Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1985, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR
72. TBL. - 75. og 11. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 1985.
Stjórnarfor-
maður
Sambandsins
raukádyreftir
stjórnarfund:
GUÐJÓN í SLAG-
INN Á MÓTIVAL
Eftir síðasta fund stjórnar SlS
varð sérkennileg uppákoma. Vara-
formaður, Finnur Kristjánsson frá
Húsavík, sem jafnframt er vara-
formaður skipulagsnefndar, óskaði
þess að stjórnin tæki tvo forstjóra-
kandidata til spuminga. Þá Val
Arnþórsson og Guöjón Olafsson.
Valur fyrtist við og rauk á dyr. Var
þá Guðjón sóttur í næsta herbergi.
Eftir yfirheyrslu var ijóst að hann
gefur kost á sér í stól forstjóra.
Finnur Kristjánsson, fyrrum
kaupfélagsstjóri KÞ, var varafor-
maður stjórnar SlS í formannstiö
Eysteins Jónssonar. Hann taldi sig
réttmætan erfingja að for-
mennskunni sem Valur hrifsaði af
honum. En Finnur er áfram vara-
formaður. Sem varaformaður
skipulagsnefndar gegnir hann i raun
formennsku varðandi val næsta for-
stjóra SlS þar sem Valur er
tilnefndur meöal kandidata.
Til skamms tima var talið að
Valur gæti ákveðið nánast upp á sitt
eindæmi hvort hann settist í stól for-
stjóra eftir Erlend Einarsson á
næsta ári. Auk hans hefur þó sér-
staklega verið rætt um Guðjón
Olafsson, fisksöluforstjóra í Banda-
ríkjunum, og Axel Gíslason,
aðstoðarforstjóra SlS siðan í fyrra.
Það er ekki fyrr en nú að á reynir
hvort í odda skerst. Og þá gerist það
óvænt.
Ástæður þess að Valur hefur
dregið að segja af eða á um áhuga
sinn á forstjórastarfinu eru ekki ljós-
ar. Heimildarmenn DV greinir á um
hvort það sé eingöngu KEA sem togi
svo sterkt í hann eða hvort Valur sé
veikur fyrir áskorunum manna
um að seilast eftir efsta sæti
framsóknarmanna á Noröurlandi
eystra og frama í flokknum.
Líkur benda til þess að næsti
stjómarfundur í SlS verði heitur
fundur.
-HERB.
Einvígiöum
Akureyrí
- sjá bls. 18-19
Alitum
íþróttir
-sjábls. 20-21
Utvarpsstöðvar
einkaaðila
sjábls. 34-35
„Einn er framsókn, annar íhald, þriðji kommi og svo
kratarnir. Allir mynda þeir kallaflokka svolítið dingaling
og allir eins," sungu þingsvölurnar Sigríður Dúna,
Guðrún Agnars og Kristín Halldórs við undirspil Berg-
þóru Árna á afmœlishátíð Samtaka um kvennalista., —
Sjá frétt á bls. 4. DV-mynd GVA.
Sikorsky krafinn skaðabóta?
Skýrslan um þyrluslysið í Jökul-
fjörðum í nóvember 1983, þegar TF-
RAN fórst með f jórum mönnum, var
gerð opinber í gær. Niðurstaða
skýrslunnar er sú að líklegasta orsök
slyssins sé sú aö rennihurð á hægri
hlið þyrlunnar hafi skyndilega opn-
ast, skolliö harkalega upp, farið af
neðri rennibrautinni vegna galla og
sveiflast upp i þyrilblöðin.
Nú vaknar sú spuming hvort fram-
leiðandi þyrlunnar, Sikorsky, verði
krafinn skaðabóta, bæði vegna miss-
is þyrlunnar, en sambærileg vél kost-
ar hátt í 100 milljónir króna, og
dauðamannanna.
„Þetta verður athugað,” sagði Jón
Magnússon, lögfræðingur Landhelg-
isgæslunnar.
„Skrifstofa ríkislögmanns mun
taka ákvörðun um þetta í samráði
viö dómsmálaráðuneyti,” sagði Jón.
-KMU.
sjá einnigbls.4