Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Page 25
DV. LAUGARDAGUR15. JUNl 1985.
25
höfum tekið erlend lán fyrir hluta af
þessu, 67% af fob-veröi eins og allir
aðrir geta gert sem eru að kaupa vélar
og bíla. Þetta hafa verið skammtima-
lán sem við höfum að mestu greitt upp.
Viö fengum þó leyfi til að breyta af-
ganginum í langtímalán. Þetta var
skuldbreytingin sem meðal annars var
talað um í DV á sínum tíma.
— Ná er altalað að niðurskurður
framkvæmda, um rúmlega 500 milljón-
ir, sé að fara með ykkur hjá Hagvirki
og þess vegna hafi boðið ykkar um
„teppið” norður komið.
„Eg veit sjálfur að margar kjafta-
sögur ganga um okkur um aö allt sé aö
fara til fjandans, bæði við og starfs-
fólkið okkar höfum heyrt þær. En þær
eru einfaldlega ekki réttar, staða Hag-
virkis er góð.
En segir það sig ekki sjálft að þaö
hefur áhrif þegar dregið er skyndilega
úr framkvæmdum upp á einn
milljarð? Vegaáætlun hefur verið
skorin niður um 435 milljónir króna og
síðan kom niðurskurður Landsvirkjun-
ar upp á um 520 milljónir.
Og þetta kemur ekki aðeins við okk-
ur heldur alla verktaka. Þess vegna
þarf enginn að verða undrandi þó sam-
keppnin hafi aukist og menn reyni að
afla nýrra verkefna.
Við vorum aö ná okkur í verkefni
þegar við buðum í noröurveginn en
satt best aö segja var það líka til aö
vekja athygli á þ ví sem er að gerast, —
öllum niðurskurðinum.
Við vorum og erum tilbúnir til að
leggja bundið slitlag á veginn til Akur-
eyrar á skömmum tíma. Þetta er arð-
bær framkvæmd fyrir þjóðina og eitt
er víst; fjármagnið nýtist betur en
þegarþetta er gert á mörgumárum.”
Ekki heyrt múkk
í ráðherra
— Hafið þið fengið svar frá Matthí-
asi Bjarnasyni samgönguráðherra
vegna þessa tilboðs?
„Nei, við höfum ekki heyrt múkk frá
ráðherra.”
— Áttir þú von á því að þeir gleyptu
við tilboðinu?
„Það er ekki nokkur vafi á því að
þetta er hagkvæmt tilboð fyrir þá en í
sjálfu sér áttum við ekki von á að þeir
tækjuþví.”
— Nú talar þú um að staðan sé ekki
slæm hjá Hagvirki en tæplega er
Jóhann Gunnar Bergþórsson ánægður
með nýtingu tækjanna?
„Nei, það er af og frá. Þetta erkropp
hér og þar. En við erum með mörg
verk í gangi núna, flest smá, en þaö er
mikill kostnaður við að færa tækin á
millistaöa.
Við hjá Hagvirki getum samt verið
ánægðir með hve okkur hefur tekist að
fá morg verk, þau skapa fólkinu okkar,
280 manns, atvinnu. og tækin verða vel
nýtt fram í september. Þetta ár
verður samt i járnum hjá okkur.”
Hagvirki er þessa stundina með
mörg járn í eldinum, framkvæmdir
upp á 300 milljónir, eins og við nýju
flugstööina í Keflavík, Reykjanes-
brautina, í Fossvoginum, Grafarvogi,
Digranesskólann í Kópavogi, verk-
fræði- og raunvísindadeild og 4 áfanga
Kvíslaveitu, Húnavatnssýslu og
lagningu vegar frá Ljósafossi upp á
Nesjavelli. Eru þá nokkrar fram-
kvæmdir ótaldar.
Tilboðið fræga
í Ólafsvík
— Nú vakti á sínum tima mikla
athygli hve lágt þið buðuð í vegalagn-
inguua í Ólafsvikurenni, aðeins um
56% af kostnaðaráætlun. — Hvernig
fóruð þið að þessu?
„I þessum framkvæmdum kom
styrkur okkar vel í ljós, við höfðum
hentug tæki í þetta verk; þarna var til
dæmis um mikla grjótflutninga aö
ræða.
Viö vorum einnig að nýta tækin áður
en farið yrði upp á Sultartanga og
vorum því að nýta dauöan tíma hjá
okkur.
