Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1985, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1985, Blaðsíða 18
18 DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS1985. Einvígiö um Akureyri Heimsborgari á hraðferð Sverrir Leósson, einn af máttar- stólpum atvinnulífs á Akureyri, skorafii undirritaöan á hólm fyrir nokkru. Ekki kvaöst hann þó nenna aö úthella blóði aö fornum siö, enda væri nú blóma- skeið mannréttinda og kærleika, en ég heföi i erindi um Daginn og veginn gerst sekur um þvílíka fáfræöi um hagi Akureyringa aö úr því yröi að leysa meö einhverju móti. Og vegna þess að Sverrir þessi er ekki fyrir það gefinn að láta sitja viö heitingar einar, þá bauö hann mér norður á sinn kostnað og kvaöst mundu sýna mér þaö svart á hvítu aö þar byggi ekki síöra fólk en fyrir sunnan. Eg varð aö taka þessari óvenjulegu áskorun og ganga á hólm viö staö- reyndirnar, Akureyri og Sverri sjálfan. Þetta var haröur bardagi en skemmtilegur — og umfram allt: mjög lærdómsríkur. Ferðin norður gekk illa. Þaö fór allt í handaskolum með farmiðana, farangur minn fór í misgripum til Húsavíkur en til Akureyrar komst ég samt, tannburstalaus og rakvélarlaus og af mér dottinn allur bylur. Skíttað búa í Reykjavík Snemmendis næsta dag hófst ein- vígiö. Viö byrjuöum í niðursuöufyrir- tæki K. Jónssonar. Allt var þar fádæma glæsilegt, vítt til veggja, hátt til lofts, snyrtilegt meö afbrigðum. Leiðsögumaöur okkar á staönum kvaöst vera fæddur fyrir sunnan, en þaö væri skítt aö búa í Reykjavík, þaö væri margfalt betra aö eiga heima á Akureyri. Sverrir Leósson glotti í laumi. Honum skal ekki veröa kápan úr því klæöinu, hugsaði ég. „Hér er fátt fólk að störfum,” sagði ég, ,,er kannski verkefnaskortur hjá ykkur?” „Þaö er allt fullt hér stundum og akkúrat nú er fleira fólk í næsta sal,” sagöi leiðsögumaðurinn, Gísli Már Olafsson, og brosti. „Þiö versliö víst aðallega við Sovét- ríkin,” sagöi ég, „svo kolryðguðu austantjaldsgarmarnir í Reykjavík eru eiginlega ykkur að kenna.” „Við skiptum líka við Þýskaland, Bandaríkin, Frakkland og mörg lönd önnur,” svaraði Gísli fljótmæltur. Sverrir þagði. Hann er flokks- bundinn sjálfstæðismaður. Nú var þaö ég sem glotti. Eitt mark gegn einu. Dýrð Reykjavíkur Viö ókum á næsta hólmgöngustað. Hvorugur mælti orð af vörum. Viö komum í Sandblástur og málmhúöun. Sverrir hvíslaöi einhverju í eyra fram- kvæmdastjórans, Jóhanns Guömunds- sonar. Þeir sýndu mér verksmiöjuna innanverða, lofsvert dæmi um frábært einstaklingsframtak í skugga Stóru hiyllingsbúðarinnar. Svo gengum við út undir bert loft. Og þar beið rot- höggiö! Þar iá bingur af ljósastaurum, ekki alveg fullunnum sýndist mér, en ljósa- staurumsamt. Svo bauö Jón okkur Sverri í skinna- deild Sambandsins en þar er hann hæstráðandi til lands og sjávar. Eg sat í jeppa Jóns og mér er eiður sær að þetta er í fyrsta sinn sem ég hef staðið Akureyring aö því aö þverbrjóta hraðareglur. En Jón er eiginlega ekki bara Akureyringur, „ég hef ferðast víða um heiminn og tel mig hdönsborg- ara,” sagöi hann og keyrði á ofsahraða fyrir horn. Jón er eiginlega ekki