Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1984, Blaðsíða 30
30
DV. FIMMTUDAGUR1. NOVEMBER1984.
SIÐANEFNDIMYND
BANDAMÁLUM
Stofnuö hefur veriö siöanefnd í
myndbandamálum hérlendis og
skipa hana þrír menn, frá Samtökum
rétthafa er Olafur Guömundsson, frá
Samtökum íslenskra myndbanda-
leiga er Hafsteinn Aöalsteinsson og
oddamaður er Guömundur Bjarna-
son.
Hlutverk nefndarinnar er aö skera
úr um ágreiningsmál sem upp koma
í sambandi við rétt á myndum, þaö
er hverjir eigi í rauninni rétt á
einstökum myndum en mikiö hefur-
veriö um að tveir ólíkir aöilar segist
eiga rétt á sömu mynd. Fer nefndin
yfir þá pappíra sem menn geta lagt
fram máli sínu til stuðnings og sker
úr samkvæmt þeim. Einnig er nefnd-
inni ætlaö að koma í veg fyrir ólög-
legar eftirtökur af myndum.
-FRI
Vinsældalisti DV er unninn í samvinnu viö 10 stærstu mynd-
bandaleigumar innan SlM auk Video-sport (3 leigur) og Mynd-
bandaleigu kvikmyndahúsanna( 6 leigur).
1. DYNASTY
2. THE NINJA MASTER (1-3)
3. THESPYWHOLOVEDME
4. LADY FROM YESTERDAY
5. ROLLIIMG THUNDER
6. LOOKER
7. DEATHZONE
8. TOOTSIE
9. PRIVATE BENJAMIN
10. ÉGLIFI
Myndbönd
Myndbönd
VERTÍÐÁ
VIDEOLEIGUM
Nú eru liönar fjórar vikur frá upp-
hafi verkfalls BSRB og segja má aö
þessi tími hafi veriö vertíö á videoleig-
um, sérstaklega framan af, en nú
hefur dregiö nokkuð úr ásókninni og
sögöu þeir forráöamenn leiga sem DV
haföi samband við að greinilega væri
farið aö bera á f járskorti hjá fólki.
Þaö er hinsvegar ekki eingöngu f jár-
skortur sem gerir það að verkum aö
dregiö hefur úr útleigu á spólum síö-
ustu daga heldur einnig það að verk-
falliö kemur í veg fyrir innflutning á
nýju efni á leigumar, þ.e.a.s. því efni
sem flutt er inn eftir löglegum leiöum.
Þetta á sérstaklega viö á smærri
leigum og leigum úti á landi og sagði
einn forráöamaöur leigu í Keflavík í
Algong sjón á myndbandaloigum.
samtali viö DV að ef verkfallið færi
ekki aö leysast bráöum stefndi í vand-
ræöi.
,,Fólkið er meira og minna búið aö
klára það efni sem viö höfum á boö-
stólum og því þurfa leigur eins og okk-
ar aö hreinsa út hjá sér þaö sem þær
hafa nú og fá nýtt efni í staðinn ef
dæmið á að ganga upp,” sagði hann, og
taldi aö þetta þyrfti að koma til um eöa
upp úr áramótum.
Fyrstu dagana sem verkfallið stóö
og útvarp og sjónvarp var lokað var
aðsóknin í leigurnar allt aö því tvöföld
miöaö viö þaö sem eðlilegt er á þessum
árstíma en hefur svo minnkað að mun
eins og áður segir og nú er þannig kom-
iö að á virkum dögum er jafnvel minna
um útlán en í eðlilegu ástandi, fólk
sparar viö sig þá til að geta tekið spól-
ur um helgar.
Samfara þessu hefur sala video-
tækja aukist gifurlega. Ein verslun tók
80 tæki inn skömmu f yrir verkfallið og
þau seldust upp öll eins og heitar
lummuráfyrstudögumþess. -FRI
COLD SWEAT
Leikstjóri: Torence Young.
Aðalhhitverk: Charles Bronson, Liv Ullman og
James Mason.
Cold Sweat er klúöursleg ítölsk-
frönsk sakamálamynd með ensku tali.
Leikarar eru af mörgu þjóðerni.
Charles Bronson frá Bandaríkjunum,
Liv Ullman frá Noregi og James
Mason frá Englandi. Myndin fjallar
um fyrrverandi sakamann og fanga
sem hefur komið sér á rétta hillu í líf-
inu. Hefur stofnaö fjölskyldu og rekur
eigin bát á frönsku Rívíerunni þar sem
nóg er af túristum sem til eru í aö
borga fýrir smáveiöitúr. En þegar
fyrrverandi félagar hans úr fangels-
inu, sem eiga honum skuld aö gjalda,
koma í heimsókn fara hlutirnir að taka
á sig aðra og alvarlega mynd. Eigin-
konan, sem lítiö veit um fortíð manns
síns, veröur aö vonum skelfingu lost-
in þegar glæpamenn setjast að í húsi
þeirra og hóta þeim... Lítið fer fyrir
þeim stórstjörnum sem leika í þessari
alþjóölegu sakamálamynd. Sérstak-
lega bitnar það á Liv Ullman sem er
ekki á réttum stað í sakamálamynd.