I þessu sambandi vil ég minna á hve
mikilvægt er að stjórnvöld geri fram-
kvæmdaáætlanir sem standast en
vinni ekki frá einum degi til annars
eins og gert er núna. Þá geta verk-
takar farið að gera sinar áætlanir, nýtt
tækin betur, þegar ekki er verið að
nota þau í stórframkvæmdum.”
En víkjum talinu að fiskeldi. Jóhann
og þeir hjá Hagvirki eru á kafi í því,
eiga 25% í Fiskeldi Grindavíkur.
Sjáum hvað Jóhann hefur aö segja um
það hvernig hugmyndin að fiskeldinu
kom.
Það má bara
ekkert gera
„Við höfum rætt það okkar á milli
að fara út í fiskeldi til að nýta tækin
betur yfir veturinn, auk þess sem við
höfum mikla trú á því að fiskeldi borgi
sig.
Við stofnuðum félag, KINNA-
BERG. Ætlunin var að reisa stöð rétt
hjá sjóefnavinnslunni. En holan þarna
suðurfrá, sem allt gengur út á, er enn í
umsjá sjóefnavinnslunnar.
Og ég veit ekki til annars en að hún
hafi velkst á milli manna og engar
ákvarðanir verið teknar um hana.
Þess vegna höfum við ekki byrjað á
framkvæmdum, holan tilheyrir ennþá
sjóefnavinnslunni. Þá má bara ekkert
gera.”
Fiskeldi Grindavikur
varð til í
afmæli Jóhanns
— En hvemig tengdust þið Fiskeldi
Grindavíkur?
„Það má segja aö hugmyndin hafi
kviknað í fertugsafmælinu mínu.
Skólabróöir minn, Jónas Matthíasson,
framkvæmdastjóri stöðvarinnar, og
Svavar Skúlason, einn eigandi Hag-
virkis, ræddu þessi mál þar mikið.
Nú, og síðar var hugmyndinni
einfaldlega hrint í. framkvæmd. Við
lögðum vegi aö stöðinni og vorum með
jarövegsvinnslu undir geymana.”
— Eruð þið þá hættir við Kinnaberg,
fiskeldi við sjóefnavinnsluna? „Nei,
nei, það er ennþá á áætlun hjá okkur.”
— I fiskeldi, nýbúinn að kaupa
Bæjarútgerðina og forstjóri Hagvirkis.
— Hvernig hefur þú tíma til að sinna
þessu öUu?
Vinnan er mitt hobbý
„Vinnan ermitthobbý.”
— Aldreifrí?
„Jú, en ég er með langan vinnudag.
Þegar ég tek mér frí eru það tvenns
konar frí: Eg skrepp í lax annað slagið
yfir sumariö eða ég fer út fyrir
landsteinana, kem mér út frá öUu
saman, öðruvísi er erfitt aö slappa af.”
Jóhann sagðist vera nýkominn úr
tveggja vikna fríi í HoUandi. „Eg var
þar í sumarhúsi með f jölskyldunni.”
Hann var samt ekki alveg laus við
amstrið heima á Fróni, fyrsti
stjómarfundur var í Hvaleyri hf. A
hann varkappinn „mættur”.
„Þetta var stjórnarfundur í gegnum
síma. Þeir heyrðu allir í mér og ég
heyrði hvað þeir voru að segja. Og
svona héldum við fundinn.”
— Ertu morgunmaður, vaknaður
fyrir allar aldir og verður mikið úr
verki í morgunsárið?
„Eg er hættur að vinna þannig að
maöur vaki aUan sólarhringinn eins og
tíðkaðist uppi í Hrauneyjafossvirkjun.
Það er Uðin tíð.
Erþaðsemþeir
kalla B-maður
„Ég er núna það sem þeir kalla B-
maður, frekar þungur upp á morgnana
en vel upplagður í eftirmiðdaginn.”
— Langur vinnudagur, hvenær ertu
mættur á morgnana og hvenær halda
menn heim?
„Eg er yfirleitt kominn hingaö á
skrifstofuna í kringum hálfátta til átta
á morgnana. Heim fer ég svo ekki
fyrr en um kvöldmatarleytið, klukkan
sjö.
