Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1986, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1986, Blaðsíða 39
DV. FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1986. 39 Rokkhljomsveitin The Smiths kemur frá Manchester í Englandi. Þad nýjasta frá henni fá hlustendur rásar 2 að heyra í dag. Utvarp Sjónvari Veörið 1 dag verður sunnangola og víða súld eða rigning um vestanvert landið en á Norðaustur- og Austurlandi verð- ur hæg breytileg átt og skýjað með köflum. Sunnan- og vestanlands verð- ur 8-12 stiga hiti en 12-18 stiga hiti norðaustanlands. Veðrið ísland kl. 6 í morgun: Akureyri alskýjað 11 EgHsstaðir mistur 9 Galtarviti rigning 8 Hjarðarnes súld 9 Keflavíkurflugvöllur þoka 9 Kirkjubæjarklaustur alskvjað 10 Raufarböfn alskýjað 10 Reykjavík þokumóða 9 Sauðárkrókur rign/súld 9 Vestmannaeyjar alskýjað 8 Utlönd kl. 6 í morgun: Bergen Helsinki Ka upmannahöfn Osló Stokkhólmur Þórshöfn þoka 12 heiðskírt 22 heiðskírt 20 þokumóða 15 léttskýjað 21 skýjað 11 Úfvarpið, rás 2, kl. 16.00: Drottningin er dauð Nýræktin er þáttur á rásinni þar sem kynnt er splunkunýtt rokk hverju sinni, bandarískt, enskt, íslenskt eða bara úr öllum áttum. Umsjónarmenn eru þeir Skúli Helgason og Snorri Már Skúlason. glæný plata The Smiths kynnt í Nýræktinni í þættinum í dag ætla þeir að snúa nýrri skííu bresku hljómsveitarinnar The Smiths, sem ber nafhið The Queen Is Dead og kemur á íslenskan plötu- markað í þessari viku. „The Smiths er geysivinsæl í heimalandi sínu og hefur verið það síðastliðin 2-3 ár. Plat- an, sem sveitin gaf út í fyrra, var kosin sú besta í Englandi það árið. Hún hét Meat Is Murder, þ.e. Kjöt er morð, en hljómsveitarmeðlimir eru allir græn- metisætur og hafa andúð á öllu kjöti eins og plötunafnið gefur til kynna. Þeir eiga eitt lag á rásarlistanum, Big Mouth Strikes Again. Ég býst við að þessi nýja plata þeirra fái góðar við- tökur hér á landi, hún hefur a.m.k. slegið í gegn í Englandi. -BTH Útvarpið, rás 1, kl. 22.20: Framtíð laxeldis á íslandi - efni Fimmtudagsumræðunnar I Fimmtudagsumræðunni í kvöld er fjallað um fiskeldi hér á landi og þá fyrst og framst laxeldi. Gissur Sigurðs- son stýrir umræðunni. Laxeldi er ekki lengur hugmyndin ein því um 200 tonn af eldislaxi verða flutt út í ár og sennilega um 600 tonn á næsta ári. Úm 60 fiskeldisfyrirtæki eru nú skráð í landinu og u.þ.b. 30 stöðvar hafa tekið til starfa. Á þessum tímamótum er ætlunin að staldra að- eins við og skoða stöðu þessa atvinnu- vegar. Eins og kunnugt er náðu Norðmenn forskoti í laxeldi og nú eru að koma í ljós ýmis atriði sem gleymdust á meðan gróðavonin rak menn áfram með ótrúlegum árangri á fyrstu árum laxeldisins. Þar má t.d. nefna mengun af laxeldi, smithættu, sem leitt hefur til óeðlilegrar lyfjagjafar, að ógleymd- um umhverfisþættinum, en laxeldis- mannvirki þykja víða lýti á norskum fjörðum. Þá verður