Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1985, Síða 28
28
DV. LAUGARDAGUR13. APRlL 1985.
Til þess að fá gott útsýni yfir Róm og Vatikanið borgar sig að klifa 537 tröppur upp i kúpulinn.
VATIKANRIKIÐ
■
Þaö er ekki stærra en meöalbær. En
voldugt er það. Vatíkanríkið er
minnsta ríki veraldar, aöeins 4,4
ferkílómetrar. Ibúamir eru um þaö bil
eitt þúsund. Ákvarðanir sem teknar
era í þessu litla ríki hafa ekki aðeins
þýöingu fyrir sjö hundruð milljónir
kaþólskra i heiminum heldur miklu
fleiri. Vatíkanríkið er eitt af auðugustu
ríkjum heims og hefur gífurlegt vald
hvort heldur litið er til fjármála eða
stjómmála.
Það eru ekki aðeins listafjársjóðir
aldanna sem skapa auð Vatikansins.
Fimamiklar upphæðir hafa veriö
lagðar í fjölda fyrírtækja. Sú stað-
reynd hefur valdiö nokkurri gagnrýni
meöal kaþólskra í þriðja heiminum.
Páfinn er konungur
I Vatíkaninu ríkir það sem kalla
inætti algert einræði. Rikisstjórinn.
páfinn, er valinn til lífstíðar og hefur
takmarkalaust vald lagalega séð.
Ásamt kardínálaráðinu, sem í eru 126
menn, er framkvæmdavald og dóms-
vald í hendi hans. I meira en sex aldir
hefur Vatíkanið verið embættis-
bústaður páfans en það var fyrst meö
I.ateralsamningnum 1929 sem ríkið
varð til og var eins konar framhald
kirkjuríkisins sem náð hafði yfir hluta
af Mið-Italíu. I þessu litla ríki er latín-
an lifandi mál, jafnvel opinbert
embættismál við hlið ítölsku.
Ríkið hefur öll einkenni fyllsta sjálf-
stæðis. Bankinn með því hátignarfulla
nafni Banco Santo Spirito. það er
Banki heilags anda, var stofnaður af
Páli V árið 1605 og hefur nú um 150 úti-
bú víðsvegar um heim. Vatíkanið
hefur líka eigin inyntsláttu og myntin
er gjaldgeng um alla Italíu. Frímerkin
verður þó aö stimpla í pósthúsi
Vatíkansins. Og ef menn vilja að kortin
frá sumarleyfisferðinni komist sem
fyrst til skila þá borgar sig að stinga
þeiin í póstkassa Vatíkansins. Póst-
sendingar ganga greiðar frá Vatíkan-
inu en ítalska ríkinu. Allt frá 1932 hefur
Vatíkanið haft eigin járnbrautarstöð
en hún hefur ekki verið notuð síðan
1962 þegar Jóhannes páfi XXIII fór frá
henni í pílagrímsferð til Assisi.
Gott samband
við önnur ríki
Ríkið ræður ekki yfir neinum her.
Stjórnmálamennimir treysta á
myndugleika og vald páfa. Fullt eitt
hundrað lönd hafa sendiherra í
Vatíkaninu. Fyrir ári var tekið upp
stjórnmálasamband við Bandaríkin á
ný eftir 160 ára hlé. Og sköminu fyrr
við Bretland eftir miklu lengra hlé, eða
fjögurhundruöár.
Vatíkanið varð eitt af fyrstu ríkjum
til að viöurkenna Finnland því sam-
band Finna viö það hófst árið 1942 og
var það inun fyrr en viö aðrar Norður-
landaþjóðir.
Öldungaveldi
I Vatíkaninu tekur það sinn tíma að
komast hátt í hlíð. Eftirlaunaaldurinn
er hár. Lög hafa veriö sett um það aö
kardínálar, sem komnir eru yfir átt-
rætt, fái ekki að taka þátt í vali páfa.
Enn sem komið er eru konur að
mestu leyti útilokaðar frá nefndar-
störfum og öðru því er verulega skiptir
máli. Og kvenprestaspursmálið er
ekki á dagskrá. Það eru klárar línur að
konur fá ekki prestsembætti.
Stjórn kaþólsku kirkjunnar og
Vatíkansins er í níu mismunandi
deildum. Þær mynda kúríuna. Curia
Homana er sá umfjöllunaraöili sem
kýs páfann. Núverandi páfi, sem er
hinn 266. í röðinni, er fyrsti páfinn sem
ekki er Itali í meira en hálfa fimmtu
öld.
