Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1985, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1985, Síða 2
2 DV. FÖSTU DAGUR 30. ÁGUST1985. Mývatnsrannsóknirnar: „Ekkert sérstakt sem bendir til að Kísiliðjan segir forstöðumaður LTffræðistofnunar Háskólans um lélegt ástand lífríkis „Þaö hafa orðið miklar breytingar á lífríki Mývatns þessi tíu ár síðan við hófum þar rannsóknir. Miklar sveiflur hafa orðiö á einstaka tegundum. En þessar sveiflur eru ekki nýjar af nálinni og viö vitum ekki af hverju þær stafa. Hins vegar er ekkert sérstakt sem bendir til að Kísiliðjan hafi þessi áhrif og ef svo væri væri erfitt að greina það.” Þetta sagði Arnþór Garðarsson, for- stöðumaöur Líffræðistofnunar Háskól- ans, í samtali við DV. Stofnunin hóf rannsóknir í og við Mývatn árið 1975. Hafa mjög margir starfað við þær rannsóknir síöan og sagði Arnþór að milli 20 og 30 ársverk væru þar aö baki. Fækkunin þýðir ekki dauða „Ástand lífríkisins nú er mjög svipaö og verið hefur síðustu tvö til þrjú ár,” sagði Arnþór. „Átskilyrðin í vatninu eru mjög léleg og svo hefur verið síðan 1982 til ’83. Árin þar á undan voru mjög góð, en 1976 var ástandiö þar svipað og nú. Við teljum þessar sveiflur eðlilegar. Það verða alltaf svipaöar breytingar milli ára. Það hafa rannsóknirnar sýnt. Rannsóknirnar eru gerðar á mjög VISA tekur upp áskrift- argjald „Þetta er gert til að standa undir rekstrinum, kaup og sala þurfa að standast á. Kaupmenn- imir hafa verið að pína niður álagninguna, og auk þess erum við að bæta tölvukerfi okkar til muna, sem kostar sitt,” sagði Jóhann Agústsson, stjómarfor- maöur hjá Visa, um ástæðu þess fyrirtækið er að taka upp út- skriftargjald á viöskiptavini sína. Áskriftargjald þetta verður 35 krónur á mánuði, þó ekki á út- skriftir undir 1000 krónum, og verður reiknað í fyrsta sinn á útskriftir 22. september næst- komandi. Jóhann sagði að hver viðskiptavinur þyrfti þó aðeins að borga þessar krónur einu sinni í mánuöi þótt hann fengi tvær útskriftir sama mánuðinn eins og þegar viðkomandi notar Visa-kortið erlendis. Eurocard tók upp sams konar útskriftargjald á sína viðskipta- vini fyrir þremur mánuðum. Er gjaldiö þar 50 krónur á mánuði. Sagði Gunnar Bæringsson hjá Eurocard í samtali við DV að áskriftargjaldið hefði verið sett á til að standa undir rekstrinum þar sem sú prósenta sem fyrir- tækin borga þeim dygði engan veginn. Visa og Eurocard eru einu viðskiptakortin sem gefin eru út hér á landi. • Mývatn. Þar hafa staðið yfir rannsóknir á iifríkinu í tíu ár á vegum Líffræðistofnunar Háskólans. breiðum grundvelli. Við mælum á hverju ári f jölda hinna ýmsu tegunda, svo sem anda, krabbadýra, mýflugna og bleikja. Auðvitað getum við ekki talið bleikjumar en mælum það af veiðinni í vatninu sem í ár hefur verið mjög léleg. Bleikjur og endur lifa á mjög svipaðri fæðu en öndunum hefur fækkað mjög. Ef við tökum til dæmis skúföndina, sem er algengasta anda- tegundin á Mývatni, þá voru 6000 pör þar árið 1982. ’83 voru þau orðin 3000 og í ár eru þau rúmlega 2000. Þessi fækkun þýðir ekki dauða þessara anda heldur þaö aö þær flytja sig um set. Þessar endur geta alveg eins sett sig niður í Síberíu eins og á Mývatni. Það fer eftir skilyröunum hverju sinni. En þetta helst í hendur við það að í góðu ári geta komist upp á Mývatni mörg þúsund andarungar en aðeins örfá hundruð í lélegu ári eins og nú enda er hlutfall unga á hvern kvenfugl aöeins 0,1 á móti 2 í meðalári. Hins vegar er lífríki Laxár, sem fellur úr Mývatni, í mjög góðu ásig- komulagi í ár.” Toppar og lægðir — Hvernig stendur á því að át- skilyrðin eru svo slæm í Mývatni og að sama skapi góð í Laxá? „Þetta vitum við ekki. Bitmý er mjög mikið í og