Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1986, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1986.
9
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Contraskæruliðar:
Reaganvinnur
stórsigur í þinginu
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings sam-
þykkti í gærkvöldi að veita 100 millj-
ónum dollara í aðstoð til contraskæru-
liða, sem berjast gegn stjóm sandinista
í Nicaragua. Þetta er talinn einn
stærsti sigur hjá Reagan frá upphafi.
224 greiddu atkvæði með en 209 á
móti. Þetta er mikil stefnubreyting hjá
þinginu, sem árið 1984 skóp þá stefiiu
að hætta algerlega aðstoð við skæru-
liðana.
Þótt vissulega eigi eftir að greiða
aftur atkvæði um þetta mál þá er víst
að það er þessi atkvæðagreiðsla sem
hefur snúið málunum Reagan í hag.
Þessi samþykkt hefur í för með sér
að skæruliðamir fá 30 milljónir doll-
ara í almenna efhahagsaðstoð og 70
milljónir dollara í hemaðaraðstoð.
Fulltrúadeildin, sem lýtur meiri-
hluta demókrata, hafnaði svipaðri
tillögu í mars síðastliðnum með 222-
210, en öldungadeildin, sem er undir
meirihluta repúblikana samþykkti
hana með 53-47.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar í gær-
kvöldi vom á huldu allt fram á síðustu
stundu, og varð sigur Reagans stærri
en nokkum hafði órað fyrir.
Til að leggja sitt af mörkum mætti
repúblikaninn, George O’Brien, sem
er helsjúkur af krabbameini, og
greiddi atkvæði.
Reagan hafði lagt næstum allt í söl-
umar til að fá tillögur þessar sam-
þykktar. Hann hefur gert aðstoðina
við contraskæmliðana að stórum
þætti í utanríkisstefnu sinni á seinna
kjörtímabili sínu.
Maigir þingmenn sögðust hafa
greitt atkvæði með tillögunum vegna
þess að Reagan væri búinn að bæta
inn í „pakkann" 300 milljón dollara
aðstoð til handa lýðræðisríkjum í Suð-
ur-Ameríku.
Reagan frestaði um einn dag fríi á
búgarði sínum í Kalifomíu, til að beij-
ast fyrir tillögum sínum, og flutti
meðal annars sjónvarpsávarp af því
tilefni og fundi með þingmönnum.
Fyrr í gærdag hafði forseti fulltrúa-
deildarinnar, Thomas O’Neil viður-
kennt að stuðningur við tillögur
Reagans hefði aukist.
Reagan hafði lagt áherslu á að að-
stoðin væri nauðsynleg til að koma í
veg fyrir að sandinistar næðu að
tryggja kommúnistaathvarf á megin-
landinu.
I umræðunum um málið í þinginu í
gær sögðu margir þingmenn demó-
krata að stefna Reagans í málefnum
Suður-Ameríku væri óljós. Það hefði
sýnt sig að aðstoð við skæmliða hefði
ekki breytt neinu í Nicaragua, og
Bandaríkjastjóm ætti að reyna að
miðla málum fremur en hella olíu á
eldinn.
Þeir sögðu einnig að mikill gmnur
léki á því að skæruliðarnir væm við-
riðnir eiturlyfjasmygl, og að þeir hefðu
misnotað 27 milljóna aðstoð á síðasta
ári.
Þeir vom samt margir demókratam-
ir sem studdu tillögur Reagans um
almenna efnahagsaðstoð, en vildu bíða
með hemaðaraðstoðina þar til aftur
verða greidd atkvæði um málið í okt-
óber.
Repúblikanar mótmæltu þeirri bið
harðlega.
„Það er engin stefna að tefja af
ásettu ráði, það er lömun,“ sagði Ro-
bert Michel.
Dick Cheney sagði að svo lengi sem
contraskæmliðamir væm enn til
staðar hefðu Bandaríkin og önnur ríki
á svæðinu um eitthvað að velja, og
að sandinistar mættu aldrei fá frið til
að tryggja í sessi kommúnistastjóm
sína.
Tip O’Neal, forseti fulltrúadeildarinn-
ar, sem barist hefur gegn aðstoð til
contraskæruliðanna, beið mikinn
ósigur í atkvæðagreiðslunni í gær,
er margir af hans eigin flokksmönnum
fylktu sér bak við Reagan.
Reagan vann einn stærsta sigur á stjórnmálaferli sínum í gærkvöldi er fulltrúa-
deild Bandarikjaþings samþykkti tillögur hans um 100 milljón dollara stuðning
við contraskæruiiða.
