Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1985, Qupperneq 12
12
DV. MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER1985.
1
Sérverslun með
SKRIFSTOFUHÚSGÖGIM!
A. GUÐMUNDSSON SiE 4
I
Við höfum opnað aftur eftir gagngerar endurbætur
sem gera okkur kleift að veita fljótari og betri þjónustu.
Nú getum við tekið við bílum af öllum stærðum og gerðum.
Tryggðu þér öruggt eftirlit og umhirðu þess búnaðar
bílsins sem mest mæðir á. Með því að...
... taka upp símtólið og
panta tíma í síma 21246, eða
renna við á smurstöð Heklu hf.
Laugavegi 172. Þarsem ...
... þú slappar af í nýrri
vistlegri móttöku, færð þér
kaffi oa lítur í blöðin.
A meðan ...
... við framkvæmum öll
atriði hefðbundinnar smumingar,
auk ýmissa smáatriða t.d.
smumingar á hurðalömum og
læsingum. Auk þess ...
... athugum við ástand viftu-
reima, bremsuvökva, ryðvamar og
pústkerfis og látum þig vita
ef eitthvert þessara atriða
þarfnast lagfæringa. Allt...
Menning Mennir
„Ef til vill má líta á okkur sem siðustu móhikanana." Septemhópurinn á
Kjarvaisstöðum. DV-mynd PK.
Steinunn Þórarinsdóttir á svölum húss síns vestur á Bráðræðisholti.
DV-mynd KAE.
„Þetta gefur mér tíma til aö vinna
aö því sem mig langar til. Ég hef
aldrei haft svona rúman tíma áöur,”
sagöi Steinunn Þórarinsdóttir sem í
ár hlýtur starfslaun listamanna sem
Reykjavíkurborg veitir. „Fyrir mig
þýöir þetta vinnufriö frá haröasta
brauðstritinu sem oft er erfitt að
samræma skapandi starfi. Þaö var
stórkostlegt aö fá þetta.”
Steinunn hefur, frá því hún sýndi
verk sín fyrst opinberlega áriö 1979,
verið í fremstu röö íslenskra mynd-
höggvara. Síöan þá hefur hún sýnt
árlega bæði hér heima og erlend-
is og ekki eru líkur á aö hún setjist í
helgan stein.
„Ég ætla aö nota þennan tíma til
aö vinna að einkasýningu sem verö-
ur væntanlega á Kjarvalsstööum á
næsta ári. Ég var búin að hugsa mér
að halda sýningu á næsta ári. Starfs-
launin gera þaö mögulegt,” sagöi
Steinunn um verkefni sín í nánustu
framtíð.
Menningarsósíalismi
I ýmsum nálægum löndum hefur
sú stefna ríkt aö opinberir aðilar
styðji ríkulega við bakiö á listamönn-
um þannig aö ríkiö sé jafnvel eini
kaupandi verka þeirra. Er þetta góö
stefna?
„Við erum, held ég, komin afskap-
lega stutt á veg hér í þessum efnum,
t.d. miðaö við Hollendinga. Hér læra
menn myndlist í 6 ár og svo er litiö á
starf þeirra sem hobbí. Hollendingar
uppskera það vel sem þeir gera fyrir
listamenn. Hollensk list er mikil
auglýsing fyrir þá. Auðvitað er hægt
aö misnota svona kerfi en hér er þaö
útilokað. Viö stöndum einfaldlega of
aftarlega til þess.
Nú er búiö aö stofna samband
myndlistarfélaga. Vonandi á þaö eft-
ir aö breyta kjarabaráttu mynd-
listarfólks.”
Aukinn áhugi
á höggmyndalist
Nóg um brauöstritið. Því er haldiö
fram af fróöum mönnum að nýir tím-
ar séu að renna upp í list mynd-
höggvara. Er það svo?
„Já, ég held aö hún sé aö blómstra
aö nýju. Hér heima hafa margir nýir
komiö fram síðustu árin og úti í
heimi blómstrar þessi grein. Mynd-
höggvarafélagiö okkar hefur stækk-