Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986. Iþróttir íslenskir knattspymupunktar: KR, Valur og Völsungur vilja Pétur Pétursson •Lárus Guðmundsson. Pétur Pétursson, markaskorarinn mikli frá Akranesi, er nú eftirsótt- asti knattspymumaðurinn á Islandi. Þijú 1. deildar félög hafa haft sam- band við hann og óskað eftir að hann komi til þeirra. Það eru KR, Valur og nýliðar Völsungs. Það get- ur farið svo að Pétur breyti til og leiki með öðru félagi en Akranesi næsta keppnistímabil. - hræringar hjá DV hefúr frétt að Pétur hafi mest- an áhuga á að ganga til liðs við KR-inga ef hann fer frá Akranesi. En til þess að af því verði verða KR-ingar að útvega honum góða vinnu í Reykjavík. •Það er nokkuð víst að Jim Barr- on verður ekki áfram þjálfari Skagamanna næsta keppnistímabil. •Skagamenn vonast eftir því að Keflavflcurfliðinu Sigurður Halldórsson leiki með þeim næsta sumar. Hann hefur fengið starf í lögreglunni á Akranesi. Sig- urður hefur ekki verið á Skaganum tvö sl. sumur. Var þjálfari Völsungs á Húsavík í íyrra og þjálfaði Selfyss- inga í sumar. •Gunnar Oddsson, hinn efnilegi leikmaður Keflavíkurliðsins, hefur verið orðaður við Akranesliðið. Þá ganga þær sögusagnir í Keflavík að Valþór Sigþórsson, fyrirliði Kefla- víkurliðsins, hafi hug á að leggja knattspymuskóna á hilluna. Freyr Sverrisson hefur ákveðið að ganga til liðs við Akureyrarliðið KA. •Andri Marteinsson, hinn leikni leikmaður Víkings, hefur einnig ver- ið orðaður við KA-liðið. -sos Ásgeir og félagar áfram - í 16-liða úrslit Evrópukeppni bikarhafa ABi HBmaissan, DV, V-Þýskalandi; „Ég er mjög ánægður og stoltur af mínum mönnum. Það eina, sem ég var þó ekki ánægður með, var hvað þeir voru varkárir í fyrri hálfleiknum - drógu sig of mikið aftur,“ sagði Egon Coordes, þjálf- ari Stuttgart, eftir að Asgeir Sigurvinsson og félagar hans höfðu gert jafiiteíli, 0-0, gegn Spar- tak Tmava í Tékkóslóvakíu í Evrópukeppni bikarhafa. Stuttgart komst áfram, þar sem félagið vann í Stuttgart, 1A). Leik- menn Stuttgart fóm rólega á stað og léku miðvallarspilarar liðsins mjög aftarlega, þannig að það vantaði tengingu milli miðju og sóknar. Það var ekki mikið um marktækifæri í leiknum. Þó var Bunk klaufi að skora ekki þegar hann fékk snilldarsendingu frá Ásgeiri Sigurvinssyni. Bunk skall- aði fram hjá tékkneska markinu. Tékkinn Gabríel var rekinn af leikvelli í byrjun seinni hálfleiks- ins þegar hann sparkaði Júrgen Klinsmann gróflega niður eftir að Klinsmann hafði stjakað við hon- um. Þrátt fyrir að leikmenn Tmava léku aðeins tíu, náði Stutt- gart ekki að knýja fram sigur. -sos 1. •Ásgeir Sigurvinsson. Láras fékk tak í bakið „Þetta er búinn að vera átakan- legur tími. Ég hef nú ekki spilað leik í Bundesligunni í fimm mán- uði,“ sagði Lárus Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspymu hjá Bayer Uerdingen. Lárus, sem var sex vikur í gifsi, sagði að það tæki langan tíma að byggja fótinn upp. „Annars virðist eitt taka við af öðru. Ég fékk mikið tak í bakið á lyftingaæfingu sl. sunnudag og hef verið frá æfingum í þrjá daga,“ sagði Lárus í viðtali við DV í gær- kvöldi. „Ég á að geta farið að leika knattspymu upp úr 20. október. Ég hef verið að byggja mig upp að undanfömu, æft lyftingar tvisv- ar á dag í tvær vikur og hlaupið úti í skógi,“ sagði Lárus. -sos Atlisjö tíma í rútu Atli Eðvaldsson og félagar hans hjá Bayer Uerdingen áttu erfiða nótt. Eftir hinn góða sigur, 4-0, yfir Carl Zeiss Jena í A-Þýska- landi í gærkvöldi héldu leikmenn frá Jena í langferðabifreið. Þeir vom ekki komnir fyrr en kl. 6 