Eg horfi svo gjarnan á fréttir í
sjónvarpinu og fer síðan hingað aftur,
og er hér fram eftir kvöldi. Annars vil
ég nú ekki meina að ég sé hér á hverju
kvöldi. en konan er á öðru máli;
segir að ég komi hingað eftir fréttir ÖU
kvöld.”
— Hvemig stjómandi ertu?
Dreifirðu valdinu eða gengurðu um í
fyrirtækinu með hryUingsásjónu og
fylgist með hvað hver og einn er að
gera?
„Eg held aö mér hafi tekist að
stjórna á lýðræðislegan hátt, dreifa
valdinu og leyfa mönnum hér að njóta
sín.
Að mínu viti er ekkert eins mikilvægt
í fyrirtæki og að starfsfóUtið hafi
gaman af því sem þaö er að gera, finni
til sín, fái að njóta sín, bæði við fram-
k væmdir og hugmyndir. ’ ’
Helvítis lúsarkaup
________sem allir eru á
— Borgarðu gott kaup?
„Auðvitað er þetta helvítis lúsar-
kaup sem aUir em á í þessu þjóðfélagi.
Við verðum að rífa okkur upp, auka
Ufsstandardinn hér á landi.
Það eiga ÖU fyrirtæki að borga góðu
fólki gott kaup, verðlauna það sem vel
er gert og meta það í verki. Hjá
Hagvirki er borgað yfir taxta en því
miður eru margir af mínum mönnum
ekki öfundsverðir, eftir að stórfram-
kvæmdirnar hafa veriö skomar niður.
Þetta eru menn sem hafa unnið
langan vinnudag uppi á hálendinu.
Þegar svo framkvæmdir detta
skyndUega niður lenda þeir iUa í
sköttunum sem eru jú greiddir eftir
á.”
— Hvemig skUgreinir þú
hugsunarhátt Hagvirkis?
„Eg hef aldrei skUgreint hann neitt
sérstaklega en við reynum að ná sem
mestum hagnaöi út úr öUum fram-
kvæmdum; vinna hlutina með sem
hagkvæmustum hætti.
Þetta felst ekki hvað síst í því að
nýta tækjakostinn sem aUra best, og
þaö gerist jú ekki öðruvísi en að hafa
tækin sem mest í vinnu á hverjum
sólarhring, helst aUan sólarhringinn.
Hugsunarháttur
Hagvirkis
Ef við ætlum að ná hærri Ufsstand-
ard á Islandi verðum við að vera vak-
andi fyrir nýjungum og hagkvæmni,
ekki láta nokkra menn, kannski með
óhentug tæki tU einhvers, gera það
sem einn maður getur gert með hent-
ugra tæki. Það veröur að auka afköst
hversogeins.”
Hagvirki og
vörubílstjórarnir
Nú gengur sú saga að Hagvirki sé
mikUl óvinur vörubUstjóra í þessu
landl?
„Þaö held ég að geti ekki verið rétt.
ÆtU það séu ekki um 500 vörubílstjórar
hérlendis, flotinn okkar er 23 vörubílar
og grjótflutningstæki. Ef við eyðum
vinnu aUra vörubílstjóra þá erum við
heldur betur með afkastamikil tæki.
I mörgum verka okkar höfum við átt
mjög góða samvinnu við vörubílstjóra,
þeir hafa tekið að sér verk fyrir okkur
þar sem það hefur átt við.
Og að sjálfsögðu hafa vörubílstjórar
Uka orðiö fyrir barðinu á niöurskurði
vega- og orkuframkvæmda, annað
væri óeðUlegt.
Vandinn hjá vörubílstjórunum er sá
hvað bUarnir eru Ula nýttir; þeir
eru kannski í verkum þetta 3 til 4 mán-
uði á ári. Hvaða vit er í þessu? Vand-
inn er síöan „leystur” með skipti-
vinnu, hver og einn fær sinn kvóta og
verkið er unnið með óhagkvæmni fyrir
þá.”
Það orð fer af Jóhanni aö hann sé
mannasættir og eigi auðvelt með að
umgangast fólk. Við spyrjum hvort
þaðsérétt.
Starfið sem
leigubílstjóri
góður skóli í mann-
legum samskiptum
„Jú, ég á nokkuð auðvelt með aö um-
gangast fólk og vona auövitaö að ég sé
mannasættir. Besti skóli sem ég hef
fengið í mannlegum samskiptum var
starfið sem leigubílstjóri á námsárun-
um í verkfræðinni. Það var hörku-
skóU.”
