Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986.
Fréttir
Talsmaður sovéskra gyðinga í Bandaríkjunum:
Island viljandi valið
til að forðast mótmæli
Óskar Magnússcm, DV, Washingtan:
„Við höfum ekki enn ákveðið
hvort við mótmælum á íslandi en
það verður ljóst fljótlega,“ er haft
eftir Jerry Goodman, framkvæmda-
stjóra samtaka sovéskra gyðinga hér
í Bandaríkjunum, í blaðinu Wash-
ington Times.
„Ég held því hiklaust fram að ís-
land hafi ekki verið valið af neinni
tilviljun," segir Goodman. „Það er
fjarlægt land, það er erfitt að kom-
ast þangað og það yrði erfitt að
mótmæla þar,“ segir Goodman.
Gyðingasamtökin hafa að undan-
fömu undirbúið öflug mótmæli gegn
meðferð sovéskra yfirvalda á gyð-
ingum. Ætlun þeirra hefur verið að
mótmælin kæmu upp á yfirborðið á
leiðtogafundi Reagans og Gor-
batsjovs hér í Bandaríkjunum en nú
hefúr fundurinn á Islandi sett strik
í reikninginn.
Goodman bendir einnig á að fund-
inn beri upp á einn helgasta
bænadag gyðinga, Yom Kippur, svo
varla verði margir þeirra á ferð og
flugi um þær mundir. Hann spyr
hvort dagsetningin sé líka tilviljun.
I grein blaðsins er vitnað í Steingrím
Hermannsson, undir nafhinu Stein-
grimmur, og sagt að allt verði gert til
að fúndurinn geti farið vel fram.
Loks er þess getið að óvissa ríki um
það hvort ísland muni leyfa mótmæli
gegn sovéska leiðtoganum þótt landið
sé í nánum tengslum við Bandaríkin
en ekki að sama skapi við Sovétríkin.
Komudagar
Sévstök læknavakf
Glæsikerra Gorbatsjovs.
Gorbatsjov kemur
með eigín bíl
Gorbatsjov mun koma með bíl sinn
með sér til íslands. Er það stór og
mikil svört drossía að gerðinni Zil sem
er rússnesk framleiðsla. Ekki er ljóst
hvort Reagan kemur með bfl með sér
en það fer eftir því hvort sendiherrra
Bandaríkjanna á íslandi verður búinn
að fa bíl sem hann hefur pantað hing-
að til lands fyrir sig en það er bryn-
varinn Opel.
Bíll Gorbatsjovs er mjög glæsilegur,
loftkældur bíll. Nefnist gerð bílsins
Chaika GAZ-14 og eru til dæmis mjög
fúllkomin hljómflutningstæki í hon-
um. Bíllinn er að sjálfsögðu brynvar-
inn. Hann tekur 7 manns í sæti og er
220 hestöfl. Hann kemst upp í 175 kíló-
metra á klukkustund. -KÞ
Biskup íslands biður
fyrir leiðtogunum
Biskup íslands hefur sent prestum
landsins tilmæli þess efiiis að þeir biðji
fyrir því í kirkjubæn við guðsþjón-
ustur næsta sunnudag að viðræður
leiðtoga stórveldanna I Reykjavík um
aðra helgi leiði til friðar í heiminum.
Hefur biskup af þessu tilefrii sent
öllum prestum landsins skeyti þar sem
hann fer fram á þetta.
-KÞ
Blaðamannamiðstöð
í vesturbænum
Gorbatsjov og Reagan munu að öll-
um líkindum koma hingað til lands í
einkaþotum. Samkvæmt upplýsingum
DV er ráðgert að Reagan komi hingað
ásamt liði sínu síðdegis á föstudag.
Gorbatsjov mun hins vegar ekki koma
fyrr en snemma á laugardagsmorgun.
Ljóst er að báðar þotumar munu
lenda í Keflavík.
-KÞ
Peningamarkaður
VEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbundnar B-9 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8,5-10 Ab.Lb.Vb
6 mán. uppsögn 9,5-13,5 Vb
12 mán. uppsögn 11-14 Ab
Sparnaður - Lánsréttur
Sparað í 3-5 mán. 8-13 Ab
Sp. í B mán. og m. 9-13 Ab
Ávisanareikningar 3-7 Ab
Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1 Allir
6 mán. uppsögn 2,5-3,5 Lfa
Innlán með sérkjörum 8-16
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 6-7 Ab
Steriingspund 8,75-10,5 Ab.Vb
Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab
Danskar krónur 7-9 Ib
Utlán óverðtryggð
Almennír víxlar(forv.) 15,25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kgeog19,5
Almenn skuldabréf(2) 15,5 Allir
Viöskiptaskuldabréf (1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 15.25 Allir
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að 2.5 árum 4 Allir
Til lengri tíma 5 Allir
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 15
SDR 7,75
Bandaríkjadalur 7.5
Sterlingspund 11,25
Vestur-þýsk mörk 6
Spariskirteini
3ja ára 7
4ra ára 8.5
6ára 9
Með vaxtmiðum(4 ár) 8,16
Cengistryggð(5 ár) 8,5
Almenn verðbréf 12-16
Húsnæðislán 3.5
Lífey rissj óðslán 5
Oráttarvextir 27
VtSITÖLUR
Lánskjaravísitala 1486 stig
Byggingavísitala 274.53 stig
Húsaleiguvísitala Haskkaði 5% 1. júlí
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs:
Eimskip 200 kr.
