Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1985, Qupperneq 32
.4* 44
DV. FÖSTUDAGUR18. OKTÖBER1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
í ökuferð með fulltrúa ungu kynslóðarinnar
„Ég tek bfíinn
með út”
Ein hinna umdeildu keppna um
kvenlega fegurö var haldin í Broadway
fyrir skömmu og þar hlaut sautján ára
stúlka titilinn ungfrú Hollywood og
fulltrúi ungu kynslóðarinnar. Fyrir
utan alla titla voru verðlaun eins og til
dæmis heil bifreiö — Daihatsu turbo —.
DV brá sér í ökuferð nm borgina með
Rögnu Sæmundsdóttur, nýbakaðri
fegurðardrottningu, einn rigningar-
morgun í vikunni.
„Billinn er æðislegur,” segir Ragna.
Eg trúi þessu ekki ennþá — finnst ólík-
legt að einmitt ég hafi fengið þennan
bíl! Átti alls ekki von á þessu og
finnst allt í lagi að aka um með þessa
áletrun á honum. Upphaflega áttaði ég
mig ekki á því að það gæti skipt máli en
þegar fólkið fór að glápa var það
óþægilegt fyrst. En maður venst því.
Reyndi að sýna öryggi
Ragna er sautján ára síöan átjánda
maí í vor og er því nýkomin með bíl-
próf. Bílakaup voru ekki á dagskrá hjá
henni, enda nemandi í Verslunar-
skólanum og fjárráðin í samræmi viö
það.
Áður varö ég bara að fá lánaöan bíl,
þaö er einn til á heimilinu en ég bý með
mömmu minni í Breiðholtinu og
þremur systkinum. Hún er einstæð
móðir, ég er næstelst, og þú mátt trúa
því að bíllinn kemur sér vel núna. Það
er æðislegt að þvo hann og í keppninni
kom mér ekki í hug að hann yrði minn
síðar. Við vorum tvær sautján ára og
hinar eldri, en maöur reyndi samt að
sýna öryggi, sérstaklega gagnvart
dómnefndinni. Láta ekki sjást að
maöur væri yngri en hinar. En samt,
þetta kom mér virkilega á óvart.
Þarf helst að vakna sex
Þessi keppni hefur staðið mjög lengi,
síðan í febrúar, og það er erfitt að átta
sig á því að núna er þetta búið. Og þá
er bara að snúa sér aö skólanum, enda
er ofsalega gaman í Versló. Ég hef
dregist aftur úr þar og hef ofsalegan
áhuga á því að ná upp náminu. Ætla að
gera þaö! En það er svo mikið að ég
,,Það er æðislegt að þvo bilinn, ég gerði það i gær og núna er ennþá rigning þannig að hann helst ekki
nógu hreinn á götunum."
DV-mynd KA.
þarf helst að vakna klukkan sex á
morgnana til þess að læra.
A þessu ári hef ég gengið í gegnum
svo margt, meðal annars unnið við
módelstörf í París sem var mér ofsa-
lega góður skóli. Vann þar við störf
sem mig hefur alltaf dreymt um en
launin voru lág þannig að ég varð ekki
rík af þessu. En öðlaðist þrátt fyrir það
dýrmæta lífsreynslu.
Sjálfstraustið hefur batnað við að
vinna í keppninni en samt breytir þetta
engu gagnvart öðru fólki. Held sjálf að
ég hafi ekkert breyst og haldi alveg
sönsum. En minningin er einstök —
allt gaman í sambandi við þetta. Til
dæmis að kynnast hinum stelpunum í
keppninni.
Næsta sumar fer ég til Parísar aftur
og þá tek ég bílinn með út. Og svo
iiggur leiðin eitthvað annað — kannski
til Þýskalands að vinna. En ég ætla
ekki að láta þetta stöðva námið því það
er ofsalega gaman að læra líka.
Kennedyamir kóngar í K
Þaö er eins og allar þjóðir þurfi sína
opinberu kóngafamilíu og í lýðræðis-
ríkjum er sterk tilhneiging til þess að
velja úr einhverja eina ætt og dubba
upp í hlutverkið. I Bandaríkjunum
hefur enginn forseti komist með
tærnar þar sem Kennedy hafði hælana
sem kóngur í ríki sínu og ennþá er litið
á yngri Kennedyana sem ókrýnd
kóngabörn Kananna.
Núna eru hinir ungu arftakar 29
talsins og þegar eru menn farnir að
leita að nothæfu forsetaefni í þeirra
röðum. Þar koma þrír einna helst til
greina — John-John, sonur John F. for-
seta, Joe, sonur Roberts, og Ted, sonur
Edwards. En hafi jafnréttisbaráttan
þau áhrif aö kvenmaður komi til
greina eru þær efstar á lista Caroline
dóttir Johns F. og Kathleen dóttir Ro-
berts.
John-John er hinn eiginlegi krón-
prins fjölskyldunnar og þykir líkleg-
astur til aö halda uppi merki fjöl-
skyldunnar í framtíöinni. Þó eru flestir
á einu máli um að Ted, sonur Edwards,
gæti átt eftir að gera góða hluti. Hann
fékk krabbamein í fótlegginn sem
unglingur og missti hann frá hné. Það
varö ekki til þess að brjóta Ted niður
heldur hélt hann sínu striki. Stundar
íþróttir mikiö — syndir, rennir sér á
skíðum og fleira slikt og hefur áunniö
sér óblandna virðingu Bandaríkja-
manna fyrir vikið. Hann hefur að auki
barist hart fyrir réttindum fatlaöra á
síðustu árum og vinnur sem félagsráð-
gjafi fatlaðra í New York. Joe, sonur
Roberts, hefur einnig lagt sig eftir
stjómmálum, þykir fullmikiö fyrir
skemmtanir og annað sem þeim fylgir,
en samt sönn leiðtogamanngerð eins
og gömlu Kennedybræðurnir.
Kvenfólkið gæti komið til greina
miðað við þróun síðari ára. Kathleen,
dóttir Roberts, þykir einna staðföstust
alira í f jölskyldunni, les lög, tekur þátt
í stjórnmálabaráttunni af krafti og er
þriggja barna móðir að auki. Hún er
sögð eiga mikla möguleika þegar
börnin eru aðeins eldri þannig að tími
gefst til að snúa sér óskipt að störfum
utan fjölskyldunnar. Caroline, dóttir
Johns F., starfar við útgáfufyrirtæki
sem blaðafulltrúi og þykir sérlega fær í
því starfi. Það er einnig góður grunnur
ef henni líst svo á að fara í framboð
síðar. Maria hin fagra, dóttir Eunice
systur þeirra bræðra, er sjónvarps-
fréttamaður af liflegra taginu. Illar
tungur sögðu áður að starfið heföi hún
fengiö vegna nafnsins en nú eru þær
raddir að mestu þagnaðar því hún
hefur fleira til brunns að bera en
fagurt útlit og frægt nafn.
öll eru þessi Kennedybörn fremur
ung ennþá — um og yfir þrítugt en víst
er að heimurinn fylgist grannt með
hvernig þeim gengur að halda uppi
merki fjölskyldunnar í framtíðinni.
Það þarf stundum sterk bein til aö
standa undir fræðgarljóma forfeðr-
anna en unga kynslóðin í ættinni virðist
ætla að takast á við þann vanda með
bærilegum árangri.
John-John hefur lokið námi og virðist á góðri loið inn i stjórnmálabarátt-
una.
“'y Börn Johns F. Kennedy og Jackie: Caroline með Jackie og unnustanum Ed Schlossberg.