Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986. 23 „Ungu strákam- ir flengdir - Real Madrid vann Young Boys, 5-0 Leikmenn spánska liðsins Real Madrid voru í miklu stuði í gærkvöldi er þeir gersigruðu svissneska liðið Young Boys frá Bem með fimm mörk- um gegn engu í Evrópukeppni meist- araliða. Fjögur af mörkunum voru skoruð á níu mínútna kafla undir lok leiksins og vár spánski landsliðsmað- urinn Emilio Butrageno maðurinn á bak við tvö markanna og sá svo um að skora tvö sjálfur með mínútu milli- bili. Það tók spænska liðið 36 minútur að brjóta niður fjölmenna vöm Sviss- lendinganna sem lögðu alla áhersluna á vamarleikinn enda unnu þeir heimaleikinn 1-0 í Sviss. Santillana skoraði fyrsta markið og þar með hafði Real Madrid jafhað metin. Með hetju- legri baráttu í vöminni tókst leik- mönnum Young Boys að halda Spánverjunum í skefjum en þar kom þó að allar stíflur brastu og mörkin komu á færibandi. 85 þúsund áhorf- endur sáu argentínska landsliðsmann- inn Jorge Valdano skora annað mark Real Madrid á 72. mínútu og allt ætl- aði um koll að keyra á leikvangi Madrid. Butrageno, sem skoraði Qög- ur mörk gegn Dönum í Mexíkó, átti sendinguna á Valdano og sex mínút- um síðar var hann enn á ferðinni og gaf á mexíkanska landsliðsmanninn Hugo Sanchez sem skoraði. Nú var komið að hinum smávaxna Butrageno að skora. Með mínútu millibili skoraði hann tvö mörk á glæsilegan hátt og feiknaleg gleði braust út í Madrid eft- ir leikinn. í liði Real Madrid er valinn maður í hverri stöðu og ekki er ólík- legt að það komi í hlut spánska liðsins og Juventus að leika úrslitaleikinn í Evrópukeppni meistaraliða þetta árið. -SK ÁRMÚLA 36, REYKJAVÍK, SÍMI 82166 OG 83830. Iþróttir „Gremjulegt að tapa leiknum“ - Saab tapaði naumlega fyrir Drott, 14-15 • Þorbergur Aðalsteinsson á fullri ferð. Lið hans er spáð falli úr Allsvenskan en I gærkvöldi sýndu lærlingar hans að of snemmt er að dæma þá I fall- sæti. ÍÞRÓTTABÚNINGAR ÆFINGAGALLAR TRIMMGALLAR HANDBOLTAR KÖRFUBOLTAR FÓTBOLTAR FÓTBOLTASKÓR ÍÞRÓTTASKÓR ÍÞRÓTTATÖSKUR MARGAR GERÐIR Gunnlaugur A. Jónsson, DV, Svíþjóð: „Við vorum betri aðilinn í þessum leik og það var mjög gremjulegt að tapa honum,“ sagði Þorbergur Aðal- steinsson, þjálfari og leikmaður sænska handknattleiksliðsins Saab, í samtali við DV í gærkvöldi. Keppnin í Allsvenskan í Svíþjóð hófet í gærkvöldi og þá lék Saab gegn Drott á heimavelli sínum og tapaði með aðeins eins marks mun, 14-15, eftir að staðan hafði verið 7-2 fyrir Saab í fyrri hálfleik. Fyrir leikhlé náði Drott síðan að skora fjögur mörk gegn engu og breyta stöðunni í 7-6. I síðari hálfleiknum komst Saab í 12-10 en tókst ekki að halda þeirri foiystu og leikurinn tapaðist í lokin. Þorbergur var í mjög strangri gæslu allan leikinn og skoraði eitt mark. „Þessi leikur hjá okkur lofar mjög góðu. Það hafa allir spáð okkur falli ih- deildinni en Drott meistaratitlinum. Ég er sérstaklega ánægður með mar- kvörsluna og vömina hjá okkur og það er greinilegt að þau lið sem heim- sækja okkur þurfa svo sannarlega að hafa fyrir hlutunum ef þau ætla að næla sér í tvö stig á heimavelli okk- ar,“ sagði Þorbergur. • Þrír aðrir leikir fóra fram í gær- kvöldi. Hellas sigraði GUIF, 21-19, Karlskrona tapaði á heimavelli fyrir Ystad, 19-20, og Kroppskultur og Warta gerðu jafntefli, 20 20. -SK Torino og Feyenoord komust áfram j ítalska liðið Torino tryggði sér þátttökurétt í 2. umferð UEFA- keppninnar í gærkvöldi þrátt fyrir 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Nantes frá Frakklandi. Torino vann fyrri leikinn 4-0 og saman- lagt 5-1. Hollenska liðið Feyenoord vann öruggan sigur í sömu keppni 'í gærkvöldi gegn Pecsi Munkas frá Ungverjalandi. Lokatölur 2-0. Ungverska liðið vann fyrri leikinn 1-0 og Fevenoord vann því saman- lagt 2-1 og er komið í 2. umferð. -SK Svo bregðast krosstré sem önnur tré - Maradona brást og Napolí tapaði Er ítalska skvísan í Napolí, sem lýsti Diego Maradona föður að nýfæddu bami sínu nýverið, að taka kappann á taugum? Hvort sem það er þessu fjöl- miðlaglaða fljóði að kenna eður ei þá misnotaði argentínski snillingurinn vítaspymu í gærkvöldi þegar lið hans, Napolí, var slegið út úr Evrópukeppni félagsliða af franska liðinu Toulouse. Og það á versta tíma. Franski landsliðsmaðurinn Yannick Stopyra skoraði fyrir Toulouse á 18. mínútu og þar með vora liðin jöfn, Napolí vann heimaleik sinn, 1-0. Ekk- ert var skorað í ffamlengingunni og vítaspymukeppni því óumflýjanleg. Þegar staðan var 4-3 fyrir Toulouse gekk Maradona að vítapunktinum til að framkvæma síðustu vítaspymu Napolí. Knötturinn fór framhjá mark- inu og Frakkamir fögnuðu áfram- haldandi vera sinni í keppninni en Maradona og félagar héldu til Ítalíu í gærkvöldi með sárt ennið. -SK • Diego Maradona. Er italska skvis- an að taka hann á taugum?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.