Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986.
Nauðungaruppboð
Af kröfu ýmissa lögmanna verður eftirtalið lausafé selt á nauðungaruppboði
sem haldið verður við lögreglustöðina, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, fimmtudag-
inn 9. október 1986 kl. 14.00. Lausaféð er: bifreiðarnar L-1071, L-1247,
L-1564, L-2026, L-2161, G-18302, dráttarvélarnar Ld-506, Ld-1210 og
óskráð Massey Ferguson árgerð 1967, Gunnerstedt haugdreifari, Kolstar lit-
sjónvarp og 8 vetra hestur.
________________________Sýslumaður Rangárvallasýslu.
SÖLUMAÐUR
Óskum eftir að ráða röskan sölumann með góða fram-
komu, stundvísan og reglusaman. Við bjóðum góða
vinnuaðstöðu og góð laun. Upplýsingar á staðnum
föstudag frá kl. 10-12.
BÍLATORG
NÓATÚN 2 - SÍMI621033
HEILBRIGÐISFULLTRÚI
Staða heilbrigðisfulltrúa í Norðurlandshéraði vestra
er auglýst til umsóknar. Umsækjendur þurfa að hafa
menntun í samræmi við reglugerð nr. 150 og nr.
765/1983 um heilbrigðisfulltrúa.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist héraðslækni Norðurlandshéraðs vestra,
pósthólf 1 25, 550 Sauðárkróki, fyrir 28. október næst-
komandi og veitir hann upplýsingar um starfið í síma
95-5270.
Héraðslæknirinn,
Norðurlandshéraði vestra.
VERKFRÆÐINGAR
TÆKNIFRÆÐINGAR
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða bygg-
ingaverkfræðing eða tæknifræðing til að veita for-
stöðu byggingadeild fyrirtækisins.
Starfið er aðallega fólgið i eftirliti með nýbygginga-
framkvæmdum og umsjón með viðhaldi bygginga.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
686222.
Umsóknarfrestur er til 13. október nk.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Sólbaðsstofa
Ástu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18,
sími 28705
Nú er komið að hinu vinsæla
hausttilboði okkar sem allir
eru að bíða eftir. 24 tímar á
aðeins 1500 krónur.
VERIÐ VELKOMINN
ÁVALLT HEITT Á
KÖNNUNNI
Utlönd
DV í Hvíta húsinu:
Vil gjaman skrifa
um Islandsfundinn
- sagði Daniloff á fundi í Hvrta húsinu
Óskar Magnússan, DV, Hvíla hnsirai:
„Fundurinn á íslandi var ekki hluti
af samkomulaginu um að láta Dani-
lofif lausan. Hins vegar sagði ég alltaf
að ef hann yrði ekki látinn laus þá
yrði enginn fundur," sagði Reagan
Bandaríkjaforseti við blaðamenn í
gær.
Blaðamaður DV var viðstaddur er
forsetinn, ásamt Danilofif og fjölskyldu
Daniloffs, hitti blaðamenn í Rósagarði
Hvíta hússins seint í gær.
Sjálfur sagði Daniloff í gærmorgun
er hann kom á ritstjómarskrifstofur
US News þar sem hann vinnur að
hann gæti vel hugsað sér að fara til
íslands og skrifa um leiðtogafundinn.
Það var nær þrjátíu stiga hiti í Rósa-
garði Hvíta hússins í gær er við
blaðamenn biðum eftir að forsetinn
og Danilofif birtust.
Glósur um Islandsför flugu á milli
blaðamannanna. „Má ég þá heldur
biðja um kuldann á Islandi en þetta,“
og álíka setningar heyrðust mitt á
milli blaðamanna.
Hugmyndin um að senda skemmti-
ferðaskip til íslands til að leysa
hótelvandann hefur ekki fengist stað-
fest opinberlega í Hvíta húsinu.
Á hinn bóginn munu starfsmenn
ABC sjónvarpsstöðvarinnar enn halda
þessum möguleika opnum á meðan séð
er hvemig mál þróast á Islandi.
Vil gjarnan skrifa um íslandsfundinn sagði bandariski blaðamaðurinn Daniloff
á fundi ásamt Reagan forseta í Rósagarði Hvíta hússins i gær.