við ána en lítiö við vatnið. Botndýrin, sem til dæmis endurnar og bleikjurnar lifa á, þurfa líka fæðu og hún virðist af skornum skammti í vatninu en ekki í ánni. Viö eigum eftir að skoða hvernig á þessu stendur enda taka svona rannsóknir langan tíma í árum talið. Annars eru allar líkur á því að þetta sé ekki óvenjulegt. Annaö get ég nefnt, varöandi rannsóknir, að miklar sviptingar hafa orðiö á krabbadýrum í vatninu. Þá er þar áberandi þörungasvið, leirlos, svokallaöir bláþörungar sem á tíma- bilum hafa veriö mjög áberandi. Þegar þeir eru í vatninu er þaö eins og grænmetissúpa til að sjá. Svo gerðist það áriö 1978, mjög snögglega, aö þeir hurfu alveg svo vatnið varð tært í nokkur ár. 1983 fór þetta að breytast aftur, þá komu bláþör- ungarnir á ný og nú er vatnið til aö sjá eins og þar var fyrir 1978. Enginn veit ástæðu þessa. Hins vegar teljum við þetta ekki óeðlilegt. Það er óregla á lífríki vatns eins og Mývatns. Hver tegund nær ákveðnum toppi og líka lægðum,” sagði Arnþór Garðarsson. -KÞ • Arnþór Garðarsson, forstöðumaður Liffræðistofnunar Háskólans. „Það er óregla á lífríki vatns eins og Mývatns og þarf ekki að vera neitt óvenjulegt við það.” Háskólinn í tölvusam- band við umheiminn —15 milljón króna gjöf IBM en háskólinn hefur ekki pláss fyrir gjöfina „Tölvubúnaður þessi breytir miklu fyrir okkur hér enda er hér um að ræða mjög afkastamikla tölvu. Hún kemur til með að styrkja rannsóknar- og þróunarstarfsemi í háskólanum og auðveldar starfsmönnum skólans og nemendum að hafa samband við félaga erlendis,” sagði Guðmundur Magnússon háskólarektor í samtali viö DV. IBM á Islandi hefur gefið Háskóla Is- lands tölvubúnað til tengingar við tölvunet háskóla og vísindastofnana í Evrópu. Auöveldar þessi gjöf mjög alla miðlun á tæknilegum og vísinda- legum upplýsingum milli mennta- og vísindastofnana í Evrópu og um allan heim. Búnaður þessi er afhentur skólanum til fullrar eignar og yfirráða. Sams konar tæki eru í notkun hjá stærstu viöskiptavinum IBM hérlendis sem og fyrirtækinu sjálfu. Að auki fær skólinn afnot af stjórn- og fjarskipta- búnaði og styrk til aö standa undir símakostnaði, hvort tveggja til ársloka 1987. Samanlagt verðmæti alls þessa er um 15 milljónir króna. Tölvunet þetta er hið fyrsta sem sett er á stofn til almennra nota fyrir menntastofnanir í Evrópu. Fyrir árs- Við afhendingu tölvubúnaflarins. Frá vinstri: Sigmundur Guflbjarnason, næsti roktor Héskóla íslands, Gunnar M. Hansson, forstjóri IBM ó Íslandi, og Guflmundur Magnússon hóskólarektor. DV-mynd PK. lok 1985 er reiknaö meö að háskólar í 18 löndum hafi tengst þessu samskipta- kerfi. Gera má ráð fyrir að tölvur yfir 300 háskóla geti „talað saman” fyrir lok þessa árs. Háskóli Islands getur þó ekki tekiö þennan tölvubúnað til notkunar fyrr en í fyrsta lagi um áramótin næstu. „Ástæðan fyrir því er sú að viö höf- um ekki fundiö staö fyrir búnaðinn ennþá,” sagði Guðmundur Magnús- son. „Þaö bendir allt til að við verðum að koma okkur upp bráðabirgðahús- næði einhvers staöar hér á lóðinni þótt engin ákvörðun hafi verið tekin ennþá.” — Og byggja þá yfir tölvubúnaðinn? „Já, það bendir allt til þess þó viö reynum aö finna aðra lausn. Tölvunar- fræði háskólans hefur búið við mjög þröngan kost og aðstaðan hefur verið helst til léleg. Þá sjáum við fram á það að í haust f jölgar nemendum um 80 frá því í fyrra. Þá stunduöu nám í tölvunarfræöi 170 manns en verða 250 í ár. Það er því alveg ljóst aö viö verðum að fjölga skjáverum til aö nemendur geti lært á tölvurnar. Þess vegna er sennilegast að besta leiðin sé að byggja hús til bráðabirgða hér á lóöinni,” sagði Guðmundur Magnús- son. -KÞ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.