Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1986, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1986, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1986. 23 Erlendir fréttaritarar Schliiter vill auka sparifé ogminnka neyslu Naumur þingmeirihluti fyrir umdeildum efnahagsráðstöfunum dönsku stjómarínnar Poul Schliiter, forsætisráðherra Danmerkur, var ánægður með árangur ríkisstjómar sinnar í opnunarræðu sinni á danska þinginu fyrir skömmu. Frá þvi rikisstjómin tók við völdum i september 1982 hefur framleiðslan aukist um tíu prósent miðað við fast verðlag og sköpuð hafa verið tvö hundmð og tiu þúsund ný atvinnutækifæri, flest í einkageiranum. Haukur Iárus Haukssan, DV, Kanpmhöfh: Danska þingið hóf störf sín þann sjöunda október síðastliðinn. I opn- unarræðu sinni fjallaði Poul Schliiter forsætisráðherra um ár- angur ríkisstjómarinnar frá því hún tók við stjómartaumunum í sept- ember 1982. Á þeim tíma hefur framleiðslan aukist um tíu prósent miðað við fast verðlag, um tvö hundmð og tíu þús- und manns hafa fengið nýja vinnu, mestmegnis í einkageira atvinnulífs- ins. Danir geta nú sýnt fram á fleiri ný atvinnutækifæri en nokkurt ann- að vestrænt ríki. Auk þess hafa þeir náð hagnaði á fjárlöguni ríkisins en því var ekki spáð í þjóðhagsspám fyrir það ár sem nú er að líða. Stjómartið Schluters hefur þó ekki verið eintómur dans á rósum. Halli á greiðslujöfhuði Dana við útlönd mun að öllum líkindum fara vel yfir þrjátíu milljarða danskra króna í ár en í fyrra nam hallinn um 26 millj- örðum. Þannig nemur skuld Dana við útlönd nú um 243 milljörðum danskra króna. Schlúter segir greiðsluhallann vera síðasta stóra efriahagsvanda Dana í dag og eigi stjóm jafhaðar- manna þar einnig stóran hlut að máli þar sem enn sé verið að greiða vexti og vaxtavexti af erlendum lán- um frá því fyrir 1982. Þó sé ekki hægt að líta fram hjá þvi að greiðsluhallinn sé langt um- fram það sem æskilegt má teljast. Segja hagfræðingar stjóm síðustu tveggja ára vera ábyrga fyrir fjórð- ungi skuldarinnar við útlönd. Það þótti einkennandi fyrir opn- unarræðu forsætisráðherrans í ár að hann leit meira til baka en áður. Þótti djörfung og áræðni hans á síð- ustu árum vanta. Hann þótti nánast auðmjúkur í bjartsýni sinni er hefur einkennt framsögn hans undanfarin ár. Átti hann ennfremur í erfiðleikum með að skýra greiðsluhallann á viðeig- andi máta eða koma með tillögur til úrbóta. Kartöflukúrinn Það sem vakti mesta athygli í ræðu forsætisráðherrans vom efnahags- ráðstafanir ríkisstjómarinnar er nefndar hafa verið kartöflukúrinn. Þær vom samþykktar síðastliðinn fostudag með tveggja atkvæða meirihluta í þinginu. Munaði þar mestu um fylgi Róttæka vinstri- flokksins við atkvæðagreiðsluna, en sá flokkur hefur oftar en einu sinni bjargað ríkisstjóminni i mikilvæg- um málum. Kartöflukúrinn gengur í stórum dráttum út á það að auka sparifjár- söfnun almennings og minnka neysluna. Spanfjársöfnun Dana hef- ur lengi verið sú lægsta í Evrópu og hefur Schlúter nú í hyggju að auka hana með álögum á neyslulán almennings. Meðal helstu mála- flokka kartöflukúrsins svokallaða er 20 prósent gjald á vaxtagreiðslur er þýðir um fjögur prósent hækkun útlánsvaxta. Undanþegin þessum gjöldum em námslán og byggingar- og atvinnulán. Gjöld af vöxtum ársins 1987 greið- ast í einu lagi 1988. Stimpilgjöld á fasteignaskulda- bréfum hækka um eitt og hálft til fjögur prósent, gjald á afborganir til dæmis vegna heimilistækjakaupa og bílakaupa hækkar tilsvarandi, auk þess sem fjögur prósent gjald er lagt á notkun allra greiðslukorta, þó ekki hinna erlendu. Við kaup, er nema yfir tvö þúsund dönskum krónum með afborgunum, er krafist þrjátíu prósenta í útborgun og lánstimi má ekki vera lengri en þrjú ár. Töluverð umræða hefúr verið um erfiðleikana við að aðgreina neyslu- lán frá atvinnulánum í mörgum tilvikum og mun það krejfast aukins mannafla og útgjalda á skattstofu landsins. Þykja aðgerðimar bitna helst á yngra fólki með jöfn laun og gera þvi nær ókleift að flytja í eigið húsnæði þar sem einnig verður að taka lán sem ekki eru undanþegin vaxtagjöldunum og því verði greiðslubyrði fyrsta ársins of þung. Auk þess verði erfiðara að hefja eigin atvinnurekstur þar sem ýmsir kostnaðarliðir auk rekstrartaps séu