Yfírmaður ísraelsku leyniþjónustunnar náðaður:
Peres sætir mikilli gagmýni
Shimon Peres, forsætisráðherra
Israels, sætti í gær harkalegri gagn-
lýni vegna náðunar yfirmanns
leyniþjónustu Israels sem sagði af
sér eftir að hann var sakaður um
að hafa fyrirskipað morð á tveimur
palestínskum skæmliðum.
Öskureiðir þingmenn og lögfræð-
ingar mótmæltu náðunarúrskurði
Chaim Herzog, forseta landsins, yfir
Avraham Shalom, yfirmanni Shin
Bet, og þremur aðstoðarmönnum
hans.
Þeir sögðu að þetta væri gert til
að hylma yfir með ráðherrum, sem
tengdust málinu, sem snýst um dráp
á palestínskum skæmliðum sem
vom handteknir eftir að þeir höfðu
rænt áætlunarbifreið á Gaza svæð-
inu.
Shalom tilkynnti afsögn sína í gær
eftir að hann og aðstoðarmenn hans
vom náðaðir fyrirfram og ákveðið
að rannsaka ekki mál þeirra. Ríkis-
útvarpið sagði að búið væri að ráða
eftirmann hans en af öryggisástæð-
um var ekki greint frá nafni hans.
Moshe Shahal, orkumálaráðherra
úr flokki Peresar, mótmælti náðun-
inni og tjáði fréttamönnum að hann
myndi beita sér fyrir því að ríkis-
stjómin myndi rannsaka hvort hér
væri um að ræða yfirhylmingu með
háttsettum mönnum.
Herzog kom fram í sjónvarpi í gær
og varði ákvörðun sína.
Hann sagði að rannsókn hefði
neytt Shalom og aðstoðarmenn hans
til að ljóstra upp fyrri gjörðum leyni-
þjónustunnar.
„Ég gerði þetta til að reyna að
koma ró á hlutina og forðast að
skaða leyniþjónustuna," sagði hann.
LÖgmenn sögðu að þeir myndu
halda fund um málið og athuga
hvort hægt væri að fara með málið
fyrir hæstarétt til að fá úrskurði for-
setans breytt.
Ezer Weizman, ráðherra fyrir sam-
skiptum við araba, gekk á fund
Herzog og mótmælti ákvörðun hans.
Ákvörðun Herzog virðist treysta í
sessi Yitzhak Shamir utanríkisráð-
herra sem var forsætisráðherra
þegar atburðimir gerðust. Hann
verður ekki yfirheyrður vegna þessa
máls.
Shamir á að taka við embætti for-
sætisráðherra í október samkvæmt
samningi milli stjómarflokkanna
um að skipta með sér því embætti á
kjörtímabilinu. Hann var á móti
rannsókn málsins og neitaði að gefa
upp það sem hann vissi um dauða
skæruliðanna.
Þrátt fyrir að fjölmiðlar blási þetta
mál mikið út í ísrael virðist sem al-
menningi sé nokk sama hvað kemur
fyrir skæmliða, sem ráðast á og
myrða saklaust fólk, ef aðeins er
tryggt að þeir fái makleg málagj öld.
Shimon Peres sætir nú mikilli gagnryni vegna þeirrar ákvörðunar að náða
Shalom, yfirmann ísraelsku leyniþjónustunnar. Telja margir að verið sé
að hylma yfir með háttsettum mönnum í ísraelsku leyniþjónustunni.
-—
2ja manna bómullartjöld
með nælonhimni, kr.
4.748,-
og 3ja manna á kr.
5.872,-
Póstsendum.
Seglagerðin Ægir
simi 13320 og 14093.
æ gir
Eyjaslóð 7, Reykjavik - Pósthólf 659
sími 13320 og 14093
Kápusalan
auglýsir:
Denimjakkar og -frakkar.
Ennfremur sumar- og
heilsársfrakkar, kápur og
jakkar. Mörg snið, mikið
litaval. Eitthvað fyrir alla.
Kápusalan,
Borgartúni 22,Reykjavík,
sími 91-23509.
Kápusalan,
Hafnarstræti 88, Akureyri,
sími 96-25250.
ÆU/I/IENIA
þvottavél GK 340
Minnsta, duglegasta, spar-
neytnasta og sjálfvirkasta
þvottavél i heimi. 14 pró-
grömm, sérstaklega ætluð nú-
tíma taui. Aðeins 65 mínútur
með suðuþvotti forþvotti' og
fimm skolanir. Nýrri aðferð
við undirbúning þeytivindu
sem gerir mögulegt að þeyti-
vinda allt tau. Mál: 45 x 39 x 65
cm, þyngd 36 kg.
Rafbraut
iSuðurlandsbraut 6,
105 Reykjavík.
Simar: 681440 og 681447.