Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986. Neytendur íslensk hönnun í heimsframleiðslu Postulínsflísar með mynd efdr listakonuna Rúnu Liibeck. Flísamar eru til sýnis hjá söluaðila fyrirtækisins hér á landi, Innréttingaþjónustunni, Smiðjuvegi 10, Kópavogi. „Ég er fyrsti Norðurlandahönnuð- urinn sem þeir fá til þess að vinna fyrir sig. Fyrirtækið bauð mér til Lubeck til þess að skoða tæknina hjá þeim. Einnig buðu þeir mér ó sýningu í Osló þar sem þeir sýndu teikningar og myndir milli 30 og 40 listamanna. Ég vann fyrir þá nokkur „design" og völdu þeir hafineyjima. Einnig ætla þeir að framleiða annað mynst- ur eftir mig, sem eru fuglar, á smáflísar. Hafmeyjuflisamar eru stærri en gengur og gerist, eða 30x40cm á stærð. Þær em með þess- ari möttu silkifínu óferð sem mér finnst vera svo skemmtileg,“ sagði Rúna. - Og hvemig er það svo að vita af hafmeyjunni sinni inni á bað- herbergjum manna um gjörvallan heim ? „Það er bara alveg ágætt,“ sagði Rúna. Hún sagðist ekki vita um Upphafið að þessu samstarfi var eiginlega að fyrirtækið frétti af því að ég ynni mikið á flísar frá Villeroy og Boch og þeir báðu mig að vinna fyrir sig nokkur mynstur, með hugs- anlega framleiðslu í huga,“ sagði Sigrún Guðjónsdóttir listakona í samtali við DV. Tilefnið var að verið var að kynna baðherbergisflísar með listaverki eftir Sigrúnu sem nú er hafin framleiðsla á hjá hinum stóm verksmiðjum Villeroy og Boch í Listakonan Sigrun Guðjónsdóttir segir að flisamar frá Villeroy og Boch séu vel fallnar til þess að mála á. Nýju flisamar em óvenjuiega stórar eða 30x30 cm á stærð. DV mynd GVA Þannig taka flísamar hennar Rúnu sig út þegar búið er að koma þeim fyrir í baöherberginu. Flisarnar em kallaðar lceland en nafn listakonunnar er ekki á þeim. hvert framhaldið yrði af þessu sam- starfi. Nýju flísamar hafa fengið nafhið Iceland en myndimar á flís- unum em ekki merktar nafni lista- mannsins. Nýju flísamar em settar upp í glænýju húsnæði Innréttingaþjón- ustunnar sem hefur söluumboð fyrir Villeroy og Boch en það er Þýsk- íslenska verslunarfélagið sem er aðalumboðsmaður fyrirtækisins á íslandi og hafði milligöngu um sam- starfið á milli Rúnu og fyrirtækisins. -A.BJ. í umferðinni Hvað kostar að lenda í árekstri? Höfum við efhi á þn'? Septembermánuður var mjög kostnaðarsamur fyrir bifreiðaeig- endur. Veður var mjög gott, og því fylgir því miður oft hraðari akstur með þeim afleiðingum að umferðaró- höpp verða fleiri og alvarlegri. Það er mjög kostnaðarsamt fyrir öku- menn að valda árekstri. Við höfðum samband við Jóhann Bjömsson, for- stjóra tryggingarfélagsins Ábyrgðar hf., til að grennslast fyrir um kostn- aðinn við að lenda í árekstri. Við fengum tölur um meðalkostn- að við að lenda í árekstri á meðal- stórum bíl, (Galant, Toyota Carina, Saab 99). Tölumar miðast við miðjan apríl síðastliðinn 'en litlar hækkanir hafa orðið frá þeim tíma. 1. Meðaltjón á eigin bíl..kr. 50.000 2. Sjálfsábyrgð af ábyrgðartrygg- ingu....................kr. 5.600 3. Bónusmissir af ábyrgðartrygg- ingu....................kr. 6.900 4. Sekt fyrir umferðarlagabrot (lítið brot).........ca kr. 1.000 Samtals kr. 63.500 Missir bílsins: Daggjald af bílaleigubíl í viku ........................kr. 7.000 Samtals kr. 70.500 Meðaltjón í kaskótryggingum er hins vegar mun hærra, eða um 60.000 kr. Þar kemur hins vegar á móti að hægt er að kaupa kaskótryggingu á bílinn með mismunandi sjálfeábyrgð. Með sama dæmi og hér að ofan, ef bíllixm þinn er kaskótiyggður, lít- ur dæmið svona út: 1. Sjálfeábyrgð af ábyrgðartrygg- ingu....................kr. 5.600 2. Sjálfeábyrgð af kaskótryggingu ..........................kr. 17.400 3. Bónusmissir af ábyrgðartrygg- ingu....................kr. 6.900 4. Bónusmissir af kaskótiyggingu ...........................kr. 9.600 5. Sekt fyrir umferðarlagabrot ........................ca