Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1985, Síða 30
42
MEIRIHÁTTAR
TÍBRÁ í FÓKUS -
POSSIBILLIES (Stsinar)
Islensk plötuútgáfa sambærileg
viö 2ja laga plötur í útlöndum
birtist okkur oft sem lög á safn-
plötum — og því flokkast nýtt lag
Possibillies hiklaust meö smá-
skífum. Hér hafa höfundar
augljóslega legið yfir tónlist
Prefab Sprout og þeim ekki
legið á hálsi fyrir þaö, flókin
uppbygging og fjölskrúðug út-
setning en laglínan engu aö síöur
grípandi. öðruvísi en flest önnur
íslensk lög og ég vildi mega bæta
viö: einfaldlega frábært!
ROSE OF ENGLAND -
NICK LOWE & HIS
COWBOY OUTFIT
(F-BEAT)
Ég er farinn aö hallast aö því aö
gamlir vendir sópi best. Þetta er
yndislega gamaldags og
hallærislegt lag frá rokk & ról
séníinu Nick Lowe, gullfalleg
melódía og giska eftirminnilegt.
Nick Lowe er eins og eðalvín:
batnar með aldrinum.
IMÆSTUM-ÞVÍ-
MEIRIHÁTTAR
WENDELL GEE -
REM(IRS)
Einhvern tíma hefði svona yfir-
máta rólegt lag verið kallað
svefnmeðal. En í meðförum
REM verður tónlistin svo
töfrandi að svefn er það sísta sem
manni dytti í hug. Áhrif frá
Byrds og bandarískum
þjóðlögum er áberandi í tónlist
REM, einhverrar albestu hljóm-
sveitar bandarísku ný-
bylgjunnar.
SINGLE LIFE —
CAMEO(CLUB)
Það gerist ekki oft að topplög
diskólistanna útlendu kalli fram í
hugann einhver hrósyrði. En
Single Life er dæmi um hvaö hug-
myndaríkir útsetjarar geta gert
úr litlu efni, mjög áheyrilegt og
mjög sneddí.
THIS IS EIMGLAND
— CLASH (CBS)
Ég hef enga trú á því að Clash
verði annað en bergmál af sjálfri
sér fyrst Mick Jones var bolað
burt. Fyrsta lag Clash um
margra ára skeið og ótrúlega
óspennandi. Hvað hafa menn
verið að bjástra allan þennan
tíma?
THE GAMBLER -
MADONNA (GEFFEN)
Þunnur þrettándi. Madonna
hefur aldrei verið í uppáhaldi hjá
mér og það hljóta að vera ein-
hverjir aðrir en tónlistarunn-
endur sem sólgnir eru í að hlusta
á jafnnauðaómerkilegt lag og the
Gambler.
MYHEARTGOES
BANG - DEAD
OR ALIVE (EPIC)
tJff! Ef þið viljið næla ykkur í
hausverk með litlum tilkostnaði
spilið þá þetta vélræna diskósuU
nokkrum sinnum. Dead or Alive?
Dead.
-Gsal.
MISJAFN SAUÐUR í MÖRGU FE
Safnplötur hafa ekki verið fyrirferð-
armiklar á íslenskum plötumarkaði
síðustu mánuðina og Perlur er fyrsta
safnplatan frá því snemma á árinu.
Flest laganna á þessari fjórtán laga
plötu eru enn mjög vinsæl og hafa kom-
iö við sögu vinsældalista rásar 2 að
undanskildu eina íslenska lagi plötunn-
ar — og jafnframt besta laginu — Tí-
brá í fókus með Possibillies. Hins veg-
ar er ástæða til þess að sakna nýja
lagsins frá Mezzoforte sem hefði sómt
sér bærilega í þessu safni.
Þó helsti kostur plötunnar sé ótví-
rætt sá að flest lögin eru vinsæl á út-
gáfudegi er fulldjúpt í árinni tekið aö
láta plötuna heita: Perlur. I minum
huga er það miklu sterkara orð en svo
að réttlætanlegt sé að brúka þaö um
dægurflugur og diskólög sem útgefend-
ur sem aðrir vita að lifa varla vikuna
út. Perlur eru eins og nafnið gefur til
kynna gimsteinar í tónlist sem lifa
mann fram af manni og með fullri virð-
ingu fyrir sómahljómsveitum eins og
China Crisis, OMD og UB40 þá er ein-
faldlega of snemmt að spá í þaö hvort
lög þeirra komist í þann úrvalsflokk.