HK.
< »
JULIUS CEASAR.
Leikstjóri: Stuart Burke.
Aóalleikendur: Charlton Heston, John Gieigud,
Jason Robards og Diana Riggs.
Þaö hefur löngum þótt tvísýn
ákvörðun aö kvikmynda leikrit eftir
Shakespeare, enda mikill og oft á tíö-
um torskilinn texti. Best hefur
Laurence Olivier tekist upp í sínum
myndum, en flestar aðrar hafa veriö
lítt eftirminnilegar. Og svo er einnig
um þá útgáfu af Julius Ceasar sem hér
er til umfjöllunar. Þrátt fyrir að leik-
stjórinn, Stuart Burke, sé þekktur og
virtur sviösleikstjóri í Englandi nær
hann aldrei aö lyfta þessari kvikmynd
upp á þaö plan sem textinn býður upp
á. Til þess er hún allt of hæg í atburða-
rásinni. Það er mikiö lið enskra og
bandarískra leikara sem fara meö
hlutverk í þessari mynd. Enginn annar
en John Gielgud fer meö hlutverk
Caesar, og það er synd að hann skuli
falla svo fljótt frá, því hann einna heist
heldur áhorfandanum við efniö.
Stærstu hlutverkin, Marcus Antonius
og Brutus, eru í höndum Charlton
Heston og Jason Robards og þrátt fyrir
að þeir báðir sýni ágætan leik þá vant-
ar þá einhvem klassa sem góöir,
breskir Shakespeare-leikarar búa yfir.
HK.
; TIAW'N
'crtíHr
■
FOULPLAV.
Aðalhiutverk: Goklie Hawn, Chevy Chase og
Dudley More.
Goldie Hawn leikur hér bókasafhs-
vörð sem lendir í ýmsum ævintýrum
eftir að puttaferðalangur hefur hvísl-
aö að henni: „Varastu dverginn.”
Hún er allt í einu komin inn í heim
skuggalegra persóna sem reyna aö
koma henni fyrir kattarnef og
gengur á ýmsu. Chase er einkaspæj-
ari sem hún lendir i slagtogi með og
saman reyna þau aö komast að því
hvaö valdi öllum þessum látum.
Þetta er fyrsta kvikmyndin sem
Chase lék í og þykir honum hafa
tekist ágætlega. Myndin er gaman-
mynd af skárri geröinni, mörg bráö-
fyndin atriöi er að finna í henni og á
litla brýnið Dudley Moore margar
skondnar senuri henni.
-FRI.
THE BEATLES COMPLEAT.
Þulur: Malcolm MacDowell.
Tveggja tíma heimildarmynd um
Bítlana, er þaö ekki fullmikiö af því
góöa? O seisei, nei. Hér er á feröinni
sérstaklega vönduö videomynd. Fylgst
er meö ferli Bítlanna allt frá upphafi til
upplausnar og er notast við kvik-
myndir frá tónleikum þeirra og blaða-
mannafundum og aö sjálfsögöu þá
þætti og kvikmyndir sem þeir unnu
sjálfir.
Inn í þetta efni er fléttað viötölum við
menn eins og George Martin upptöku-
stjóra, Lenny Kaye gítarleikara (Patti
Smith Group), Tony Sheridan, Billy
Preston og fleiri.
Hljómsveitin og goðsögnin The
Beatles er hér rækilega krufin til
mergjar. Hér er farið á þann hátt um
efnið að verulega er vakiö til um-
hugsunar. Auk þess kemur mynd-
bandið vel til skila skemmtilegri tón-
list f jögurra sjarmerandi manna.
Einhver besta rokkvideospóla sem
éghefséö.
m gr;»iMlcr
CatMf...
Mo
Jl IIII m CAI SAK
HK3H PLAINS DRIFTER.
Leikstjóri og aóalhlutverk CHnt Eastwood.
Besta mynd sem Clint Eastwood
hefur gert og jafnframt einn besti
vestri sem gerður hefur verið. Clint
leikur hér óþekktan mann sem ríður
dag einn inn i bæinn Logo. Eigendur
námafélags, sem heldur bænum lif-
andi, ákveða aö ráöa hinn ókunna til
aö hafa hemil á þremur mönnum
sem von er á til bæjarins en forráöa-
menn námufélagsins höfðu komiö
þeim bak viö lás og slá fyrir rangar
sakir.
Hinn ókunni tekur að sér verkefnið
en gerir þaö á allt annan hátt en
bæjarbúa haföi grunað því í ljós
kemur að hann á sjálfur ýmsar sakir
óuppgeröar við suma þeirra.
Mynd þessi er mjög í stíl spaghetti-
vestranna sem gerðir voru á áttunda
áratugnum, stílfærö útgáfa af
hefndarþemanu í þessari gerö kvpt-
mynda og hefur Eastwood tekist
alveg frábærlega viö gerö hennar.
-FRI.