Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1985, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1985, Side 27
DV. MANUDAGUR 2. SEPTEMBER1985. 27 ' íþróttir íþróttir ÍBVeitt átoppnum — í 2. deildinni eftir sigur á Völsungi, 1-0 Frá Friðbirni Valtýssyni, fréttaritara DV í Vestmannaeyjum: IBV steig stórt skref í áttina til 1. deildar er liðið sigraði Völsung, 1—0, í Eyjum á laugardaginn. Liðið er nú eitt í efsta sæti 2. deildarinnar en úrslit keppninnar eru þó langt frá því að vera ráðin. IBV leikur næst viö KA fyrir norðan og kemur sá leikur til með að ráða miklu. Eina mark leiksins kom á 4. mínútu seinni hálfleiksins úr vítaspyrnu. Einn varnarleikmanna Völsungs varö þá fyrir því óhappi að fá knöttinn í hönd- ina og lítiö var um annað aö ræða en að dæma vítaspyrnu. Ur henni skoraði Jó- hann Georgsson eina mark leiksins. Leikur liöanna varö aldrei rismikill. Færi Eyjamanna heldur fleiri og sigur þeirra sanngjarn. Þorsteinn Gunnarsson, unglinga- landsliðsmaðurinn í marki IBV, var besti maður liðs síns. Hann hefur tekið ótrúlegum framförum í sumar og er aö verða einn af okkar allra bestu mark- vörðum. Þá var Jóhann Geórgsson sí- vinnandi og Elías Friöriksson átti góð- an leik í vörninni. Völsungur hefur átt mjög misjafna leiki í sumar. Liðiö hefur á að skipa mörgum góðum einstaklingum en ein- hvern veginn hefur uppskeran orðiö rýrari en efni stóðu til. Sigurður Hall- dórsson bar af í liði Völsungs. Kristján Olgeirsson lék þokkalega. -fros Jóhann Georgsson. „Staða okkar orðin slæm” sagði Jón Bjarni Guðmundsson eftir tap Fylkismanna gegn Njarðvík, 3-1 „Viö sóttum allan fyrri hálfleikinn og þaö var ekki fyrr en í þeim síöari að Njarðvíkingar komu inn í leikinn. Þaö var grátlegt að tapa þessum leik og staða okkar er vissulega orðin slæm. Við vonum bara aö Isfirðingar tapi þeim leikjum sem þeir eiga eftir,” sagöi Jón Bjarni Guðmundsson, í sam- tali viö DV eftir að lið hans, Fylkir, hafði tapað gegn Njarðvík með 3—1 á Fylkisvelli. Fylkismenn höföu öll völd í fyrri hálfleik og það má segja að þegar Njarðvíkingar skoruðu sitt fyrsta mark í lok hálfleiksins, hafi þeir feng- ið sitt fyrsta færi. Það var Albert Eðvaldsson sem gerði markið. Um miðjan síðari hálfleik bætti Þórður Karlsson öðru marki við fyrir Njarðvíkinga en Kristinn Guðmunds- son minnkaöi muninn fyrir Fylki í 2—1. Fylkismenn lögöu allt í sölurnar til að jafna en tókst ekki og í lok leiksins tryggði Unnar Andrésson, Njarðvík, sigurinn með marki af stuttu færi. SigA. Suðumesjamenn vom sigursælir SuÖurncsjamcnn voru sigursælir á opna HI- C-golfmótinu sem haldið var á Hólmsvclli í Leiru sl. laugardag. Frábær þátttaka var í mótinu en alls mættu 119 manns og léku 18 holur meó og án forgjafar. Úrslitánforgjafar: högg 1. Sigurftur Sigurftsson, GS 73 2. Hilmar Björgvinsson, GS 75 3. Jóhann Bcnediktsson, GS 76 4. Sigurjón Gíslason, GS 76 5. Páll Ketilsson, GS 77 Eins og sjá má var hörö keppni um efstu sætin og sama má segja um keppni meÖ for- gjöf. 1. Vilberg Þorgeirsson, GS högg 66 2. Heimir Stígsson, GS 67 3. Jóhann Bcncdiktsson, GS 68 Veitt voru aukaverðlaun fyrir aft vcra næstur holu á öllum par þrjú brautum. Þau hlutu Geirmundur Sigvaldason, GS, Sigurftur Hafsteinsson, GR, Þorsteinn Geirharftsson, GS, og Hcimir Stígsson, GS. Einnig voru veitt verftlaun fyrir fiesta „fugla” og þau hlutu Hilmar Björgvinsson, GS og Páll Kctilsson, GS. Þeir fengu báftir 3 „fugla” á 18 holunum. Vífilfell hf., framleiðandi HI-C svala- drykksins, gaf verðlaun í mótift sem haldið var í fyrsta : 'ou. A meftfylgjandi mynd eru vcrftlaunahafar í Hl-C-mótinu. NÝTT FRÁ MITSUBISHI! TREDiA 4WD Árgerð 786 Bíllinn, sem alla hefur dreymt um Verður kynntur í byrjun september Tregðumismunadrif ► Afistýri 14" felgur ► Rafstýrðir útispeglar Miðstýrðar hurðalæsingar ► og margt fleira BÍLARNIRf SEM SELJAST MEST,V ERU FRÁ MITSUBISHI. Verö frá kr. 577.000.- * Samkv. skýrslu Hagstofu íslands IhI hekla hf LhhmI Laugavegi 170-172 Sími 21240 PRISMA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.