Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1985, Blaðsíða 15
DV. LAUGARDAGUR13. APRIL1985.
15
Ahugi á bókasýningunni var geysimikill og 200 þúsund manns sóttu hana á einni viku.
DV-myndir Friðrik Rafnsson.
■y
QTmviou
Bókaflóð á
Signubökkum
Einn rithöfundanna les úr verkum sinum. Ekki þekkjum við nafn þessa
skeggprúða skribonts. . .
Oft hefur verið sagt um Frakka að
þeir væru talsvert bókhneigðir eða
vildu að minnsta kosti vera þaö. Það er
rétt. En alltaf er hægt aö gera eilítiö
betur og því var ákveðið að mars-
mánuöur sl. yrði helgaður bókinni
sérstaklega. Yfirvöld létu útbúa alls
kyns veggspjöld sem hvöttu fólk til að
greikka lesturinn, Jean-Pierre
Chevenment menntamálaráðherra
skrapp i nokkrar skyndiheimsóknir i
lestrarkennslustundir, fjölmiðlar fjöl-
földuöu umræðuna um útgáfustarf-
semina í landinu og fleira var sér til
gagns og gaman gert. Þannig gaf dag-
blaðið Libération út aukablaö sem
innihélt svör 400 rithöfunda við
spumingunni: Hvers vegna skrifar
þú?
Bókvísum stefnt
saman
I marslok var svo klykkt út með
opnun fimmtu bókasýningarinnar í
Stórhöllinni hér í París. Þar sýndu ekki
færri en 1100 útgefendur afraksturinn,
dreifðu bæklingum og gerðu sýningar-
gestum tilboð sem þeir áttu bágt meö
að hafna. En aðstandendum
sýningarinnar fannst ekki nóg að höföa
eingöngu til veskja sýningargesta.
Þess vegna var ákveöið að efna til
hringborðsumræðna einu sinni á dag í
þar til gerðum sölum. Þar var
bókvísum úr ýmsum áttum stefnt
saman til að skeggræða um ritstörf í
orösins víðustu merkingu. Rauði
þráðurinn í þetta skiptið var þó
spumingin um það hvað það þýðir nú á
dögum að festa hugsanir sínar á blað á
franskritungu.
700 rithöfundar
Um 700 rithöfundar sýndu sig á
sýningunni, ýmist til að árita bækur
eða taka þátt i áðumefndum
umræðum. Þar mátti sjá bregða fyrir
ýmsum vel þekktum hérlendis auk
belgískra, svissnesskra og quebecskra
starfsbræðra þeirra. Og í fyrsta
skiptið í sögu bókasýningarinnar var
sérstök athygli vakin á rithöfundum
frá Norður-Afríku, Mið-Afríku,
Austurlöndum nær og víðar. Með
öðrum orðum, öllum þeim sem skrifa á
frönsku jafnvel þótt móðurmál þeirra
sé annað.
Ekki virtist annaö að sjá en að
umstangið félli í kramið hjá
almenningi, því hátt í tvö hundruð
þúsund manns sóttu sýninguna vikuna
sem hún stóð yfir.
Friðrik Rafnsson
i París.
'XM
k i
Allur marsmónuður var helgaður bókinni í Frakklandi og klykkt út með
mikilli bókasýningu.