Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1985, Side 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS1985.
Spurningin
Skrifar þú
sendibréf?
Ema Egilsdóttir hjá þjónustumiöst.
bókasafna: Nei, ég geri sama og ekk-
ert að því að skrifa sendibréf.
EUen Martin nemi: Já, mjög oft. Eg á
nokkra vini í útlöndum sem ég skrifa
oft.
Dagbjört Gunnarsdóttir skrif-
stofumær: Nei, satt best að segja er ég
alveg hrylUlega pennalöt manneskja.
Vilhjálmur Svan Jóhannsson: Nei, ég
skrifa aldrei sendibréf. Það eina sem
ég skrifa eru ávísanir.
Smári Helgason yfirpóstaf-
greiðslumaður: Nei, þegar ég þarf aö
ná sambandi við fólk tek ég yfirleitt
upp símtóUð og hringi i það.
Haraldur Gíslason sölumaður: Nei, ég
er alveg blásaklaus af því.
„Kettirn-
ir stukku
á mig”
Nei, Svanlaug, annaðhvort ert þú
ólæs eða þig skortir skynsemi nema
hvort tveggja sé. Þetta er ekki rétt.
Plastpokann setti ég fyrir andUtið á
mér þegar ég sá kettina koma svíf-
andi á mig en ekki yfir höfuöiö. Aö
sjálfsögðu rifnaði pokinn því þeir
náðu að krafsa í hann. Þú ert undr-
andi á því aö kettirnir hafi ekki kom-
ið viö mig þar sem plastpokinn var í
höfuðhæð. Eg er undrandi á þér,
Svanlaug . Hefur þú aldrei séð ketti
stökkva yfir metra háa hindrun ?
Svanlaug skrifar að köttunum sé
gefinn matur í plastpokum. Hún hef-
ur greinilega ekki séð umgengnina í
kringum stokkinn. Þar liggja hálf-
skornar mjólkurhymur og plast-
bakkar um aUt. Síðan segist hún
hissa á því að maöur skuU lýsa því
yfir í víðlesnu dagblaði aö maöur sé
hræddur við ketti. Hún veit greini-
lega ekki hvað það er að hafa 10—15
ketti æðandi kolbrjálaöa í kringum
sig. Ég er viss um að ef einhver óvar-
inn krakki hefði orðið fyrir þessu
hefðu þessi orð aldrei fæðst á vörum
Svanlaugar.
Hjörtur Jónsson skrifar:
Nýlega birtist í DV vægast sagt
undarleg grein um kettina við Rétt-
arholtsskóla. Þar segir Svanlaug
nokkur Löve mig ljúga því að kett-
HRINGIÐ"
í SÍMA
68-66-11
kl. 13 til 15
eða
SKRIFIÐ
irnir hafi stokkiö á mig. Undarlegt
hvað fóUt getur verið vantrúað. Einn-
ig segir hún að ég hafi verið svo
heppinn að vera með plastpoka sem
ég hafi getað sett yfir höfuöið á mér.
Að lokum. Köttunum hefur ekki
verið gefið reglulega fyrst þeir ráð-
ast á fólk með plastpoka því kettir
eru ekki óseöjandi. Mig furðar á að
nokkur manneskja, eins og Svan-
laug, geti látið svona nokkuð út úr
sér. Kannski ert þú ennþá í grunn-
skóla. Þaö má guð vita.
„Kettir eru ekki óseðjandi," segir Hjörtur i brófi sinu.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Málefni leigu-
bifreiðarstjóra
Bréfritara finnst að almenningur eigi ekki að greiða kostnað leitarflokka á
hálendinu.
Leit á hálendinu
Þór Guðmundsson hringdi:
Þaö er ekkert nýnæmi að fólk fari í
ferðir upp á hálendið án nægUega góðs
útbúnaðar og síöan séu gerðir út leitar-
flokkar til að finna það þegar veður
versnar. Mér þætti fróðlegt að vita
hvað svona leit kostar og hvort fólkið
er látiö borga leitina sjálft. Ef svo er
ekki þá finnst mér að því eigi að
breyta. Þegar ég panta sjúkrabíl til að
komast á spítala má ég gjöra svo vel
og borga sjálfur. Mér finnst fráleitt að
almenningur sé látinn greiða þetta.
