Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Side 48
FRETTASKOTIÐ
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
H áfir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.500 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið i
hverri viku greiðast 4.500
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Marilyn og Halldór
Ekki er annað að sjá en vel fari á með Halldóri E. Sigurðssyni og Marilyn
Monroe. Marilyn er að vísu ekki alveg ekta heldur eftirherma sem skemmt
hefur hér á landi að undanförnu. Myndin var tekin á herrakvöldi hand-
knattleiksdeildar KR. Halldór var ræðumaður kvöldsins.
Margir voru á sumardekkjum þegar
fyrsta hálkan kom i morgun.
DV-mynd S
Fjöldi árekstra í
fljúgandi hálku
Fjöldi árekstra var í hálkunni í
■ ^Reykjavík í morgun. Sem dæmi um
fjöldann má nefna að á 40 minútna
tímabili upp úr kl. 8 i morgun var til-
kynnt um 13 árekstra til lögreglunnar
og eitt umferðarslys, á mótum Réttar-
holtsvegar og Sogavegar. Úr því var
einn fluttur á slysadeild. Flestir
árekstranna voru minni háttar en í
nokkrum tilfellanna þurfti kranabíl til
að koma skemmdum bílum af vett-
vangi.
Lögreglan í Reykjavík vill vara öku-
menn við hinni fljúgandi hálku sem
■ JBHi'x er í borginni í framhaldi af fyrstu
snjókomunni á þessum vetri.
A Akureyri er sömu sögu að segja.
Þar var mikil hálka strax í gærkvöldi
og tilkynnt um 7 árekstra. -FRI
Mikið smygl í Hofs-
jökli og Fjaltfossi
Tollverðir hafa fundið mikið smygl
um borð í skipunum Hofsjökli og
Fjallfossi sem komu til landsins um
síðustu helgi, Fjallfoss til Vestmanna-
eyja og Hofejökull til Hafnarfjarðar.
Um borð í Fjallfossi fundúst 158
kassar af bjór, 355 kg af skinku, 8
myndbandstæki auk 3 plötuspilara,
siónvarps og útvarpstækja. Var verð-
ffæti vamingsins metið á 800 þúsund
krónur. Um borð í Hofsjökli var lagt
hald á áfengi í plastbrúsum sem sam-
svarar tæplega 600 fiöskum auk 12
talstöðva. Verðmæti þess vamings er
talið nema 550 þúsund krónum. -FRI
1—” 1
Jllii;n — w œsa&k. SSShbSk k
TRÉ :.w
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF.,
IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK.
SÍMAR: 92-4700-92-3320.
LOKI
Gullæðið er hafið!
FIMMTUDAGUR 2. &KTÓBER 1986.
Fjöikippur á leigumarkaðnum vegna leiðtogafundarins:
Bjóða um 80 þúsund
fyrir einbýlishús
Mikill fjörkippur hefúr orðið á
leigumarkaðnum í Reykjavík vegna
leiðtogafundarins í næstu viku. DV
hefúr heimildir fyrir því að hátt í
2.000 dollarar eða nálægt 80 þúsund
íslenskar krónur hafi verið boðnir á
sólarhring fyrir einbýlishús í hjarta
'borg;unnnar.
Einnig hefúr DV heimildir fyrir
ýmsum tilboðum sem komið hafa í
herbergi og íbúðir í borginni. Her-
bergi hafa verið leigð á 35 dollara
og upp í 150 á sólarhring, sem eru
frá 1.400 krónum íslenskum upp í
6.000. íbúðir hafa verið leigðar á 500
dollara upp í 1.000 á sólarhring, sem
þýðir frá 20.000 og upp í 40.000 íslen-
skar krónur.
Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri
sagði í samtali við DV að sennilega
myndu hótelin hækka sitt verð
vegna fundarins. Flest þeirra lækk-
uðu verð sitt í haust niður í svokall-
að vetrarverð, sem er talsvert lægra
en sumarverðið. Sagði Birgir að
hækkunin hjá hótelunum yrði
sennilega um 10 til 15% frá sumar-
verðinu en það er það verð sem
ákveðið hefúr verið fyrir næsta sum-
ar. Miðað við vetrarverðið verður
því hækkunin um 25%. Nú er meðal-
hótelverð í Reykjavík frá 60 dollu-
rum upp í 160 á sólarhring sem er á
bilinu 2.400 til 6.400 í íslenskum
krónum. Hækkunin er þvi frá 600
krónum upp í tæpar 1.400. -KÞ
Landsnefnd BJ í gærkvöldi:
4
Bjóðum fram 4
Landsnefnd Bandalags jafnaðar-
manna kom saman til fúndar í
gærkvöldi þar sem samþykkt var yfir-
lýsing „í tilefni þess að 3 þingmenn
Bandalags jafriaðarmanna telja sig
eiga betri möguleika innan Alþýðu-
flokksins og hafa látið líta svo út að
Bandalag jafnaðarmanna hafi verið
lagt niður,“ eins og segir í upphafi
yfirlýsingarinnar.
Síðan er tekið fram í yfirlýsingunni
að BJ hafi ekki verið lagt niður, að
haldinn verði landsfundur, að starf-
andi sé fólk innan BJ að stefhumálum
þess, að BJ muni bjóða fram til Al-
þingis og að Bandalagið muni sækja
styrk sinn til almennings.
Að sögn Þorsteins Hákonarsonar,
varaformanns landsnefndar BJ, mættu
átta af fimmtán úr landsnefndinni sem
höfðu áhuga á þessu máli en fundurinn
var boðaður símleiðis i gær. Haft var
samband við Kristínu Kvaran, þing-
mann BJ, en hún kom ekki á fundinn.
„Ég hef trú á því að Bandalag jafiiað-
armanna verði nær því sem það var
áður eftir þetta upphlaup. Það var
Guðmundur Einarsson sem vildi for-
mannsskipulagið og þangað sótti hann
vald. Ég hef trú á að fólkið í BJ vilji
gamla skipulagið aftur,“ sagði Þor-
steinn Hákonarson. -SJ
„Öllum flugmönnum hefúr verið
greitt. Við höfum staðið við samkomu-
lagið í einu og öllu. Við flugvirkja er
enginn ágreiningur lengur," .sagði
Agnar Friðriksson, framkvæmdastjóri
Amarflugs, í morgun.
Lýsti hann fúrðu sinni yfir því að
félagið hefði fengið „viðbótarfrest" í
gegnum sjónvarp í gærkvöldi. Skelfi-
legt væri að hugsa til þess að sjón-
varpið hefði dengt þessu yfir þjóðina
án þess að hafa samband við annan
aðilann. „Ég fagna því að hægt sé að
slökkva á þessu sjónvarpi og horfa á
aðrar fréttir," sagði Agnar.
Skúli Guðjónsson, formaður Félags
íslenskra atvinnuflugmanna, sagði
morgun að ekki hefði verið gert upp
við alla í gær, aðeins minnihlutann.
Blekið hefði vart verið þomað af sam-
komulaginu frá í fyrradag þegar það
hefði verið brotið.
„Ef þetta verður klárt í dag munum I
við standa við okkar hlut,“ sagði
Skúli.
-KMU
Veðrið á morgun:
Léttskýjað
víða um
land og katt
íveðri
Hæg breytileg átt eða norðve-
stangola og léttskýað víða um land
og kalt í veðri. Hiti verður á bilinu
-2-6 stig.
Sjómenn
samþykkja
4
Stýrimenn, vélstjórar, brytar, loft-
skeytamenn og félagsmenn í Öldunni
samþykktu í gær nýjan kjarasamning
með 29 atkvæðum gegn 6. Tveir sátu
hjá.
Þessar stéttir felldu ASf-VSÍ sam-
komulagið naumlega í vor. Samning-
urinn nú er eins nema hann tekur gildi
mánuði fyrr, frá 1. febrúar síðastliðn-
um, auk viðbótarákvæða um orlof og
líftryggingu.
Á félagsfundi í gær vom skiptar
skoðanir um hvort greiða ætti at-
kvæði þar enda stærstur hluti félags-
manna á sjó. Mikill meirihluti
fundarmanna vildi þó afgreiða sam-
komulagið á staðnum. -KMU