Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1985, Side 4
4
DV. MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER1985.
Bændur draga saman seglin:
á milli héraöa og miöað viö þaö heild-
arbúmark sem var á þessum stöðum í
árslok 1980.
Þá veröi framleiðsluréttur einstakra
framleiðenda miöaöur við framleiöslu
sl. 2ja ára. Þó fari hann ekki yfir 95
prósent af áunnu búmarki og ekki yfir
90 prósent af blöndu áunnins búmarks
og úthlutaðs búmarks.
APH
Frá fundi Stéttarsambands bœnda á Laugarvatni. Sambandið hélt þar upp á 40 ára afmæli sitt.
DV-myndir: VHV.
Aðalf undur Stéttarsambands bænda:
Hundrað bændur hefja
loðdýrarækt á þessu ári
—vænlegasti kosturinn fyrir bændur, segir formaður Stéttarsambands bænda
„Þaö má segja aö þaö séu alltaf
nokkurs konar tímamót og því er ekki
að neita aö sú þróun hefur átt sér staö,
í landbúnaöi, aö færri menn framleiöa
meira magn landbúnaöarvara. Af-
kastageta bænda hefur þannig aukist
mjög. Þess vegna er nauösynlegt aö
komið veröi á fjölbreyttara atvinnulífi
í sveitunum ef svipaður fjöldi fólks og
nú á að geta haft lífvænlegar tekjur,”
sagði Ingi Tryggvason, formaður
Stéttarsambands bænda, viö DV, að-
spuröur hvort bændur stæöu nú á tíma-
mótum.
— Eru til einhverjir raunhæfir
möguleikar á að koma upp fjölbreytt-
ara atvinnulífi til sveita?
„Viö teljum aö það séu miklir mögu-
leikar, til dæmis í loödýrarækt. Hún er
ný hér á landi og eins og nýjar atvinnu-
greinar krefst hún nokkurs kostnaðar í
uppbyggingu. Bændur þurfa einnig aö
afla sér þekkingar og þessi breyting yf-
ir í loödýrarækt tekur tíma. Viö teljum
aö þarna sé einn álitlegasti möguleik-
inn sem viö höfum til að auka atvinnu-
lífiö og gjaldeyristekjur,” segir Ingi.
— Nú hvetja bændur hér á aðalfund-
inum til framleiöslustjórnunar á allar
búgreinar.
„Þaö er nú alltaf svo að þegar fram-
boö er meira en eftirspurn koma upp
erfiðleikar sem þarf aö leysa meö ein-
hverjum hætti. Við teljum aö fram-
leiöslustjórnun sé rétt, meðal annars
til þess aö ráörúm gefist til þess aö
breyta atvinnuháttunum. Þaö má
sjálfsagt deila um þessar ráðstafanir
en þetta eru þær nákvæmlega sömu
sem veriö er aö grípa til í meiri eða
minni mæli í nágrannalöndum okkar,”
segir Ingi.
Hann segir aö á þessu ári muni að
líkindum 100 bændur hefja loðdýra-
rækt. Þá sé gert ráð fyrir mjög auknu
fjármagni til loðdýraræktar og annarr-
ar nýsköpunar í landbúnaöi. Bændur
binda einnig miklar vonir viö ferða-
þjónustu.
„Menn mega ekki líta svo á að þaö sé
hægt aö skipta um atvinnu í landbún-
aöi svipaö því sem hægt er í öörum at-
vinnugreinum. Til þess aö skipta um
atvinnu án þess að flytjast búferlum
þarf tíma,” segir Ingi.
APH
Búgreinasamböndin
í Stéttarsambandið
Búgreinasamböndin hafa nú fengiö
fulla aðild að Stéttarsambandi bænda.
Á aðalfundinum voru tveir fulltrúar
þeirra kosnir í stjórn Stéttarsam-
bandsins.