fram- sóknarmaöur heldur, því aö hann aö- hyUist frjálsan markaö og margt i kenningum Friedmans. „Hvaö ertu þá aö vUja í Fram- sóknarflokknum? " spurði ég Jón. Einhver veröur aö laga Framsóknarflokkinn — því ekki drepst hann,” svaraði Jón og negldi jeppann fyrir utan skinnadeUdina. Og síöan tók hver hólmgöngustaöur- inn viðaf öðrum: Mölogsandursemer háþróað fyrirtæki í byggingariðnaði en lepur nú dauöann úr skél og er hálf- partinn á leiðinni suður; Gúmmí- vinnslan sem dugnaðardrengurinn Þórarinn Kristjánsson bjó til úr engu fyrir hálfu ööru ári; Brauðgerð Kr. Jónssonar sem berst upp á líf og dauða viö Brauðgerö Stóru hrylUngsbúðar- innar og stendur sig afburða vel, þrátt fy rir mjög erfiða samkeppnisaðstööu. Og seinast hittum viö sjálfan Aðal- geir. Þaövarhátindurferðarinnar. Aðalgeir „Þið eigiö ykkar Geir fyrir sunnan, en viö hér á Akureyri eigum okkar Aðalgeir,” sögðu norðanmennirnir meö Ula duldu stolti. Eg rigsaöi inn á kontór Aöalgeirs. Þetta var fábrotinn kontór en yfir öllu hvUdi hinn guUroöni ljómi auösældar, stórra fjárhæða, mikilvægra tengsla. Hægindin voru leðurklædd, skrifborð og hUlur úr eðalviöi. A veggnum hékk mynd af John F. Kennedy og lék um varir hans göfugmannlegt frjáls- hyggjubros. Aðalgeir Finnsson er einn af liösodd- um hins frjálsa atvinnulífs á Akureyri, þess ólgandi, þróttmikla einkafram- taks sem berst fyrir lífi sínu með kjafti og klóm í köldum skugga hinnar Stóru hryUingsbúðar. Aðalgeir á eitt öflug- asta byggingafyrirtæki landsins, Aðal- geir og Viðar. Hann á glergeröina Ispan á Akureyri, tölvuþjónustuna Tölvang, hann á hluti í fleiri fýrir- tækjum en hér er unnt að telja. Hann situr í bankaráöi Iðnaöarbankans, stjóm Slippstöövarinnar og Vatnsveit- unnar. Hann er í flokki hinna svo- nefndu Laxmanna sem nýlega tóku að sér rekstur hins víðfræga Laxdals- húss. Aðalgeir er auðjarl á ameríska vísu, lítur út eins og mUljónamæringur i Texas, hefur alls staðar sambönd, og þó er enn ótaUö það sem langmestu varðar: Aðalgeir hefur nefnUega í hendi sér sjálft hjarta Akureyrar, hið lifandi hjarta Norðurlands, SjaUann! „Þið fyrir sunnan eigið ykkar Geir en við hór ó Akureyri eigum okkar Aðalgeir." Gunnar Ragnars f Slippstöðinni vitnar i Sesar: betra er að vera númer eltt ó Akurey ri en númer tvö í Reykjavík. AKUREYRI „Þessir eiga nú víst að fara íGrafar- voginn hjá ykkur,” sagði Jóhann alúðlega. Ojá. Dýrð Reykjavíkur kemur frá Akureyri! Það er að segja Ijósadýröin. Sandblástur og málmhúöun seldi höfuðborginni 1100 ljósastaura í fyrra, 200 voru nýfarnir þegar mig bar að garði, og aðrir 600 voru í deiglunni. „Höldum feröinni áfram,” sagði Sverrir og var nú aftur farinn að brosa. Eg sá nú að hann hafði skipulagt ein- vígið af talsverðri lymsku. Næsti hólm- göngustaður var nefnilega höfuðvígi hans sjálfs, Utgerðarfélag Akur- eyringa, en þar er Sverrir stjómarfor- maöur. Við drukkum kaffi með skrifstofu- stjóranum, Jóni Aspar, höfðinglegum öldungi meö fagurblátt Akureyrar- blóð streymandl 1 æðum. A veggnum héngu tiginmannlegar ljósmyndir af Margréti Þórhildi Danadrottningu og Hinrik bónda hennar. Stóra