Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1985, Qupperneq 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS1985.
Ga/// f hurð talinn
orsök þyrluslyssins
rennihurflin hafl sveiflast upp i þyrilblöflin.
„Viö teljum að við séum búnir aö
færa yfirgnæfandi rök fyrir því að
rennihurðin hafi farið af neöri sleð-
anum og sveiflast upp í þyrilblööin,”
sagði Karl Eiríksson, formaður flug-
slysanefndar, á blaðamannafundi í
gær er skýrsla um þyrluslysið í Jök-
ulfjörðum var opinberuð.
Fjórir menn fórust með TF-RAN,
þyrlu Landhelgisgæslunnar, þann 8.
nóvember 1983. Hún hóf sig til flugs
upp af þyrluþilfari varöskipsins Oð-
ins klukkan 22.53. Flugiö stóð aðeins
um eða yfir eina mínútu.
Rannsóknin á slysinu er sú yfir-
gripsmesta sem íslensk yfirvöld hafa
staðið að til þessa. Flugslysanefnd
og Flugmálastjórn stóðu aö henni
sameiginlega og nutu aðstoöar fjöl-
margra aðila, þar á meðal sérfræð-
inga frá öryggisráði samgöngumála
í Bandaríkjunum og bandarísku al-
ríkislögreglunni. Margar tilgátur,
sem fram komu um orsök slyssins,
voru kannaðar ítarlega.
Ekki með fullri vissu hægt
að segja um orsök
„Niðurstaða skýrslunnar er sú að
ekki séu fyrir hendi nægar sannanir
til þess að unnt sé með fullri vissu að
ákveða hver hafi verið orsök slyss-
ins,” segir í fréttatilkynningu um
slysið.
„Hins vegar er ástæða til þess að
ætla að upp hafi skyndilega komiö
vandamál í starfrækslu eða flug-
hæfni þyrlunnar, svo sem að renni-
hurðin, sem er á hægri hlið þyrlunn-
ar, hafi skyndilega opnast, skollið
harkalega upp, farið við það af neðri
rennibrautinni og sveiflast upp í
aöalþyrilinn.
Þetta gæti hafa leitt til svo mikilla
skemmda á þyrilblööunum aö það
hafi skert mikið möguleikana á að
unnt væri að st jórna þyrlunni.
Líklegt er talið að skemmdir þær
sem hurðin gæti hafa valdið á þyril-
blööunum hafi leitt til þess aö flug-
mennirnir hafi orðið að stöðva fram-
skrið þyrlunnar tafarlaust (rapid
hoover stop) og nauðlenda henni.
Slík stöðvun er framkvæmd með því
meðal annars að reisa nef þyrlunnar
skyndilega.
Rennihurðin var ekki á þyrlunni
þar sem hún lá á hafsbotni. Hurð
verið opnuö, til þess að undirbúa
híf ingaræfingu, og þá hafi hún losnað
úr neðri rennibraut sinni.
Líkur til að rennibrautin
hafi verið gölluð
I skýrslunni kemur fram að líkur
bendi til þess að rennibrautin hafi
verið gölluð þar sem ekki sjáist
merki eftir 8 af 12 stálkúlum sem
gefa henni styrk. Ekkert kom fram
við rannsóknina er benti til þess að
rennibrautin hefði verið tekin sundur
eftir aö þyrlan kom hingað til lands.
Skýrslan telur aö rannsóknin hafi
leitt í ljós að eftir aö hurðin losnaði af
neðri rennibrautinni hafi hún sveifl-
ast upp og lent i aöalþyrilblöðunum.
Þetta er meöal annars byggt á um-
merkjum og förum á aðalþyrilblaði,
skrokki þyrlunnar og víðar sem
koma heim og saman viö stærö, lög-
un og útreiknaðan feril hurðarinnar.
Rennihuröin, sem vegur tæplega
30 kfló og flýtur ekki á vatni, hefur
ekki fundist þrátt fyrir mikla leit, en
skemmdir á neðra borði þyrilblað-
vindugálganum koma heim viö stærö
og lögun huröarinnar og styðja fram-
angreinda skýringu. ”
Á blaðamannaf undinum kom fram
aö við efnagreiningu i Bandarikjun-
um hefði komiö í ljós að i rispum á
neðra borði þyrilblaðanna var að
finna málningu af skrokk þyrlunnar.
Taliö er að flugmennirnir hafi i
misgripum, þegar allt lék á reiði-
skjálfi í myrkri og neyðarástandi,
kveikt á leitarljósi en rofi þess er rétt
hjá viöbúnaöarrofa fyrir neyöarflot
þyrlunnar.
Þyrlan var tiltölulega litið
skemmd eftir að lenda á sjónum og
engir áverkar voru á mönnunum
tveimur sem fundust látnir um borð.
Þetta þykir benda til þess aö þyrl-
unni hafi verið lent undir stjóm en
hún ekki flogið í sjóinn. Dánarorsök
mannanna var drukknun.