„Eg er mjög ánægöur meö aö við sé-
um orðnir aðilar aö Stéttarsamband-
inu. Sumum hefur fundist aö þaö hafi
ekki verið málsvari okkar fram aö
þessu. Við bindum því miklar vonir viö
þetta því bændur hafa sameiginlegra
hagsmuna að gæta. Héöan í frá verður
Stéttarsambandiö ekki lengur mál-
svari hinna hefðbundnu búgreina,”
sagöi Haukur Halldórsson, formaöur
loödýraframleiðenda, en hann er ann-
ar þeirra er kjörinn var í stjórn Stétt-
arsambandsins.
Jón Gíslason, formaður Sambands
eggjaframleiöenda, var einnig kjörinn
í stjórnina.
„Þetta hefur þá þýðingu aö nú höfum
viö beina íhlutun í ákvaröanatöku. Viö
verðum því þátttakendur í því sem yfir
okkur veröur látiö ganga,” segir Jón
Gíslason.
Eggjaframleiðendur eru hins vegar
klofnir upp í tvenn samtök. Félag ali-
fuglabænda, sem segist standa á bak
viö 2/3 af eggjaframleiðslunni, vill
ekki taka þátt í Stéttarsambandinu eöa
vera aöili aö Framleiðsluráði.
Aöalfundur Stéttarsambands bænda
samþykkti nýgerðan samning sem
geröur hefur veriö milli Stéttarsam-
bandsins og ríkisstjórnarinnar um full-
ar greiöslur fyrir mjólk og kindakjöt.
Ríkissjóöur ábyrgist aö bændur fái
fullt grundvallarverð fyrir 107 milljón-
ir lítra af mjólk og 12.150 tonn af kinda-
kjöti á næsta verðlagsári. Hvaö mjólk
snertir er þetta fjögurra milljóna lítra
minnkun frá framleiöslunni í ár en
nærri 10 milljón lítrum meira en salan
hefur verið á ári. Á næsta verðlagsári,
eða frá 1986 til 1987, verður mjólkur-
magniö minnkað um 1 milljón lítra eða
niður í 106 milljónir lítra.
Kindakjöt, sem bændur fá fullar
greiöslur fyrir á komandi verðlagsári,
er 12.150 tonn sem er um 70 tonna
minnkun frá því sem framleiöslan hef-
ur verið undanfariö ár. Neyslan hefur
hins vegar ekki veriö nema tæplega 10
þúsund tonn og er því þetta magn rúm-
lega 2 þúsund tonnum meira en neysla.
Á næsta verðlagsári, eða frá 1986 til
1987, er umsamið magn 11.800 tonn af
kindakjöti eöa minnkun frá fyrra ári
um350 tonn.
Héraðsbúmark
Þessi samningur, sem geröur er í
samræmi vö lög um framleiðslu, verö-
lagningu og sölu búvara, verður þess
valdandi aö bændur veröa aö draga
saman seglin í viökomandi fram-
leiöslu.
Á aöalfundinum var nokkuö rætt um
hvernig þessum samdrætti skyldi hag-
aö. Fundurinn leggur til aö því magni
sem á að fást fullt verð fyrir veröi skipt
Viljaauka
niðurgreídslur
Bændur vilja að niöurgreiðslur á
sauðfjár- og nautgripaafurðum
veröi auknar. Einnig hvetja þeir til
aö fjármagnskostnaður verði lækk-
aöur, m.a. meö niöurfellingu tolla á
rekstrartækjum.
Bent er á aö sala þessara afuröa
hafi minnkaö jafnhliöa lækkuöum
niðurgreiðslum. ÞaÖ sé því nauð-
synlegt að bæta samkeppnisstöðu
þessara búgreina. APH
I dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
Þeir vita að við vitum að þeir vita
Njósnamálin í Vestur-Þýskalandi
vekja mikla athygli og fer nú að
verða tvísýnt um hvort kanslarinn og
stjórn hans haldi velli, þó ekki væri
nema af öðru en því að búiö verður
að handtaka bróöurpartinn af starfs-
fólki stjórnarráðsins í Bonn.
