Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1986, Blaðsíða 12
12
DV. FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1986.
Neytendur Neytendur__________Neytendur__________Neytendur
Þessi sólgleraugu fást einnig hjá henni Rögnu og fást i bláu,
svörtu, gulu og hvítu. Þau kosta 1.195 kr.
Þessi sólgleraugu fást i Linsunni Miðbæjarmarkaðnum. Gle-
rið er brúnt en spöngin rauð, þau kosta 950 kr.
í Týli í Austurstræti fást þessi sólgleraugu. Þau fást t rauðu
og svörtu og kosta 1.250 kr.
Þessi fást líka í Gleraugnadeildinni. Þau fást í bláu og bleiku
og kosta 2.345 kr.
Hvemig sólgleraugu
berð þú?
- sólgleraugun segja heilmikið um þig
Nú um mitt sumar ætti sólin að vera farin að skína á okk-
ur hvort sem hún lætur verða úr því eður ei. Við megum
a.m.k. vænta þess að hún láti sjá sig hvað úr hverju svona
rétt til að kæta og verma hjörtu okkar. En hvað með það,
við bíðum ekkert lengur með að taka fram sólgleraugun eða
fá okkur ný, enda notar fólk sólgleraugu nú ekki aðeins til
að verjast sólargeisiunum heldur sem hvert annað skraut.
Sólgleraugun, sem þú berð, segja líka heilmikið um karakt-
erinn sem þú hefur að geyma. Hvort þú notar stór og breið
eða þvengmjó gleraugu getur ráðið úrslitum, en ekki meira
um það.
Við fórum á stúfana og mynduðum nokkur sólgleraugu sem
okkur leist best á.
Þessi fást einnig í Týli. Þau eru til með brúnu og bláu gleri,
spöngin er tvílit, í gulu og gráu eða bleiku og gráu. Verð
1.800 kr.
Gleraugnadeildin í Austurstræti selur þessi gleraugu. Þau
fást i fjólubláu, grænu, brúnu og hvitu og kosta 750 kr.
„Það nýjasta frá Ítaiíu var okkur tjáð að þessi væru. Þau
fást einnig í Linsunni og fást í ýmsum litum. Verð 2.450 kr.
Aðalstræti speglast í þessum gleraugum. Þau eru gyllt með
rauðum og grænum röndum á 6.710 kr. og fást í Linsunni.
Þegar vel viðrar stendur hún Ragna með vagninn sinn niðri
í Austurstræti og selur m.a. sólgleraugu. Þessi sem eru svört
með hvítum doppum selur hún á 475 kr.
Blaðamanninum leist best á þessi. Einhver myndi segja að
þau væru „léttfríkuð. Þau fást í hvítu og rauðu og kosta
4.730 kr. Það sama gildir um þessi sólgleraugu og spegla-
gleraugun, sem sýnd eru annars staðar á síðunni, að það
fást aðeins ein af hverri gerð, þannig að það ætti ekki að
vera hætta á að mæta annarri á götu með eins gleraugu.