Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Qupperneq 28
40
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986.
Andlát
Eiríkur Þorsteinsson lést 7. sept-
ember sl. Hann fæddist í Garðhúsum,
Höfnum, 23. nóvember 1898. Hann
var sonur hjónanna Gíslínu Gíslad-
óttur og Þorsteins Árnasonar.
Eiríkur stundaði sjómennsku og
vann einnig við viðgerðir hjá ís-
lenskum aðalverktökum. Hann
kvæntist Árnýju Ólafsdóttur en hún
lést 1984. Þeim varð sjö barna auðið
og eru fjögur þeirra á lífi. Útför Ei-
ríks verður gerð frá Ytri-Njarðvíkur-
kirkju í dag kl. 14.
Kristrún Þórarinsdóttir lést 2.
september á Elli- og hjúkrunarheim-
ilinu Grund. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Jóhann Stefánsson, fyrrverandi
skipstjóri, andaðist að Hrafnistu í
Reykjavík þann 10. september.
Magnús Magnússon, Tryggvagötu
22, Selfossi, lést að heimili sínu 10.
september.
Stefán Ólafsson skósmiður, Borg-
arnesi, lést í sjúkrahúsi Akraness 10.
september 1986.
Ólafur Þórður Jónsson, Túngötu
17, Patreksfirði, verður jarðsunginn
frá Patreksfjarðarkirkju laugardag-
inn 13. september kl. 14.
Karl Guðjónsson rafvirkjameistari,
Suðurgötu 15-17, Keflavík, áður að
Mávabraut llb, verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju laugardaginn
13. september kl. 14.
Ingvar Kristinsson heildsali lést 5.
september sl. Hann fæddist 18. jan-
úar 1935, sonur hjónanna Kristins
Guðmundssonar og Unnar Kristj-
ánsdóttur. Eftirlifandi eiginkona
Ingvars er Ása Þ. Ásgeirsdóttir. Þeim
hjónum varð fjögurra bama auðið.
Ingvar starfaði lengst af við verslun-
arstörf hjá J. Þorlákssyni og
Norðmann en nú síðustu árin var
hann að byggja upp eigið fyrirtæki
ásamt fjölskyldu sinni, heildverslun-
ina Echo. Útför Ingvars verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Ymislegt
Frá stjórn og skólamálaráði
Kennarasambands íslands
Kennarasamband íslands hefur í öllu
starfi sínu lagt áherslu á málefnalega og
víðtæka umíjöllun um skólamál, enda
augljóst hve nauðsynleg slík umræða er
skólastarfi í landinu.
Innan Kennarasambandsins starfar
milliþinganefnd, svonefnt skólamálaráð,
sem hefur það verkefni að fjalla um skóla-
mál almennt, svo og sérstaka þætti þess.
í skólamálaráði sitja kennarar úr ílestum
fræðsluumdæmum og frá öllum skólastig-
um sem KÍ spannar.
Eitt helsta verkefni skólamálaráðs KÍ á
þessu starfstímabili hefur verið að undir-
búa heildarstefnumörkun Kennarasam-
bands íslands í skólamálum, en það verk
var ráðinu falið af fulltrúaþingi 1984.
Strax var ljóst að til þess að stefnumörk-
unin yrði raunhæf þyrftu sem flestir
kennarar að taka þátt í starfínu. Skóla-
málaráð fékk því til liðs við sig fjölda
kennara, víðsvegar um land, og hefur starf
þeirra verið ráðinu ómetanlegur stuðning-
ur.
Til þess að tryggja enn víðtækari þátt-
töku og áhrif sem allra flestra félagsmanna
KÍ á stefnumörkun samtakanna í skóla-
málum ákváðu stjórn og skólamálaráð að
halda uppeldismálaþing í öllum fræðslu-
umdæmum nú á haustdögum. Þingin eru
haldin í samvinnu við aðildarfélög KÍ, en
þau eru 10 landshlutafélög auk Sambands
sérskóla og Félags tónlistarskólakennara.
Á uppeldismálaþingunum verður annars
vegar fjallað almennt um inntak skóla-
stefnu og hversu nauðsynlegt það er fyrir
kennara og samtök þeirra að marka sér
stefnu og hins vegar verða rædd ákveðin
atriði í skólastefnu KÍ, einkanlega þau
sem eru álitamál. Málshefjendur á uppeld-
ismálaþingunum verða Erla Kristjáns-
dóttir uppeldisfræðingur og Ólafur H.
Jóhannsson skólastjóri.
Uppeldismálaþing hafa fram til þessa
einungis verið haldin í Reykjavík, þó þau
hafi að sjálfsögðu verið ætluð kennurum
alls staðar á landinu. Það er því nýbreytni
í starfi Kennarasambandsins að halda
uppeldismálaþing úti í fræðsluumdæmun-
um.
