Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Síða 14
14
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986.
Frjálst.óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjórar: JONAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 500 kr.
Verð i lausasölu virka daga 50 kr. - Helgarblað 60 kr.
Ólíkt hafast þeir að
Fréttir þessarar viku benda til, að sjávarútvegurinn
sé að herða sóknina inn í frelsið og hyggist styrkja stöðu
sína sem hornsteinn þjóðfélagsins, en að landbúnaður-
inn sé að draga sig lengra inn í eitraða skel Framleiðslu-
ráðs og vilji verða jafnvel enn meiri baggi en áður.
Útgerðarmenn og sjómenn sömdu við loðnuverk-
smiðjur um, að frjáls markaður yrði á loðnu í tilrauna-
skyni í einn mánuð. Þetta er drjúgt skref að markmiði,
sem margir hafa hvatt til - að komið verði á fót innlend-
um fiskmarkaði, er leysi verðlagsráð af hólmi.
Á sama tíma gerðu forustumenn hins hefðbundna
landbúnaðar kúa og kinda harða hríð til að sannfæra
eggja-, kjúklinga- og svínabændur um, að þeim yrði
bezt borgið í náðarfaðmi Framleiðsluráðs, þar sem boð-
ið er upp á búmark til að geta okrað á neytendum.
Gæludýr Framleiðsluráðs í þessari viðleitni hefur í
rúm tvö ár verið eggjadreifingarstöðin ísegg. Hún var
stofnuð með gjafafé úr sjóðum, sem ráðamenn hins hefð-
bundna landbúnaðar hafa yfir að ráða og myndaðir
hafa verið úr hagnaði af okri á neytendum.
Isegg átti að taka við allri eggjadreifingu í landinu.
En stóru framleiðendurnir með hagkvæmu og ódýru
framleiðsluna neituðu að leggjast í náðarfaðminn. Þeir
hafa haldið áfram að sjá um sína flokkun og dreifmgu
og selt neytendum á hvaða lágu verði, sem þeim þóknast.
Á sama tíma hefur gæludýr Framleiðsluráðs spillt
tannfé sínu, enda rekið í stíl hins hefðbundna land-
búnaðar. Dreifmgarkostnaður er 20 krónur á kíló,
langtum meiri en annarra. Bændur hafa ekki fengið
greitt fyrir egg 1 heila þrjá mánuði. Gj aldþrot blasir við.
Nú hyggst Framleiðsluráð þvinga bændur inn í kerfi,
þar sem öllu er stjórnað af gífurlega háu fóðurgjaldi,
er endurgreiðist að hluta samkvæmt búmarki, sem sett
verður til höfuðs stórbændunum, og að hluta verður
lagt í sjöði til að gefa fé í gæludýr á borð við ísegg.
Jafnan hefur verið auðvelt að fá óhagkvæma fram-
leiðendur til að kvarta yfir svokölluðum undirboðum
hinna, sem kunna til verka og geta boðið neytendum
upp á tiltölulega ódýra vöru. I hvert sinn, sem orðið
„undirboð“ er nefnt, ber neytendum að gæta sín.
Hafa má til marks um eymd neytenda og skort þeirra
á samtakamætti, að Neytendasamtökin hafa ekki látið
þetta mál til sín taka, svo tekið hafi verið eftir. Er það
í stíl við almennt viðbragðsleysi þeirra gagnvart sífellt
endurteknum árásum af hálfu Framleiðsluráðs.
Bjartari eru fréttir vikunnar úr sjávarútvegi. Þar
samþykktu málsaðilar einróma að gera tilraun, sem
getur leitt til mikilla framfara. í einn mánuð verður
loðnuverð ekki ákveðið með valdi að ofan, heldur fer
eftir, hvernig kaupin gerast á eyrinni hverju sinni.
Málsaðilar vona, að þetta leysi erfiðan verðlagning-
arvanda í loðnu einni saman. En einnig eru menn að
kanna, hvort ekki sé hægt að koma á fót almennum
fiskmarkaði eins og er nánast alls staðar í útlöndum.
Þar hlaupa prísamir upp og niður og gæðin hríðvaxa.
Spáð hefur verið, að sjávarplássin, sem fyrst verða
til að afla sér fiskmarkaðar af þessu tagi, muni blómstra
umfram önnur. Þau muni soga til sín landanir og við-
skipti með fisk. Hin sjávarplássin muni staðna og
hugsanlega heltast um síðir úr lestinni.
í baráttunni um fiskmarkað og búmark takast á nú-
tíð og fortíð. í fyrra tilvikinu sótti hagkvæmnin fram í
síðustu viku, en í hinu síðara blés óhagræðið til sóknar.
