Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1985, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1985, Blaðsíða 14
14 DV. FÖSTUDAGUR18. OKTÖBER1985. Menning Menning Menning Menning Fjölskipaður kvennabekkur Listahátífl kvonna. Tónleikar í Norrœna húsinu 15. október. Rytjendur: Inga Rós Ingólfsdóttir, Seima Guflmundsdóttir, Guflrún Birgisdóttir, Anna Guflný Guflmundsdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Þóra Frífla Sœmundsdóttir, Jón Aðalsteinn Þor- geirsson, Amþór Jónsson, Guflný Guflmunds- dóttir, Guðríður St. Sigurðardóttir. Efnisskrá: Nadia Boulanger: Þrjú lög fyrir selló og pianó; Sylvie Bodorová: The Smell of Summer; Betsy Jolas: Episode seconde— ohne Worte; Thea Musgrave: Suito o'Baimsangs; Mist Þorkelsdóttir: Þrenning; Karólína Eiríksdóttir: In vuhu solis; Yardena Alotin: Sónatína fyrir fiðlu og píanó; Grazyna Bacowicz: Pólsk caprica fyrir einleiksfiðlu; Clara Schumann: Þrjár rómönsur. Tónlist kvenna, flutt af konum, að mestu leyti, var enn á dagskrá Lista- hátíðar kvenna. Nú voru tónleikarnir í Norræna húsinu, eins og reyndar síöustu tónleikar þar á undan þótt ekki hafi kannski komið nógu glöggt fram að tónleikar systranna Signýjar og Þóru Fríöu hafi verið undir hatti Lista- hátíðarinnar. Nú óttaðist maöur hálft í hvoru að hátíöin væri komin í sam- keppni við sjálfa sig með því að kvikmyndahátíðin fellur á sama tíma og tónleikarnir. En það hefur verið visst fastafylgi á tónleikunum og það skilaöi sér og heldur rúmlega það í Norræna húsið. Ekki veit ég hversu oft við höfum séö vitnað til þess að hinn eða þessi stórkúnstnerinn hafi numið hjá Nödiu Boulanger. Kannski samdi hún mest og best í gegnum nemendur sína, en ég tel það líka nokkurn veginn víst að aldrei hafi verið leikið eftir hana svo mikið sem eitt smálag á íslenskum tónleikum. Má segja aö tími hafi verið til kominn að viö fengjum að kynnast töfrum hennar með tilstyrk þessara yfirlætislausu laga hennar frá því í aldarbyrjun. Þrátt fyrir yfirlætisleysi sitt leyndu þau á sér og heyra mátti aö Inga Rós og Selma höfðu gaumgæft inntak þéirra og eðli — svo næmum höndum fóru þær um þau. Síðan kvaö við annan tón í Smell of Summer eftir Sylvie Bodorová, þar sem áherslan var lögð á fjarrænu flautunnar og síöan í ágengu stykki Tórtlist Eyjólfur Melsted Betsy Jolas. Það var sérstakur fersk- leikablær á leik Guðrúnar í seinna verkinu og frábær samvinna hennar og Önnu Guðnýjar í því fyrra. Og áfram hélt Anna Guöný að styöja dyggilega við bak samstarfsmanns, næst á eftir með Sigrúnu Hjálmtýsdóttur í barna- ljóöum Theu Musgrave. Söngur Sig- rúnar var reyndar hið eina sem mér kom á óvart á þessum tónleikum. Ég átti satt best að segja ekki von á því að hún hefði tekið svo stórt stökk fram á við. Nú þykir mér sem röddin sé alveg viö það að ná músíkaliteti hennar. Ein- mitt það sem beðið hefur verið eftir síðan á Hlégarðstónleikunum um árið. Mist Þorkelsdóttir, sem mikla at- hygli vakti með verki sínu, Davíð 116, í fyrra átti hér mjög fallegt tríó fyrir klarínettu, selló og píanó sem hún nefnir Þrenningu. Henni tekst að gera sér mikinn mat úr eðlislægri sam- hljóman klarínettunnar og sellósins og einföld úrvinnslan veröur fyrst og fremst til að skerpa samsömun hljóöfæranna. Fallegt stykki og ekki síður fallega spilað. Að lokum lék Guðný Guðmundsdóttir fjögur verk, tvö þeirra við meðleik VMKM Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM Þá hleypur á snærið Grein um heppni Kyssa alla bless og fara bara! Sigríður Halldó talar við Helgu Thorberg Lífsreynsla: Lífsh fæðing Heimsókn í Fellahelli Byggt og búið: Litast um á Hjónagörðum Svipast um á fornbókasölum Hvernig væri að gera eitthvað í málunum? Ráðleggingartil þeirra sem vilja koma sér í form Einar Kárason: Af biblíusögum lestrarkennsluhefta Guöríöar St. Siguröardóttur. Fyrst Sónatínu Yardenu Alotin, mjög svo hefðbundna sónatínu þótt blikur birt- ust frá nýrri tíö, en skemmtilegt stykki og góður samleikur. Síðan komu tvö virtúósastykki sitt með hverju mótinu. Pólsk caprica Crazynu Bacewicz handa fiðluvirtúós af gamla skólanum full af glettni og gáska og síðan hiö út- spekúleraöa In vultu solis Karólínu Eiríksdóttur — verk sem útheimtir mikla fæmi flytjandans þótt ekki sé beint hraðanum fyrir að fara. I hvert sinn sem ég heyri þetta verk Karólínu líkar mér betur og betur við það. Hætt- an er einungis sú að farið verði að telja það á færi Guönýjar einnar að spila það, svo vel sé. Þessum ágætu og fjöl- skipuðu kvennatónleikum lauk svo með þremur yndislegum rómönsum brautryðjandans í kvennatónsmíöum, Clöru Schumann, og þegar tvær góðar listakonur leggja svo mikla alúö við lokaflutninginn getur maður ekki annaö en farið ákaflega sáttur við tilveruna heim að tónleikum loknum. Ertþú undir ánrifum LYFJA? Lyf sem hafa áhrif á athyglisgáfu og viöbragösflýti eru merkt meö RAUÐUM VIÐVÖRUNAR-^ ÞRÍHYRNINGI yr™ * *******-x-*: Rafdeild 2. hæð $ örbylgjuofnar. SHARP og MIELE í Litir: hvítur og brúnn. ★ Sjónvarpsloftnet úti og inni. FM-loftnet, TV- kapall og tengi. i ! ★ ★ ★ -★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ I ★ Vershð þar sem* úrvalið er mest * og kjörin best. J Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Simi 10600 ** ************ ¥

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.