Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1986, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1986. Stjómmál Sigtúnshópurinn fái endurgreftt „Alþingi ályktar að nauðsyn beri til að jafna húsnæðiskostnað milli mis- munandi hópa í þjóðfélaginu með því að létta skuldabyrði þeirra sem harð- ast hafa orðið úti vegna íbúðaröflunar á síðastliðnum árum.“ Þannig hljóðar upphaf þingsálykt- unartillögu þingmanna Alþýðuflokks- ins, með Kjartan Jóhannsson sem fyrsta flutningsmann, um jöfnun hús- næðiskostnaðar. Alþýðuflokksmenn vilja fela félags- málaráðherra að tilnefna fímm menn í nefnd til þess að setja reglur um endurgreiðslu á hluta af kostnaði við öflun íbúðarhúsnæðis. Endurgreiðslan skuli vera til þeirra sem keyptu eða byggðu íbúð á árunum 1986-85 og urðu fyrir mikilli hækkun skulda af íbúðaröfluninni vegna ytri aðstæðna. Er þetta sá hópur sem oft hefúr verið nefndur Sigtúnshópurinn. „Flutningsmönnum er ljóst að hér er um vandasamt og flókið mál að ræða þannig að það þarfnast sérstaks undirbúnings." Vilja þeir að miðað verði við að helmingur af skuldaaukningu við- komandi aðila umfram almenna hækkun kaupgjalds verði endur- greiddur. Gert er ráð fyrir þaki á endurgreiðslunni sem svari til skuldar að upphæð 2,5 milljónir ki'óna. -KMU Hvað vinnur gegn konum? Þau Hjörleifur Guttormsson og Guðrún Helgadóttir, Alþýðubanda- lagi, hafa lagt fram þingsályktunar- tillögu um úttekt á mismunun gagnvart konum hérlendis. Telja þau eðlilegt að félagsmálaráðuneytið og Jafnréttisráð hafi forystu um úttekt- ina. Flutningsmenn segja tillöguna í framhaldi af fullgildingu Alþingis á alþjóðasamningi um afnám allrar mis- mununar gagnvart konum. Með til- lögunni fylgja tíu skýrslur um stöðu íslenskra kvenna. Lagt er til að kannað verði meðal annars hvort og þá hvað það sé í starfi skóla og annarra uppeldisstofnana, svo og fjölmiðla, sem einkum vinni gegn jafnri stöðu kvenna og karla, hvað einkum torveldi konum að ná jafnræði á vinnumarkaði, hvað valdi því að svokölluð kvennastörf séu ekki metin með eðlilegum hætti til launa og hvaða breytingar á lögum og regl- um þurfi að gera til að afnema mismunun gagnvart konum. -KMU Þingmenn hafa áhyggjur af kjamorkuveri í Skotlandi Okkur Islendingum, sérstaklega fiskistofnum okkar, stafar bein hætta af kjamorkuverinu í Dounreay nyrst í Skotlandi. Það hefur alla eiginleika til þess að verða annað Tjemóbýl. Þetta sagði Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir, Kvennalista, er hún spurði utanríkisráðherra á Alþingi í gær um fyrirhugaða sextánfalda stækkun þessa kjamorkuvers. Upp- lýsti hún að á átta ára tímabili hefðu orðið 1.262 slys í því. Sigríður Dúna spurði hvort ráð- herrann hefði látið kanna hvaða áhrif stækkun kjamorkuversins gæti haft á Norður-Atlantshafið og þá sérstaklega með hliðsjón af losun geislavirkra úr- gangsefna í hafið. Hún spurði enn- fremur hvort ráðherrann hefði gripið til einhverra aðgerða í þessu máli. Matthías Á. Mathiesen utanríkis- ráðherra sagði að hann hefði, eftir að hann frétti af fyrirspuminni, leitað umsagnar Hafrannsóknastofnunar, Siglingamálastofnunar, Geislavama ríkisins og kjamorkusérfræðings. Þær umsagnir hefðu ekki borist ennþá. Þegar þær bærust. myndi hann kynna þær á Alþingi. Guðmundur J. Guðmundsson, Al- þýðubandalagr, sagði sjómenn í Færeyjum, Danmörku og Bretlandi hafa mótmælt starfsemi kjamorku- versins í Skotlandi. Hefðu sjómennim- ir notað sterk orð um hættuna sem fiskistofnum stafaði af því. Páll Pétursson, Framsóknarflokki, hvatti utanríkisráðherra til að fylgjast með þessu máli. Þetta væri mjög al- varlegt mál. Alexander Stefánsson félagsmála- ráðherra og Guðrún Helgadóttir, Alþýðubandalagi, tóku einnig til máls. Sögðu þau frá umræðum og áhyggjum stjómmálamanna á öðrum Norðurl- öndum vegna kjamorkuversins í Skotlandi. -KMU Framsóknarmenn státa nú at þvi að hata tvær konur í þingflokki sínum, þær Magðalenu Sigurðardóttur, ísafirði, og Guðrúnu Tryggvadóttur, Egilsstöð- um. Magðalena tók sæti Steingríms Hermannssonar eftir að Magnús Reynir Guðmundsson hafði afþakkað það. Guðrún situr