hryllingsbúðin UA er stærsta útgerðarfyrirtæki Islands, það á flesta togarana (fimm talsins), stærsta, bjartasta og snyrti- legasta vinnslusalinn. ,,En það er ekki allt fengið með stærðinni,” sagði ég. „Davíð Oddsson fækkaði togurum BUR niður í fjóra og við það stórbatnaði reksturinn. ” „Eg myndi ekki vilja sjá að búa í Breiðholtinu ykkar,” sagði Gunnar Lórenzon verkstjóri. „A ekki KEA helminginn í fyrir- tækinu?”spuröiég. En KEA á víst aðeins um 5% í UA. Raunar fannst mér það áberandi og dálítið óhugnanlegt, að nær allir sem ég hitti að máli voru fremur ófúsir að ræða um KEA. Það bar jafnvel viö að menn lækkuðu róminn eöa svömðu mér út af þegar ég leiddi hjalið að Stóru hryllingsbúðinni. Einn var þó talsvert opinskár og sagöi mér langa sögu og ófagra af skiptum sínum við hryllingsbúðina. En þegar ég var kominn suður hringdi hann til mín og bað mig innilega aö hafa ekkert eftir sér. KEA var alls staðar, yfir og undir og allt í kring og þó var einkennilega erfitt að henda reiður á þessu ægilega valdi. Næst knúöum við dyra hjá Gunnari Ragnars í Slippstöðinni. Þar er voldug- asta skipasmiðastöð landsins. Og Gunnar Ragnars er meö hæstu mönn- um á Akureyri. Hann sýndi okkur fyrirtækið, sem allt var hiö glæsileg- asta eins og vænta mátti. Svo bauö hann okkur upp á eggjaköku og hrá- salat. Jón Siguröarson snæddi með okkur. Hann er af Ystafellskyni, sem er harðsoðin kaupfélagsætt. Jón er framsóknarmaður og situr í bæjar- stjóm. Gunnar situr líka í bæjarstjórn en fyrir Sjálfstæðisflokkinn. | Andans menn áAkureyri Nú tók rimman að harðna undir borðhaldinu. Andstæðingarnir vom kurteisir menn, en þeim var annt um orðstír Akureyrar og báru fram mörg rök og veigamikil henni til fram- dráttar. Gunnar sagöi nokkrar dapurlegar sögur af Akureyringum, sem voru harla hamingjusamir, efnaðir og sælir meö sig, en tóku svo það óyndisúrræði að flytja suöur til Reykjavíkur. Þar fóru þeir nánast í hundana. „Þaö er mikils virði að mega búa þar sem manni liöur vel,” sagði Gunnar, og vitnaði síöan i ummæli Sesars, sem skilja mátti á þann veg að það væri miklu vænlegra hlutskipti að vera númer eitt á Akureyri heldur en númer tvö í Reykjavík. „En svona sæla er einskis virði,” sagði ég og mundaði nú atgeirinn heldur ófriðlega. „Hugsið um meuninguna í Reykjavík og þetta hroöalega menningarleysi sem er alls- ráðandi í dreifbýlinu. Það getur vel verið að viö Reykvíkingar séum upp til hópa stressaöir og vansælir, en þar er menningin, þar búa skáldin, þar eru vísindamennirnir og stórmennin! Hvaða andans menn búa eiginlega hér jáAkureyri? Ha?” | En nú kom í ljós að Jón Sigurðarson ! hafði einmitt búist við árás úr þessari átt. Hraðar en hönd á festi þuldi hann upp langa romsu andlegra stórmenna og byrjaði á Olafi Hauki Símonarsyni og Eldhúsmelluskáldinu frá Dalvík. Mér varð orðfall. „Og svo bjó hér nú bókavörður einn sem ég hrf alltaf haft talsverðar mæturá,” bætti Jón viö skjótlega, með þessháttar raddhreimi og augnaráði sem gaf til kynna að einhver nærstadd- ur heföi einhvemtíma hlaupið illilega á 'sig. UM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.