Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Page 40
40
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986.
Dægradvöl
Skrautritunin verið vinsæl frá
upphafi í Tómstundaskólanum
Ásdís ieiðbeinir einum nemanda á námskeiðinu.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Urðum að hafa nám-
skeiðið þrískipt"
- segir Ásdís Jóelsdóttir, kennari hjá Tomstundaskólanum
„Þetta er í fyrsta skipti sem boðið
er upp á námskeið af þessu tagi hjá
Tómstundaskólanum og varð aðsókn-
in það mikil að við urðum að hafa
námskeiðið þriskipt til að allar kæ-
must að sem skráðu sig,“ sagði Ásdís
Jóelsdóttir, kennari á námskeiðinu
Að hanna og sauma eigin föt, hjá
Tómstundaskólanum.
Námskeiðið stendur í 5 vikur og er
ætlunin að þátttakendur saumi að
minnsta kosti eina flík á þeim tíma.
„Ég hyggi á svokölluðum grunnsnið-
um sem á síðan að vera hægt að nota
til að hanna eigin föt. Þær geta líka
komið með snið og unnið úr þeim út
frá grunnsniðunum. Þær koma til með
að læra að taka upp snið, taka mál
og fleira. Ég reyni síðan að leiðbeina
þeim um hönnun á eigin fötum og
hjálpa þeim að skapa sinn eigin stíl
ef þær vilja,“ sagði Ásdís. SJ
„Þið eruð með kertastjaka með 5 örrrrtim og eigið að slökkva á kertunum með þvi að blása jafnt á öll kert-
in,“ sagði Kristín Ólafsdóttir við nemendur sína á ræðumennsku- og framsagnarnámskeiðinu í Tómstunda-
skólanum. Til þess að gera það varð vitanlega aö fylla lungun lofti og stjórna önduninni. Síðan stækkaði
kertastjakinn allt upp i ellefu arma og þá vandaðist nú málið, en eins og sjá má lögðu nemendurnir sig alla
fram og slökktu á „öllum kertunum" með glans. DV-mynd Brynjar Gauti
ÆUar að sauma jakkaföt
Hólmfríður Gísladóttir vinnur á
skrifstofú en stundar nám í Tóm-
stundaskólanum eftir vinnu einu sinni
í viku. Þar tekur hún þátt í námskeið-
Taldi ræðumennskuna
inu Að hanna og sauma eigin föt og
segist ætla að sauma sér jakkaföt und-
ir umsjón Ásdísar.
„Ég hef saumað svolítið sjálf en það
má alltaf bæta við sig, mig vantar t.d.
kunnáttu í því að hanna föt og breyta.
Ég hef áður farið á saumanámskeið
en ekki hér hjá Tómstundaskólanum,
mér líst mjög vel á þetta námskeið og
ætla að byija á jakkafötunum strax,“
sagði Hólmfiíður.
Hún sagði að þar sem hún væri
meðlimur í VR þá kostaði námskeiðið
hana ekki nema 1.200 krónur en ann-
ars kostaði það rúmlega þrjú þúsund
krónur. SJ
„Ég valdi ræðunámskeiðið einfald-
lega vegna þess að ég taldi þetta vera
mest spennandi námskeiðið sem boðið
er upp á hjá Tómstundaskólanum
núna. Nú, svo fór ég líka á þetta nám-
skeið til að geta talað yfir fólki,“ sagði
Ólafur Reynisson brunavörður, en
hann er einn af þátttakendunum í
námskeiðinu Ræðumennska og fram-
sögn sem Kristín Ólafsdóttir og
ggvi Þór Aðalsteinsson kenna.
lafur er ekki óvanur að koma fram
því hann hefúr farið á leiklistamá-
mskeið og leikið með Stúdentaleik-
húsinu. Hann sagðist ekki hafa gert
mikið af því að tala yfir fólki og gerði
svo sem ekki ráð fyrir að hann tæki
upp á þvi þó hann færi á námskeið sem
þetta. „Aðalatriðið er að hafa gaman
af þessu og það er gott að vita hvem-
ig maður á að bera sig að ef maður
vill segja eitthvað við hóp af fólki,“
sagði Ólafur. Og hvað hefúr þú svo
lært hér í upphafi námskeiðs? „Aðal-
lega að geifla andlitið og að anda rétt
sem ég held að sé mjög mikilvægt,"
sagði Ólafúr og sté í ræðustól fyrir
okkur, svona rétt til að sýna hvemig
maður á að bera sig að í ræðustól.