Ef líta má á þessa plötu sem ein-
hvers konar þverskurð af vinsælda-
poppi síöustu vikna veröur heldur ekki
undan því komist að álykta sem svo að
popptónlistinni fari hrakandi. Margt af
því besta, sem rokkið hefur upp á að
bjóða nú á dögum, sést ekki á vin-
sældalistum sem þessi plata tekur miö
af og því miður hefur þróunin orðið sú
hér heima hvaö vinsældalista áhrærir
að léttmetið er allsráðandi. Þar hefur
þýskættuð tónlist skotið rótum og ekki
beinlínis metnaöarfull framleiðsla
frómt frá sagt.
Bestu lög plötunnar að mínum dómi
eru Lean On Me með Red Box, You Did
Cut Me með China Crisis, Secret með
OMD, If I Was með Midge Ure að
ógleymdu besta laginu sem áður var
nefnt: Tíbrá í fókus með Possibillies.
-Gsal
JOHN COUGAR MELLANCAMP — SCARECROW
GJORSAMLEGA MISHEPPNAÐ
Fyrir nokkrum árum sló John
Cougar Mellancamp í gegn í henni
Ameríku með braki og brestum með
plötunni American Fool. Plata þessi
innihélt gamalt og gott rokk; ekkert
nýtt en einhver ferskleiki var yfir hlut-
unum. Tvö lög af plötunni fóru á topp-
inn vestra; Hurt So Good og Jack & Di-
ana og John Cougar Mellancamp varð
þjóöhetja.
Fljótlega kom þó í ljós að vinurinn
var engin þjóðhetja heldur sléttur og
felldur klisjurokkari sem til er hálfur
annar hellingur af þarna vestra.
Munurinn á þeim og honum er bara sá
að hann var svo hundheppinn að slá í
gegn einu sinni og á því lifir hann.
Og ég get ekki ímyndað mér að þaö
sé öðru að þakka en þessari fornu
frægð aö lagið Lonely All Night af
JOHN COUGAR MELLANCAMP.
þeirri plötu, sem hér er til umf jöllunar,
skuli vera komið inn á topp tíu í Banda-
ríkjunum. Lagið er nefnilega hund-
ómerkilegt eins og öll hin lögin á þess-
ari plötu.
Það er rétt eins og nafnið á plötunni
American Fool hafi orðið að áhrínsorð-
um á John Cougar því hann hefur látið
velgengni þeirrar plötu hafa sig að fífli
með því að reyna að endurtaka hana
enn og aftur.
Það tekst engan veginn og ekki bætir
kappinn úr skák með því að ætla aö
stæla Bruce Springsteen eins og hann
reynir á afar misheppnaöan hátt á
þessari nýju plötu. Eitt lagið heitir til
dæmis R.O.C.K. In The U.S.A:
Algjört flopp.
-SþS-
NONA HENDRYX - THE HEAT:
SUNGIÐ AFINNUFUN
Þrátt fyrir að Nona Hendryx sé ekki
mjög þekkt hér á landi þá er hún söng-
kona sem á að baki langan söngferil,
bæði sem sólósöngvari og meðlimur
hópa. Nona Hendryx vakti fyrst at-
hygli með hinu vinsæla tríói Labelle.
Þar var hún í skugganum af hinni að-
sópsmiklu Patti Labelle. Þegar tríóið
lauk ferli sínum starfaði Nona sem
baksöngvari með ýmsum þekktum
poppurum. Má nefna Peter Gabriel og
Talking Head. Hún stofnaði eigin
hljómsveit, Propaganda, sem lifði
stutt. Eftir það tók við sólóferill sem
hefur skilað sér í þremur LP-plötum og
er hún að vinna sér sess sem ein vand-
aöasta soul-söngkona Bandaríkjanna.
The Heat er þriðja plata hennar. Þó
soultónlistin sé í fyrirrúmi eru þar
einnig rokkuð lög sem henni tekst eink-
ar velaðtúlka.