Ringulreið ríkir í hópi erlendra blaðamanna:
Efasemdir um að ísland
ráði við leiðtogafundinn
Óskar Magnússon, DV, Washingtan:
Blaða- og fréttamenn hér í Was-
hington hafa miklar efasemdir um að
Reykjavík Iceland" ráði við að taka
viú öllum þeim fjölda er til landsins
mun óhjákvæmilega koma vegna
fundar þeirra Reagans og Gorbatsjovs.
Blaðamennimir telja að vegna
þrengsla á íslandi kunni svo að fara
að aðgangur fjölmiðla til landsins
verði með einhverjum hætti takmark-
aður af opinberri hálfu.
Þannig muni hver fjölmiðill ef til
vill ekki fá að senda nema tiltekinn
fjölda fréttamanna. Á blaðamanna-
fúndi í bandaríska utanríkisráðuneyt-
inu í gær hafði talsmaður ráðuneytis-
ins engin svör við því hvort aðgangur
yrði takmarkaður.
Erlendir starfsbræður leita nú mjög
til blaðamanns DV vegna húsnæðis-
vandræðanna á íslandi. Margir þeirra
hafa þegar sýnt ótrúlegt hugmynda-
flug í tilraun sinni til að verða úti um
húsnæði.
Flugfarseðlar em sömuleiðis vand-
fengin vara. Margir blaðamannanna
hafa bókað sig tvisvar til íslands, með
langsóttum og fjarlægum millilend-
ingum.
„Loksins verður ísland þekkt
Svíar segja Reykvíkinga fama að leigja einbýlishúsin á 50 þúsund
Gunnlaugur Jóreaan, DV, Lundr
„Nú loksins verður ísland þekkt,“
hafði sænska sjónvarpið eftir ís-
lenskum sjómanni í gær. Sjónvarpið
flutti ítarlega firétt af undirbúningn-
um á íslandi fyrir fúnd þeirra
Reagans og Gorbatsjovs þar sem
ljóst er að Island er þegar tekið að
njóta góðs af væntanlegri heimsókn
leiðtoga stórveldanna í formi land-
kynningar hér í Svíþjóð.
Sænska sjónvarpið birti viðtöl við
nokkra íslendinga, meðal annars
Steingrím Hermannsson forsætis-
ráðherra og Bjarka Elíasson yfirlög-
regluþjón. Þá var umfjöllun um
Hótel Sögu og má geta þess í því
sambandi að fréttatími danska sjón-
varpsins hófst með mynd af hótelinu.
í frétt sænska sjónvarpsins sagði
meðal annars að Reykvíkingar væm
nú teknir að leigja einbýlishús sín í
stórum stíl fyrir um 50.000 krónur á
sólarhring og ætti það verð vafa-
laust eftir að hækka mjög najstu
daga. Þá velti sjónvarpið fyrir sér
ástæðu þess að ísland hefði orðið
fyrir valinu og taldi að þar hefði
einkum komið til lega landsins í
miðju Atlantshafi og erfitt væri fyrir
óæskilega aðila að komast þangað
með stuttum fyrirvara. Svo og það
að eini alþjóðlegi flugvöllur landsins
væri innan bandarisku herstöðvar-
innar í Keflavík.
Sovétmenn stungu upp á
fleiri fundarstöðum
Óskar Magnúsaan, DV, WasWngton:
„Ég get enga sérstaka skýringu gef-
ið á því af hverju ísland varð fyrir
valinu sem fundarstaður," svaraði
Charles Redman aðstoðarutanríkis-
ráðherra spumingu blaðamanns DV í
gær.
Redman sagði að Sovétmenn hefðu
stungið upp á nokkrum stöðum en
Island heföi orðið fyrir valinu. Hann
vildi ekki nefria hveijir hinir staðimir
hefðu verið.
Aðrir heimildarmenn DV hafa bent
á að þótt víst séu erfiðleikar um gist-
ingu á íslandi þá kunni skýringin á
staðarvalinu einfaldlega að vera sú
að slíkir erfiðleikar hafi verið mun
meiri víðast hvar annars staðar með
svo stuttum fyrirvara.
I því sambandi var bent á að í stór-
borgum Evrópu, eins og til dæmis
London, væm hótelherbergi bókuð
með löngum fyrirvara þegar um stærri
samkomur væri að ræða.
I slíkum borgum væri ógemingur
að ráða fram úr vandamálum af þessu
tagi með svo stuttum fyrirvara.
Ef til vill hefði ísland orðið fyrir
valinu þess vegna.