Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986. íþróttir Bayem Miinchen heldur sínu striki: Ekki tapað á heimavelli í Evrópukeppni frá byrjun Atli Hilmarsson, DV, Þýskalandi. „Ég var ánægður með fyrstu 20 mín- útur leiksins en eftir því sem leið á *leikinn gætti mikils taugaóstyrks hjá leikmönnum mínum. En það er gott að vera komnir í 2. umferð Evrópubik- arsins," sagði Udo Lattek, þjálfari Bayem Múnchen, eftir að Bayem og PSV Eindhoven gerðu jafntefli, 0-0, í Múnchen í gærkvöldi í slökum leik. 32 þúsund áhorfendur púuðu á leik- menn þegar þeir gengu af leikvelli í hálfleik. „Við töpuðum þessari viður- eign á heimavelli," sagði þjálfari PSV, Hans Kraay. Bayem sigraði, 2-0, í Hollandi og byijaði vel í gærkvöldi. Roland Wol- farth fékk þrjú góð færi snemma leiks en tókst ekki að skora. Átti m.a. skalla í stöng. PSV byggði leik sinn á skyndi- sóknum en belgíski landsliðsmark- vörðurinn, Jean-Marie Pfaff, varði mark Bayem mjög vel. Á 52. mín. fékk Bayem vítaspymu þegar markvörður PSA, Hans van Breukelen, felldi Wol- farth. Lothar Mattheus tók spymuna og skoraði en einn leikmaður Bayem var innan vítateigs. Spyman því end- urtekin en þá varði Breukelen. Heldur litlaus leikur í heild en Bayem heldur sínu striki. Hefur ekki tapað leik á heimavelli í Evrópumótunum frá byrj- un eða í 20 ár. Werder úr leik Werder Bremen féll hins vegar út þriðja árið í röð. Sigraði Atletico Madrid, 2-1, í UEFA-keppninni í gær á heimavelli en spánska liðið sigraði, 2-0, í fyrri leik liðanna. Bremen-liðið var ótrúlega óheppið í gær. Var miklu betra liðið en það var ekki fyrr en á 65. mín. að Frank Neubarth skoraði og það úr sínu sjötta opna færi í leikn- um. Norbert Meier skoraði annað markið á 83. mín. og þá var jafht, 2-2, en Meier skoraði beint úr aukaspymu. Nokkrum sekúndum fyrir leikslok komst Sauer í opið færi. Skallaði knöttinn í stöng og þar sluppu Spán- verjamir heldur betur. Þá var fram- lenging. Salinas skoraði fyrir Atletico á 113. mín. eftir skyndisókn og þetta nægði spánska liðinu. „Þetta hefði getað orðið stór stund fyrir okkur þvi leikurinn var sá besti hjá okkur á leiktímabilinu. En það var eins og við ættum ekki að komast áfram. Verst þó að tveir leikmenn Werder slösuðust illa,“ sagði Rehnag- el, þjálfari Werder, eftir leikinn. Bayer Leverkusen vann Kalmar, Svíþjóð, 3-0 í Leverkusen í gær. Sam- tals 7-1 og sænska liðið veitti litla mótspymu. 011 mörkin í gær voru skomð í síðari hálfleik. Drews, Rolff og Bum-Kun Cha skoruðu. Leikurinn var í UEFA-keppninni og í sömu keppni sló Borussia Mönchenglad- bach Partizan Belgrad út í gær. Sigraði 3-1 í Belgrad og 4-1 saman- lagt. Dressen, Brandts og Lienen. Áhorfendur vom 80 þúsund i Belgrad, 10 þúsund í Leverkusen og 30.800 í Bremen. -hsím • Belgiski landsliðsmarkvörðurinn Jean-Marie Pfaff átti snjallan leik í marki Bayern í gær. Á myndinni grípur hann knöttinn i fyrri leiknum við PSV í Eindhoven. Marka> hátíð í Brugge Það gekk mikið á í gærkvöldi i Bmgge er heimamenn tóku á móti Rapid Vín í Evrópukeppni bikarhafa. Bmgge stóð að vísu vel að vigi fyrir leikinn en liðið vann fyrri leik liðanna i Austiu-- ríki með fjórum mörkum