í morgun heim til sín eftir sjö tima rútuferð. -SOS lan Rush með þrennu lan Rush skoraði þrjú mörk fyrir Liverpool, þegar félagið tryggði sér sigur í Super Cup í Englandi, með því að leggja Everton að velli, 4-1. Steve Nicol skoraði fjórða markið en Grahame Sharp skoraði mark Everton úr vitaspymu. Leikurinn fór fram á Goodison Park. Liver- pool vann fyrri leik liðanna, 3-1, sem fór fram á Anfield Road. -sos •Bierhoff, Atli og Funkel sjást hér fagna marki gegn Carl Zeiss Jena. Sævar áfram •Sævar Jónsson áfram i Noregi. Mikil mengun í Katowice „Það verður að segjast eins og er að hér er mikil mengun og loft- ið óhreint. Við erum líka staddir í mesta iðnaðarhéraði Póllands svo þetta þarf nú ekki að koma svo mjög á óvart," sagði Guðmundur Torfason í samtali við DV í gær- kvöldi. Leikmenn Fram, sem mæta pólska liðinu Katowice í síðari leik liðanna í Evrópukeppni bikarhafö í dag, æfðu í Katowice í gær og vom leikmenn á einu máli um að loftið væri mjög þungt. „Vissulega getur þetta háð okkur í leiknum en við erum samt mátulega bjart- sýnir og gerum okkar besta til að knýja fram hagstæð úrslit. Það verður síðan að koma í ljós hvort það verða nægilega hagstæð úr- slit,“ sagði Guðmundur Torfason. Atli hamraði knöttinn í netið með skalla - þegar Uerdingen skellti Caii Zeiss Jena í A-Þýskalandi A# Mlmaisson, DV, V-Þýskalandi; Atli Eðvaldsson skoraði glæsimárk með skalla fyrir Bayer Uerdingen þeg- ar félagið vann stórsigur yfir Carl Zeiss Jena í UEFA-bikarkeppninni, 4-0, í Jena í A-Þýskalandi. Atli stökk hærra en leikmenn a-þýska liðsins eft- ir sendingu frá Funkel og hamraði knöttinn í netið. A-Þjóðverjamir veittu Uerdingen harða keppni til að byrja með en þeg- ar Herget skoraði fyrsta mark Uerd- ingen á 69. mínútu með þrumuskoti af 24 m færi, knötturinn hafnaði efst uppi í markhominu, gáfust þeir upp. Atli skoraði annað markið á 76. mín- útu og Stefan Kuntz það þriðja aðeins mínútu síðar. Rudi Bommer gull- tryggði síðan sigurinn á 90. mínútu með þv' að vippa knettinum yfir mark- vörð Carl Zeiss Jena af 22 m færi. Þá má geta þess að Kuntz átti skalla í slána á marki a-þýska liðsins. Leik- menn Uerdingen áttu stórgóðan leik. Sérstaklega í seinni hálfleiknum þegar þeir léku við hvem sinn fingur. 15.000 áhorfendur sáu leikinn. Uerdingen vann samanlagt 7-0. -sos hjá Brann - einnig Bjami Gauli Grétaissan, DV, Noregi; „Forráðamenn Brann hafa boðið mér að vera áfram hjá félaginu og ég hef tekið því boði. Á aðeins eftir að skrifa undir eins árs samning," sagði Sævar- Jónsson, landsliðsmaðurinn kunni, þegar ég ræddi við hann í gær. íslensku landsliðsmennimir tveir, Sævar og Bjami Sigurðsson, verða því báðir með Brann næsta keppnistíma- bil en þá leikur Brann í 1. deildinni norsku. Bjami gerði upphaflega samn- ing tíl tveggja ára við Brann. Tony Knapp, þjálfari Brann og fyrr- um landsliðsþjálfari Islands, verður einnig áfram með Brann. Gerði nýlega nýjan tveggja ára samning við félagið. Leikmenn em mjög ánægðir með hann - að minnsta kosti þeir sem em fasta- menn í deildaliðinu. og Tony Knapp Mikið hefur verið skrifað um fall Víkings í Staföngri niður í 2. deild í norskum blöðum. Þetta fyrrum stór- veldi í norskri knattspymu, meðal annars undir stjóm Tony Knapp, er þar heldur betur tekið í gegn. Mikið skrifað um lélega stjóm á félaginu en þó sérstaklega tekið fram að kaup á nýjum leikmönnum hafi verið með eindæmum slök, einkum þó á íslend- ingunum tveimur. Þeir hafi verið keyptir óséðir og lítið sem ekkert kom- ið út úr þeim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.