Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1985, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1985, Qupperneq 3
3 DV. MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER1985. Konur f lykktust í Odda um helgina —á ráðstefnu um íslenskar kvennarannsóknir Mjög góð aðsókn kvenna var á ráð- stefnu um íslenskar kvennarannsóknir sem haldin var í Odda, hugvísindahúsi Háskóla Islands, um helgina. Ráðstefnan var sett á fimmtudags- kvöld og komust færri að en vildu til aö hlusta á erindi Önnu G. Jónasdóttur stjórnmálafræðings en hún starfar að kvennarannsóknum í Svíþjóð. A föstudag voru flutt erindi um kvennarannsóknir í bókmenntum og sagnfræði. Um kvöldið kynnti Hrafn- hildur Schram listsköpun kvenna í máli og myndum. Lögfræði og raungreinar voru á dag- skrá á laugardag og flutti Guðrún Erlendsdóttir lögfræðingur m.a. erindi um óvígöa sambúð. Þar kom fram aö þess misskilnings virðist gæta að mun auðveldara sé að slíta óvígðri sambúð en hjónabandi. Guðrún benti á að ef vandamál kæmu upp viö sambúöarslit þá væri lagaleg staöa fólks í sambúð mun óljósari, því væri nauðsynlegt fyrir fólk að gera með sér samning þegar sambúð hæfist þannig að ekki þyrfti að leita til dómstóla ef ósætti værimillifólks. Guðfræði og félagsvísindi voru á dagskrá á sunnudag og var fullt út úr dyrum þá sem aðra daga ráðstefn- unnar. -SJ. KAUPIN GERAST EKKI BETRI LÝSING Á KS 28 254 lítra kælir, 26 litra f rystlr, 4 hillur, 2. grœnmetisskúffur, innhyggt Ijós, hálf sjálfvirkt afhrím, stílL.nlegir fœtur, straumnotkun 2,00 KwH é sólar- hring. Mál: h. 140, br. 57, dýptOO. _______ Litur: hvitur. Blombem ÞÚ GERIR EKKI BETRI KAUP - TAKMARKAÐ MAGIM. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995 VILLEROY& BOCH I BAÐHERBERGIÐ: Flísar á veggi og gólf, blöndunartæki, hreinlætis- tæki, hvíta línan, gráa línan. Allt sem er nýjast og best færðu auðvitað hjá okkur. Á GÓLFIÐ: Teppi og flísar við allar aðstæður. Þú kemur og velur þér flísar og gólfteppi og óskir þú eftir sendum við þér vana menn sem sjá um mælingu og lögn. GREIÐSLUSKILMÁLAR: Allar vörur og þjónusta verslunarinnar fást á okkar góðu greiðsluskilmálum, svo sem 20% útborgun og eftirstöðvar á allt að 10 mánuðum. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ KOMAI HAFNARFJÖRÐ. Opið alla laugardaga kl. 10 - 16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.