Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1985, Page 10
10
DV. FÖSTUDAGUR18. OKTÖBER1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Treholt taldi KGB-manninn Títov vin sinn . ..
„Getur hún hatað mig svona mik-
ið? Hún hefur setið í íbúð sem faðir
minn hefur borgað og soðið saman
svona framleiðslu með sambýlis-
manni sínum, hjartans vininum, sem
ofan á allt annað hefur þýtt bókina á
sænsku. Er heimurinn algerlega
brjálaður?”
Þannig kemst Arne Treholt að orði
í bók sinni, Aleinn, sem kom út í Nor-
egi á mánudag.
Treholt segir sjálfur um bókina að
hún sé lýsing á því hvernig hann hafi
hugsað og hvernig honum hafi liðiö á
því tímabili sem hann breyttist í al-
menningseign. I bókinni gætir mikils
biturleika í garð konu hans,
Kari Storækre, og segir að það hafi
verið sér gífurlegt áfall þegar bók
hennar kom út. Hann segir að það
hafi verið sér meira áfall heldur en
þegar hann hafi daglega mátt þola
það aö fjölmiðlar drægju upp al-
ranga mynd af gangi mála.
Grét eins og barn
Treholt segir einnig að þegar hann
hafi frétt að kona hans hafi verið far-
in að búa með sænskum manni hafi
hann grátið eins og barn.
Svíinn, sem hér um ræðir, er Ake
Wilhelmson, kunnur sænskur sjón-
varpsmaöur. Kari Storækre býr nú
með honum í Stokkhólmi og um ára-
mótin mun hún byrja með þátt í
sænska sjónvarpinu ásamt honum.
I bók sinni lýsir Treholt sambandi
sínu við lögregluna og þá sem stjórn-
uðu yfirheyrslunum og lýsir baráttu
sinni gegn því sem hann kallar
„valdið” og fremsta fulltrúa þess,
Örnulf Tofte yfirheyrslustjóra, sem í
bókinni er þó aldrei kallaður annað
enE.
Opinskár
Treholt er mjög opinskár í lýsing-
um sínum, skýrir frá sambandi sínu
við föður sinn og son og segir að það
hafi verið þeir tyeir sem komu í veg
fyrir að hann hafi alveg brotnað nið-
ur gagnvart valdinu. Hann ræðir
einnig opinskátt um samband sitt við
Jens Evensen, fyrrum hafréttarráö-
herra Noregs og nú dómara við al-
þjóðadómstólinn, og KGB foringjann
Gennadí Títov. Hann lýsir Títov sem
vini sem alltaf hafi verið heiöarlegur
við sig.
Bókin byrjar á lýsingu á því hvern-
ig handtakan 20. janúar í fyrra átti
sér staö. „Þér eruð handteknir,
grunaðir um njósnir í þágu Sovét-
ríkjanna.” Þannig var Treholt í
fyrsta sinn ávarpaður af örnulf
Tofte er hann stöövaði Treholt á
Fornebuflugvelli er sá síðarnefndi
Það var stóráfall fyrir Treholt þeg-
ar bók Kari Storækre, konu hans,
kom út.
var á leið til Vínar til að hitta KGB
foringjann Títov.
„Ég hafði frestað ferðinni í lengstu
lög. Mér var órótt innanbrjósts og ég
fann á mér að eitthvaö var að. Ég gat
enn snúið við en ég gerði það ekki. . .
Svo stóð hann þarna, örlagavaldur
minn.” Þannig skýrir hann frá hand-
tökunni.
Vildi slíta sambandinu
Treholt skýrir einnig frá því aö
hann hafi viljaö slita sambandi sínu
við Títov. Það var í september árið
1983 sem hann ákvað aö hætta að
hitta KGB foringjann. Treholt mætti
ekki til fundar sem þeir höfðu ákveð-
ið að eiga með sér í Helsinki en hann
segist hafa fengið samviskubit vegna
þess.
„Títov haföi alltaf komiö heiöar-
lega fram við mig og mér fannst að
mér bæri að útskýra þetta fyrir hon-
um. Það aö mér fyndist ekki lengur
að það samrýmdist stöðu minni í
utanríkisráðuneytinu aö halda þessu
óformlega sambandi,” skrifar Tre-
holt. „Við höfðum þekkst um árabil.
Viö gátum talaö saman hreinskilnis-
lega og opinskátt um þýðingarmikil
utanríkismál.”
Treholt skrifar einnig aö þessi
samtöl hafi veriö mjög gefandi fyrir
sig. „Okkur leið vel saman. Okkur
fannst það skemmtilegt aö fá okkur
bjóraf og til.”
Baráttan gegn valdinu
1 samtali, sem sænska sjónvarpið,
fyrst útlendra sjónvarpsstöðva, átti
viö Treholt í tengslum viö útkomu
bókarinnar, sagði Treholt að hann
myndi halda baráttunni gegn vald-
inu áfram, en þaö yrði erfið barátta
og hann sæi ekki hvernig hann ætti
að komast yfir þann vegg sem þetta
vald væri gagnvart sér.
Þá kom fram í sjónvarpsviðtalinu
að Treholt hefur haldið til haga öll-
um blaðaúrklippum um mál hans, og
flokkar þær niður í möppur, og eins
og við má búast fylla þær möppur
allmargar hillur.
Utkoma bókar Ame Treholt hefur
valdiö miklum deilum í Noregi og
ekki síður að Treholt hefur fengið
bókmenntaverðlaun fyrir bókina
enda þykir hún mjög vel skrifuð.
„Kaupið ekki bókina"
Á mánudag gengust 20 af forystu-
mönnum norsks atvinnulífs fyrir
auglýsingaherferð gegn bók Treholts
þar sem fólk er hvatt til að kaupa
ekki bókina. Margir þeirra sem
standa aö baki auglýsingaherferð-
inni voru háttsettir innan norska
hersins í seinni heimsstyrjöldinni
eða kunnir úr andspyrnuhreyfing-
unni.
„Ef Treholt vill skrifa bækur þá
skiptum við okkur ekki af því. En við
erum þeirrar skoðunar að ekki eigi
að gefa út bækur hans fyrr en hæsti-
réttur hefur fjallaö um mál hans,”
sagði Ronald Jötun, einn þeirra sem
standa fyrir herferðinni, og höfðaði
til þess að áfrýjun Treholts verður
tekin til meðferðar í hæstarétti Nor-
egs eftir nýár.
„Arne Treholt hefur verið dæmdur
fyrir landráð og hlotið þyngstu refs-
mgu sem lög leyfa. Ekki er hægt aö
líta á bókina sem neitt annað en
hluta af málsvörn,” sagöi Jötun.
Þeir sem standa að herferðinni
gegn bókinni heyja hana undir yfir-
skriftinni „Nú er mælirinn fullur”.
Treholt var í júní síðastliðnum
dæmdur í 20 ára fangelsi og 1,1 millj-
ón norskra króna í bætur fyrir njósn-
ir í þágu Sovétríkjanna, og að mati
dómsins samsvaraði sektin þeirri
upphæð sem Treholt haföi þénað á
njósnunum.