háðir lántökum sem ekki séu undan- þegnir vaxtagjöldum. Almenn óánægja Kartöflukúrinn hefur valdið mik- illi óánægju hjá ýmsum samtökum og félögum launafólks. Má þar nefna bændur, iðnaðarmenn, skipasmiði og skipafélög, banka, bílafyrirtæki og svo mætti lengi telja. Þykir lánsbyrði bænda til dæmis nóg fyrir og ekki viðbætandi. Bankar benda á erfiðari skilyrði til að byggja við og bæta og nauð- synlegt sé að greina á milli gamalla og nýrra lána. Bilaumboð telja aðgerðimar koma mörgum á kaldan klaka og tala um sjö til átta prósent minni bílakaup almennings. Hjá stórverslunum og verslunum með heimilistæki var fljótt vart við sölulækkun og virtist fólk hika við að festa kaup á stærri og dýrari hlutum. Takmörkuð áhr'rf? Hagfræðingar ríkisstjómarinnar segja að kartöflukúrinn muni ekki bæta greiðsluhallann við útlönd um nema fimm milljarða danskra króna. Er reiknað með að hann fari úr rúm- um þrjátíu milljörðum niður í tuttugu og tvo milljarða árið 1987 og orsakist það aðallega af lágvaxta- tímabili sem nú sé að hefjast í dönsku atvinnulífi eftir þriggja ára metvöxt. Á næsta ári spá hagfræðingamir efnahagslegum hagvexti og sökum áhrifa kartöflukúrsins minnkimar á eftirspum á heimamarkaði er nema muni að minnsta kosti hálfu pró- senti. Mun innflutningur minnka um tvö prósent eftir sex til átta prósenta hækkun á síðustu tveim árum. Auk þess spá þeir að atvinnuleysi muni aukast eitthvað. Bein áhrif efriahagsaðgerða ríkis- stjómar Schlúters á neyslu almenn- ings yrðu margvísleg. Hafa endurskoðendur bent á takmörkun aðgerða sem þessara þar sem ekki sé hægt að líta á almenning sem litla bókhaldara eða hagfræðinga er bregðist strax við breyttum forsend- um í efnahagslífinu. Til þess séu áhrifin of lengi að koma í ljós, auk þess sem fólk hugsar meira um að fá endana til að ná saman hér og nú. Schlúter hefur sagt að hann telji áhrif eftiahagsaðgerðanna aðallega sálfræðilegs eðlis og muni hafa áhrif til lengri tíma í þá átt að spamaður aukist og frekar sé greitt út i hönd í stað þess að lána. Erfiðleikar framundan Með efnahagsaðgerðum þessum, þeim þriðju á einu ári, sem bitnað hafa að einhveiju leyti á kaupgetu almennings, hefúr ríkisstjómin hafið lokakafla þessa kjörtímabils, þar sem kosningar verða í síðasta lagi í/ janúar árið 1988. ; Verður því vart um fleiri efnahags- aðgerðir að ræða af hendi ríkis- stjómar Schlúters í þessum dúr. Schlúter hefur setið lengur í for- sætisráðherrastóli en nokkur borg- aralegur forsætisráðherra í Danmörku á þessari öld og aldrei hefur fjögurra flokka ríkisstjórn haldið velli lengur en í fjögur ár. í raun hefur ríkisstjóm íhaldsflokks- ins gengið ótrúlega vel, mun betur en talsmenn hennar höfðu nokkm sinni þorað að vona. Því em sumir í herbúðum stjómarflokkanna á því máli að efnahagsaðgerðir þessar hefðu átt að verða harðari og mark- vissari sVo að árangur þeirra sæist fyrir kosningamar næsta vetur. Schlúter kallar aðgerðimar ekkert annað en lagfæringu í efhahagsmál- Um. Óánægja almennings vex ef árang- ur aðgerðanna lætur á sér standa. Nýleg skoðanakönnun, er birtist í Berlingske Tidende, sýndi fram á að kjósendur hafa ekki trú á að aðgerð- imar minnki eitthvað greiðsluhall- ann við útlönd. Þannig töldu 58 prósent aðspurðra, þar af 38 prósent borgaralegra kjósenda, að aðgerð- jmar væm gagnslausar. Loks taldi yfir helmingur að- spurðra að rangt hefði verið að samþykkja aðgerðimar. Hefur basl ríkisstjórnarinnar með greiðslujöfhuðinn við útlönd eytt töluverðu af alþekktri bjartsýni for- sætisráðherrans og langlundargeði kjósenda. Fréttaskýrendur spá því að á komandi misserum muni ríkis- stjómin lenda í ýmsum erfiðum verkefnum. Utgjöldum ríkisins verð- ur að halda niðri og er erfitt að sannfæra ýmsa samstarfsaðila innan ríkisstjómarinnar um réttmæti þess. Kröfur um umbætur í þjónustu og félagsmálum em háværar, en skoð- anakannanir benda til að efnahags- leg viðreisn sé ekki efst á lista kjósenda. Gagnstætt þeim kröfúm verður ríkisstjómin að takmarka útgjöld til fjármögnunar iðnþróun- arstefriu er ýta á undir útflutning og almenna tækniþróun í landinu. Óttast margir í dönskum hátækni- iðnaði að Danir verði á eftir öðrum þjóðum ef ekki verður lögð áhersla á þá hlið efnahagslífsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.