gegn þremur. Brylle skoraði fyrsta mark leiksins í gærkvöldi á 41. mínútu og á 52. mínútu kom Rosenthal Bmgge í 2-0. Mínútu síðar skor- aði Krancjar fyrir Rapid Vín og fjórum mínútum síðar jafiiaði Weinhofer metin, 2-2. Á 81. mín- útu kom Halilovic Rapid Vín yfir, 2-3, en tveimur mínútum fyrir leikslok náði Van Wijk að jafha fyrir heimamenn. Bmgge vann því samanlagt 7-6. I Stórsigur hjá Gautaborg ISænska liðið Gautaborg vann mjög auðveldan 4-0 sigur á tékk- I neska liðinu Sigma Olomouc í * Svíþjóð í gærkvöldi í UEFA- I keppninni. Jafhtefli varð í fyrri | leik liðanna, 1-1, og Gautaborg Ivann því samanlagt 5-1. Johnny Ekström skoraði tvö af mörkum | sænska liðsins. | Gott hjá Dundee Utd. ISkoska liðið Dundee United vann góðan heimasigur í gær- I kvöldi gegn Lens frá Frakklandi ■ i UEFA-keppninni en Lens vann I fyrri leikinn 1-0 í Frakklandi. IDundee Utd. vann því 2-1 sam- anlagt og er komið í 2. umferð. . -SK I I I Jafnaði markaskor Laudrups Hollenski landsliðsmaðurinn og miðherji Ajax, Johnny Bos- man, jafnaði markamet Michael Laudrup í 1. umferð Evrópumót- anna þegar hann skoraði (jögur mörk fyrir Ajax í gærkvöld. Það var gegn tyrkneska liðinu Bursaspor í Evrópukeppni bikar- hafa í Amsterdam. Ajax sigraði, 5-0, og samanlagt, 7-0. I fyrri leiknum skoraði Bosman eitt mark og því fimm mörk samtals gegn tyrkneska liðinu eða eins og Laudrup gegn Valsmönnum. -hsím „Almenningur vanmetur albanska knattspymu" - Allt vitlaust í Barcelona eftir 0-0 jafntefli gegn Flamurtari Vlora „Fólkið vanmetur getu albanskra knattspymumanna. Við lékum illa en það sem skiptir höfuðmáli er að við erum komnir í 2. umferð og lið Barce- lona getur komist alla leið í úrslitin," *>agði Englendingurinn, Terry Vena- bles, þjálfari Barcelona, eftir að hið fræga spánska lið, Barcelona, hafði aðeins náð markalausu jafntefli gegn albanska liðinu Flamurtari Vlora í síðari leik liðanna í Evrópukeppni fé- lagsliða á Spáni í gærkvöldi. Jafntefli varð í fyrri leik liðanna í Albaníu, 1-1, og kemst Barcelona því í 2. um- ferð á skoruðu marki á útivelli. Tæpara gat það varla verið. Þeir 17 þúsund áhorfendur sem fylgdust með leiknum létu óspart í sér heyra og svo var komið um tíma að þeir heimtuðu að forseti félagsins yrði settur af. Þá gáfu þeir óspart í skyn þá skoðun sína að þeir vildu fá Bemd Schuster í lið Barcelona. Það verður að teljast furðulegt að Venables skuli ekki nota Schuster. Hann vermir varamannabekkinn leik eftir leik og í gærkvöldi sannaðist það enn einu sinni að án hans getur liðið ekki ver- ið. Gífúrleg pressa er nú á Terry Venables þjálfara og einnig þeim Mark, Hughes og Gary Lineker sem fengu mörg góð marktækifæri í leikn- um í gærkvöldi en inn vildi tuðran ekki. Þeir félagar verða að fara að sýna það að þeir séu allra þeirra millj- óna virði sem Barcelona keypti þá á frá Everton og Manchester United. I gær virtist Terry Venables vera eini maðurinn í Barcelona sem var á þeirri skoðun að öllum milljónunum hefði verið vel varið. -SK • Mark Hughes og Gary Lineker fengu mörg marktækifæri í Barcelona i gærkvöldi en þau fóru öll forgörðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.