I skýrslunni er þess einnig getið aö
ytri aðstæður, svo sem náttmyrkur
og dökkt umhverfi, vindhvörf á firð-
inum og langur vinnudagur fluglið-
anna, hafi gert þeim erfiðara að
bregðast við skyndilegum og óvænt-
umvanda. -KMU
þessi er opnuö þegar híft er og er
vindugálginn yfir henni. LQdegt er
talið aö huröin hafi opnast, eða hafi
anna, skemmdir á hreyfilhlífunum,
skemmdir á skrokknum s jálf um og á
Skólastarfið
komið
Skólahald hófst víðast hvar í fram-
haldsskólum í gær. Kennarar mættu
flestir til starfa strax um morguninn.
Hvemig heimtur hafa verið á nem-
endum er lítið hægt að segja fýrr en
eftirnokkra daga.
„Við höfum ekki heyrt annað en að
kennarar hafi mætt til starfa. Þeir
hafa verið að átta sig á hvemig skipu-
lagið verður á þessari önn,” sagði
Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri í
menntamálaráðuneytinu, í gær.
Eins og kunnugt er töpuöu nemendur
af 16 kennsludögum vegna aögerða
kennara. Nú er verið að semja áætlan-
ir í skólum um það hvemig leyst verði
úr þessumkennslumissi.
í gang
Síðdegis í gær var kennslan aö kom-
ast í eðlilegt horf í MH.
„Menn hafa svona verið að taka sig
saman í andlitinu í dag. Eg reikna með
því að kennt verði á fullu eftir stunda-
skrá á morgun,” sagði ömólfur
Thorlacius rektor í MH í gær.
Hann sagði að enn væri ekki endan-
lega búið að ganga frá þvi hvemig
kennslunni yrði háttað það sem eftir
væri annarinnar. Áhersia væri þó lögð
á að skólahaldiö teygði sig ekki fram í
júní.
Fram aö þessu hafa nemendur þurft
að skila lágmarksárangri eða fjölda
eininga á önn. Nú er hins vegar verið
að íhuga hvort ekki verði horft fram
hjáslíkuaðþessusinni. APH.
ÞINGSVÖLURNAR
í AFMÆLISHÓFI
Þingsvölurnar tóku lagið í a&nælis-
fagnaöi Samtaka um kvennalista i
fyrradag. Tveggja ára afmælisfagn-
aðinn, sem haldinn var í Lækjar-
hvammi, Hótel Sögu, á sunnudag,
sóttu umsextíu konur.
Þar var margt gert til skemmtunar,
m.a. lagt fram f rumvarp til eldhúslaga
og líka tillaga til þingsályktunar.
Kjami tillögunnar byggir á þeirri
grundvallarskoðun að friðsöm kona sé
kúguö kona. I tillögunni hvetja allar
konur til ófriðar þar sem friöur ríkir.
Tveir meðflutningsmenn voru með
konunum á tillögunni, þ.e.a.s. karlkyns
flutningsmenn. Það eru þeir Árni
Jónsínuson og einhver Leiður sem eng-
inn mundi hvers son er. I eldhúsfrum-
varpinu er undirstrikaö aö eldhúsiö sé
undirstaöa þjóðfélagsins og horn-
steinninn.
Fjöldi < heillaóskaskeyta bárust
afmælisbömunum á tveggja ára hátíð-
inni. Eitt þeirra var frá Togo. I því
stóð: Sendum negrakossa frá Togo —
Stopp — Svavar og Friðrik Stopp í
Togo.
En eitt hrista skemmtiatriðiö var
söngur þriggja á þingpalli og þing-
svalanna.
Þingsvölurnar sungu um litla kalla
við Austurvöll, sem eru svoldið dinga-
ling og allir eins.
-ÞG
Skemmtanastjórínn í Ypsi-
lon kærður fyrir líkamsárás
Skemmtanastjórinn á veitingastaön-
um Ypsilon hefur verið kærður fyrir
líkamsárás vegna viðskipta sinna við
dansflokk sem kallar sig Vinir og
vandamenn og skemmti á Ypsilon fyrr
í þessum mánuði.
Forsaga málsins er sú, að þann 8.
mars sl. sýndi dansflokkurinn á
skemmtistaönum. Samkvæmt fram-
burði fóru þrír úr flokknum á fund
skemmtanastjórans sl. miðvikudag til
að rukka fyrir skemmtiatriðin. Neitaði
skemmtanastjórinn að borga það sem
um var samið. Urðu málalok þau að
skemmtanastjórinn tók einn úr flokkn-
um kverkataki og þjarmaði aö honum.
Dró hann dansarann aö útidyrunum og
henti honum út.
Áð sögn Iögreglunnar í Kópavogi
fékk dansarinn vottorð fyrir áverkum
sem hann hlaut. Skemmtanastjórinn
hefur legið sjúkur að undanfömu og
ekki reynst mögulegt að yfirheyra
hann þess vegna. Yfirheyrslur munu
væntanlega hefjast í dag.
