Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1985, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR13. APRlL 1985.
11
SITT LÍTIÐ AF HVERJU
'lANbSFUhlDUft $2*±fSTÆ-ÐiS-
fLOKKSÍNS fffeKÍ HAUOÍNN
J HAU5T VfGNA ÞMSS Afi> ÞA
.M£RÐUf( öúi£> A£> HALDA HAWH.
Þegar ég var að alast upp í kaup-
stað norður í landi á sínum tíma var
frekar lítið um alla skapaða hluti þar
nema kannski kaupfélög og fram-
sóknarmenn og voru bílamir til
dæmis svo fáir í bænum að árekstur
heföi talist þar til meiri tíöinda en
heimsendir.
Þama var þó apótek meö krukkum
í hillum sem á vom dularfullar áletr-
anir og fyrir utan meðulin sem seld
vom í apótekinu fengust þar einnig
súkkulaöikaramellur sem maður
trúði statt og stööugt aö skemmdu
ekki í manni tennumar eins og kara-
mellurnar gerðu sem fengust í kaup-
félaginu. Ég held meira að segja áö
sumir hafi talið súkkulaðikaramell-
urnar úr apótekinu betri við ýmsum
kvillum en kamfórudropa semýmsir
héldu fram aö hefðu mikinn lækn-
ingamátt, ekki síst vegna þess hvað
þeir voru vondir á bragðið.
Þótt ég hafi vitkast talsvert í þess-
um efnum nú síðari árin dettur mér
stundum í hug ef ég á leið í apótek að
það hafi ekki aliir tekið út sinn
þroska á þessu sviði.
Það er ekkert langt síðan ég þurfti
að kaupa mér líkþornaplástur að
kvöldi til og á undan mér í biðrööinni
í apótekinu voru þrjár konur og var
ein þeirra að kaupa varalit og nagla-
lakk, önnur keypti tvö pör af sokka-
buxum og brjóstsykurspoka og sú
þriðja dollu af kremi sem konur nota
til að leysa upp málninguna af andlit-
inu á sér áður en þær fara að sofa á
kvöldin.
Allt var þetta svo sem löglegt og í
samræmi við stjórnarskrána hvað
varðar frelsi einstaklingsins til at-
hafna en hins vegar voru konumar
svo lengi að velta varalitum og
brjóstsykri fyrir sér að ég veit ekki
hvemig hefði fariö fyrir mér ef lík-
þom væri ekki tiltölulega meinlaus
sjúkdómur.
En það góöa við þessa löngu bið
mína eftir plástrinum var að ég gat
hugsað svolítið um heimsmálin og út-
hlutun iistamannalauna og úr því að
verið er að verðlauna menn fyrir
nærri því alla skapaöa hluti nú til
dags datt mér í hug hvort ekki mætti
skipa nefnd sem hefði það hlutverk
að veita þeim verðlaun sem færu út í
lyfjabúð til dæmis klukkan níu á
þriðjudagskvöldi til að kaupa sér
súkkulaðistykki.
Annars hefur verið hljótt um út-
hlutun listamannalaunanna að þessu
BENEDIKT AXELSSON
sinni og því miður hefur engum dott-
iö í hug að sjónvarpa frá henni eins
og þeir gera í Ameríku þegar þeú- út-
deila óskarsverðlaununum fyrir
bestan leik í kvikmyndum, falleg-
asta landslagið og nú síðast fékk
James Stewart eina styttu fyrir það
einstæða afrek aö hafa hér um bil
aldrei fengið styttu áður.
Hér á Islandi efna menn ekki til há-
tíðahalda af þessu tagi, menn fá
ávísun senda í pósti, en í Ameríku er
hins vegar mikið um dýrðir og menn
halda ræður og gráta af gleði og
þakka mömmu sinni fyrir ómetan-
legan stuðning, samleikurunum fyrir
að leika ekki eins vel og þeir gerðu
sjálfir og kvikmyndatökumanninum
fyrir aö vera viðstaddur myndatök-
una því að ef hann hefði verið fjar-
verandi væri alls ekki öruggt að þeir
stæðu nú með þessa styttu í höndun-
um.