Olafur H. Jakobsson skrifar:
Það er ótrúlegt hvað miklum
óþverra er búið að ausa yfir okkur
leigubílstjóra í stéttarfélaginu Frama
að undanförnu í fjölmiðlum. Auglýsing
þeirra Steindórsmanna í DV 18. mars
sl. var ein lágkúran enn. Leigubílstjór-
ar eru nefnUega ekki einir um að njóta
fyrirgreiöslu við kaup á atvinnutækj-
um sínum. Samkvæmt skilgreiningu
þeirra á Steindórsstöðinni á almenn-
ingur drjúgan hluta af vörubílum og
rútubílum.
Það er óskandi að samgöngumála-
ráðherra sjái sóma sinn í að loka Stein-
dórsstöðinni hið fyrsta. Hann er búinn
að klúðra nógu miklu í sambandi við
þetta mál nú þegar. 30 manns hafa
Sigurður Sigurjónsson, leigubifreiðar-
stjóri á Bifreiðastöð Steindórs, skrif-
ar:
Undanfarið hefur Jóhannes Valdi-
marsson, bifreiðastjóri á BSR, skrifað
langlokur í DV um Steindórsmálið. Því
miöur hefur hann ekki hundsvit á því
sem hann er að fjalla um og tel ég því
ekki ástæðu til að svara greinum hans
efnislega, enda er þar um framhalds-
skáldsögu að ræða.
Hitt er svo annað mál að Jóhannes
vitnar í reglugerð og segist krefjast
þess að eftir henni sé farið. Hann telur
það skyldu leigubílstjóra að sjá um að
svo sé gert. Með þessu er hann að rétt-
læta ofbeldi þaö sem haft hefur verið í
frammi af þeirra hálfu.
Eg vil fræða Jóhannes um það að
komist upp með að ganga í berhögg við
600 manna stéttarfélag. Það er tíma-
bært að nýir úthlutunarmenn atvinnu-
leyfa taki til starfa og reglugerð sú,
sem nefnd skilaði af sér fyrir tveimur
mánuöum, um takmörkun leigubíla
sjái dagsinsljós.
Hlutur borgarstjórnar í þessu máli
viröist ærið óljós. Hún leyfir sendibíla-
stöð í miðborginni með bensíndælu og
olíusölu. Aður var hún búin að sam-
þykkja að reyna að fækka bensínstöðv-
um í miðborginni til að greiða fyrir
umferð almenningsvagna á svæðinu.
Síðan er eins og enginn vilji taka
ábyrgð á þessari ákvörðun fremur en
leyfinu sem gefur Steindórsstöðinni
heimild til aksturs. Eg vil fá skýringu
á öllum þessum skollaleik.
hann sjálfur er samkvæmt reglugerð-
inni sinni „ólöglegur”. En Jóhannes
ekur í atvinnuleyfi móður sinnar sem
er og hefur undanfariö verið búsett í
Þorlákshöfn og hefur samkvæmt því
ekki rétt til atvinnuleyfis í Reykjavík.
Eg vil þó hugga Jóhannes meö því aö
hann hefur ekkert að óttast af okkar
hálfu. Viö munum ekki hafa í frammi
slík vinnubrögð sem hann telur réttlæt-
anleg til að koma lögum yfir ólög-
lega leigubílstjóra. Við gerum það
ekki, né teljum það í okkar verkahring,
að hleypa lofti úr dekkjum, hindra för
hans, aka á hann eöa skjóta á fram-
rúðu bíls hans.
Eg vona Jóhannesar vegna að hon-
um hafi með greinum sínum tekist að
kaupa sér náð hjá „æöstu postulum’’
leigubílstjóra.
Árásir Höllustaða-Páls
ekki samboðið þingmanni á
Alþingi íslendinga
Guðjón V. Guðmundsson skrifar:
Eg vil lýsa megnustu andúð minni á
sífelidum árásum Höllustaða-Páls á
Jón Baldvin, formann Alþýðuflokks-
ins. Sum ummæU þessa framsóknar-
þingmanns eru svo rætin að furðu
gegnir, samsafn af svívirðingum og al-
gerum lygum. Þetta getur engan veg-
inn verið samboðið þingmannai á Al-
þingi Islendinga. Það verður að gera
að minnsta kosti kröfur um lágmarks
mannasiði til þeirra er þar taka sæti.
Þessi maður hefur gengið svo langt í
ósvífninni að ekki verður við unað.
Hann hefur ekki aðeins móðgað for-
mann Alþýðuflokksins gróflega heldur
og aUa sanna jafnaðarmenn sem
fylkja sér um formann sinn og eru
stoltir af honum. Það er slæmt að
hólmgöngur skuU ekki lengur vera viö
lýði, annars myndi ég skora Pál á
hólm.
Steindórsmálið:
Sá heggur er síst skyldi