Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1985, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1985, Blaðsíða 36
FRÉTTASKOTIÐ Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frótt hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fróttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fróttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1985. Ráðist á mann í austurbænum Erilsamt var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt — ráöist var á mann og alls uröu tólf árekstrar. Um þrjúleytiö í nótt barst lögregl- unni tilkynning um aö maöur heföi kallað á hjálp í austurbænum. Maöur- inn haföi verið sleginn og var marinn á síöu og baki. Hann sagði aö þrír menn heföu ráðist á sig. Einn mannanna náö- ist og var hann handtekinn. Hann gaf upplýsingar um hina tvo félaga sína. Máliö er í rannsókn. -SOS Óþolinmæði gætir: Útvarpsstöð í vesturbænum Sumir eru greinilega orönir óþolin- móðir að bíöa eftir gildistöku nýrra út- varpslaga og hafa þegar hafiö útvarps- sendingar eöa eru aö prófa sig áfram í þeim efnum. Hjá radíóeftirliti Pósts og síma hrukku menn í kút er allt í einu heyrö- ist í ókunnri stöð, ungar raddir sem sögðu skrýtlur og spiluö var létt tónlist í hádegi og aö kvöldlagi fyrir fáeinum dögum. Ekki vannst tími til aö miöa út stöðina, en líklega er hún einhvers staöar í vesturbænum, hefur talsvert góöa útbreiöslu yfir vesturhluta bæjar- ins og mun hafa tíöni mjög nálægt rás tvö. Þeir hjá Pósti og síma eru nú í við- bragösstöðu ef eitthvað meira heyrist af þessari tilraunastarfsemi, en lítið hefur boriö á slíkum tilraunum síðan útvarpsstöðvarnar blómstruðu í BSRB verkfallinu í fyrra. KB Flugfreyjudeilan: Allt stopp Nú horfir allt í þaö aö flug- samgöngur á vegum Flugleiða leggist niður frá og meö næsta miðvikudegi því ekkert þokast í samningsátt milli flugfreyja og viðmælenda þeirra hjá Flugleiðum. Enn ber mikið á milli og nýr samningafundur ekki fyrr en á næsta mánudag. -KB. EINANGRUNAR GLER 666160 ThelU»°1ia?L LOKI Hinn svokallaði Gufunes- ilmur mun vefjast nokkuð fyrir hvítvínssér- fræðingum þessa daganal Erlendar skuldir þjóðarbúsins í árslok 1985: Hvert mannsbarn skuldar 300 þúsund 1 árslok 1985 má gera ráö fyrir því aö hver íslendingur skuldi sem nemur 294 þúsundum króna vegna erlendrar lántöku þjóöarbúsins und- anfarin ár. 1 árslok er gert ráö fyrir aö lang- tímalán erlendis nemi um 58,1 miU- jarði króría og skammtímalán veröi um 13 milljaröar. Samanlagt veröa því erlend lán þjóöarbúsins um 71,1 milljarður króna í árslok 1985. Þegar litiö er á nettóskuldastöð- una, þ.e. þegar dreginn hefur veriö frá ógreiddur útflutningur og gjald- eyriseign, nema skuldirnar 66 millj- öröum. Þaö jafngildir því aö erlendar skuldir veröa í árslok 1985 55 prósent af landsframleiöslunni. Nettó skuidir munu á næsta ári hækka í um 67 milljaröa og veröa þá 54,4 prósent af landsframleiðslunni. Ástæðan fyrir þvi að hlutfallið hækk- ar ekki er sú að gert er ráö fyrir aö landsframleiöslan hækki um 2 pró- sent áriö 1986. Erlendar skuldir hafa aukist mjög undanfarin ár. Langtímaskuldir voru 1974 um 24 prósent af lands- framleiöslunni en veröa á þessu ári um 53 prósent og á því næsta um 51,2 prósent. Mesta aukningin hefur orðið vegna lántöku opinberra aöila og vega þar þyngst lántökur vegna orkumála. Vægi erlendra langtíma- skulda, sem opinberir aðilar standa