fyrir Halldór Ásgrimsson. DV-mynd GVA í dag mælir Dagfari Það þurfti að fletta fimmtíu og tveim síðum í Morgunblaðinu í gær til að finna fréttir af úrslitum próf- kjörsins hjá Sjálfstæðisflokknum. Öðruvisi mér áður brá þegar það þótti útsíðuefni hjá blaði allra lands- manna og blaði allra sjálfstæðis- manna hverjir vom efstir í próíkosningum. Blaðið.hefur nefni- lega haldið vemdarhendi sinni yfir þessum gamla, góða flokki og átt sinn þátt í því hverjir komast til frama innan hans. Nú er líkast því að Morgunblaðið hafi fengið taugaáfall þegar kosningatölumar birtust, nema ástæðan sé sú að blað- allra landsmanna sé hætt að hafa áhuga á Sjálfstæðisflokknum. Vonandi er svo ekki enda er Dag- fari þeirrar skoðunar að Morgun- blaðið hafi miklu meira vit á Sjálfstæðisflokknum en Sjálfstæðis- flokkurinn sjálfur, hvað þá fólkið sem í honum er. Dagfari hefur alltaf tekið mark á öllu því sem stendur í blaðinu um Sjálfstæðisflokkinn, enda er þetta traust og áreiðanlegt blað sem studdi Geir og var á móti Gunnari og vitnár í látna leiðtoga þegar mikið liggur við. Dagfara stóð þess vegna alls ekki á sama um taugaáfallið og leitaði betur í blað- inu að einhverjum skýringum. inni að flestir sætta sig við úrslit sem talin eru upp úr kössunum. Þeir sem em efstir em efstir vegna þess að þeir hafa mest traust - en ekki hjá Mogga. Hann telur að efeti maður- inn verði fyrir pólitísku áfalli af því að verða efetur og næstefeti maður- inn sýni veikleika með því að verða Taugaáfall Moggans Þegar betur var að gáð hafði rit- stjómin ekki látið kosningamar algjörlega fram hjá sér fara og í leið- aranum komu skýringamar fram. Þar má finna skýringuna á þung- lyndinu. í leiðaranum er farið mörgum orðum um Albert Guð- mundsson sem varð efstur í kosning- unni. Blaðið telur Albert hafa unnið vamaisigur en úrslitin hljóti þó að vera pólitískt áfall fyrir Albert vegna atkvæðamagnsins sem hann fær eða, réttara sagt, fær ekki. Niðurstaðan er sú að Albert verði í hreinustu vandræðum með að leiða flokkinn í næstu kosningum og vígstaðan verði erfið í höfuðborginni af þeim sökum. Þá hefur blaðið þungar áhyggjur af útkomu varaformannsins, Frið- riks Sophussonar, segir að hanri Lafi hvorki hlotið fyrsta sætið né verið hæstur í alkvæðamagni og kveður þetta veikleika sem sé um- hugsunarefni fyrir forystu flokksins. I heild er niðurstaða Morgunblaðs- ins sú að úrslitin skaði þá sóknar- stöðu sem vænst hafi verið í Reykjavík, einkum vegna sviptibylja sem búast megi við á tindinum. Allt em þetta athyglisverðar um- sagnir um Sjálfetæðisflokkinn og frambjóðendur hans og sanna enn einu sinni þá miklu umhyggju sem blaðið ber fyrir velferð þessa flokks síns. Fimmtán manns gefa kost á sér, nær sjö þúsund flokksmenn greiða atkvæði og tveir menn verða efetir, samkvæmt þeim reglum sem flokkurinn hefur ákveðið. Albert og Friðrik ná tveim efstu sætunum. Venjulegast er það þannig í pólitík- næstefstur. Úr því Morgunblaðið segir þetta hlýtur það að vera alveg rétt. Þetta vom mistök hjá þeim Albert og Frið- riki að verða efetir. Þeir hefðu átt að sækjast eftir sætum neðar á list- anum. Þá hefði Morgunblaðið orðið ánægt, flokkurinn betri og sóknar- staðan allt önnur. Sömuleiðis eru þetta hrein mistök hjá kjósendunum að kjósa þá menn sem þeir vildu helst í efetu sætin. Miklu skynsam- legra hefði verið að kjósa aðra menn í efstu sætin, til að mynda Eyjólf eða Guðmund Garðarsson sem báðir eru verðugir fulltrúar nýrrar kynslóðar í flokknum. Albert og Friðrik gera rangt gagnvart kjósendum, flokkn- um og blaðinu með því að vera að taka sæti frá öðm fólki og sýna á sér þá veikleika að verða efetir. í sannleika sagt finnst Dagfara nauðsynlegt og réttast að íhaldið felli niður þessi déskotans prófkjör sem sífellt em að pródúsera rangar niðurstöður. Það er misskilningur að vera að láta fólk vera að velja menn í efetu sæti þegar Morgun- blaðið veit miklu betur hvemig þetta á að vera. Hvers vegna ekki að láta Morgunblaðið stilla upp listanum hjá flokknum? Það veit þetta hvort sem er best allra. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.