Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986. Unglingar á Akureyri: Drepa endumar með túttubyssum ]C3i DV, Akuieyri 10 MILLJÓNIR - HA! ÉG? ÞVÍ EKKI ÞAÐ? Hvað mynduð þið gera við 10 milljónir? Fjórir einstaklingar svara því í VIKUNNI. Unglingar á Akureyri hafa drepið tvær endur á andapollinum fyrir neð- an sundlaugina á Akureyri með skömmu millibili með því að skjóta þær í hausinn með svonefndum túttu-. byssum. „Fyrir nokkrum dögum var önd drepin hér á pollinum með túttubyssu. Hún var skotin í hausinn og drapst samstundis," sagði Þorsteinn Þor- steinsson, sundlaugarvörður á Akur- eyri og formaður umhverfismála- nefiidar Akureyrar. „Öndin, sem fannst í fyrradag, var skotin í hausinn þannig að goggurinn rifhaði. Öndin gat ekkert étið og vesl- ' aðist því upp og drapst að lokurn." „Það er komið inn til okkar í sirnd- laugina annað slagið og okkur sagt frá krökkum við andapollinn með túttubýssur, “ sagði Þorsteinn Þor- steinsson. Grenlækur þykir góður og þar veið- ist mikið a( sjóbirtingi og bleikju, hvort sem menn veiða á maðk eða flugu. DV-mynd G. Bender Af sjóbirtingunum: 18 punda í Eldvatni Tíminn sem núna gengur i garð fyr- ir veiðimenn er glíman við sjóbirting- inn og veiða menn hann í Rangánum, Grenlæk, Tungufljóti, Eldvatni, Geir- landsá, Hörgsá, Fossálum og Laxá fyrir austan, svo nokkrar veiðiár séu nefhdar. Lítið hefur sést til sjóbirtings- ins ennþá en hann kemur vonandi næstu daga. Eldvatnið hefur gefið 12 láxa og um 100 silunga og er sá stærsti 18 pund, hinn fallegasti fiskur, en veiðin hefur verið treg í Eldvatninu ennþá. Við fréttum af veiðimanni sem renndi fyrir fisk í Grenlæk nýlega og veiddi töluvert af bleikju, taldi hann vera mikið af fiski í læknum þar sem hann veiddi. Geirlandsá hefur gefið 25 laxa og er sá stærsti 17 punda, 20 sjóbirtingar hafa veiðst og um 100 bleikjur. Lítið hefur sést af sjóbirtingi í Geirlandsá. Vatnamótin hafa gefið um 140 sil- unga og þar er veiðin aðeins farin að glæðast síðustu daga og er sá stærsti sem komið hefur á land 10 punda. Síð- ustu daga hefur verið góð veiði í Vatnamótunum og sjóbirtingurinn að koma. Fyrir neðan Vatnamótin er veiði- svæði sem kallað er Magabótaálar og hafa veiðst þar um 460 silungar, sem þykir gott. Einkennilegt nafn á veiði- svæði? Fossálar hafa gefið eitthvað af sil- ungi og 3 laxa. Tungufljótið hefur ekki gefið mikið af silungi en laxveiðin hefur verið þokkaleg. G. Bender. VIKAN ER BLAÐIÐ NÝ OG FERSK VIKA - VIKULEGA í VIKUVIÐTALINU ræðir Ásgeir Tómasson við hljómlistarmanninn, útvarpsmanninn og rannsóknarlögreglumanninn BERTRAM MÖLLER. Átta til fjögur löggan BERTI MÖLLER hefur frá mörgu aö segja. „Ég hef aldrei séö fööur minn, ég veit aö hann er á lífi. Búiö,“ segir Berti. Nafn Vikunnar: Sigurbjörg Guð- jónsdóttirfor- Skipst á skoöunum um fiskeldi. Er fiskeldi bara ein dellan enn? Er of geyst farið í fjárfestingum? Er nauðsynleg þekking fyrir hendi hér? Verður fjármagnsskortur til þess að útlendingar fai hér of mikil ítök? Er fiskeldi eins arðvæn- legt og af er látið? Menn skiptast á skoðunum um FISKELDI í VIKUNNI. Botn andapollsins hreinsaður en þar hafa tvaer endur verið drepnar af unglingum undanfarið með túttubyssum. DV-mynd JGH Kynning á fjórum HOLLYWOODSTIRNUM. Greifinn og söngvarinn Felix Bergsson, sem hef- ur verið viðloðandi leik- svið frá ellefu ára aldri, segir í VIKUNNI: „Ef þú hugsar ekki stórt verður þú aldrei neitt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.