Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1985, Qupperneq 16
16
DV. FÖSTUDAGUR18. OKTÖBER1985.
Spurningin
Fannst þór rótt af Albert aö
hœkka laun allra ríkisstarfs-
manna um 3%
EUert Hlíöberg: Já, þaö var rétt aö
hækka þau og þá jafnvel meira.
Þóröur Guðlaugsson: Eg get nú ósköp
lítiö sagt um þaö því það er erfitt aö sjá
fyrir afleiðingar þess.
Guömundur ö. Jónsson: Já, þetta var
alveg sjálfsagt og önnur laun veröa aö
hækka líka til aö véra sambærileg.
Pétur Jónsson: Ég er nú ríkisstarfs-
maöur svo þetta hlýtur aö hafa veriö
rétt.
Olafur Sæmundsen: Já, ég held aö þaö
hafi ekki veitt af því til aö halda uppi
kaupmætti sem er á niðurleið.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
r
y Utvarp:
Ofremdar-
ástand í
dreifingar-
málum RÚV
Magnea Guðmundsdóttir, Flateyri,
skrifar:
I desember 1983 varö gjörbylting í
útvarpsmálum á Islandi, rás 2 var
opnuð fyrir hluta landsmanna meö
stuttri dagskrá til aö byrja meö. Þaö
var von mín að þaö yrði ekki mjög
langt í aö við heyröum hana öll, ég
reyndar trúöi ekki öðru. Sú von er nú
brostin og þaö fyrir löngu. Hvers
eigum við að gjalda, þessir aumingj-
ar sem búum í þeim landshlutum
sem fá ekki þessa þjónustu? Eg er
víða búin aö hringja og spyrjast fyrir
um þessi mál. Viröist aöalmáliö vera
peningahliöin, þaö kosti svo mikið aö
koma upp dreifikerfi fyrir allt land-
ið. Og ekki nóg meö þaö, FM bylgjan
er ekki einu sinni komin alstaðar og
finnst mér það hreinasta skömm.
Ég vil nú samt sem áöur ekki trúa
því aö peningahliðin sé aðalorsökin
því á sama tíma er þjónusta við
hlustendur rásar 2 stóraukin meö
lengdri dagskrá. Kostar það ekki
peninga? Sennilega ekki. Ragnhildur
Helgadóttir berst á sama tíma fyrir
erlendum sjónvarpsstöövum til aö
auka val og þjónustu, þaö kostar
sennilega ekki peninga heldur. En
þaö sem mér svíður sárast nú er það
ranglæti sem dynur yfir okkur nú í
sambandi viö breytingu dagskrár á
rás 1 í vetur. Allt miöast nú viö aö allir
heyri í báöum rásum, sem sagt rás 1
til mótvægis viö rás 2. Þaö má ekki
spila sömu tónlist á rás 1 og rás 2 til
aö þreyta ekki hlustendur á því
sama.
Markús 0. Antonsson útvarps-
stjóri sagöi nýlega aö á næsta ári
yröu settir upp 20 sendar víöa um
landið. Er vonandi aö það sé rétt en
ég fékk þær upplýsingar fyrir
nokkrum dögum aö þeir væru 11,
tveimur fleiri en á þessu ári.
Breytingin á dagskrár rásar 1
hefur veriö alveg stórmerkileg upp á
síökastiö, hún var ágæt en fer hríö-
versnandl Ég komst aö því meö því aö
skoöa dagskrá útvarpsins í eina viku
aö þaö eru engir léttir músíkþættir
eftir á rás 1, þaö er búið aö flytja þá
alla yfir á rás 2.
En þaö sem fyllti mælinn var þátt-
ur sem útvarpað var á rás 2 sunnu-
dagskvöldið 6. okt. Var þátturinn til
styrktar Tónlistarhúsi á Islandi. Er
ekki gert ráö fyrir því aö viö, sem
heyrum ekki í rás 2, styrkjum þaö
framtak? Ég tók það þannig og þar
af leiðandi dettur minn gíróseöill í
rulsatunnuna og ég veit um miklu
fleiri.
Því spyr ég. Finnst ykkur, for-
ráöamönnum útvarpsins, réttlátt aö
gera þessar breytingar áöur en verk-
inu er aö fullu lokið? Á sama tíma
borgum viö sama útvarpsgjald og
hinir sem geta valiö. Því skora ég á
ykkur aö gera eitthvað í þessum
málum og þaö sem fyrst.
Enn vantar á aö dreifikerfi RÚV tryggi það að allir íslendingar sitji við
sama borð. Eru sumir að vonum orðnir langþreyttir á þvi að njóta ekki
dagskrár rásar 2.
Strákarnir i Duran Duran hafa ekki sent sameiginlega frá sór i langan tíma. En vinsældir þeirra eru stöð-
ugar eigi að siður.
Sýnið meira frá Duran Duran
Duran Duran aödáandi hringdi:
„Ég vil kvarta yfir því hve lítið er af
tónlistarþáttum í sjónvarpinu. Og þá
er ég aö tala um létta þætti, Skonrokk
er ekki nóg. Hvernig væri aö fá þætti
með vinsælustu hljómsveitunum
hverju sinni? Og hvernig væri aö
endursýna Duran Duran þáttinn, hann
varalveg frábær.”
Sjónvarpið:
Skemmtilegur
þingfréttaþáttur
Einn ánægður hringdi:
„Þá eru þeir aftur byrjaðir, bless-
aöir pólitíkusarnir. Þaö var gaman aö
sjá þá svona hressa og káta í sjónvarp-
inu á miðvikudagskvöldið, þeir virtust
engu hafa gleymt í skemmtilegri sviös-
framkomu. Eins og áöur var þó Jón
Baldvin skemmtilegastur þar sem
hann biölaði á báða bóga. Hann er
hreint óborganlegur, maöurinn sá.
Denni og Steini virtust hressir eftir
stólahlaupiö og til alls liklegir eftir að
hafa losnaö við óþekktarangann, hann
Albert. Þaö var einna helst aö Svavar
Það verður forvitnilegt að fylgjast með störfum þings i vetur eins og endra-
nær.
væri daufur en hann hressist vonandi
þegar hann sest á „alþingi götunnar”.
En vonandi aö framhald verði á
þessum þáttum í vetur, helst vikulega.
Páll getur þá í leiðinni sýnt okkur nýj-
ustutiskuna.”
í Broadway
L. skrifar;
„Nú um helgina brá ég mér í
Broadway ásamt kunningjafólki
mínu. Var ætlunin aö njóta góðrar
kvöldstundar, snæða góöan kvöld-
verö og sjá hina frábæru Sumar-
gleði. Sumargleöin brást ekki
fremur venju, frábærir skemmti-
kraftar þar á ferð. En þegar líða tók
á kvöldið varö alveg óbærilegt
þarna inni sökum mannfjölda.
Virtust engin takmörk fyrir því hve
margir fengu að fara inn. Nánast
var ómögulegt aö nýta sér þjónustu
staöarins, t.d. viö bari, því aö þar
voru ávallt langar biöraöir. Einnig
var ávallt yfirfullt á salernum og
engin leiö að komast þar aö.
Ráöamenn í Broadway verða aö
átta sig á því aö þótt þeir séu með
stærsta skemmtistað landsins er
ekki endalaust hægt aö hleypa þar
inn.”
töjédl
Hringið
kl. 13—15 eða
SKRIFIÐ