Flugleiðir 140 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 97 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, af þriðja aðila, er
miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
flestum bonkum og stærri sparisjóðum.
(2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs
vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð
og óverðtryggð lán. Skammstafanir:
Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðar-
bankinn, Ib = Iðnaðarbankinn, Lb =
Landsbankinn, Sb=Samvinnubankinn,
Úb = Otvegsbankinn, Vb = Verslunar-
bankinn, Sp = Sparisjóðimir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaöinn birtast í DV á fimmtudög-
um.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast vikulega á
fimmtudögum, að þessu sinni þó ekki
fyrr en á föstudag 3. okt. vegna
ýmissa breytinga.
Blaðamannamiðstöð verður að öll-
um líkindum sett upp í vesturbænum
þá daga sem fundur leiðtoganna stend-
ur. Hefúr ekki verið ákveðið hvar sú
miðstöð verður en þeir staðir sem til
greina koma eru Háskólabíó, Mela-
skóli eða Hagaskóli þar sem allir
þessir staðir eru steinsnar frá Hótel
Sögu.
Eins og kunnugt er af fréttum er
búist við í kringum 1000 fréttamönn-
um. Nú þegar hafa Pósti og síma
borist gífurlega margar óskir um afnot
af línum til sjónvarps- og fréttasend-
inga að sögn Jóhanns Hjálmarssonar,
blaðafulltrúa Pósts og síma.
„Við höfúm varla undan að taka
við,“ sagði Jóhann. „Hér þarf gífúrlegt
átak til að geta sinnt öllum þessum
óskum en ég á von á því að okkur
takist alveg að greiða úr þessu öllu.“
-KÞ
á Borgarspítalanum
„Það hefúr ekki komið formleg beiðni
um það ennþá en við reiknum fastlega
með því að hér verði sérstök lækna-
vakt vegna leiðtogafúndarins," sagði
Magnús Skúlason, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Borgarspítalans, í
samtali við DV.
Magnús sagði að árið 1973 þegar
Nixon og Pompidou funduðu hér á
landi hefði verið sérstök vakt á spítal-
anum og svo yrði áreiðanlega einnig
nú.
- Hvemig emð þið í stakk búnir til
að mæta slíku?
„Ágætlega, annars er erfitt að segja
til um hvemig þetta verður á þessari
stundu."
- Kemur til greina að loka heilli
deild vegna þessa?
„Ég get ekkert sagt um þetta nú.
Það á eftir að koma í ljós hverjar kröf-
ur verða settar fram af fylgdarliði
leiðtoganna. Ef við þyrftum að senda
heim sjúklinga af heilli deild vegna
þessa yrði það auðvitað erfitt en við
munum gera okkar besta til að koma
til móts við þessa menn,“ sagði Magn-
ús Skúlason. -KÞ
Hrafnhildur Pálsdóttir og Bertha Konráðsdóttir á Ferðaskrifstofu rikisins höfðu
ekki við að svara í síma fólki sem var að bjóða fram heimili sín.
DV-mynd GVA
Fólk býðst til
aðflylja af
heimilum sínum
„Það hefúr verið alveg gífurleg eftir-
spum eftir gistingu. Við getum átt von
á milli 2000 og 4000 manns vegna fund-
arins, en ég á von á, að við getum leyst
allan þennan vanda,“ sagði Birgir
Þorgilsson ferðamálastjóri í samtali
við DV en hann hefur umsjón með
hótelhlið leiðtogafundarins.
Hann sagði að fólk sýndi gífurlegan
skilning á nauðsyn þess að geta útveg-
að öllum húsnæði. Hann sagði fjöld-
ann allan af fólki hafa boðið fram
herbergi í einkahíbýlum sínum. Einnig
heföu margir boðist til þess að lána
öll híbýli sín en flytja sjálfir í sumar-
hús á meðan á fundinum stendur.
„Þá erum við einnig að kanna ýmis
orlofshús í nágrenni Reykjavíkur.
Einnig koma til greina staðir sem eru
lengra frá Reykjavik, eins og Stykkis-
hólmur, einkum fyrir þá, sem hafa
flugvélar til umráða. Það tekur aðeins
um tuttugu mínútur að fljúga á milli,“
sagði Birgir.
Hann sagði að einnig væri verið að
athuga með ferðir milli staða sem eru
í um 100 kílómetra radíus við Reykja-
vík. Fyrirhugað væri að bjóða upp á
sætaferðir kvölds og morgna svo og
um miðjan daginn. -KÞ