Jónas Kristjánsson
Vörumst yfirboðin
Nýja húsnæðislánakerfið tók gildi
1. september sl. og þessa dagana
hrannast upp umsóknir frá fólki sem
hafði verið að bíða. Á næstu vikum
verða líka teknar ákvarðanir um
hversu mikla íjánnuni ríkissjóður á
að leggja til byggingarsjóðanna og
á Alþingi í vetur munu án efa marg-
ir þingmenn leggja til að sú íjárhæð
verði stóraukin.
En við skulum varast yfirboðin.
Þau gætu komið sér mjög illa fyrir
ungt fólk. Ef sprenging verður í
byggingarkostnaði eða fasteigna-
verði vegna þess að alltof miklir
peningar koma inn i lánakerfið, þá
stórtapar ungt fólk sem er að eign-
ast sína fyrstu íbúð.
Skynsamlegt að bíða
Nefndin, sem ríkisstjómin skipaði
í framhaldi af febrúarsamningunum
til þess að semja frumvarpið um
nýja húsnæðislánakerfið, gekk út frá
því í útreikningum sínum að framlag
ríkissjóðs til almenna húsnæðislána-
kerfisins yrði um 1000 milljónir
króna og að Byggingarsjóður ríkis-
ins gæti þá lánað um 3500 milljónir
á næsta ári. Fyrir þessa peninga var
reiknað með að unnt yrði að komast
vel af stað með hið nýja lánakerfi.
Búast má við að töluverður biðtími
geti orðið eftir lánum fyrst um sinn.
Þannig má reikna með því að sumir
þeir sem sækja um lán á næstu mán-
uðum og eiga íbúð fyrir fái ekki
afgreiðslu fyrr en á árinu 1988 og
að sumir þeirra sem eru í forgangs-
hóp fái ekki lán fyrr en á síðari hluta
næsta árs. Og mörgum mun eflaust
finnast langt að bíða.
En að einu leyti er skynsamlegt
að bíða. Þegar nýtt lánakerfi sem
þetta er að komast i gagnið er ljóst
að mikil röskun verður á fasteigna-
markaðnum. Sérstaklega er hætta á
því að verð á nýjum og notuðum
íbúðum hækki þar sem fleiri hugsa
sér til hreyfings með að kaupa og
lánsfjármagnið eykst. Því er mjög
mikilvægt að fara varlega á aðlög-
unartímanum milli gamla og nýja
kerfisins til þess að komast hjá verð-
sprengingu.
Verðhækkun jafngildir 75
þúsunda leigu
Mikil og snögg verðhækkun á fast>
eignum kæmi sér mjög illa fyrir ungt
fólk sem er að koma sér þaki yfir
höfuðið í fyrsta sinn. Við getum tek-
ið sem dæmi ung hjón sem vilja
eignast 2,5 milljóna króna eign og
ætla að fjármagna hana með 2,0
milljóna í húsnæðisláni og afgang-
inn með sparifé sínu og lánum til
4-5 ára. Ef yfirboðin verða að veru-
leika þannig að fasteignaverðið
rýkur upp gæti 2,5 milljóna eignin
auðveldlega farið í 3,0-3,3 milljónir
eða hækkað í verði um 500-800 þús-
und krónur.
Svo geta allir reiknað. Borgar sig
fyrir ungu hjónin að fá íbúðina níu
mánuðum fyrr og borga t.d. 600 þús-
und meira fyrir hana, eða borgar sig
fyrir þau að fá íbúðina nf u mánuðum
seinna og borga 600 þúsund minna?
Svarið við þessu liggur á borðinu.
Sex hundruð þúsund er milli 65 þús-
und og 70 þúsund á mánuði í þessa
níu mánuði. Þá tölu má bera saman
við leiguna sem fólk er að borga.
Ef fólk borgar hærri leigu þá er hag-
kvæmara að fá íbúðina fyrr. Ef fólk
borgar lægri leigu borgarsig að bíða
í nokkra mánuði og fá íbúðina á
lægra verði.
Jöfn og þétt aukning best
Fasteignamarkaðurinn í landinu
hefur verið í nokkurri lægð á und-
anfömum misserum og því má
reikna með því að fasteignaverð fari
hækkandi eftir að nýja húsnæðis-
lánakerfið kemur í gagnið. Ennfrem-
ur verður ömgglega meira líf í
byggingaframkvæmdum en verið
hefur. Það er mjög eðlilegt að meira
verði að gera, bæði á höfuðborgar-
svæðinu og úti um land. En það
kæmi flestum sem í hlut eiga mjög
illa ef fasteignaverðið hækkaði alltof
mikið.
Með nýja húsnæðislánakerfinu er
verið að horfa til framtíðarinnar en
ekki aðeins til næsta og þamæsta
árs. Byggingarfyrirtæki græða t.d.
ekki á því að vitlaust verði að gera
KjaHaiinn
Vilhjálmur Egilsson
formaður SUS
í eitt eða tvö ár og að allt detti svo
niður aftur. Langskynsamlegast er
að framkvæmdimar aukist jafnt og
þétt þangað til nýju jafiivægi er náð
á byggingamarkaðnum. Þess vegna
verður að fara varlega á aðlögunar-
tímanum.
