Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1985, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1985, Page 33
DV. FÖSTUDAGUR 30. ÁGUST1985. 45 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið John Lennon hefði orðið 45 ára í haust — sjónvarpsmynd um hann f rumsýnd í nóvember John Lennon hefði orðið 45 ára í október og í desember eru fimm ár liöin frá því hann var myrtur. Á þessum tímamótum veröa gefnar út fjölmargar bækur í minningu hans og verið er að gera mynd um líf hans og Yoko Ono. Myndin á að heita „Imagine” og verður þriggja tíma löng sjónvarpsmynd. Tökur standa nú yfir í London og Liverpool, en myndin hefst árið 1966 þegar John og Yoko hittast í London á sýningu sem Yoko hélt þar í borg. Myndinni lýkur á morðinu á Lennon þegar Mark Chapman skaut hann til banaíNew York. Yoko eyddi fimm dögum með leik- stjóranum Sandor Stern og talaði um líf þeirra hjóna. Á þeim samtölum var myndin byggð. Yoko gat komiö með breytingartillögur við handritið en henni var ekki gefin heimild til að skipta sér af tökum. Yoko finnst aö margir kenni henni um aö Bítlarnir hættu á sínum tíma. I myndinni kemur hún hlutunum á hreint. Hún var hispurslaus viö leikstjórann og sagði John og Yoko eftir að Bítlarnir hættu að spila saman. frá erjum þeirra hjóna og öllu því sem henni fannst máli skipta. Þaö er bandarísk leikkona, Kim Miyuri, sem fer meö hlutverk Yoko, en Mark McGann fer með hlutverk Lennon. Mark hefur áöur leikið Lennon en það var á sviði í London fyrir tveimur árum. Hinir meðlimir Bítlanna koma líka fram í myndinni og fer Philip Walsh með hlutverk Ringo, Peter Capaldi með hlutverk George Harrison og Kenneth Price leikur Paul McCartney. Myndin verður sýnd í Bandaríkjunum í lok nóvember. Viö gerð myndarinnar hafa ýmsar gamlar myndir af John, sem aldrei hafa birst á prenti, verið dregnar fram í sviðsljósið. M.a. kom ein 22 ára gömul mynd af John í eldhúsinu hjá Paul eftir erfiöan dag aö fá sér te. Þar er hann ennþá venjulegur strákur frá Liver- pool en nokkrum mánuðum síðar voru hann og Bítlarnir orðnir heimsfrægir. Búist er viö að myndin um Lennon og sú útgáfustarfsemi sem fylgir afmæli hans muni vekja á ný upp Bítlaæðið sem svo margir muna vel eftir frá sínum yngri árum. Mark McGann og Kim Miyuri i hlut- verkum sínum í sjónvarpsmyndinni um Lennon og Yoko. Með axlabönd og smá istru í eldhúsinu hjá Paul, vini sinum, eftir erfiðan dag. Það hljóta allir að sjá hver þetta er. OQ%¥ Djw Boxarinn frægi hef nir vinar síns íboxkeppni aldarinnar í Moskvu Nú er byrjaö að sýna Rambo í Há- skólabíói og uppselt er á hver ja sýning- una á fætur annarri. Það er því ekki úr Sylvester Stallone er ekki beint vinalegur í einviginu á móti montna Rússanum í Moskvu. vegi að kynna lítillega næstu mynd sem Sylvester Stallone er að vinna við. Þetta er vitanlega myndin númer fjögur um boxarann Rocky. Við höfum komist yfir upplýsingar um sögu- þráðinn í myndinni sem snýst um box- keppni eins og vænta má. Nú er það rússneskur boxari sem er vondi maðurinn í myndinni, hann er meö stöðugan gorgeir og segir að bandarískir boxarar séu aular og geti minna en ekkert í hringnum. Auk þess er hann með ljót orð í garð Banda- ríkjanna í heild sinni. Vinur Rocky, sem var óvinur hans á tímabili, verður leiður á gorgeirnum í Drago og þeir mætast í Las Vegas og einvígið endar á því að vinur Rockys deyr. Rocky tekur þetta mjög nærri sér og ásakar sjálfan sig fyrir aö hafa ekki stöðvað vin sinn. Rocky ákveður aö skora á Drago og fer einvígi þeirra fram í Moskvu. Hann verður samt að afsala sér titli sínum til Eitt atriði úr myndinni Rocky IV, Rocky er þarna á leið í hringinn i Moskvu, umkringdur KGB mönnum og rússneskum hermönnum. að fá aö heyja einvígið því hann er at- vinnumaöur en Drago ekki. Rocky leggur á sig gífurlegar æfingar til að vera í sem bestu formi þegar hann mætir Drago eins og t.d. að draga hundasleöa og trimma í snjó og kulda. KGB kemur líka við sögu en þeir reyna að hafa áhrif á Rocky eftir að hann kemur til Moskvu. Einvígið gengur svo sinn vanagang eins og Rockyaðdá- endur kannast við en ekki viljum við láta uppi hver vinnur. Það verður nú aö vera eitthvað eftir til að ná upp spennu í myndinni. Rocky IV er spáð mikilli velgengni í Bandaríkjunum ekki síst eftir aö Rambo sló í gegn en þaö viröist hún ætla að gera líka hér á landi. Hinir hressu kappar í Rolling Stones munu vera að gera nýja piötu. Nafn plötunnar á að vera „Back to Zero” eða Aftur til upphaf sins á íslensku. Þar með eru >eir komnir á byrjunarreit aftur og >að verður gaman að heyra hvort tónlistin á plötunni verður í svipuðum dúr og þeir byrjuðu á á sínum tima. ★ ★ ★ Amy Carter, dóttir Jimmy Carter, fyrrum forseta Bandaríkj- anna, er stödd i Moskvu um þessar mundir. Hún er þar á vegum sam- taka sem kallast „The Friendship Force”. Þetta munu vera samtök sem reyna að stuðla að bættum samskiptum þjóða með því að senda fólk í heimsóknir og fá svo gesti til baka. Þrjátíu og einn Rússi mun af því tilefni heimsækja Bandarikin i mai á næsta ári. ★ ★ ★ Ella Fitzgerald, jasssöngkonan góðkunna, var flutt á sjúkrahús í Washington nýlega, vegna öndunaierfiðleika. Söngkonan, sem er orðin 67 ára gömul, ætlaði að halda hljómleika með píanóleik- aranum Oscar Peterson i Wolf Trap Fram Park en þeim var af- lýst vegna veikinda hennar. Hún mun hafa náð sér fljótlega en Önd- unarerfiðleikarnir stöfuðu af vökva ílungumliennar. i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.