Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1985, Síða 7
DV. FÖSTUDAGUR18. OKTÖBER1985.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Afnemið vísi-
töluna af
lánum jafnt
og af launum
„Um leiö og ég sendi ykkur
septemberseðil læt ég ágúst fljóta meö.
September var dálítið hár hjá okkur,
aöallega vegna þess að viö skiptum um
bíl í haust. Fórum úr 78 módeli í ’82
módel.
Það var ákveöiö í vor og þá strax
byrjað að spara. Lokið við að borða úr
frystiskápnum, sem var nú ekki mikið.
Gamli góði grjónagrauturinn æði oft á
borðum, þó ekki meö rjóma eða
rúsínum eins og hjá Steingrími.
Það borgaði sig frekar en aö taka
lán því ekki eru vextirnir svo hag-
stæðir. Enda hefur maður nóg af lán-
umáherðunum.
Mér finnst nú mál til komiö að
afnema vísitöluna af lánum eins og
laununum. Þetta er það ósanngjamasta
sem á fólk hefur verið lagt. Eg get
nefnt að 200 þús. kr. lán sem er árs-
gamalt hefur hækkað um 70 þús. kr.
Mér finnst að Sigtúnshópurinn ætti að
snúa sér að þessu máli sem allra fyrst.
Það leysir engan vanda að lána fólki
meiri peninga til að borga fallnar
skuldir. Það er bara gálgafrestur.
Til gamans ætla ég að senda ykkur
septemberbókhaldiö eins og ég set þaö
upp:
Matur og hreiniætisvörur 12.350,05
Annað 23.556,80
Hús 10.230,50
Bffl 136.808,00
Frá síðustu tölimni dragast 50 þús.
sem við fengum fyrir gamla bílinn.
Bestu kveðjur til ykkar,
neytandi á Akureyri.”
Það er áriðandi að muna hvort þú ert búinn að nota augndropana eða ekki.
DV-mynd GÞA.
AUGNDROPAR
Á HVOLFI
Ef þú þarft að nota augndropa
tvisvar á dag getur verið erfitt að
muna hvort þú ert búinn að nota
dropana eða ekki. Gott ráð er aö hvolfa
glasinu eftir að þú ert búinn að nota
dropana um morguninn.
Þegar þú notar þá aftur um kvöldiö
læturðu glasið standa rétt!
Annað ráð við meðalatöku: Lang-
best 'ér að nota skammtaboxin sem
fást í apótekunum. Ef þau eru ekki
HEILLARAÐ
fyrir hendi er farsælast að láta dag-
skammtinn í glas að morgni. Þá sést á
augabragöi hvort búið er að taka hann
eða ekki.
-A.Bj.
Afleggjari með leiðbeiningum
Ef þig langar til þess að gleðja vin með persónulegri gjöf er tilvalið að gefa
blómaafleggjara. Láttu þá fylgja með spjald með nafni blómsins og leiö-
beiningum um meðferð, hve oft á að vökva, hvort blómið þarf mikla birtu
eða ekki.
-A.Bj.
Piparkvörnin fyrir annað
Hœgt er að nota piparkvörn undir fleira en piparinn. Blanda má öðrum
kryddkornum í kvörnina. Dæmi: 1/4 hluti mustarðskorn og 3/4 hlutar
pipar. Reynið einnig aðrar tegundir.
Vel hægtað
spara en þó
láta sér líða
Ijómandi vel
„Núerþaðsvart! Þennan septemb-
ermánuð dynja á reikningar og svo
kom til vikudvöl í sumarhúsi. Það var
sumarfrí hjá mér,” segir m.a. í bréfi
frá D.M. sem um árabil hefur verið
þátttakandi i heimilisbókhaldinu meö
okkur.
Niðurstöðutölur hennar eru þó „ekki
nema” 2131 kr. á mann. Liðurinn
„annað’ ’ er upp á samtals 16.800 kr.
„Verðhækkanir eru alveg geigvæn-
legar á þessum síðustu vikum og þá
gildir bara að spara. Það er jú vel
hægt. Best væri ef allir hugsuðu um
hvað það er margt sem er óþarfi að
kaupa en þó láta sér líða ljómandi
vel.” A.Bj.
BILAR SEM TEKIÐ ER EFTIR
Saab 900 GLE árg. 1983, sjálfsk. BMW 316 árg. 1983, drapplitur, 2ja Subaru Justy 4x4 órg. 1985, silf-
Mfi greiða með skuldabrfifi. dyra, beinskiptur. Verð kr. urlitur, 3ja dyra, beinskiptur. Verð
Skipti fi ódýrari. 495.000. Skipti fi ódýrari. kr. 370.000. Bein sala.
Subaru station 4x4, firgerð '83
Nissan Cherry firg. '83 og '84,
skipti fi ódýrari, ath. skuldabrfif.
Suzuki Alto firg. 1983, sjfilfskipt-
ur, ekinn 18.000 km. Verð kr.
235.000. Bein sala.
ÚRVAL AF BLÓMAPOTTUM,
HLÍFUM OG FLEIRA
OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 21Í KVÖLD
ÚRVAL AF GLER-GJAFAVÖRUM