Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1986, Side 26
38
FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986.
Rauða kross húsið
Nú standa yfir miklar endurbætur á húsi Rauða krossins við Tjarnargötu og
vinna starfsmenn ósleitilega við að mála og smíða innan húss. Reykjavíkur-
borg sér um ytra viðhald hússins. Mynd GVA
Rauði krossinn:
Sendir hjúkrunarfræð-
inga til hjálparstarfa
Sigríður Guðmundsdóttir leggur nú
upp í sína fimmtu for til hjálparstarfa
en hún starfaði fyrst á vegum Rauða
krossins í flóttamannabúðum á Thail-
andi 1979-80. Síðan hefur hún verið
við störf á hungursvæðum í Afríku,
fyrst Sómalíu en siðan Eþíópíu. Nú
er for hennar heitið til Súdan þar sem
hún dvelst í fjóra mánuði til að byrja
með og mun hún starfa við kannanir
á næringarástandi meðal íbúa Darfur-
héraðsins og gera áætlun um fæðu-
gjafir.
Pálína Ásgeirsdóttir er á forum til
Thailands þar sem hún mun starfa á
sjúkrahúsi sem Rauði krossinn rekur
í flóttamannabúðum við landamæri
Thailands og Kampútseu. Pálína verð-
ur átjándi sendifulltrúinn sem RKÍ
sendir til hjálparstarfa í Thailandi frá
árinu 1979. Tekur hún við af Lilju
Steingrímsdóttur sem hefur starfað í
búðunum frá miðjum janúar.
-BTH
Sigríður Guðmundsdóttir og Pálína Ásgeirsdóttir sem munu starfa fyrir Rauða
lcrossinn i Súdan og Thailandi næstu mánuðina.
Tveir íslenskir hjúkrunarfræðingar
eru um þessar mundir á forum til
hjálparstarfa á vegum Rauða krossins
erlendis.
Um 38 böm og unglingar hafa gist
Rauða kross húsið frá því það hóf
starfsemi sína í desember á siðasta ári
og fram í maí á þessu ári. Þá em ótald-
ir þeir sem hafa fengið ráðgjöf og
stuðning en ekki þurft á gistingu að
halda. Að sögn Ólafs Oddssonar, for-
stöðumanns hússins, er þetta meiri
fiöldi en búist var við í upphafi og
hefur stöðug og jöfii fiölgun átt sér
stað frá því húsið opnaði. „Þetta hús
er athvarf fyrir böm og unglinga sem
veitir alhliða frumþarfaþjónustu og
unglingamir geta rætt málin og fengið
ráð og stuðning. Við höfum ekki neglt
niður neinn ákveðinn hámarkstíma
sem gestum leyfist að dvelja og hefur
það verið frá nokkrum klukkustund-
um upp í nokkrar vikur.“
í niðurstöðum skýrslu, sem Rauði
krossinn hefur látið gera um starfeemi
hússins frá opnun og til aprílloka,
kemur í ljós að flestir gestanna koma
á kvöldin og fyrrí hluta nætur. At-
hygli vekur að um 61% þeirra em
stúlkur en 39% piltar og er meðalald-
ur stúlknanna sem leita í Rauða kross
húsið nánast tveim árum lægri en
drengja, eða um 16,6 ára. Stúlkumar
dveljast einnig lengur en drengir en
meðaldvalartími er um 7 dagar.
Ástæður þess að unglingamir leita
aðstoðar í athvarfinu em margskonar
en algengasta vandamálið er sam-
skiptaörðugleikar við umhverfið og
þá yfirleitt við foreldra. Vímuefria-
neysla er næstalgengasta ástæðan
fyrir þvi að þau leita aðstoðar. At-
hygli vekur að heimilisaðstæður
þeirra sem í athvarfið leita em á þann
veg að aðeins rúmur fimmtungur býr
hjá báðum foreldrum. Nær þriðjungur
hjá móður og stjúpa og tæpur ftmmt-
ungur er heimilislaus. Nær helmingur
foreldra em fráskildir. Sameiginleg
einkenni þeirra sem leita aðstoðar
virðist vera sundmn fiölskyldu, erfið-
leikar við vinnu og skóla, samskipta-
erfiðleikar, vímuefiianeysla og ofbeldi.
