Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1985, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1985, Blaðsíða 39
DV. LAUGARDAGUR13. APRlL 1985. 39 „ÁSTIN SIGRAR ALLT’ Karólina af Mónakó ljómar af hamingju um þessar mundir. Kemur þar helst til eiginmaðurinn Stefano og litli prinsinn, sonur þeirra. Andrea Albert er nú þegar orðinn eft- irlæti allra Mónakóbúa. En lífið er ekki alltaf dans á rósum og það hefur Karólína prinsessa einnig fengið að reyna. Tuttugu og sjö ára gömul hefur hún séð á bak móður sinni, Grace furstafrú, aö ótöldum mörgum misheppnuöum ástarævintýrum. >að er því sérstakt gleöiefni hve hamingjusöm hún er í dag. Litli prinsinn, Andrea Albert Grace og Stefano, hinn ítalski eigin- maður Karólinu, una vel hag sinum í litla furstadæminu. Sameiginlega brosa þau á móti lífinu og lífiö brosir mót þeim. Kannski fetar hún í fótspor móður sinnar sem einnig var tuttugu og sjö ára þegar Karólína fæddist og eign- aðist soninn Albert ári seinna. ,,Ég óska mér fleiri barna og þá helst að eignast stúlku næst,” segir Karólína. Faöir hennar, Rainier fursti, er mjög ánægður með gang mála hjá Karólínu dóttur sinni. Nú vonar hann bara að hin bömin hans fari að stað- festa ráð sitt og þá sérstaklega Stefanía, sem lengi hefur valdið fjöl- skyldunni áhyggjum með líferni sínu. Karólína hefur einnig verið gagn- rýnd fyrir að hafa meiri áhuga á kaupum á tískufatnaði og skemmt- analífinu en litla syninum. Því neitar Stefano, eiginmaður hennar, harð- lega. Hann segir Karólínu verulega góða móður. Litli prinsinn ber nöfnin Andrea Albert Grace, heitir eftir Andrea, besta vini Stefano, sem lést 1982, og Grace eftir hinni dáöu Grace, móður- ömmu sinni, sem næstum er í dýr- lingatöluhjá Mónakóbúum. DBþýddi. Graca furstafrú af Mónakó mefl Karólinu 6 likum aldri og Andrea Albert. Ættarmótifl leynir sór ekki. Hamingjusöm eiginkona og mófl- ir. Karólina, eiginmaðurinn Stefano og iitii sonurinn prins Andrea Albert. LÆRIÐ EIMSKU I ENGLANDI Undanfarin 8 ár höfum við sent islendinga á öllum aldri til að læra ensku í Englandi hjá A.C.E.G. skólunum í Bournemouth á suöurströnd Englands um 2ja tíma akstur í suövestur frá London, frægur baðstrandarbær. Hægt er að velja um fjölda námskeiða, sem flest ganga árið um kring, en einnig eru sumarskólar yfir hásumartím- ann. Yfirleitt er gist á einkaheimilum, en hægt aðfá gistingu á hótelum og heimavist. Á einkaheimilunum, sem valin eru hverju sinni úr stórum hópi heimila, fá nemendur einkaherbergi meö baði og wc., eða aðgangi að slíku, og snæða morgunverð og kvöldverð með fjölskyldunum alla skóladaga, mánudaga til föstudaga, en aö auki hádegisverö um helgar. Á heimilunum eru fleiri nemend- ur, þó aldrei fleiri en einn ísl. nemandi. Skólarnir byrja yfirleitt á mánudagsmorgnum og er þá flogiö degi fyrr eöa þá helgi meö Flugleiðum til London, ekið með langferða- bifreið til Bournemouth og nemendur vistaöir á heimilum sem þeim hefur verið úthlutað áður. Á mánudagsmorgnum eru nemendur prófaðir (krossapróf) og þeim raöaö í deildir eftir getu hvers og eins þó þannig aö engir tveir islendingar lendi í sömu deild. Skólarnir 1.04 með 20 tima á viku, 1.05 meö 25 tima á viku og 1.06 meö 30 tima kennslu á viku, eru ætlaðir þeim sem vilja stunda almennt enskunám, eru ársskólar og hefjast námskeiðin eftirtalda daga á þessu ári: 31. mars, 14. og 28. apríl, 19. mai, 2., 16., 30. júni, 21. júli, 4. og 18. ágúst, 1 .,15. og 29. sept., 20. október, 3. og 17. nóvember og 1. des. Lágmarksdvöl er 3 vikur en hægt að framlengja um eins margar vikur og vill. Verð námskeiðanna miðað við gengi eins og það var 23. des. sl., er íyrir 3 vikur 1.04 kr. 31.701 — á 1.05 kr. 34.895 og fyrir 1.06 kr. 38.125. Hver aukavika kostar 1.04 kr. 6.230 — 1.05 kr. 7.301 og 1.06 kr. 8.171, og er þá reiknað með að flug, gisting á einkaheimilum með.fæði svo sem að framan greinir, kennslu, tryggingum, læknisaðstoð en ekki flugvallarskattur sé innifalið í verði. Skoðunarferðir og þátttaka í iþróttum er skipulögð af skólanum og greidd aukalega og eru það ekki tilfinnanleg útgjöld. Við kennsluna er notuð fullkomin kennslutækni, upptaka kvikmynda, sýningarsjónvarps, videó o.fl. Kennd er viöurkennd almenn enska, enda skólarnir meðlimir helstu skólasambanda Bretlands og viðurkenndur af breska menntamálaráðuneytinu. Aðrir skólar eru meir sérhæfðir og standa skemur. Við höfum handbæran bækling á ensku og islensku um skólana, einnig videó (VHS kerfi) sem við lánum út, kvikmyndir o.fl. og sendum hvert á land sem er. Allar upplýsingar um aðra skóla eru handbærar í skrifstofu okkar. ontinental 'fOfi eNBUSHIN eNGiAND PLÚS-LÁN: Til aö auðvelda nemendum greiðslur viljum viö minna á svokölluð plúslán bankanna, þ.e. nemandi leggur ákveðna upphæð inn mánaðarlega í lágmark 3 mánuöi og fær jafn- háa upphæð lánaöa, sem greiðist síðan á næstu 3 mán- uöum eftir að er heim. Anglo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.