Eg hef alltaf haft gaman af svona
verðlaunaveitingum og ef ég fengi
einhvern tímann óskarinn myndi ég
byrja á því að þakka Ingólfi Amar»
syni fyrir komuna til Islands, síðan
þeim fjögur hundruð landnáms-
mönnum sem settust hér að á eftir
honum og auðvitað ríkisstjórninni
fyrir aö ætla að leggja niður salt-
vinnsluna og afnema tekjuskattinn.
Og vegna þess að páskar eru nýliðn-
ir, landsfundur Sjálfstæðisflokksins
stendur yfir og úrskurður Kjara-
dóms er á næsta leiti myndi ég óska
þess af heilum hug að þetta færi nú
allt vel fram, sérstaklega landsfund-
urinn því að það er svo mikilvægt
f yrir þá kynslóð sem nú er að vaxa úr
grasi að hann fari ekki í handaskol-
um.
Síðan myndi ég ljúka máli mínu á
eftirfarandi dæmisögu:
Einu sinni fór Líbbakútur út í búö.
Hann átti aö kaupa snúð handa
mömmu sinni sem hún ætlaöi aö hafa
með kaffinu. En Labbakútur keypti
tvö kíló af gulrófum og þegar hann
kom heim sagði mamma hans að það
hefði ekki nokkur maður tvö kíló af
gulrófum með kaffinu. Og eftir þetta
fór mamma Labbakúts sjálf út í búð
ef það þurfti að kaupa snúð.
Kveðja
Ben. Ax.
Þetta mót nefnist Akranesmót í
sveitakeppni og er aðalkeppni
vetrarins.
Staðan í mótinu er þessi: Stig
l. Sveit Alfreðs Viktorssonar 132
). SveltEiríks Jónssonar 121
1. SveitGuðmundarBjarnasonar 107
1. Sveit Ölafs Guðjónssonar 105
i. SveitKarlsÖ. Alfreðssonar 97
Bridgedeild
Skagfirðinga
4 kvölda Mitchell-tvímennings-
keppni félagsins lauk með öruggum
sigri þeirra Margrétar Jónsdóttur og
Eggerts Benónýssonar. Þau tóku
hæstu skorina fjórða kvöldiö eftir að
hafa leitt allt mótið. Glæsilegt það.
Röð efstu para varð þessi:
Stig
Margrét Jensd.-Eggert Benónýsson 1521
Gústaf Björnsson-Rúnar Lárusson 1481
GísliSteingrímss.-Guðm. Thorsteinss. 1441
Ármann J. Láruss.-Sig. Sigurjónsson 1394
Elísabet Jðnsd.-Lcifur Jóhannesson 1392
Meðalskor var 1328 stig. Alls tóku 32
pör þátt í keppninni.
Þriðjudaginn 9. apríl var keppt viö
Húnvetninga í Reykjavík á 11 borðum í
Drangey. Leikar fóru svo að Skag-
firðingar sigruöu örugglega, með 207
stigum gegn 119 hjá Húnvetningum.
Skagfiröingar unnu á 8 borðum, jafnt
varð á einu og tap á tveimur.
Næsta þriöjudag verður spilaöur
eins kvölds tvímenningur hjá Skag-
firöingum. öllum frjáls þátttaka
meðan húsrúm leyfir.
Framhaldsskóla-
mótið
1 gærkvöldi hófst í Flensborgarskóla
framhaldsskólamót í sveitakeppni í
bridge. Til leiks voru skráðar 12 sveitir
er síðast var vitaö. Mótinu verður
framhaldiö í dag og lýkur svo á
morgun, sunnudag. Fyrirkomulag er
þannig að allir keppa við alla 10—12
spila leiki.
Bridgesamband Islands stendur að
undirbúningi mótsins í samráði við þá
Flensborgara í Hafnarfiröi. Keppnis-
stjórar mótsins verða Hermann og
Olafur Lárussynir.
Skráníngarfrestur
að renna út
A mánudaginn 15. aprQ rennur út
skráningarfrestur til að tilkynna þátt-
töku í eftirtalin mót á vegum Bridge-
sambands Islands: Islandsmótið í tví-
menningskeppni — undanrásir, sem
verða í Tónabæ 20.-21. april nk. I lands-
liðskeppnir BSI, í opnum flokki og
kvennaflokki sem verða helgina 10,—
12. maí nk., í Drangey v/Síðumúla og í
yngri flokki, sem spiluð verður helgina
26.-28. apríl, einnig í Drangey
v/Síðumúla.