Já, athafnamaður er hann — og með
ævintýraljóma. Harðduglegur. Með
leigubílstjórastarfinu og verkfræðinni
kenndi hann líka í Flensborg. Sagður
mikill verkmaður, með viðskiptavit í
ábót.
Enda, þegar hann seldi leigubílinn
eftir námið heima fór hann til Dan-
merkur og geröi hið ótrúlega; hann
keypti sér raðhús í Kaupmannahöfn.
Menn hristu hausinn. En skólafélag-
amir vissu brátt hvar þeir áttu að
leigja sér herbergi. Allir högnuðust á
þessari samvinnu.
Og í vikunni skrifaði Jóhann undir
enn einn samninginn. Nú var það
Bæjarútgerðin í Hafnarfirði. Margir
hrista höfuðið. Hvern fjandann eru
mennimir að gera? Trúa þeir raun-
verulega á þessi kaup?
Veðmálið og
séniverkassinn
En félagi Jóhanns trúöi því heldur
ekkifyrir tuttuguárum aðJóhannætl-
aði að búa í Hafnarfirði að námi loknu.
Fjörðinn skyldi hann flýja. ! Séniver-
kassi var lagður undir.
Veðmálið féll í gleymsku. Það var
líka svona meira í stemmningu stund-
arinnar. En upp rifjast mál um síðir.
Félaginn gafst upp fyrir tveimur
árum. Hann Jóhann býr auðvitaö suð-
ur í Firði og hefur alltaf gert.
-JGH
Þjóðhátíð
í Reykjavík
17. JUN11985
DAGSKRA
I. Dagskráin hefst:
Kl. 9.55 Samhljómur kirkjuklukkna i
Reykjavik.
Kl. 10.00 Forseti borgarstjórnar,
Magnús L. Sveinsson, leggur
blómsveig frá Reykvikingum á
leiöi Jóns Sigurössonar i
kirkjugaröinum viö Suöurgötu.
Lúörasveit verkalýösins leik-
ur: Sjá roöann á hnjúkunum
háu. Stjórnandi: Ellert Karls-
son.
II. Viö Austurvöll:
Lúörasveit verkalýösins leik-
ur ættjaröarlög á Austurvelli.
Kl. 10.40 Hótíöln sett: Kolbeinn H.
Pálsson, formaöur Æskulýös-
ráös Reykjavikur, flytur ávarp.
Karlakór Reykjavikur syngur:
Yfir voru ættarlandi. Stjórn-
andi: Páll Pampichler Pálsson.
Forseti islands, Vigdis Finn-
bogadóttir, leggur blómsveig
frá islensku þjóöinni aö minn-
isvaröa Jóns Sigurössonar á
Austurvelli.
Karlakór Reykjavikur syngur
þjóösönginn.
Ávarp forsætisráöherra,
Steingrims Hermannssonar.
Karlakór Reykjavikur syngur:
island ögrum skoriö.
. Ávarp fjallkonunnar.
Lúörasveit verkalýösins leik-
ur: Ég vil elska mitt land.
Kynnir: Ásdis J. Rafnar.
Kl. 11.15 Guösþjónusta í Dómkirkjunni.
Prestur séra Agnes M.
Siguröardóttir. Dómkórinn
syngur undir stjórn Marteins
H. Friörikssonar. Einsöngvari
Magnús Jónsson.
III. Akstur gamalla
bifreiöa og sýning:
Kl. 11.00—12.00 Fólagar úr Fornbíla-
klúbbi íslands aka gömlum
bifreiöum um borgina.
Kl. 13.30 Hópakstur Fornbilaklúbbs Is-
lands: Vestur Miklubraut og
Hringbraut, umhverfis Tjörn-
ina og aö Kolaporti.
Kl. 14.30—17.00 Sýning á bifreióum
Fornbilaklúbbs islands i Kola-
porti.
IV. Hallargaröurog
Tjörnin: ki. 13.00-19.00
í Hallargaröi veröur mini-golf.
Á SuÖurhluta Tjarnarinnar veröa
róörabátar frá siglingaklúbbi
Æskulýösráös Reykjavikur.
V. Utitafl:
Kl. 13.30 Unglingar tefla á útitafli.
