarasamninga sem heimilar atvinnu-
rekendum aö taka fólk út af launaskrá
ef fyrirtækin stöðvast vegna hráefnis-
skorts eöa annarra óviöráöanlegra or-
saka. Viö slíkar aðstæöur eiga
launþegar þó rétt á atvinnuleysis-
bótum en svo yröi ekki ef verkbann
yrðilagtá.
Skiptar skoðanir eru meöal iön-
rekenda um þessa verkbannsheimild.
Flest iönfyrirtækin eru enda í fullum
rekstri þótt mörg þeirra séu aö
stöövast vegn verkfalls BSRB. Það-er
hins vegar framkvæmdastjóm Vinnu-
veitendasambandsins sem tekur
endanlega ákvöröun um boðun verk-
banns, eftir tillögu frá viökomandi fé-
lagi atvinnurekenda.
-ÓEF.
Kratarfresta
flokksþingi
Alþýöuflokksmenn hafa frestaö
flokksþingi sínu sem ráögert var aö
setja næstkomandi föstudag. Aö sögn
alþýöuflokksmanna, er DV ræddi viö,
er ástæðan helst sú aö til lítils sé að
halda flokksþing meöan engir fjöl-
miðlar eru í gangi og svo hitt aö and-
rúmsloftið innan flokksins sé
„skrýtið” eins og einn orðaöi það.
„Ég býst ekki viö aö formanni
flokksins verði velt úr stólnum þegar
aö flokksþingi kemur,” sagöi einn fyrr-
verandi alþýðuflokksþingmaður í sam-
tali viö DV. „Til hvers er líka að vera
að halda uppi deilum um hver sitji í
stólunum þegar fljótiö flæöir
framhjá,” bætti þingmaöurinn fyrr-
verandi viö. -EIR.
Blaðamenn
á f undi
til fjögur
— verkfall boðað
á sunnudag
Samninganefndir blaöamanna og
blaöaútgefenda komu saman klukkan 8
í gærkvöldi og stóö fundurinn til
klukkan 4 í nótt. Eitthvað þokaöist í
samkomulagsátt. Nýr fundur hefur
verið boðaöur klukkan 2 í dag. Blaða-
mannafélag Islands hefur boðaö verk-
fall frá og með aðfaranótt næstkom-
andi sunnudags.
-ÓEF.
Jafnt innanlands sem utan.
LOKI
Mór er sagt að Reykjavík-
ursamningarnir hafí verið
slóttir og — felldir.
_________________________
. V ‘ :
'% íí'V^'.V V % '
- - * í
Baldvln Elnarsson var orðinn allhress í gær:
og reri síðan eftir félaga sinum.
Synti 500 metra i land
DV-mynd K.A.
„Háværar raddir
um að stjórnin
grípi inn í ”
— segir Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra
„Ríkisstjómin hefur farið þá leið aö
reyna frjálsa samninga en þaö hefur
ekki leitt til skynsamlegra niðurstaðna
og nú eru þær raddir æ háværari sem
knýja á um að stjórnin grípi inn í
samningamálin,” sagöi Steingrímur
Hermannsson forsætisráöherra í sam-
tali við DV er viö inntum hann álits á
nýgeröum samningum bókagerðar-
manna og prentsmiðjueigenda.
Um samningana sjálfa sagði
Steingrímur:
„Ef þessir samningar verða lagir til
grundvallar í almennum kjara-
samningum nú getur hver sem er
reiknað þaö út aö þaö þýöi aukna
veröbólgu og að kaupmáttur þeirra
samninga hverfi á skömmum tíma.”
Nýgeröir samningar bókageröar-
manna og prentsmiöjueigenda fela í
sér rúmlega 20% hækkun á samnings-
tímanum sem er út árið 1985.
„Það liggur ljóst fyrir að aðrir hópar
launamanna muni vart sætta sig við
minna en felst í þessum samningum og
ef fiskvinnslufólk og sjómenn semja
um eitthvað svipaö verður staöa
sjávarútvegsins enn verri en hún er og
var hún ekki beysin fyrir,” sagði hann.
Steingrímur vildi ekki segja til um
hvort eöa hve mikil gengisfelling
myndi fylgja í kjölfar þess aö samiö
yröi við fiskvinnslufólk á svipuöum
grunni og samið var viö bókagerðar-
menn.
-FRI.
Bæjarstarfsmenn
samþykktu naum-
lega á Akureyri
Bæjarstarfsmenn á Akureyri
samþykktu nýgerða kjarasamninga í
gær meö 9 atkvæða mun. Já sögöu 203
eöa 49,75% en nei 194 eða 47,55%. A
kjörskrá voru 555 og 408 kusu sem er
73,51%. Auðir seðlar og ógildir töldust
11 eða 2,7%.
Samkvæmt þessum nýja samningi
hækka laun um 3% frá 1. september og
7% viö undirritun samnings. Þann 1.
janúar 1985 hækka allir launaflokkar
um 800 krónur og 1. maí aftur um sömu
upphæð. Til viðbótar fá starfsmenn
bæjarins 4500 króna persónuuppbót 1.
nóvember 1984.
I samningnum er einnig gert ráð
fyrir að launakerfi bæjarins verði
endurskoðað fyrir 1. júlí á næsta ári. I
bókun sem fylgir aðalkjarasamningi
segir m.a. aö gera skuli samanburðar-
könnun á launakjörum á vinnu-
markaöi á Akureyri. Einnig skuli
endurskoöa starfsmatið sem er notað
við rööun starfsheita í launaflokka.
Bæjarráð Akureyrar hefur mælt
með samþykkt samningsins og bæjar-
stjórn greiðir atkvæði um hann í dag.
-ébg-JBH-Akureyri.
Tveir menn hætt komnir í Skorradalsvatni:
„Bíðin var löng og vatnið kalt”
„Okkur þótti biöin orðin löng og
vatniö kalt þar sem viö héngum utan
á bátkænunni sem maraðl í hálfu
kafi,” sagöi Baldvin Einarsson, 44
ára byggingarfræðingur i Hafnar-
firði, en hann og félagi hans, Þórður
Guðmundsson, skólastjóri í Kópa-
vogi, lentu á kafi í Skorradalsvatni
um sexleytið á sunnudagskvöld er
seglbát þeirra hvolfdi.
„Eftir aö viö vorum búnir að vera í
vatninu í um 20 mínútur sáum viö aö
við svo búið mátti ekki standa.
Þóröur treysti sér ekki til að synda í
land og þaö varð því úr aö ég
svamlaði af staö þessa 500 metra
sem voru i larid. Fyrir einliverja
heppni tók ég land þar sem árabátur
beiö min, tók ég hann traustataki,
reri út til Þórðar og velti honum upp í
bátinn. Var hann þá orðinn mjög
kaldur og af honum dregið,” sagöi
Baldvin Einarssón.
Var síðan róið í land þar sem lög-
reglubílar úr Borgarnesi biðu upphit-
aðir og brunuðu meö sjógarpana á
Akranes. Þar gisti Þórður á sjúkra-
húsinu og Baldvin fékk inni hjá
systursinni.
Seglbátur Baldvins, er hvolfdi, var
13 feta kæna og báðir voru mennimir
i björgunarvestum. Eru þeir nú
allhressir.
-EIR.
4
4
i
4
4
4
4
4
4