Hægt er að hafa samband við Olaf
Lárusson í s. 18350 eöa 16538 til kl. 18.00
á mánudaginn nk.
Vakin er athygli á því aö þau pör
sem EKKI hafa samnband fyrir
auglýstan tíma, geta ekki gert ráð
fyrir því að fá að vera með er að spila-
tíma kemur.
Bridgedeild Barð-
strendinga-
félagsins
Mánudaginn 1. apríl hófst tveggja
kvölda firmakeppni félagsins með
þátttöku 36 f irma.
Staöa efstu fyrirtækja:
Stig
1. Múrarafélag Reykjavíkur, 210
(Ragnar Þorsteinss.-Helgi Einarss.)
2. Múrarameistarafélag Rcykjavíkur, 196
(Þórarinn Arnas.-Ragnar Björnss.)
3. Íslenska álféiagiö 193
(Ragtiar Hermannsson-lsak Sigurösson)
4. Blikk og stál 186
(Guðrún Jónsd.-Ágústa Jónsd.)
5. PéturO. Nikulássson, 183
(Sig. Kristjánss.-Halldór Kristinss.)
6. Hckla hf. 180
(Guömundur Jóhannss.-Jón Magnúss.)
7. Glerskálinn Kópavogi 180
(Ölafur Guðjónss.-Samúel Guðms.
8. Ncsskip, 179
(Friðjón Margeirss.-Valdim. Sveinss.)
9. Barðstrendingafélagið i Rvík 177
(Ölafur Jónsson—Kristinn Öskarsson)
(Meðalskor 165 stig).
Mánudaginn 15. apríl lýkur firma-
keppni félagsins. Spilaö er í Síðumúla
25.
Bridgefélag
Siglufjarðar
Hraðsveitarkeppni. — Staðan eftir 2.
umferð, 25. mars 1985:
Stig
1. SveitBirgisBjörnssonar 937
2. Sveit Þorsteins Jóhannssonar 910
3. Sveit Valtýs Jðnassonar 897
4. Sveit Boga Sigurbjörnssonar 867
5. SveitGcorgsRagnarssonar 832
Bridgefélag
Breiðholts
Þriðjudaginn 2. aprQ var spilaður
eins kvölds tvímenningur í tveimur 14
para riðlum. Röð efstu para varð
þessi:
A—RIÐILL:
Gunnl. Öskarss.-Sig. Steingrimss. 191
Björu Halldórss.-Guðni Sigurbjamas. 180
Guðjón Jónss.-Gunnar Guðmundss. 177
B—RIÐILL:
Guðmundur Baldurss.-Jóhann Stefánss. 206
Bergur Inglmundarson-Axel Láruss. 193
Anton R. Gunnarss.-Friðjón Þórhallss. 188
Meðalskor í báðum riðlum 156.
Hjúkrunarfræðingar,
sjúkraliðar
og aðstoðarfólk óskast
til sumarafleysinga. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í
síma 29133 kl. 8.00-16.00.
Vinnu- og dvalarh. Sjálfsbjargar,
Hátúni 12.
Opið laugardaga kl. 10—18.
æBÍLASALAN
BUK
Skeifunni 8 Simi 68-64-77.
Höfum til sýnis og sölu
BMW 628 CSI
árg. '82, sjálf-
skiptur, vökva-
stýri, litað gler,
sóllúga, rafmagns-
rúður, central-
læsingar; sem nýr
bíll.
ISUZU
TROOPER
isuzu TROOPER
- lúxusvagn í bæjarakstri, ósvikið hörkutól á
fjallvegunum og allt þar á milli. Þetta er einstakur
bíll, búinn þægindum fólksbílanna, krafti og styrk
jeppanna og farþegarými fyrir allt að 9 manns án
þess að nokkurs staðar þrengi að!
isuzu TROOPER
á fáa sína líka!
Kynntu þér verð og greiðslukjör
-viðtökum flestar gerðir notaðra
bíla upp í og það bjóða fáir betur
í góðum greiðslukjörum.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687BOO
Auglýsingaþjónustan