Æðsti ráögjafi páfans er ritari
kardínálaráðsins sem um leið er
utanríkisráðherra Vatíkansins.
Maöurinn í þessari stööu frá 1979 er
Agostino Casroli kardínáli. Frá því í
apríl í fyrra er hann líka eins konar
varapáfi með páfalegu umboði til
stjórnunar í Vatíkaninu. Að Jóhannes
Páll II tók þessa ákvörðun hefur verið
skiliö þannig að hann vildi gefa sér
meiri tíma til enn aukinnar þekkingar
á vandasömum verkefnum síns háa
embættis.
Heimsins stærsta
Eins og nú stendur eru fullar sjö
hundruð milljónir kaþólskra manna í
heiminum. Næstum helmingur þeirra
er í þriðja heiminum. Innan sinna vé-
banda hefur kaþólska kirkjan tvö
hundruö biskupa. Páfinn, biskupinn í
Róm, er æðsti forystumaður kirkj-
unnar og þar sem hann er líka stað-
gengill Krists á jörö, Vicarius Christi,
er hann hátindur klerkaveldisins
mikla er samanstendur af fjölda
biskupa, presta og kardínála sem
stjóma kaþólsku kirkjunni.
Óskeikull
Þegar páfinn talar ex cathedra, meö
fullum myndugleik í trúar- og
siðferðismálum, er hann óskeikull að
skoðun kaþólskra og orð hans bindandi
fyrir þá alla. En það hefur páfi ekki
alltaf verið. Það var Píus IX páfi sem
lýsti yfir á fyrsta Vatíkanþinginu,
1869—70, kennisetningunni um
óskeikulleikann.
Annað Vatíkanþingiö, sem haldið
var á árunum 1962—1965, leiddi til þess
að nú er frekar tekið tiUit tU álits
biskupanna en áður var. Framlag
seinna kirkjuþingsins voru sextán
mikilvægar samþykktir sem lýsa yfir
því hvað kirkjan er, greina frá
sambandinu við aðrar kirkjur og af-
stöðu til þeirrar hugmyndafræði sem
ekki er kristin. Meginspumingin var
hvemig nútímakirkjan ætti að starfa
sem tákn guödómlegrar opinbemnar
og búa mennina undir þaö að móta
trúna í öUu lífemi sínu.
Útvarp páfans nær
til alls heimsins
Saga útvarpsins í Vatíkanríkinu er
eiginlega saga*páfanna. Með því að
páfinn er öUum æöri í Vatíkaninu
ræður hann yfir f jölmiðlastarfseminni.
Það eru 54 ár síðan páfi lét fyrst til sín
heyra í útvarpi. Það var Píus XI.
Osservatore Romano er blað Vatíkans-
ins. Þaö var stofnað 1961 og kemur
daglega út á ítölsku og latínu. En
upplagið er ekki stórt, um sjötíu og
fimm þúsund eintök.
Vatíkanið gerði sér snemma grein
fyrir þýðingu fjölmiðla. Jóhannes páfi
XXIII á sjöunda áratugnum sagði að
ein sjónvarpsstöð skilaði eins miklum
árangri og tuttugu þúsund prédikanir.
Það var Páll VI sem mótaði Vatíkan-
útvarpiö. Hann tók blaðamenn meö sér
í ferð til Israels og það leiddi tU auk-
innar blaðamennsku.
Á árinu helga 1975 fékk útvarpið
aukin f járráö og hafði það í för með sér
að farið var að reisa hið mikla hreyfan-
lega loftnet með 500 kílóvatta útsend-
ingu svo að nú er Vatíkanútvarpsstööin
sterkasta stöð í heimi hvað langdrægni
snertir.
Þegar núverandi páfi, Jóhannes PáU
II, var kjörinn 1978 hófst að vissu leyti
blómaskeiö Vatíkanútvarpsins. Hann
ferðast mikið og hefur ávaUt með sér
fréttamenn frá útvarpinu þó svo að
hann fari tU ystu endimarka jarðar.
Enn sem komið er hefur Vatíkaniö
ekki eignast eigin útsendara eöa
sjónvarpsrás. Um hnött er engu út-
varpað nema jólakveðju páfa.
Hingað tU hefur Vatíkanið lagt meiri
áherslu á prédUtanirnar tuttugu
þúsund en sjónvárpsstöðina þrátt fyrir
ummæli Jóhannesar XXIII á sjöunda
áratugnum.