Aðlögunarvandamál
Margt ungt fólk, sem nú er að
hugsa sér til hreyfings, ekki síst fólk
sem hefur verið í skóla, hefur rekið
sig á að það nær ekki fullum láns-
rétti vegna þess að það hefúr ekki
greitt í lífeyrissjóð síðustu tvö ár.
Námsfólk á rétt á því að greiða í
Söfiiunarsjóð lífeyrisréttinda og án
efa mun það fólk, sem nú er í námi,
passa mun betur uppá að greiða í
sjóðinn eftir að búið er að tengja
saman lífeyrisiðgjöldin og hús-
næðislánaréttinn. En sumir þeirra
sem nú eru að sækja um lán, ný-
skriðnir út úr skóla, standa frammi
fyrir orðnum hlut, þeir greiddu ekki
í Söfnunarsjóðinn en hefðu hins veg-
ar gert það síðustu tvö ár ef þeir
hefðu vitað hvemig reglumar
myndu verða.
Ýmsum leiðum og hugmyndum að
reglum var velt upp á sínum tíma
til þess að auðvelda aðlögunina að
nýja húsnæðislánakerfinu en alltaf
rákust menn á þaírn vegg að slíkar
reglur sköpuðu meiri vanda en þær
leystu. Því var ákveðið að treysta
frekar á að lífeyrissjóðimir sýndu
lipurð við að leyfa fólki að gera upp
iðgjaldaskuldir sínar aftm- í tímann,
ekki síst námsfólki. Umskipti eins
og nú em, frá gamla húsnæðislána-
kerfinu yfir í hið nýja, verða aldrei
hnökralaus og því er mikilvægt að
, aðilar eins og lífeyrissjóðimir geri
; sitt til þess að auðvelda fólki aðlög-
' unina.
Taka bankarnir við sér?
í nýja húsnæðislánakerfinu em
heimildir til þess að afgreiða lánin
beint til lánastofhunar umsækjand-
ans, sem þá sér um að greiða út lánið
og fylgjast með því að bygging eða
kaup gangi fyrir sig eins og til er
stofnað. Með þessu opnast mögu-
leikar á því að bankamir taki upp
svipaða starfshætti varðandi hús-
næðiskaup viðskiptavina sinna og
tíðkast víðast erlendis. Hér á landi
er fólk iðulega að þeysa á milli
banka, sláandi slatta hér og slatta
þar, haldandi ávísanareikningum í
nokkrum bankastofnunum, veltandi
sömu krónunum nokkrum sinnum á
milli til þess að búa til andlit á öllum
vígstöðvum. Allt kostar þetta
ómælda fyrirhöfii og er séríslensk't
fyrirbrigði.
Ef vel ætti að vera á fólk, sem
hyggur á húsnæðiskaup, að geta
gengið inn í sinn aðalviðskipta-
banka og fengið aðstoð við að gera
fjárhags- og greiðsluáætlun vegna
kaupanna þannig að stakkur sé
sniðinn eftir vexti, aðstoð við að fylla
út umsókn um lán til Húsnæðis-
stofnunar og afgangsfjármögnun
eftir því sem til þarf.
Höfnum yfirboðunum
Nýja húsnæðislánakerfið er í
grundvallaratriðum gott og á því á
að vera unnt að byggja til frambúð-
ar. En ýmis vandamál eiga eftir að
koma upp við umskiptin milli gamla
og nýja lánakerfisins. Þau vandamál
eru hins vegar flest hver viðráðanleg
ef lipurð er sýnd af þeim sem bætt
geta úr. Stærsta hættan við nýja
kerfið er fólgin í yfirboðunum, þar
sem óprúttnir sjómmálamenn lofa
að setja svo mikla peninga inn í
lánakerfið að fasteignaverð snar-
hækkar um leið. Þá mun ungt fólk
sérstaklega verða fyrir miklum
skakkaföllum. Því verður ungt fólk
að passa mjög vel upp á að láta gylli-
boðin ekki plata sig.
Vilhjálmur Egilsson.
„Stærsta hættan við nýja kerfið er fólgin
í yfirboðunum, þar sem óprúttnir stjóm-
málamenn lofa að setja svo mikla peninga
inn í lánakerfið að fasteignaverð snar-
hækkar um leið.“
f1*
' . -
•■> ■ ■ ' — - --
„Byggingafyrirtæki græða Ld. ekki á því að vitlaust verði að gera í eitt eða
tvö ár og að allt detti svo niður aftur. Langskynsamlegast er aö framkvæmd-
imar aukist jafnt og þétt þangað til nýju jafnvægi er náð á byggingamark-
aðnum.“