Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1985, Qupperneq 37
Stefam'a skákar snápum
Furstafjölskyldan í Mónakó hefur
oft veriö á milli tannanna á fólki. Ekki
minnkaöi þaö er böm þeirra Rainiers
og Grace heitinnar stálpuðust og fóru
aö láta aösérkveöa.
Blöö og blaöamenn leggja
oft hart að sér til þess að fylgjast
meö þeim og eitt aðalmyndefniö þessa
dagana er Stefanía, yngst þeirra
Mónakó-systkina. Stefania þykir feg-
ursta fljóö og hefur lagt út á fyrirsætu-
brautina eins og nýlega hefur verið
sagt frá. Stefanía fyllir nú annan tug-
inn og hefur verið gefinn laus taumur-
inn. Alltaf er þaö nú svo aö menn telja
að fréttnæmara sé þaö sem miður fer,
en ekki þaö sem gott er. Þaö þykir líka
krassandi að ná af fólki myndum sem
það hefði ekki viljað að birtust. Þaö
var í þeim tilgangi sem ljósmyndari
elti Stefaníu og vini hennar til eyjunn-
ar Mauritus í Indlandshafi. Þar beiö
snápurinn eftir spennandi tækifæri til
aö festa Stefaníu á filmu í einhverju
þvi sem menn vildu aö ekki fréttist. En
Stefanía er grandvör stúlka og skirrist
viö aö koma hneyksli af staö. Það varð
því lítið úr því að Stefaníu yröi stillt
upp við vegg. Hitt er annað aö á mynd-
um þeim kom vel fram aö Stefanía er
vel af guöi gerö og hefir sárafátt aö
fela. Jafnvel færra en menn héldu.
Staðan er því 1—0 fyrir Stefaniu og við
fögnum.
Eldgamla
ísafold
lofuð
r li hástert
Alltaf er einhver slæðingur af
útlendingum á flandri hérlendis. Ekki
þykir sæta tíðindum þó menn rekist á
eitthvert furðudýriö niðri í bæ. Vanda-
máliö varðandi mannihn er oftast leyst
með því aö stimpla hann útlending.
Þetta veröur oft til þess aö útlending-
um finnst eins og horft sé skringilega á
og fyllast hatri og hefndargirni. Þegar
þeir koma svo Ul síns heima setjast
þeir niður og ritfærir menn setja
saman einhvem þvætUng um kalsa-
verður, ruddalega framkomu inn-
fæddra, verðbólgu og ámóta illkvittn-
islega lygi sem flesta særir og gerir
Erlendir ferðamenn eru furðufólk. Hverjum nema útlendingum dettur i hug að tjalda i polli
engum gott.
Það var því ekki að undra að Sviðs-
Ijósið ræki í rogastans er það fyrir
slysni rakst á lofgrein um Island og Is-
lendinga. Það er ekki á hverjum degi
sem slíkt rekur á f jörur manna. Hvað
um það þá var greinin öll hin skemmtt-
legasta og mönnum hlýnaði um hjarta-
rætur, þeim fáu sem ekki voru hel-
frosnir eftir öll níöskrifin á undanförn-
um árum. Sem fyrr segir var öllum
borin vel sagan, landi og þjóð. Skrifar-
inn virtist svo heillaður af landslagi aö
hann minntist ekki einu orði á bjórleys-
ið. Honum virUst skemmt er hann las
nöfn bæja og þorpa úti á landi. Hann
nefnir Kirkjubæjarklaustur og segir að
þar búi færri en stafimir í nafninu eru.
Hann hefur látið heillast af littu húsun-.
um sem húka niðri við tjörn og litlu
fiskibátunum sem virðast til þess eins
að gleðja augað. Og unga fólkinu sem
klæðir sig upp á síðdegis og læðist i
Hollywood þegar tekur og eyðir þar
nóttinni viö dans og söng. Jamm. I von
um fleiri lofskrif bjóöum við alla
heimsins blaðasnápa velkomna.
37
Rikasta ekkja heims, Janni
Spies, hefur skipulagt tónleika með
Fílharmóníuhljómsveit Vínarborg-
ar og verða þeir baldnir í kóngslns
Köben. Tónleikarnir verða baldnir
til styrktar dönsku dýravemdunar-
samtökunum en Janni er sem
kunnugt er miklll dýravinur.
* + +
Trommari The Beatles, Ringo
Starr, hefur dálíttð lagt fyrir sig
kvikmyndaleik. Menn muna eftir
The Caveman þar sem hann lék á
móU komi sinni Barböru Bach.
Nú hefur kappinn nýlokið leik í
mynd sem kallst Road to Australia.
Myndin sú ku óvenjuvönduð og eft-
irþvídýr.
Marlon Brando er búinn að týna
kettinum sinum. Hann hefur leitað
mikið að kisu en ekkert gengur.
Honum datt snjallræði í hug í þvi
sambandi. Hann lét setja upp
auglýsingaskilti þar sem er mynd
af honum ásamt kettinum. Hann
segir á myndinni eitthvaö á þá leið,
að hann hafi týnt kettinum sínum
og þeir sem viti af honum eigi fé í
vændum láti þeir vita.
Nei, menn deyja ekki ráðalaus-
iríúttöndum.
Eitt er það útgáfufyrirtæki
erlent sem hefur að undanfömu
mikiö reynt að fá Jackie Onassis til
að rita endurminningar sínar.
Onassisekkjan hefur hins vegar
þráfaldlega visaö þessari málaleit-
an á bug og segir ekki koma til
mála að gera opinbert sitt einkalíf
fram að þessu. Þeir útgefendur
hafa nú gef ist upp og ákveðið reyna
viö Diönu prinsessu. Þó hún sé ung
þá hefur hún eflaust frá mörgu að
segja.