Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1985, Síða 9
DV. FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST1985.
9
Útlönd Útlönd
Nigerfa:
BABANGIDA
SKIPAR NÝTT
STJÓRNARRÁÐ
Mohammaed Buhari hershöfflingi sem vikið var frá völdum i byltingu ðn
blóðsúthellinga á þriðjudag.
Ibrahim Babangida, nýr leiðtogi her-
stjórnarinnar í Nígeríu, skipar í dag
formlega nýtt 28 manna stjórnarráð í
stað herráös Buharis hershöfðingja
sem settur var frá völdum í hallarbylt-
ingu á þriðjudag.
Hið nýja stjórnarráð fer meö æðsta
vald í málefnum landsins. I gærkvöldi
var ljóst að margir fyrrum fulltrúar í
herráði Buharis koma til með að halda
stööu sinni í hinu nýja stjóniarráði. Þá
má helsta telja Bali, varnarmálaráð-
herra, sem nú er titlaður sem yfir-
maður herráðsins og, Alfa yfirmann
flughers, Aikhomu, yfirmann sjóhers-
ins, og Inyang lögreglustjóra. Allir
halda þessir menn stöðum sínum.
Líf í Nigeríu er nú óðum aö færast í
eðlilegt horf eftir valdaránið á þriðju-
dag. Flugvellir voru opnaðir í fyrradag
og nú hefur útgöngubanni á næturnar
verið aflétt. Síma- og fjarskiptasam-
bandi við útlönd hefur einnig verið
komið á aftur. Enn er ekki búið að
opna landamærin á landi en sum
þeirra hafa verið lokuð í meira en ár.
Herstjórnin nýja hefur heitið því að
koma að nýju á fullkomnum borgara-
legum réttindum íbúanna sem hún seg-
ir að hafi verið troðið á í tíð stjórnar
Buharis. Fulltrúar stjórnarinnar
sýndu í gær blaöamönnum fangelsi í
Lagos þar sem sagt var að stjórnar-
andstæðingum hefði verið haldið við
bágbornar aðstæður án dóms og laga.
Hin nýja stjórn segist hafa leyst fjöld-
ann allan af póUtískum föngum úr
haldi eftir byltinguna. Hinn nýi leiðtogi
Nígeríu sagði í sjónvarpsávarpi að
hann skyldi beita sér fyrir málstað
þeirra póUtísku fanga er fangelsaðir
voru í tíð Buharis og hefur sagst ætla
aö skipa opinbera nefnd tU að kanna
málavexti hjá fyrrverandi póUtískum
föngum.
Dagblöð í Nígeríu hafa látið í ljós
ánægju með byltinguna á þriðjudag en
undirstrika í forystugreinum í gær og
fyrradag að aðalverkefni hinna nýju
valdhafa verði sem fyrr að finna lausn
á gífurlegum efnahagsöröugleikum
landsins.” Við erum ekki svo einfaldir
að búast við kraftaverki en nýir leið-
togar ættu að geta tekist á við efna-
hagsvandann af meiri festu en fyrri
valdhafar,” segir blaðið New Nigerian
í forystugrein í gær.
Chelvanayagan fer hvergi
Indversk yfirvöld hafa ákveöið
að leyfa Chelvanayagan Chandra-
hasam, kunnum leiðtoga aðskiln-
aðarhreyfingar tamUa á Sri Lanka,
að vera áfram á Indlandi. Ákvörð-
un indversku stjórnarinnar kom
aðeins fimm dögum áður en vísa
átti leiðtoganum úr landi.
Chandrahasam hefur nú verið
leyft aö fara til borgarinnar
Madras á Suður-Indlandi þar sem
fjölmargir tamilar búa er berjast
fyrir sjálfstæðu ríki tamíla á Sri
Lanka. Eftir að tUkynnt var um
ákvörðun stjórnarinnar að vísa
Chandrahasam úr landi brutust út
mikil mótmæli á meðal indverskra
tamíla. Tamílskir skæruliðar
hótuðu meöal annars að hindra
allar lestarsamgöngur í indverska
ríkinu Nadu þar sem tamílar eru í
meirihluta.
Talið er að stjórnin í Nýju-Delhí
hafi ekki viljað hætta á róstur
meöal herskárra tamíla ef leiðtog-
anum yröi vísað úr landi og hafa
því leyft honum aö vera um kyrrt.
Cranston enn vinsæll
Kaliforníubúar eru nú aö komast í
kosningaham enda styttist stöðugt í að
ríkið kjósi sér tvo fulltrúa í öldunga-
deild bandaríska þingsins. Kosning-
arnar fara fram á næsta ári og
kosningabaráttan er hafin fyrir
alvöru.
Demókratar hafa verið á undanhaldi
í ríkinu á síöustu árum en nú virðast
þeir ögn vera að rétta úr kútnum. Alan
Cranston öldungadeildarþingmaður er
fulltrúi þeirra í Washington og býður
sig fram áfram á næsta ári.
Cranston var sem kunnugt er einn af
8 frambjóöendum demókrata í for-
kosningum flokksins fyrir síðustu for-
setakosningar. Þar fór Cranston mjög
halloka. Það voru ýmsir er spáðu því
að með tapinu í forkosningunum væri
ferill hans sem stjórnmálamanns á
enda.
Ef marka má nýlegar skoðanakann-
anir í Kaliforniu að undanförnu virðist
sú ekki ætla að verða raunin. Repú-
blikönum hefur ekki tekist að sam-
einast á bak við neinn ákveðinn
frambjóöanda í kosningunum til
öldungadeildarinnar og fylgi
Cranstons fer vaxandi. Cranston er
gamall í hettunni í bandarískum
stjórnmálum og hefur mikið persónu-
fylgi. Hann er frjálslyndur mjög, ein-
dreginn talsmaður þeirra er frysta
vilja framleiðslu kjarnorkuvopna og
ötull andstæðingur stjörnustríðs-
áætlana Reagans forseta.
Umsjón: Þórir Guðmundsson
og Hannes Heimisson
NY VIDEOLEIGA I
HLlÐUNUM,
STÓRKOSTLEGT ÚRVAL AF GÓÐU EFNI
BÆTUM INN NÝJUSTU MYNDUNUM
ýW //M
: n”. * Hjá okkur tekur þú eina spólu og færð aðra fría
gggsrt Ksrí Ágúst Úlfssojt
Þráinr? Berteisstm
ATHUGIÐ!
ALLT í SÖMU FERÐINNI
í sama húsnæði er úrvals söluturn
svo að þú getur fengið þér meðlætið um leið
og þú velur mynd
*
Opið 9—23.30 alla daga
HLÍÐAVIDEO
Mávahlíð 25.
Sími 10733.