fyrir, nemur nú um 90 prósent af langtímaskuldum þjóðarbúsins. -APH. Sex fálkar í lækningu Sex fálkar eru í vörslu Náttúrufræði- stofnimar tslands um þessar mundir. Þangaö hafa þeir borist ósjálfbjarga. „Þaö hefur aldrei nokkurn tíma komiö fyrir áöur aö viö höfum haft svona marga fálka í einu,” sagöi Ævar Petersen dýrafræöingur. Tveir fálkanna voru færöir Náttúru- fræðistofnun í gær. Annar fannst mátt- vana viö Austurbrún í Reykjavík. Reyndist hann særöur á höföi eftir aö hafa flogið á eitthvaö en einnig bólginn á fæti eftir sýkingu og með fálkaveiki. Honum er vart hugað líf. Hinn kom áhöfnin á togaranum Jóni Vídalín meö. Sá fáiki haföi sest á skipiö undan Reykjanesi illa haldinn. Hina fjóra fálkana hefur fólk af landsbyggðinni sent suður til Reykja- víkur frá Olafsvík, Patreksfiröi, Hrútafirði og Reyöarfiröi. Þrír þeirra höföu lent í grút en sá úr Hrútafirði var vægt sýktur af fálkaveiki. Náttúrufræðistofnun er í samráöi viö Háskólann aö reyna að lækna alla fálk- ana sex. Fimm þeirra eru taldir eiga góða möguleika á aö ná sér aftur. Hugsanlegt er aö einhverjum þeirra veröi sleppt frjálsum í næstu viku. -KMU. J6n Baldvin vill gengisfellingu Ef Alþýöuflokkurinn mætti ráöa þjóðarskútunni þessa stundina myndi hann strax lækka gengið. Þetta kom fram í ræðu sem Jón Baldvin Hanni- balsson flutti á Alþingi í gærkvöldi þeg- ar þingmenn ræddu um stefnuræðu forsætisráðherra. Jón Baldvin lýsti því yfir aö þaö yröi aö skrá gengið rétt og fylgja því svo eftir með réttum efnahagsaðgerðum. Gengishagnaöurinn yröi notaöur til aö greiða erlendar skuldir sjávarútvegs- ins, sem myndu hækka viö gengisfell- inguna. Til aö sporna viö hækkun á inn- fluttum vörum yrði aö setja á tíma- bundna verðstöðvun í 6 mánuöi. Þá sagöi Jón Baldvin aö nauðsynlegt væri aö hækka skatta þeirra sem heföu nóg af fjármagni miÚi handa. Einnig yröi að skera niöur fé til orkumála, landbúnaðarmála og opinberra bygg- ingarframkvæmda. Þá boöaöi hann einnig miklar breytingar á skattakerf- inu og húsnæðiskerfinu. APH Fjaörafok og læti hjá fáikunum á Náttúrufræðistofnuninni. Stofnunin hefur aldrei áöur verið með svo marga fálka i einu. OV-myndir PK. Stefnuræða forsætisráðherra: Megnmarkmið er lækk- un erlendra skulda Stjórnarandstaðan gagnrýndi launastef nu ríkisstjórnarinnar harðlega Stefnuræða Steingríms Hermanns- sonar forsætisráöherra var í anda þeirrar þjóöhagsáætlunar sem ný- lega hefurveriðbirt. „Lækkun erlendra skulda verður aö mati rikisstjómarinnar óhjá- kvæmilegt meginmarkmiö í efna- hagsmálum þjóðarinnar næstu árin,” sagöi forsætisráðherra. Til þess aö þetta náist er stefnt að 5 pró- sent aukningu í útflutningi þjóðar- innar og aðeins 1 prósent aukningu þjóðarútgjalda næstu árin í staö 3 pró- senta sl. tvö ár. Þessi stefna þýðir aö þjóðarútgjöld standa í staö á mann. Ef þessari stefnu verður framfylgt mun kaupmáttur launa standa í stað eöa hætta iítillega frá því sem hann er núna. I ræðum stjórnarandstöðumanna kom fram hörð gagnrýni á stefnu ríkisstjórnarinnar. Sú gagnrýni beindist í aðalatriðum að launa- stefnu ríkisstjómarinnar. Nú væri kominn upp mikill launamismunur í þjóðfélaginu. „Gróöaöflin vaöa uppi á kostnað launafólks og þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku fátæk- ari,” eins og Jóhanna Sigurðardóttir, Alþýðuflokki, orðaði það. -APH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.