Stöðugt berast fréttir af nýjum og
nýjum handtökum og hvarfi hátt-
settra manna í vestur-þýsku
leyniþjónustunni. Ekki er fyrr búið
að uppgötva njósnir einhvers hátt-
setts yfirmanns en í ljós kemur að
einhver annar honum háttsettari er
sömuleiðis sakaður um njósnir. Og
leikurinn hefur einnig borist yfir
iandamærin því háttsettur Austur-
Þjóðverji hefur nú flúið til Vestur-
Þýskalands vegna tengsla við
njósnamáiið.
Er nú brátt aö verða ljóst að þýska
leyniþjónustan beggja vegna
Berlínarmúrsins hefur veriö eins og
opin bók þar sem annar hver maður
'hefur veriö á mála hjá and-
stæðingnum.
Ekki þarf að tíunda það hér að
leyniþjónustur gegna því hlutverki
að njósna um leyndarmál annarra
þjóða. Þeir sem þar starfa eru
kallaðir njósnarar og hafa lög-
gildingu um að mega stela
upplýsingum, Ijúga að viðmælendum
sínum og falsa skjöl ef því er að
skipta. Þetta er talið hið þarfasta
starf enda eru löggiltir þjófar,
skjalafalsarar og lygarar af þessu
tagi hafðir í hávegum í flestum sið-
menntuðum löndum. Svo eru þeir
sem þykjast njósna fyrir einn en eru
allan timann að njósna fyrir hinn.
Þeir eru kallaöir gagnnjósnarar. Og
enn eru það þeir sem njósna og gagn-
njósaa en kjafta samt öllu jafnóðum
í þann sem þeir eiga upphaflega að
vera að njósna fyrir. Þeir eru í
rauninni öruggastir því hvorugur
getur eiginlega hróflaö við þeim, þvi
þeir njósna fyrir báða. Þessi hópur
hefur greinilega verið stærstur i
vestur-þýsku leyniþjónustunni. Aö
minnsta kosti hafa þýsk stjórnvöld
dregið það mjög á langinn að láta til
skarar skríða gegn þessum
mönnum, af ótta við að handtaka
sina bestu menn í misgripum.
Verður að virða þeim það til
vorkunnar, enda ekki heiglum hent
að henda reiður á því hver er
njósnari og hver gagnnjósnari og svo
enn aftur hver er gagngagnnjósnari.
Til að tryggja hagsmuni sína og Iaun
hafa Þjóðverjar augljóslega tekið
upp þann háttinn að njósna af kappi
fyrir báða og gerst svo ákafir í
upplýsingaöfluninni að fæstir þeirra
vita lengur fyrir hvern þeir eru að
njósna.
Eftir því sem málin liggja fyrir má
það einu gilda. Beggja vegna jám-
tjaldsins hafa allir vitað allt um alla.
Yfirmaður vestur-þýsku ieyni-
þjónustunnar hlýtur að hafa fengið
vitneskju um þá sem kjöftuðu frá
austan megin. Um leið og þeir hafa
komið þeim upplýsingum á framfæri
til óvinarins hefur gagnnjósnarinn
þeim megin vitaskuld vitað strax um
þann sem kjaftaði frá hinum megin.
Og svo hafa þeir báðum megin
keppst við að leka upplýsingum sem
þeir vissu að hinir vissu að þeir vissu
að hinir mundu vita. Þetta hefur
auðvitað verið hið flóknasta njósna-
net og sjálfsagt hefði það verið miklu
ódýrara að leggja niður þessar leyni-
þjónustur og senda trúnaðarskjöiin
beint í pósti yfir um. Staðreyndin er
líka sú að hvað sem líður vopna-
jafnvægi, varnarbandalögum og af-
vopnunarviðræðum þá eru þaö
njósnarar sem njósna fyrir hina og
segja svo frá því að þeir njósni fyrir
hina svo þeir geti njósnað fyrir sina
menn áfram, þaö eru þessir
njósnarar sem hafa tryggt friöinn.
Með því að greiða fyrir njósnum og
gagnnjósnum og gagngagnnjósnum
má heita öruggt að enginn geti gert
áætlanir um stríö eða stríðsrekstur,
nema óvinurinn geti búið sig undir
þaö. Og af því hinir vita að hinir vita
þá er þetta allt pottþétt. Dagfari.