reynt að gera sér grein fyrir þróun markaða í framtíðinni, hver orkuþörfin er og hversu margt starfsfólk þarf til að sinna störfum við laxeldi hér, svo eitthvað sé nefnt. -BTH breytingar og nýjungar urðu á þættinum með nýrri sumardagskrá. í Fimmtudagsumræðunni verður rætt um fiskeldi, einkum laxeldi, hér á landi og m.a. gerður samanburður á atvinnuveginum hér og í Noregi. Útvarpið, rás 2, á morgun kl. 9.00: Nýjungar í Morgunþáttunum Á rás 2 hafa ýmsar breytingar orðið undanfarið, nýir þættir byrja og aðrir hætta með sumardagskránni. í sumar verður Morgunþátturinn á rásinni með nýju sniði. Þættimir byrja nú klukkan níu í stað tíu áður og umsjónarmenn eru orðnir fimm: Ásgeir Tómasson, Gunn- laugur Helgason, Kolbrún Halldórs- dóttir, Kristján Siguijónsson og Páll Þorsteinsson. Af fóstum liðum í Morg- unþáttunum má nefha stjömuspá, afmælisdagbók og almanak dagsins. Matarhomið er daglega klukkan 10.30 og svo endurflutt klukkustund seinna. Bamadagbókin er á dagskrá fjóruni sinnum í viku, kl. 10.05- 10.20 og er rétt að benda á að á mánudögum eftir að barnaefhi lýkur er umsjónarmaður þess, Guðríður Haraldsdóttir, með símatíma kl. 10.50. Getraunir Morgunþáttar em með nýju sniði og mottó Morgunþáttar- manna er: Getraun á dag kemur* skapinu í lag. Mörg viðtöl em tekin í; Morgunþáttunum og allt fer firam í' beinni útsendingu. -BTH Útlönd kl. 18 í gær: Algarve léttskýjað 22 Amsterdam léttskýjað 21 Aþena skýjað 25 Barcelona léttskýjað 24 (Costa Brava) Berlín léttskýjað 24 Chicagó alskýjað 21 Fenevjar léttskýjað 27 (Rimini/Lignano) Frankfurt léttskýjað 25 Glasgow skýjað 18 London léttskýjað 24 Los Angeles mistur 19 Lúxemborg léttskýjað 23 Madrid léttskýjað 31 Malaga heiðskírt 27 (Costa Del Sol) Mallorca léttskýjað 29 (Ibiza) Montreal hálfskýjað 14 New York skýjað 22 Nuuk rigning 5 Paris heiðskírt 25 Róm léttskýjað 24 Vín léttskýjað 21 Winnipeg skýjað 27 Valencía heiðskírt 27 Gengið Gengisskráning nr. 116 - 25. júni 1986 kl. 09.15 Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi Dollar 41.400 41,520 41,380 Pund 62,668 62,589 62,770 Kan. dollar 29,800 29,887 29,991 Dönsk kr. 5,0208 5,0353 4.9196 Norsk kr. 5,4628 5,4787 5,3863 Sænsk kr. 5,7664 5,7831 5,7111 Fi.mark 8,0271 8,0504 7.9022 Fra. franki 5,8396 5,8565 5,7133 Belg. franki 0,9109 0.9135 0,8912 Sviss. franki 22,7098 22.7756 22,0083 Holl. gyllini 16,5329 16,5808 16,1735 V-þýskt mark 18,6151 18,6691 18,1930 ít. lira 0,02716 0,02724 0,02655 Austurr. sch. 2,6483 2,6560 2,5887 Port. escudo 0,2742 0,2750 0,2731 Spá. peseti 0,2909 0,2917 0.2861 Japanskt yen 0,24905 0.24977 0.24522 Írskt pund 56,229 56,392 55,321 SDR (sérstök dráttar- réttindi) 48,3852 48.5256 47,7133 ECU-Evrópu m 39,9945 40,104 Simsvari vegna gengisskráningar 22190. MINNISBLAÐ Muna eftir að fá mer eintak af r Tímarlt fyrir alla V Urval

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.