SJ
Á haustdögum fara margir að
hugsa fyrir tómstundástarfi fyrir
veturinn, það er ýmislegt hægt að
gera og svo virðist sem alls kyns
námskeið séu stöðugt að verða vin-
sælli. Starfandi eru fjölmargir
málaskólar, boðið er upp á líkams-
ræktamámskeið fyrir fólk á öllum
aldri og svo mætti lengi telja. Hjá
Tómstundaskólanum er boðið upp á
u.þ.b. 50 námskeið og munu 40 þeirra
fara i gang nú í haust. Meðal nám-
skeiða í skólanum má t.d. nefna
Fatasaum fyrir byijendur, Ræðu-
mennsku og framsögn, Undirbúning
fyrir myndlistamám, Samskipta-
erfiðleika á vinnustað, Ávöxtun
eigin fjár og Skrautritun.
Að sögn Ingibjargar Guðmunds-
dóttur, skólastjóra Tómstundaskól-
ans, hefur síðasttalda námskeiðið
verið einna vinsælast hjá skólanum
og sagðist hún ekki hafa neina hald-
bæra skýringu á því, nema þá helst
að fólk hafi einfaldlega áhuga á því
að skrifa vel. „Annars breytist vin-
sældalistinn frá ári til árs og núna
er námskeiðið Stjómun og gerð út-
varpsþátta mjög vinsælt," sagði hún.
Við spurðum Ingibjörgu hvert
markmið skólans væri. „Markmið
skólans er að bjóða upp á fjölbreytt
tómstundanám til að fólk geti bætt
við þekkingu sína sér til ánægju, sú
þekking getur síðan bæði komið til
góða í starfi og heimafyrir. Við erum
bæði með hreint tómstundanám, eins
og t.d. Leiklist og námskeið um það
hvemig eigi að lesa í Tarrot-spil og
svo bjóðum við líka upp á starfe-
tengd námskeið eins og Uppstilling-
ar í verslunum og Skrifstofustörf.
Og hverjir sækja námskeiðin hjá
ykkur? Hingað kemur fólk á öllum
aldri, en flestir eru líklega á aldrin-
um 20-40 ára og eru heldur fleiri
konur í nemendahópnum en karlar.
Elsti nemandinn hjá okkur var um
sjötugt og sá yngsti 14 ára. Við setj-
um ekki aldurstakmörk upp á við,
en miðum við að taka yngst 16-17
ára. Kennslan fer fram á tíma sem
hentar vinnandi fólki og hefet hún
klukkan 18 og lýkur venjulega um
inga, en í sumar keypti Menningar-
og fræðslusamband alþýðu skólann
og rekur hann sem sjálfetætt fyrir-
tæki. Síðastliðið vor voru um 400
manns sem tóku þátt í námskeiðum
Tómstundaskólans og sagði Ingi-
björg aó qommn væri svipaður núna
og líklega væru ívið fleiri en sl. vor.
Nemendur skólans þurfa að greiða
þátttökugjald sem er á bilinu 2000-
6.400 krónur. Þetta er eingöngu
kennslugjald og geta nemendur
þurft að leggja út fyrir efniskostnaði
í námskeiðunum. Námskeiðin í skól-
anum geta staðið í allt að tíu vikur
og er þá venjulega eitt skipti í viku,
en einnig er boðið upp á helgamám-
skeið.
Það eru engin inntökuskilyrði í
Tómstundaskólann og þar eru ekki
tekin nein próf en nemendur fá við-
urkenningarskjöl fyrir þátttöku í
námskeiðum skólans. Kennslan í
Reykjavík fer í vetur fram í Iðnskól-
anum. En Tómstundaskólinn verður
einnig starfræktur á Akureyri í vet-
ur. SJ
mest spennandi
Ólafur Reynisson sýnir tilþrif í ræðu-
stól. DV-mynd Brynjar Gauti
klukkan tíu á kvöldin, svo kennum Tómstundaskólinn hefur verið
við einnig á laugardögum," sagði starfræktur í eitt og hálft ár og var
Ingibjörg. í upphafi í eigu nokkurra einstakl-
Hólmfriður að undirbúa jakkafatasauminn.
í ■
DV-mynd Brynjar Gauti
Ingibjörg Guðmundsdóttir, skólastjóri Tómstundaskólans.
VOMCtUHDi
SKOLWN