Skáksveitir úr tveimur skólum
aöstoöa viö skákina.
VI. Hljómskálagarður:
Kl. 14.00-18.00 Skátadagskrá.
Tjaldbúóirog útileikir.
Kl. 14.30—15.15 Glímusýning.
Golfsýnlng.
Kl 16.00 Lú&rasvelt Reykjavíkur
leikur undir stjórn Stefáns Þ.
Stephensen.
Kl. 17.30 Lelkþáttur fyrlr börn.
Randver Þorláksson, Sigurður
Sigurjónsson og örn Árnason.
VII. Skrúöganga:
Kl. 14.00 Safnast saman við Hlemmtorg.
Kl. 14.20 Skrú&ganga niður Laugaveg og
Bankastræti. Lúðrasveitin Svanur
leikur undir stjórn Kjartans óskars-
sonar. Skátar ganga undir fánum
og stjórna göngunni. Fólagar úr
Þjóðdansafólagi Reykjavíkur taka
þátt í göngunni í þjóðbúningum.
VIII. Dagskrá í miö-
bænum: Lækjartorg,
Lækjargata, Bankastræti.
Kl 14.30 Leikþáttur fyrir börn
á Lækjartorgi.
Randver Þorláksson, Siguröur
Sigurjónsson og Örn Árnason.
Kl 14.50 Bjössi bolla og Jón Páll a
Lækjartorgi.
Kl. 15.00 Sultuleikhúsiö flytur sýning-
una „Hunangsmáni' i Lækjar-
götu, á Lækjartorgi og i
Bankastræti.
Sýningin fjallar um prins og
prinsessu á brúókaupsferöa-
lagi, meö þeim eru ýmsir
skemmtikraftar og aö sjálf-
sögöu lifveröir. Á vegi þeirra
veröur dreki sem hyggst
ræna brúöhjónunum en þau
þekkja tröll sem geta hjálpaö.
Kl. 15.45 Reiósýning. Félagar úr Félagi
tamningamanna sýna * hesta
sina i Lækjargötu.
Kl. 15.45 Tóti trúöur skemmtir á Lækj-
artorgi.
16.00 Leikþáttur fyrir börn
endurtekinn á Lækjartorgi
16.30 Stjúpsystur skemmta
á Lækjartorgi.
16.45 „Hunangsmáninn" endurtekinn.
Kl. 17.00 Fólagar úr Vélflugfólagi ís-
lands fljúga flugvélum sinum
yfir borgina.
Ath.: Týnd börn veröa í umsjá
gæslufólks i M.R.
IX. Gerðuberg:
Kl. 15.00—18.00 Blönduö dagskrá fyrir
eldri borgara. Umsjón
Hermann Ragnar Stefánsson.
X. Kjarvalsstaðir:
Kl. 16.00-18.00 Blönduö dagskrá. is-
lenska Hljómsveitin. Þjóölaga-
flutningur. Þjóödansafélag
Reykjavikur sýnir dansa og
kynnir islenska búninga.
XI. íþróttir:
Kl. 15.00 Reykjavikurmótiö í sundi
i Laugardalslaug.
Kl. 16.00 Knattspyrna i Laugardal.
ÚrvalsliÖ drengja, Reykjavik —
Landiö.
Kl. 17.15 Úrvalsliö kvenna, Reykjavik —
Landiö.
XII. Kvöldskemmtun í
miöbænum:
Kl. 19.30-23.30 Leikifl fyrir dansi.
Hljómsveit Magnúsar Kjart-
anssonar, Riksaw og
Léttsveit rikisútvarpsins leika
fyrir dansi.
XIII. 17. júni tónleikar i
Höllinni:
Kl. 21.00-00.30 Kvöldskemmtun i
Laugardalshöll.
Fram koma hljómsveitirnar:
Mezzoforte,
Grafik,
Gipsy,
Megas.
Lúörasveitin Svanur leikur viö
innganginn.
Verö aögöngumiöa kr. 100,—
Forsala aögöngumiöa hefst
sunnudaginn 16. júni i miö-
bænum og Laugardalshöll ki.
14.00-18.00.
Sjúkrastofnanir:
Bjössi bolla og Jón Páll heimsækja
barnadeildir Landspitalans og Landa-
kotsspitala um morguninn.
ÆSKULÝÐSRÁÐ
REYKJAVlKUR