„Þetta er mest áfengi sem ungling-
amir em í en við höfum líka orðið vör
við sterkari efni. Hass og amfetamín
koma oft upp. Manni virðist að krakk-
amir eigi almennt auðvelt með að ná
sér í þessi efhi ef löngunin er fyrir
hendi. Annars ber að leggja á það
áherslu að athvarfið er ekki sérstak-
lega miðað við þá unglinga sem eiga
við vímuefnavandamál að stríða, held-
ur alla þá sem telja sig á einhvem
hátt þurfa aðstoð í sínum málum,“
sagði Ólafur Oddson.
Aðsókn að athvarfinu hefur nokkuð
dregist saman sl. mánuð og stendur
til að útbúa nýtt skráningareyðublað
þar sem veðrið er tekið með inn i
myndina en að sögn Ólafs eiga ungl-
ingamir auðveldara með að bjarga sér
á götunni yfir sumartímann. Rauði
krossinn rekur húsið fyrir eigin reikn-
ing en til umræðu er að leita eftir
samstarfi við fleiri aðila eftir því sem
starfeemin verður umfangsmeiri.
-S.Konn.
Iðnaðarmönnunum var boðið í grillveislu enda hafa þeir unnið hörðum höndum.
Evrópa í stað Klúbbsins?
„Fjólbreytnin verður
í fyrirrúmi"
Verið er að setja nýjar innréttingar i húsið sem sumar hverjar eru nýjar
af nálinni fyrir landann. DV-mynd: KAE
Skemmtanalíf Reykvikinga verður
sífellt fiölbreyttara eftir því sem tím-
anum fleygir fram. Föstudaginn 25.
júlí verður opnaður nýr skemmti-
staður, til húsa að Borgartúni 32, í
húsnæði því er eitt sinn hét Klúb-
burinn. Þrír aðilar, þeir Gunnar
Ámason, Vilhjólmur Ástráðsson og
Ame V. Andersen, yfirtóku rekstur
hússins og nú vinna um 50 manns
hörðum höndum við breytingar á
húsnæðinu. Að sögn Gunnars Áma-
sonar er hér verið að taka gamlar
innréttingar niður og færa húsnæðið
í nútímabúning. „ I húsinu verður
margt nýtt, sem er allt annað en
fólk hefur átt að venjast hérlendis,"
sagði Gunnar. Hann sagði að þessar
nýjungar væm fengnar víða að og
enginn einn staður hafður sem fyrir-
mynd. Þegar Gunnar var inntur eftir
því í hvaða formi nýlunda þessi væri
helst varðist hann frétta en sagði
þó að hún yrði í formi myndar og
tónlistar. „Þetta er tækninýjung sem
er hvergi annars staðar hérlendis í
þessu formi,“ sagði Gunnar. Breyt-
ingamar ganga hratt og vel fyrir sig
og síðastliðinn fostudag ákváðu eig-
endur staðarins að gera iðnaðar-
mönnunum dagamun og buðu þeim
í grillveislu í hádeginu enda hafa
þeir að sögn Gunnars staðið sig eins
og hetjur.
Smærri staðirnir hafa ekki
sama aðdráttarafl
Staðurinn mun að sögn Gunnars
byggja mikið á lifandi músík. Hann
óttast ekki hina miklu samkeppni
um „gleðisvölun11 landans. Gunnar
telur fiölbreytnina vera sitt sterk-
asta vopn og bendir á að húsið sé
stórt og því möguleikamir margir. Á
nýja staðnum verður bæði diskótek
og lifandi tónlist auk alls kyns uppá-
koma. Mimu bæði innlendir og
erlendir skemmtikraftar leggja sitt
af mörkunum við að skemmta land-
anum. „Samkeppnin bitnar frekar á
smærri stöðunum, þeir hafa ekki
sama aðdráttarafl," segir Gunnar.
Nafninu haldið leyndu
Nafn öldurhússins verður ekki
gefið upp fyrr en samdægurs opnun-
inni. Gunnar og félagar hans em
þöglir sem gröfin um hvert það verð-
ur. Orðrómur hefur þó verið á sveimi
um það að nafn staðarins verði Ev-
rópa en Gunnar vildi hvorki segja
af eða á í því efni. Hann sagði ein-
ungis að sjón væri sögu ríkari og
að á þessum stað yrði eitthvað fyrir
alla, fiölbreytnin yrði látin sitja í
fyrimimi.
JFJ