kr. 1.000 Samtals kr. 40.500 Daggjald af bílaleigubíl í 7 daga ........................kr. 7.000 Samtals kr. 47.500 I umsjá Bindindisfélags ökumanna Hér við bætast fyrirhöfh og margs konar óþægindi vegna missis bílsins um lengri eða skemmri tíma. í þessu dæmi er aðeins verið að tala um þau umferðaróhöpp þar sem einungis er eignatjón og við erum að ræða um meðaltjón. En því miður er mikið um alvarlegri umferðaró- höpp þar sem slys verður á fólki. Þar verður oft óbætanlegt tjón á heilsu fómarlambanna. En trygg- ingarfélögin hafa einnig tölur um meðalkostnað þeirra af slíkum slys- um. Meðalkostnaður þeirra í slysa- tjónum er rúmlega 211.000 kr. Sú tala er þó aðeins smámál þegar litið er á þær þjáningar og þá sálarkvöl sem þessum slysum fylgir. Góði ökumaður, ef eitthvað er þá er þessi meðalkostnaður, sem við höfum sett upp, í lægri kantinum. Enginn ökumaður óskar þess að valda árekstri eða slysi. En ein- hverra hluta vegna hafa allir þessir ökumenn valdið slíku í september. Vertu því varkár því það er dýrt að lenda í árekstri. Verum samtaka, ökum miðað við aðstæður og stígum ekki of fast á bensíngjöfina. Þannig stuðlum við að bættu umferðaröryggi og leggjum okkar af mörkum til að bæta ís- lenska umferðarmenningu. EG Æði margir lenda i umferðaróhöppum, meira að segja getur löggan lika lent í árekstri. Liðin er sú tíð þegar húsmæður þurftu að mæta með bala og fötur fyrir sláturafurðirnar og biða í lengri tíma í kulda og trekki eftir afgreiðslu á slátri. Nú er allt sem til þarf afgreitt í hreinlegu húsnæði Sláturfélagsins við Skútuvog. Matarforði vetrarins Slátursala er hafin hjá Sláturfélagi Suðurlands í húsi fyrirtækisins í Skútuvogi 4. Fimm slátur saman í kassa kosta 1000 kr. Hægt er að fá aukavambir á 31 kr„ aukahfur sem kostar 134,50 kr. kg (kostar 147 kr. út úr búð). Einnig er til lifur af fullorðnu sem kostar 90 kr„ en hún þykir mjög góð með í lifrarpylsuna. Þá er hægt að kaupa svið á 106,60 kr. kg (kosta 112,40 út úr búð). Hjá slátursölu SS er hægt að fá slát- rið bæði nýtt en einnig fryst og þar að auki allt sem þarf til sláturgerðar. Þar er einnig sala á dilkakjöti í heilum og hálfum skrokkum og ýmsar kjö- tvinnsluvörur seldar á kynningar- verði. Slátursalan er opin kl. 9-18 og 9-12 á laugardögum. -A.BJ. Raddir neytenda_____________ Ný efhi í stað gamalla húsiáða Húsmóðir hringdi: Fyrir nokkuð löngu sögðuð þið frá trésmið sem var með uppskrift að lút til þess að setja á viðarþiljur þannig að ekki þurfi að lakka þær. Getið þið nokkuð haft upp á þessu fyrir mig? Einnig langar mig til þess að vita hvort einhver á uppskrift að lút til þess að taka málningu af húsgögnum. Því miður könnumst við ekki við þessar gömlu leiðbeiningar. Hins veg- ar er nú komið á markaðinn mikið af efhum sem koma í staðinn fyrir gömlu góðu ráðin. Eitt af þvi sem til er heitir einfald- lega lútur. Það er kalkblanda sem notuð er til þess að meðhöndla með viðarþiljur ef viðkomandi vill ekki nota lakk. Verður furan gráhvit eftir slíka meðhöndlun. Lúturinn er seldur í 5 lítra brúsum og kostar rúmlega 900 kr. Gefið er upp á brúsanum að 1 1 dugi á 5-8 fermetra, miðað við þurran við. Þá er einnig til sérstök rústicolía á límtré ef fólk vill ekki lakk. Akryl 10 er vatnslakk sem kemur i veg fyrir að viður dökkni og er mikið notað á við- arþiljur. Gefið er upp að lítrinn dugi á 8 fermetra, % 1 dós kostar 293 kr. Mikið er á markaðinum af efnum til að fjarlægja málningu af húsgögnum. Þau eru borin á með pensli, látin bíða í nokkrar mínútur og síðan rennur málningin af. Á eftir er viðurinn þveg- inn úr grænsápuvatni. En mikla varúð verður að viðhafa við notkun á svona efnum því þau eru svo sterk. Það verður að nota hanska og gæta þess að óvitar komist ekki í þau á meðan verið er að vinna með þeim eða þar sem þau eru geymd. -A.BJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.