Frysting á óskelflettri rækju
Að gefnu tilefni vill ráðuneytið vekja at-
hygli á eftirfarandi: 1. Samkvæmt ákvæð-
um laga nr. 12 25. apríl 1975 þarf sérstök
leyfi ráðuneytisins til þess að koma á fót
rækjuvinnslu eða til aukningar á þeirri
afkastagetu sem fyrir er. Gildir þetta
ákvæði. hvort sem rækjan er fryst skel-
flett eða í skel í hlutaðeigandi vinnsluhús-
um. 2. Samkvæmt ákvæðum reglugerðar
nr. 264 27. júní 1985 er óheimilt að hrað-
frysta óskelfletta rækju um borð í veiði-
skipi sé meira en sólarhringur liðinn frá
því að hún var veidd. Hraðfrysting á óskel-
flettri rækju í landi er óheimil.
Fyrirtæki styðji við listir
í febrúar á næsta ári hyggst IBM á ís-
landi standa fyrir sýningu á verkum ungra
myndlistarmanna, 35 ára og yngri. Tengist
sýningin 20 ára starfsafmæli í IBM hér-
lendis á árinu 1987.1 tengslum við sýning-
una hyggst fyrirtækið veita verðlaun
einum listamanni að upphæð kr. 100.000
og jafnframt áskilja sér rétt til kaupa á
listaverkum. I frétt frá IBM segir að fyrir-
tækið vilji með þessum hætti sýna í verki
viljann til að styðja við bakið á ungum
myndlistarmönnum. Forsvarsmenn IBM á
íslandi telja að stuðningur einstaklinga
og fyrirtækja með þessum hætti sé til þess
fallinn að efla listir og menningu, auka
sjálfstæði og sköpunargleði listamanna.
Er það von fyrirtækisins að stuðningur
af þessu tagi fylgi í kjölfarið úr fleiri átt-
um.
Ljósmyndasýning í Ingólfs-
brunni.
Jón Júlíus Elíasson opnar sýningu á ljós-
myndum í Ingólfsbrunni, Miðbæjarmark-
aði, mánudaginn 15. september. Hann mun
sýna 24 svarthvítar myndir, teknar á
Hjalteyri og Oddeyri við Eyjaijörð. Sýn-
ingin, sem er sölusýning, stendur til 17.
október og er opin virka daga frá kl. 9-18.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 137. tbl. Lögbirtingablaðsins 1983 og 2. og 5. tbl. þess
1984 á fasteigninni Nónási 6, neðri hæð, Raufarhöfn, þingl. eign Sigvalda
Ómars Aðalsteinssonar, fer fram að kröfu Atla Gíslasonar hdl„ Brynjólfs Ey-
vindssonar hdl„ Örtygs Hn. Jónssonar hdl. og Brunabótafélags íslands á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 18. september 1986 kl. 18. Uppboðið er 2.
og síðara uppboð á eigninni.
____________Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
Utvarp - sjónvaip
Lovísa Oladóttir framkvæmdastjóri:
Af Bylgjunm yfir á rás 1
Ég hlustaði á Bylgjuna í vinnunni
í gær en lækkaði í henni af og til
því mér finnst þetta frekar mikil
læti. Það er samt ekki sami vin-
sældalistabragur og á rásinni, ekki
eins mikið af stefum sem ergja mann.
Ég tók líka eftir því að minna var
af auglýsingum á Bylgjunni sem er
ágætt fyrir hlustendur. Mér finnst
lesnar tilkynningar vinalegri heldur
en gargandi auglýsingar.
í gærkvöldi vildi ég hlusta á eitt-
hvað létt og þægilegt, prófaði bæði
Bylgjuna og rásina en fannst of mik-
ill gjallandi og kaus frekar rás 1 þar
sem ég hlustaði á leikrit sem mér
fannst mjög gott.
Síðan reyndi ég aftur við Bylgjuna
en þá var þar spumingaþáttur í
gangi sem mér fannst hljóma frekar
einkennilega. Spyrillinn gaf nánast
svörin og fannst mér varla hægt að
bjóða upp á svona lagað í útvarpi.
Síðan hlustaði ég á Megas og
Trausta á rás 2 og það var alveg frá-
bært. Gaman að heyra tónlistina sem
þeir leika því þetta er skondin tón-
list eins og Megas orðaði það sjálfur.
Pólýfónkórinn undirbýr vetr-
arstarf.