-EH.
í dag mælir Dagfari
í daq mælir Dagfari
I daa mælir Daqfari
Misskilningur á misskilning ofan
Það er eins með stjómmálamenn
og tískuna. Hvort tveggja tekur
breytíngum eftir árstiðum. t gamla
daga þótti það aðalsmerki góðra
stjóramálamanna að segja sem
minnst en láta verkin tala. Orð skulu
standa, sögðu menn, og töluðu af á-
byrgð og yfirvegun. Þetta var fyrir
tið sjónvarps og fatafellna og áður en
alþinglsmenn fóru að auglýsa skó-
fatnað og vitamínpillur.
Nú er hins vegar tískan sú að
geysast um landið og hafa hátt, enda
ber það árangur í skoðana-
könnunum. Þegar menn mega ekki
vera að þvi að haida fundi hérlendis
vegna funda erlendis, passa þelr upp
á að detta ekki út úr umræðunnl hér
heima með þvi að sletta út úr sér ein-
hverjum misskilningl i garð
annarra. Eftir að Jón Baldvin hafðl
misskillð skandinavíska krata og
Poul Pedersen frá Hallesteder hafði
misskilið hann hélt Jón á alþjóðlegan
kratafund i Portúgal og bíða menn
nú spenntir eftir fréttum frá Lissa-
bon hver misskilji hann þar. Það
sama gerði varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins. Hann hreyttl
ónotum í rikisstjóraina og Fram-
sóknarflokkinn og hélt siðan af landi
brott til Togo, nokkura veginn viss
um að detta ekki úr umræðunni á
meðan fyrlr misskilning.
Varaformanninum varð að ósk
sinnl þvi ummæll hans hafa valdið
nokkru fjaðrafoki á stjóraar-
heimilinu. Þorsteinn Pálsson komst í
sjónvarpsviðtal út á þessar yfir-
lýsingar varaformannsins og brosti út
í bæði þegar hann var spurður álits á
þeim. Hann sagðist skilja varafor-
manninn svo, að hann hefði skillð
forsætisráðherra svo, að skilja mætti
Framsóknarflokklnn svo, að fram-
sóknarmenn ætluðu að segja skilið
við stjóraarsamstarfið. Formaður-
inn og varaformaðurlnn höfðu sem-
sagt sama skilning á því hvernig
bæri að skilja framsóknarmennlna.
Forsætisráðherra var gripinn
glóðvolgur á skiðapeysunni til að út-
skýra þennan skllnlng forystumanna
Sjálfstæðisflokksins.
Forsætisráðherra kvað skiln-
inginn misskilning. Ef hann hefðl
sagt eltthvað um mlstök stjóraar-
innar þá væri það á mlsskilningi
byggt, annaðhvort hjá homnn sjálfum
eða þeim sem hefðu skilið orð hans á
nnnan veg heldur en þau áttu að
skiljast. Forsætisráðherra hafði ekki
meint það sem hann sagði en tók
jafnframt fram að ef hann hefðl sagt
eltthvað, sem hann ætlaði ekkl að
segja, þá bæri það vott um heiðar-
leika. Með öðrum: skliningur sjálf-
stæðismannanna er á misskllningl
byggður, en ef þessi misskilningur er
skliinn rétt, á ekki að skilja málið
sem mlsskilning heldur sem heiðar-
lega viðurkenningu á því, að það hafi
verið misskilningur hjá rikisstjóra-
inni að skilja efnahagsráðstafanira-
ar á siðasta ári eins og þær voru
sklldar.
t næstu umferð verður sjónvarplð
að taka Þorstein aftur á beinið og
gefa honum kost á að útskýra hvaða
skilning hann leggur í þessi svör for-
sætisráðherra. Kjósendur verða að
fá útskýringar á því hvort Þorstelnn
misskildi ummæli ráðherrans, eða
hvort hann telur viðurkenninguna á
mlsskilningi rikisstjóraarinnar vera
misskilning af hálfu stjóraarinnar.
Var það misskllningur stjórnarinnar
sem Þorsteinn misskildi, eða var það
misskilningur Steingríms, sem Þor-
steinn mlsskildl? Mlsskildi Þor-
stelnn Friðrik? Eða vQl Þorseinn
kannske leiðrétta, að misskilnlngur
hans hafi verið mlsskilnlngur eins og
f orsætisráðherra heldur f ram?
Með þvi að mlsskllja hver annan
nægilega oft geta stjóramála-
mennlrnir gert sér góðar vonir um
að haldast í umræðunni og
fréttunum, jafnvel þótt þeir séu
staddir í Lissabon eða Togo, og hafi
ekkert annað til málanna að leggja
en móðgast út í mlsskllning, sem þeir
sjálflr misskilja.
Dagfari.