Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Side 5
DV. LAUGARDAGUR15. JUNI1985. 5 £TLAR M) BYGGJA EIN- BYLISHUS A FORNMINJUM Mikill hiti er í íbúum Seljahverfis í Breiöholti vegna fyrirhugaörar byggingar rúmlega 300 fermetra ein- býlishúss á stað sem samkvæmt aðalskipulagi á að vera opið, grænt svæði. Hafa undirskriftalistar gengið milli nágrannanna vegna þessa. Forsaga málsins er sú að á um- ræddu svæði eru elstu fornminjar Breiðholts, en þar stóð gamli Breið- holtsbærinn, sem hverfið er kennt við. Fyrir ofan er talin hafa staðiö kapella frá 14. öld og viö hana er sagt að kirkjugaröur hafi verið. Hafa komið upp bein þama á lóðinni þeg- ar rótað hefur verið í jarðveginum. Er meiningin að grafa þama upp ein- hvem tíma og friða svæðiö. Á þeim forsendum er svæðiö grænt á aðal- skipulagi. Svo gerist það fyrir mánuði aöJón H. Bjömsson, eigandi Alaska, fer að grafa þarna grunn, enda með bygg- inganefndarleyfi upp á vasann. Þótti nágrönnunum þetta furðulegt og hafa farið býsna hljótt ef verið væri að breyta aðalskipulaginu svo. Fóm þeir því af stað með undirskrifta- söfnun og sendu borgarstjóm sem afturkallaöi leyfið og sendi bygg- inganefnd málið aftur til umfjöllun- ar. „Þetta er hreinn og klár gmnnur, sem þama er kominn og miklar — nágrannarnir æf ir breytingar hafa verið gerðar á land- notkuninni. Þess vegna ætti þetta mál að fara fyrir skipulags- nefnd og skipulagsstjóm ríkisins,” sagði ónafngreindur nágranni. „Þetta er elstu minjamar hér í Breiðholti og æskilegt er að grafa upp rústimar. Við teljum að maðurinn megi ekki byggja þama, en grunnur- inn er alveg við gamia Breiðholtsbæ- inn þarsemhannstóð.” „Eg hef hugsaö mér að búa í þessu húsi,” sagði Jón H. Björnsson. „Ann- að vil ég ekki segja um þetta mál á þessustigi.” Málið er því í biðstöðu og beðið er eftirúrskuröibygginganefndar. -KÞ Þegar hefur verið grafinn grunnur fyrir einbýlishúsinu. Í baksýn sjást rústir gamla Breiðholtsbæjarins. Eins og sjá má nær grunnurinn alveg að bænum. DV-mynd VHV Sá danski seldist upp á einni viku nú tókst okkur að fá dýrarí gerðina, Skoda 120L sérútbúna fyrír Danmörku með eftirtöldum búnaði: Stærri vél (1200cc 52 Din hö.) Tannstangarstýri Aflhemlar Fullkomnara mælaborö Hliöarlistar Þokuljós aö aftan Tveggja hraöa rúöuþurrkur Halogen framljós Teppi á gólfum Radial hjólbarðar (165 SR 13) Bakkljós Rafmagnsrúðusprautur Læst bensínlok Barnalæsingar á afturhurðum Hallanleg framsætisbök o.fl. Og allt þetta fæiðu á dönsku afsláttarveiði aðeins kr. 188.888- Ath. Opiö í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.