Vetrarstarf Pólýfónkórsins hefst að þessu
sinni með söngnámskeiði þar sem írægur
ítalskur kennari þjálfar kórfélagana til
undirbúnings fyrstu tónleikum kórsins og
Sinfóníuhljómsveitar íslands í Hallgríms-
kirkju. Maestro Mauro Trompeta, þekktur
söngvari, kennari og þjálfari kóra við
óperurnar í Torino og Milano, kemur til
landsins síðar í þessum mánuði í þeim til-
gangi að fríska upp raddimar áður en
hinar föstu kóræfingar hefjast. Söngnám-
skeiðið hefst mánudaginn 22. september
kl. 18 síðdegis og fer kennslan fram í hóp-
um til kl. 23 á kvöldin. Kennt verður í
Vörðuskóla á Skólavörðuholti, þar sem
kórinn heldur æfingar sínar, og stendur
námskeiðið í 10 daga. Það er einungis
ætlað kórfélögum, sem starfað hafa í kórn-
um áður, svo og nýjum kórfélögum sem
nægan undirbúning hafa til að hefja starf
með kórnum nú þrátt fyrir að undirbún-
ingur næstu hljómleika hæfist síðastliðinn
vetur. Stofnandi kórsins, Ingólfur Guð-
brandsson, heldur enn sem fyrr um stjórn-
völinn. Innritun nýrra kórfélaga er hafin
og fer fram í síma 26611 á daginn en 72797
og 84610 á kvöldin og um helgar.
Skotið s/f flytur sig um set.
Þriðjudaginn 2. september sl. var opnuð
versiun í nýju umhveríí á horni Laugavegs
og Klapparstíg, Klapparstíg 31. Vefnaðar-
vörubúðin Skotið s/f, sem var áður til
húsa að Laugavegi 26, hefur á boðstólum
ýmiss konar vöru og þjónustu. Skotið s/f
býður upp á allt sem þarf á rúmin, s.s.
sænskar sængur, kodda, varmalök, dýnu-
hlífar, teygjulök og allan almennan
rúmfatnað. Einnig er hægt að fá sérsaum-
uð rúmföt. Þá er á boðstólum mikið úrval
af vefnaðarvöru, smávöru til saumaskapar
og bómullar- og ullarnærfatnaði fyrir döm-
ur og herra á öllum aldri. I því sambandi
prjónar Skotið s/f eftir pöntunum. Þá eru
seldar ýmsar snyrtivörur frá Sans Soucis
ásamt skartgripum af ýmsu tagi. Skotið
s/f býður upp á þá þjónustu að „over-
lokka" fatnað fyrir fólk. Verslunin sendir
í póstkröfu um land allt. Sími verslunar-
innar er 14974.
Áttu gullgreiðu?
Þýsku Hercules greiðuverksmiðjumar
leita nú að elstu gúmmígreiðunni á Is-
landi. Allar gúmmígreiður frá Hercules
eru stimplaðar með framleiðsluártali sínu
svo auðvelt á að vera að sjá hvenær hver
greiða er framleidd. Sá sem framvísar elstu
Hercules gúmmígreiðunni fær greitt and-
virði þyngdar hennar í gulli. Heildverslun-
in ISON, sem hefur einkaumboð fyrir
Hercules vörur á íslandi, er flutt í nýtt
húsnæði að Hamraborg 14a í Kópavogi.
Þeir sem eiga gamlar Hercules gúmmí-
greiður tilkynni það í síma 641714 fyrir
30. september.
Happdrætti
Dregið í happdrætti Ferða-
málafélags
Húsavíkur og nágrennis
Dregið hefur verið í happdrætti Ferða-
málafélags Húsavíkur og nágrennis á
Heimilið ’86 í Laugardalshöll. Vinningur
kom á bækling nr. 433. Vinnings má vitja
hjá Farkaup, Húsavík, sími 96-41140.
Afmæli
60 ára er í dag, 12. september, Bolli
A. Ólafsson, húsgagnasmiður.
Hann og kona hans. Svanhildur M.
Júlíusdóttir, ætla að taka á móti
gestum á heimili sínu, Kirkjuteigi
17 hér í bænum, milli kl. 17 og 20 í
dag.
Þórshöfh:
Leit að
bónda, stúlku
og barni
Björgunarsveit Slysavamafélagsins
á Þórshöfn var kölluð út til leitar í
nótt að bónda, stúlku og bami. Hafði
fólkið farið á Öxaríjarðarheiðina til
að undirbúa göngur en lent í slæmu
veðri og villst.
Tæpiega tuttugu manns á þremur
bílum og ílugvél tóku þátt í leitinni
en svartaþoka var á þessu svæði og
aðstæður erfiðar. Undir morguninn
fannst fólkið á heiðinni og var komið
til Þórshafnar nú um níuleytið.
-FRI
Leiðrétting
Vegna fréttar á baksíðu DV í gær
um fyrirhugaða rannsókn RLR á
Þýsk-íslenska skal tekið fram að rang-
hermt var að eigandinn sjálfur hefði
neíht töluna rúmar 50 milljónir kr.
heldur er þetta sú upphæð sem skatta-
yfirvöld lögðu á fyrirtækið á sínum
tíma að rannsókn lokinni, þ.e. 36 millj-
ón kr. í álögð gjöld og 15 milljónir í
sekt og dráttarvexti.
Þá er rangt sagt frá að eigandinn
hafi boðist til að greiða þessa upphæð,
hið rétta er að hann bauð skattinum
fullt samstarf til að komast til botns
í skattskilum fyrirtækisins svo unnt
væri að leiðrétta þau.