The Heat byrjar á diskólaginu
Revolutionary Dance. Eftir að hafa
hlustað á það kveið ég framhaldinu
satt best að segja, hélt að hér væri á
ferðinni enn ein diskóplatan. Sá kvíði
var sem betur fer ástæðulaus. Lögin,
sem fylgdu á eftir, voru hvert öðru
betra og sönnuðu fyrir mér að Nona
Hendryx er einhver allra besta svarta
söngkonan í dag. Set ég hana í sama
gæðaflokk og Randy Crawford og Joan
Armatrading, tvær svartar söngkonur
sem hafa verið í uppáhaldi hjá mér á
undanförnum árum.
Lögin á plötunni eru aðeins átta og
því frekar löng. Hefur Hendryx samið
öll ein, eða með aðstoð annarra. Ef
taka á einhver lög fram yfir önnur þá
er það helst titillagið sem er í tveimur
hlutum. Finnst mér þaö sérlega gott,
soul af bestu gerð, og einnig eina ró-
lega lagið á plötunni, I Need Love, góð
melódía sem Nona Hendryx fer vel
með.
Ekki á ég von á að Nona Hendryx nái
vinsældum hér á landi. En þeir sem
hafa gaman af soul-tónlist verða ekki
sviknir af The Heat.
HK.
DV. FÖSTUDAGUR18. OKTÖBER1985.
Safnpiata béstu laga Depetche
Mode kemur út i þessarí viku og
þar er að finna þrettán helstu
smeili hljómsveitarinnar. Fimm
þerra komust ivi á topp tiu i Bret
landi á sínum tima og önnur se*
lög meóal tuttugu efsiu... Nýjar
smáskifur i vikunni eru meðal
annars Cloudbursting með Kate
Bush, Love Letter með Marc
Almond, Uncle Sam með Mad
ness og Brothers in Arms með
Dre Strarts... Nýjar, storar plötu
eru að koma út með Level 42 og
Simple Red... Haatt hefur verið
við útgáfu á Mezroforte laginu
This is the Night i Englandi, að
minnsta kosti um stundarsakir.
Kynningareintók, sem útvarps
stöðvar fengu, virtust ekki gefa
tilefni til mikillar bjartsýni og þvi
verður megináhersla lögó á að
koma laginu á markað í Evrópu.
Eins og komið hefur fram i frétt
um hafa stóffyrrrtseki i hljóm
plötuútgáfu slegist um Mezzo
forte og RCA hefur keypt útgáfu
réttinn i Þýskalandi og Austur
ríkí... Æ ffeiri baitast nú i friðan
flokk poppara sem vilja mótmæla
aðskilnaóarstefnu hvíta minnihlut
ans i Suður Afríku. Bruce Spring
steen og Bob Dylan hafa nýlega
gefið vityrði sitt fyrir að vera með
á ptötu til stuðnmgs baráttunni
gegn apartheid. Fyrrum gítanso,
Steve Van Zandt skipuieggur út
gáfuna og með honum verða auk
þeúra, sem áður hafa verið nefnd
ir, Pete Townshend. Peter
Gabriei og Daryf Hall og John
Otes... Nú þegar rúmir tveir mán
uðir eru til érsloka hafa birst töhir
yfir plötusölu i Bretlandi og Ijóst
er að Madonna stendur uppi sem
sigurvegari. Hún hetur selt yfir
tvær milljónir af smáskífum á ár
inu en engtnn annar flytjandi nær
einu sinni milljóna markinu...
Prince er farmn að spóka sig fyrir
framan kvikmyndatökuvélar því
hatnar eru upptökur á myndinni
Under the Cberry Tree. Leikstjórí
er Mary Lambert... i Lundúnum
eru líka hafnar tökur á kvikmynd;
sú mynd á að heha Sid and Nancy
Love Kills og fjallar um Sid
Vicious heitinn úr Sex Pistols...
Búið i bili...
Gsal
Sæinú! Paul Young í klípu: tverr
fyrrum félagar hans i hljómsveit
inni Q Tips staðhæfa að lagió á
siðustu smáskífu Paul Young,
Tomb of Memories, hafi orðlð til
skömmu áður er, Q Tips sneri upp
támrm og sé samið af hljómsvert
armeðömum i fólagi en ekki bara
af Paul Young og lan Kewley.
Lagið var aó sönnu aldrei hljóðrh
að af hljómsvertinni en kallaðist
Song In My Pocket. Paui Young
ne'rtar ásökunum fyrri félaga